Morgunblaðið - 22.04.1967, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1967.
31
i Frá flugslysinu á Kýpur. Björ
i hluti flugvélarinnar, en þar va
gunarmenn bera burt Iík eins fa rþegans. f baksýn er afstasti
r fólkið, sem komst lífs af. — Sí mamynd frá AP.
á við stérsEysi á
rezStB
Mansiton, Bretlandi,
21. apríl. NTB-AP.
STÓR brezk farþegaflugvél
af gerðinni Britannia varð að
nauðlenda á kvoðuborinni
flugbraut á Manstön-flugvelli
í SA-Englandi í gær, eftir að
bilun hafði orðið í hjóla-
útbúnaði flugvélarinnar
skömmu eftir flugtak. Flug-
vélin var á leið til Ástralíu
með mikinn fjölda eldflauga-
sérfræðinga.
Skömmu eftir flugtak tilkynnti
flugmaður vélarinnar, að bilun
hefði orðið í hjólaútbúnaðinum
og væri hvorki hægt að draga
þau upp né læsa þeim í lend-
ingarstöðu. Neyðarástandi var
Fimmta mesta fl ugslys sðgunnar
128 íórnsl með svksneskri lelguflugvéð á ICýpur í fyrradag
Nikósíu, Kýpur 21. apríl
NTB-AP.
LEIGUFLUGVÉL frá svissnesika
flugfélaginu Glo'be Air af gerð-
inni Britannia hrapaði til jarð-
ar við flugvöllin í Nikósíu á
Kýpur á fimmtudag, skömmu
áður, en hún átti að lenda þar
og fórust 128 farþegar og flug-
liðar, en tveir komust lífs af,
svissneskur farþegi og svissnesk
flugfreyja, en hún er lifshættu-
lega slösuð. Er þetta 5. mesta
flugslys sögunnar. Sjónarvottar
að slysinu segja, að svo hafi
virzt. sem eldingu slægi niður
í vélina, er hún var að koma
inn til lendingar og steyptist
hún þegar til jarðar. Mikið
þrumuveður var á þessum slóð-
um. Farþegarnir sem voru 120
voru að koma úr leyfi frá Aust-
urlöndum. 10 manna áihöfn var
á vélinni.
Þegar eftir slysið fóru slökk-
viliðs- og sjúkrabifreiðir frá
brezkum herflugvelli í nágrenn-
inu á staðinn, en svartamyrkur
var yfir, en þyrilvængjur lýstu
slysstaðinn upp með ljósköstur-
um. Sjónarvottar, sem á staðinn
komu segja að þar hafi verið
hörmulegt um að lítast. Brak úr
vélinni og lík hinna látnu voru
dreifð um stórt svæði. Aftasti
hluti flugvélarinnar var það
eina sem heillegt var og þar
fundu björgunarmenn 3 farþega
og eina flugfreyju með lífs-
marki. Voru þau þegar flutt í
sjúkrahús, en þar létust tveir
farþeganna, kona og karlmaður
skömmu síðar. Flugfreyjan er
enn í lífshættu, en 3. farþeginn,
svissneskur maður er sagður
lítið slasaður, en læknar hafa
enn ekki leyft að tala við hann.
Flugvélin var á leið frá Bom-
bey í Indlandi til Kaíró, en flug-
maður neitaði að lenda í Kaíró
er flugturninn þar sagði honum
að skýjahæðin væri undir 2000
metrum. Ákvað hann þá að
halda áfram til Nikósíu. Var
þetta eina flugvélin af 19, sem
var að koma til Kaíró. sem hvarf
frá lendingu, hinar 18 lentu all-
ar á Kaíróflugvelli.
Flugvallarstarfsmaður í Níkó-
síu, sem varð sjónarvottur að
slysinu sagðist hafa fylgst með
flugvélinni, er hún var að koma
inn til lendingar og sá hann
ljósin í farþegaklefunum, er
mikið leiftur lýsti flugvélina
upp en síðan hvarf flugvélin
sjónum hans. Stjórnskipuð nefnd
hefur hafið rannsókn á slysinu.
Dagblað í Bangkok í Indlandi
birtir í dag viðtal við þýzka
konu, sem ætlaði með flugvél-
inni, en hætti við á síðustu
stundu fyrir orð eiginmanns
síns, sem hún var að heimsæfcja.
