Morgunblaðið - 29.04.1967, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.04.1967, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 54. árg. — 95. tbl. LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1967 Prentsmiðja Morgunblaðsins Saigon, Wasíhmgbon og Tókíó, 2®. april — AP-NTB VIET CONG-hreyfingin gaf her- mönnum sínum í dag fyrirskip- un um aS hætta öllum heruaðar- aSgerðum í 48 klukkustundir í tilefni afmælisins Búddha ?3. maí n.k. Áður hafði sti irnin í Saigon boðað 24 klst. vopnah e, en í tilkynningu Viet Cong seg- ir, að tilboð Saigonstjórnir sé smánartilboð, sem miði aðeins að því að breiða yfir ofbeldis- og árásaraðgerðii S-Vietnam og bandamanna þeirra og slá ryki í augun á Búddhatrúarmönninn. Stjórnin í Saigon lagði í dag bann við öllum samkomum og hópgöngum í S-Vietnam á há- tíðisdegi verkalýðsins 1. maí. Stjórnmálafréttaritarar í Saigon segja að ráðstafanir þessar kunni að valda óeirðum 1. maí. Stórskotalið N-Vietnam skaut í nótt 1100 sprengikúlum á bæki stöðvar bandaríska stórskoialið.,- ins sunnan við hlutlausa beiað á landamærunum. Er þetta mesta skothríð, sem bandamenn hafa orðið fyrir. Talsmað-jr bandarísku herstjórnar nna sagði að tveir Bandaríkjamenn hefðu fallið í skothríðinni og særst. Það er í þessari bækistöð, sem risafallbyssur Bandarfkja- manna eru staðsettir. Annars staðar í S-Vietnam felldu skæru liðar 10 Bandaríkjamenn og særðu 178. 1 suðurhluta S-Viet,- nam féllu 62 skæruliðar skot- hríð frá bandarískum 'herskip- um. Bandarískar sprengjuflug- vélar gerðu hörðustu árásir til þessa á skotmörk í úfchverfi Hanoi í gærdag. Beatrix og syn- inum líður vel Hollenzka þjóðin tekur von Amsberg í satt Her sjast nokkrir þeirra leiðtoga, sem mættu við útför Adenauers fyrrum kanzlara Vestur Þýzkalands, fyrr í vikunni. Bjarni Benediktsson, forsætisr áðherra, er í aftari röð til vinstri en fremst á myndinni eru þeir Charles De Gaulle, Frakklandsforseti, Heinrich Lubke, forseti Vestur-Þýzkalands og Lyndon B. Johnson, forseti Banda ríkjanna. Hægra megin við Bjarna Benediktsson er Sul^yman Demirel, forsætisráðherra Tyrklands. Fyrir ofan Johnson standa þeir Harold Macmillan, fyrrum forsætisráðherra Bretlands oy Nobusuke Kishi, fyrrum for- sætisráðherra Japans. 1 dönskum blöðum er frá því sagt að myndin hafi verlð tekin rétt eftir að Luhke sagði ▼ið hina forsetana tvo: „Takist þið nú í hendur“. Þegar þeir svo hikuðu báðir, tók Lúbke hendur þeirra og lagði þær hvora í aðra. Haag og Utrecht, 28. apríl. — (AP-NTB) — CLAUS von Amsberg, Hollands- prins, eiginmaður Beatrix krón- prinsessu Hollands, kom í dag fram í útvarpi og sjónvarpi til að skýra landsmönnum frá þvi að kona hans og sonur, sem fæddist í gær, væru við góða heilsu. Er nýi prinsinn fyrsti drengurinn í konungsf jölskyldu Hollands í 116 ár, og var mikið um fagnað- arlæti í Hollandi í gær og í nótt í tilefni fæðingarinnar. Veitinga- húsum var haldið opnum til kl. fjögur i morgun, og voru þau flest þétt setin allan timann. Gafst Hollendingum þar tæki- færi til að lyfta glösum og skála fyrir unga prinsinum. Talið er í Haag að prinsinn nýi IMattúruhðmfarir í Sovétríkjunum Moskvu, 28. aprfl. — NTB TASS fréttastofan í Moskvu Fréttamönnum leyft að hitta Papandreou ingi innan þess og stefnt þvi á barm stjórnmálalegrar glötunar. Lauk heimsókninni snögglega er Papandreou hrækti framan í son sinn. muni leiða til bættrar sambúðar koniungsfjöiskyldunnar og þjóð- arinnar. Nokkurs ágreinings hef ur gætt að undanförrau, og þá ekki sízt þegar Beatrix krón- prinsessa og ríkisarfi giftist Þjóðverjanum Claus von Ams- berg, er eitt sinn gegndi her- þjónustu í hersveitum Hitlers. f dag virðist þjóðin hinsvegar hafa tekið von Amsberg í sátt. Prins hefur ekki fæðst 1 Hol- landi síðan 1851. Vilhjólmur III. ríkti í Hollandi 1849—1890 og eignaðist hann tvo syni og eina dóttur, Vilhelmínu, sem tók við völdum að föðurnum látnum. Synirnir tveir, Maurits Alexand- er og Alexander, létust 1850 og 1884, en Vilhelmína fæddist ár- ið 1880. Eina barn Vilhelmínu var Júlíana, sem tók við þegar móðir hennar dró sig í hlé 1948. Eignaðist Júlíana fjórar dætur, og er Beatrix elzt. Framh. á bls. 31 íhnldsmenn vinnn enn n Banna útifundi í Saigon 7. maí skýrði frá því í dag, að gíf- urleg flóð og skriðuföll hefðu fallið niður í bæinn Asdisjan í Usbekistan í Sovétríkjun- um sl. nótt, er íbúar bæjar- ins voru í fastasvefni. 