Morgunblaðið - 22.04.1967, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1967.
23
þúfnaklasi. >á voru ekki dráttar
vélar og jarðvinnslutæki komin
til sögunnar, og varð því að
grípa til ristuspaðans. Þúíurnar
hurfu og túnið stækkaði, og eftir
að vélarnar komu voru stærri
verkefni tekin fyrir, flæðiengj-
arnar allar tætti hann og slétt-
aði Og nú á síðari árum þá
þrengjast fór um hagstætt rækt-
unarland réðust þeir feðgar á
melana og gerðu stóran hluta
þeirra að grónu túni.
Vinnudagur Þorsteins var oft
langur og eigi ætíð bundinn við
klukkuna, enda var iðjusemi
hans viðbrugðið. Þá var Þor-
steinn orðlagður heyskaparmað-
ur og verkdrjúigur.
Þorsteinn endurbætti allan
húsakost í Efra-Hreppi eftir því
sem efni leyfðu, og nú eru þar
öll hús uppbyggð úr varanlegu
efni og íbúðarhúsið mjög snyrti
legt og nýtízkulegt.
Þorsteinn var mjög hagur og
smíðaði mikið í bú sitt einkum
•á fyrri árum, þá menn urðu
mikið að búa að sínu í stað þess
að nú er flesta hluti að fá úr
kaupstaðnum. Hann var t.d. með
fyrstu bændum um sínar slóðir
er leiddi rennandi vatn bæði í
bæ og gripahús.
Þorsteinn átti notadrjúgt bú
alla sína búskapartíð. Hann fór
einkar vel með allar skepnur
enda sérstakur dýravinur.
Þorsteinn var góðum gáfum
gæddur þó 'hann kysi ekki að
hasla sér völl í félagsmálastarf-
semi. Ástvinir og heimili áttu
hug hans allan og nutu krafta
hans heilla og óskiptra. Hann var
einstaklega dagfarsprúður,
lumaði á notalegri kímni og
græskulausu gamni. 1 góðra
vina hópi var hann glaður og
ræðinn. Þorsteinn var háttvís í
framkomu en jafnframt viðmóts
þýður. Hann kunni líka vel að
taka á móti gestum, enda var
heimili hans gestrisið.
í viðskiptum var Þorsteinn
traustur maður og í engu mátti
1 hektari lands
í landi Úlfarfells í Mosfellssveit er til sölu.
10 til 15 mínútna akstur úr bænum.
SIGURGEIR SIGURJÓNSSON
hæstaréttarlögmaður
Óðinsgötu 4 — Sími 1-10-43.
hann vamm sitt vita. Um hann
má með sanni segja hin frægu
orð Kolskeggs: Hvorki mun ég á
þessu níðast né neinu öðru er
mér var tiltrúað. Slíkir menn
eru traustir hlekkir í byggingu
okkar litla þjóðfélags.
Öldruðum manni er hvíldin
góð, að loknu löngu og affara-mætan mann. Það er huggua
sælu dagsverki. Á ströndinni
handan við 'móðuna miklu geng-
ur hann nú inn í dýrð hins eilífa
sumars.
f hugum samferðamannanna
og hjörtum ástvinanna geymist
minningm um góðan dreng og
harmi gegn.
Ég sendi eftirlifandi eigin-
konu, börnum, systkinum og öðr-
um ættingjum mínar innilegustu
samúðarkveð j ur.
Blessuð sé minning hans.
Ármann Kr. Einarsson.
GROÐURHUSIÐ
Blómstrandi pottaplöntur á 95 krónur.
Fermingarblóm, sendum um alla borgina.
Næg bílastæði.
Vil kaupa
gott steinhús í Reykjavík, sem næst gamla Mið-
bænum. Tilboð merkt: „Vor 1967 — 2186“ sendist
agfr. Mbl. fyrir þriðjudagskvöld.
Eftirlitsmaður
við veiðiár
Eftirlitsmann vantar við veiðiár í Húnavatnssýslum
í suraar, — Upplýsingar gefur
GUÐMUNDUR Jónasson
Ási í Vatnsdal.
Bifreiðaeigendur
Eftir 3ja ára undirbúning og athuganir í
Bandaríkjunum opnum við í dag vara-
hlutaþjónustu — þá beztu sem völ er á.
Sérgrein okkar er:
VARAHLUTIR í AMERÍSKA BÍLA
Mótorar
Gírkassar
Drif
Boddýhlutar
Rúður
í allar árgerðir 1957 — 1967.
Sérfræðingur okkar í New York mun
sjálfur sjá um innkaupin.
Leitið nánari upplýsinga.
Reynið viðskiptin.
VARAHLUTAMIÐSTÖÐIN sf.
Laugavegi 116 — Sími 14595.
Reynið nýju
RALEIGH
filter sígarettuna»