Sagði hún blaðinu að móðir sín
og sonur, sem eru 1 Frankfurt,
viti ekki betur en hún hafi ver-
ið með flugvélinni.
Eins og fyrr segir er þetta
5. mesta flugslys sögunnar. í>að
mesta varð í New York 16. des-
ember 1960, er tvær flugvélar
rákust saman yfir Staten Island
í New York þar fórust 134 far-
þegar og flugliðar. 4. febrúar
1966 fórst Boeing 727 þota í
Tókíóflóa og með henni 133. 3.
júní 1962 fórst Boeing 707 frá
Air France við flugvöllin í Paris
og með henni 130 manns. 18.
júní 1953 fórst bandarísk her-
flugvél skammt frá Tókíó og
með henni 129 og 30. júní 1966
rákust tvær bandarískar farþega
flugvélar af gerðinni DC-7 og
Stratocruiser yfir Grand Canyon
og fórust 12i8. 5. marz 1966 fórst
svo Boeing 707 á Fujifjalli í
Japan og með henni 124.
fjöldi sfjórnmá laleið-
toga viö útför Adenmaers
Bonn, 21. apríl, AP.
HINN óvænti fjöldi stjórn-
málaleiðtoga og þjóðhöfð-
ingja, sem hyggjast vera við-
staddir greftrun dr. Adenau-
ers á þriðjudag, hefur sett v-
þýzk stjórnvöld í töluverð
vandræði, þar sem verkefni
þeirra verður að tryggja fullt
öryggi gestanna meðan á dvöl
þeirra í Bonn stendur. Tveir
þjóðhöfðingjar og tíu for-
sætisráðherrar hafa tilkynnt
komu sína.
Þjóðhöfðingjarnir tveir eru
Johnson Bandaríkjaforseti, sem
nú kemur til Evrópu í fyrsta
sinn eftir að hann varð forseti
1963, og de Gaulle forsetL Þá
koma forsætisráðherrar frá
Stóra-Bretlandi, Belgíu, Hol-
landi, Luxemborg, Ítalíu, Tyrk-
landi, íslandi, Noregi, Svíþjóð
Játar aðhafa tekið þátt í samsæri
til ðð myrða Kemiédy forseta
Manilla, Filippseyjum,
21. apríl, NTB.
LÖGREGLAN í Manilla tók
í dag fastan 24 ára gamlan
mann frá Puerto Rico, Luis
Angel Castillo að nafni, sem
að sögn lögreglunnar hefur
játað, að vera ásamt 15 mönn
um öðrum viðriðinn morðið
á Kennedy forseta haustið
1963. Lögreglan upplýsti, að
Castillo hafi gert þessa játn-
ingu undir áhrifum lyfs, sem
tryggja átti að hann skýrði
satt og rétt frá. Samskonar
lyf hefur Gárrison saksókn-
ari í New Orleans notað við
„Kennedy-réttarhöld“ sín,
sem hafa vakið heimsathygli.
Castillo á að hafa skýrt frá
því, að hann hafi fengið skipun
um að fara upp í háhýsi í Dallas,
daginn sem morðið var framið.
Þaðan átti hann að skjóta á
mann, sem mundi aka í opnum
bíl í bílalest í þessum bíl átti
einnig að, véra kona og annar
maður.
Castillo sagði ennfremur, að
annar maður hefði tekið af hon-
um skotvopnið, eftir að frétt
barst um að einhver, sem nefnd-
ur var Joe, hefði skotið viðkom-
andi í opnu bifreiðinni. Þá var
Castillo ekið til flugvallarins og
filogið, til Chicago.
Á blaðamannafundi, sem hald-
inn var í Manilla í dag, sagði
f _
Castillo, að hánn væri haldinn
minnisleysi, trúlega af völdum
lyfja, sem hann var látinn taka
inn í Bandaríkjunum. Sagði
hann, að hann hefði verið í
Ieiðslu, þegar hann tók þátt í
samsærinu.
Castillo var að því spurður
hvort hann gæti neitað eða stað-
fest, að hafa tekið þátt í sam-
særinu, sem hefði haft það að
markmiði að myrða Kennedy
forseta. Svaraði Castillo, að hann
gæti betur staðfest það en neitað
því.
Hann gat ekki munað hvort
hann hefði verið staddur í Texas.
Þá mundi hann heldur ekki
hverjir foreldrar sínir væru.