170.000 íbúar eru í bænum, en Tass gat ekkert um hve margir hefðu farizt, sagði aðeins að manntjón hefði orðið. Frétt- ir af náttúruhamförunum voru mjög óljósar, vegna sambandsleysis, en vitað var að heilir bæjarhlutar voru undir 3—4 metra djúpu vatni. Víðtækar björgunarráðstafan ir höfðu verið gerðar. Aþenu, Moskvu, Róm og Istamibul, 28. apríl — NTB-AP ERLENDUM blaðamönnum var í dag leyft að hitta Georg Papan dreou, fyrrv. forsætisráðherra, að máli á herforingjasjúkrahús- inu í útjaðri Aþenu, þar sem hann hefur dvalizt síðan hann var handtekinn í upphafi bylting arinnar í fyrri viku. Hermenn með alvæpni gættu Papandreous og fylgdust með öllum spurning- um, sem fyrir hann voru lagð- ar. Bönnuðu hermennirnir frétta mönnum að spyrja spurninga stjórnmálalegs eðlis. Sögðu fréttamenn, að Papandreou, sem nú er 81 árs að aldri, hefði vcr- ið mjög þreytulegur, en hann varð fyrir hjartaáfalli er hann var handtekinn. Papandreou var mjög viagiarn iegur í viðmóti við fréttamenn- ina, en þeir sögðu að augljóst hefði verið, að hann hefði feng- ið fyrirmæli um hvað h»nn ætti að segja varðandi heilsu sína og aðbúnað, fregnir höfða borizt um að hann sætti mjög il ri með ferð og væri nær dauða en lífi. Sagði hann fréttamön íum að mjög vel væri farið með sig, læknarnir væru duglegir og enn- fremur að öryggi hans væri vel tryggt. Meira fék'fc hann ekki að segja þar eð hermennirnir bundu enda á fundinn. Heimildir í Aþenu her.na að Andrease Papanderou hafi feng- ið leyfi til að heimsækja föður sinn sl. miðvikudag. Andreasi hef ur sem kunnugt er, verið stefnt fyrir rétt í sambandi við Aspida- málið. Fundur þeirra feðga varð mjög stormasamur, er faðirinn sakaði soninn um að hann sem foringi vinstriarms Miðflokka- sambandsins, hefði valdið kiofn- Júgóslavneska fréttastofan Tanjug flutti í gær fregn um að herdómstóll í Aþenu hefði dæmt kommúnistaforingjann Manolis Glezos til dauða. Fregn þessi kom af stað miklu fjaðra- fo'ki í Moskvu, en Glezos het'ur fengið friðarverðlaun Lenins. Moskvuútvarpið rauf útsending- ar sínar, þegar er þev i fré.'. barst og skoraði á grísku þjóðina og alla heimsbygg unj að koma i veg fyrir aftökuna. Var áskor- unin margendurtekin á mörgum tungumálum. Gromyko, utanrík- isráðherra Sovétríkjanna, kallaði gríska sendiherrann í Moskvu á sinn fund og sagði honum að sér- hver ógnun við líf Glezos, myndi vekja mikla reiði í Sovétríkjun- um og öllum lýðræðislöndum. Frétt þessi reyndist þó ekki vera á rökum reist og síðdegis í dag Framh. á bls. 31 Brierley Hill, Englandi, 28. apríl (AP). ÍHALDSFLOKKURINN hrezki vann enn einn kosningasigur í aukakosningum til Neðri mál- stofunnar, sem fram fóru í Brier Iey HiII í Staffordshire í gær. Kjörinn var Fergus Montgomery, frambjóðandi íhaldsflokksins, með rúmlega 10 þúsund at- kvæða meirihluta. Við kosning- arnar í fyrra hlaut frambjóð- andi íhaldsflokksins, sem nú er látinn, 1.500 atkvæða meirihluta. Undanfarna tvo mánuði hefur Ihaldsflokkurinn, undir forustu Edwards Heaths, unnið hvern kosningaisigurinn á fætur öðrum, og er þess skemmst að minnast, að fyrr í þessum mónuði hlauit flokkurinn yfir 80% fulltrúa í borgarstjórn London eftir að Verkamannaflokkurinn hafði farið þar með stjórn í 33 ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.