Á blaðamannafundinum var
Castillo mjög niðurdreginn og
leit aldrei upþ allan þann tíma,
sem fundurinn stóð yfir.
og Danmörku. Frá Bandaríkjun-
um kemur einnig Dean Rusk ut-
anríkisráðherra. — Óstaðfestar
heimildir herma, að Eisenhower
fyrrum Bandarikjaforseti muni
einnig verða viðstaddur jarðar-
förina.
Upplýst hefur verið, að John-
son muni nota tækifærið og
ræða við forsætisráðherra V
Þýzkalands, Kurt Kiesinger. De
Gaulle kemur til Bonn eingöngu
til að vera viðstaddur greftrún-
ina og mun snúa þegar heim til
Parísar að henni lokinni.
K3VS51
þegar lýst yfir á flugvellinum
og mikill fjöldi slökkviliðsbif-
reiða og sjúkrabifreiða kvaddur
á vettvang. Var flugmönnunum
fyrirskipað að fljúga þar til þeir
væru búnir að mestu að losna
við 30 tonn af eldsneyti; sem
vélin var með innanborðs. Þ&tta
tók um tvær klukkustundir, en
meðan dreifðu slökkviliðs-
menn þykku lagi af slökkvi-
kvoðu á flugbrautina.
Mikill viðbúnaður var er vél-
in loks kom inn til lendingar.
Er vélin snerti brautina brotnaði
hjólaútbúnaðurinn þegar í stað
og hin stóra flugvél sökk j kvoð-
una. Þannig þeyttist hún langa
vegalengd á flugbrautinni, en
rann síðan út af henni og stöðv-
aðist þar. Smávægilegur eldur
kviknaði í vélinni, en fljótlega
tókst að slökkva hann og kom-
ust allir farþegarnir, 64 talstns
og áhöfnin út úr vélinni heil á
húfi.
Leiðréftáng
í RÆÐU Bjarna Benedikts-
sonar, sem hann flutti í útvarps-
umræðunum á dögunum og Mbl.
birti í heild sl. fimmtudag voru
nokkrar meinlegar prentvillur.
í ræðu þessari benti forsætisráð-
herra á, að eign landsmanna í
ýmis konar atvinnutækjum hefði
frá árslokum 1959 aukizt um enn
hærra hlutfall en sjálfur þjóðar-
auðurinn eða nokkuð yfir 50%
en ekki 40% eins og stóð i Mbl.
Þá vakti Bjarni Benediktsson
athygli á að þjóðartekjur á mann
hafa aukizt um þriðjung frá 1959
fram til 1966, en ekki frá 1949
eins og stóð í Mbl.
Eftirfarandi setningar voru
einnig brenglaðar í birtingu Mbl.
„Enda er þess einnig að geta, að
eitt af verkum viðreisnarstjórn-
arinnar er lagfæring skattalaga
svo, að af atvinnurekstri þarf
sízt að greiða hærri skatta hér en
erlendis (ekki hérlendis), áreið-
anlega þegar til alls er litið mun
lægri beina skatta hér en víðast
annars staðar“.
„Það er þess vegna
gersamlega rangt að ásaka
ríkisstjórnina fyrir, að þessir at-
vinnurekendur hafi ekki safnað
stórfé, sem þeir gætu geymt I
handraðanum til að vera betur
viðbúnir erfiðum tímum“ (ekki
„öruggum" tímum.)
„Við hinir sem ekki vildum
bíða, játuðum, að þenslan kynni
að skapa nokkra erfiðleika í bili,
en ef koma ætti í veg fyrir at-
vinnuleysi, er of seint að hefja
undirbúning stóriðju eftir að at-
vinnuleysisvofan væri komin á
kreik“.
Nokkrar aðrar préntvil'lur
voru í nefndri ræðu og biður
blaðið velvirðingar á þeim.
NORÐAUSTAN gola eða hæg
viðri var hér á landi í gær.
Um nónbilið gekk á með élj-
um í Skaftafellssýslu og á
Hornströndum, en í öðvum
landshlutum var úrkomu’aust
og víða léttskýjað. Frost var
allt að 3 stig súnnan lands. en
4-7 stig fyrir norðan. Á Hvera
völlum var 10 stiga frost.
Hæðin við Suður-Græn-
land var á hreyfingu A eftir,
og má því búast við austlægri
átt í dag, sennilega bjart veð-
ur vestan* lands og minni
kuldi i lofti.