Morgunblaðið - 06.05.1967, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1967.
JÓN Kjartansson ex, ex Sig-
urey EA, ex Þorsteinn Þorska
bítur, SH Jörundur er kom
nýlega til Reykjavíkur írá
Noregi, þar sem gerðar voru
ýmsar endurbætur á skipinu
öllu og það vandlega yfirfarið.
Sem kunnugt er keypti hluta-
félagið Grímur hf í Grímsey
skipið af ríkissjóði um ára-
mótin 1905/66 og lét breyta
því í síldveiðiskip. Voru þá
m. a. settir í skipið tvær hlið-
arskrúfur, kraftblökk og ann-
að er síldveiðum tilheyrir. SI.
haust festi svo Þorsteinn
Gíslason skipstjóri kaup á
skipinu ásamt öðrum aðilum
á Eskifirði. Var ákveðið að
gera enn endurbætur á skip-
inu, skv. fenginni reynslu á
sumarsíldveiðunum. H e lz t u
breytingar voru að stýrið á
skipið var stækkað til þess að Jón Kjartansson.
/
miklu breytingar nam 3 millj.
ísl kr., og er skipið nú sem
nýtt hvar sem litið er á það.
Við tókum eftir því, að ver-
ið var að setja toggálga og
botnvörpu utn borð í skipið,
og skipsmenn sögðu okkur að
ákveðið hefði verið að gera
skipið út á botnvörpu þar til
síldveiðar hefjast 1. júní.
Einnig verður þorsknótin um
borð. Er hér um algera nýjung
að ræða, að skip sé bæði búið
til nótaveiða og togveiða.
Þorsteinn Gíslason mun fara
með skipinu fyrstu ferðina,
en fyrsti stýrimaður á Jóni
Kjartanssyni er Alfreð Finn-
bogason, sem er þaulvanur
togaraskipstjóri. Margir sjó-
menn voru staddir um borð
í Jóni í gær og er við spurð-
um hevrnig þeim litist á,
sögðu þeir að þetta væri það
eina, sem hægt væri að gera
í þessari andskotans ördeyðu.
Þar að auki væru togararnir
að fá hörkuafla á heimamið-
um.
Brúin á Jóni Kjartanssyni er glæsilega búin fullkomnustu tækjum. Fxskileitarratsjain er
við næst aftasta gluggann.
Unnið er af kappi við að búa skipið a veiðar. Ljósm. Sv. Þ.
borðum, og er þetta eins og
um borð í fullkomnu far-
þegaskipi. Þá var settur 25
lesta ballesttankur fram i
skipið. Kostnaður við þessar
Er við fórum frá borði
heyrðum við gamlan sjómann
tauta í barm sér: „Þetta kallar
maður nú að hafa' bein í nef-
inu“.
Litið um borð í Jón Kjartansson, sem gerður verð-
ur út á togveiðar þar til sumarsíldveiðar hefjast.
Fyrsta skipið, sem búið er fiskileitarratsjá.
fiskiskip íslendinga og bezt
búið siglinga- og fiskileitar-
tækjum.
Síldardæla af fulikomnustu
gerð var sett í skipið, ný rat-
sjá af Atlas-gerð, ný og full-
komin miðunarstöð, sjálfstýr-
ing, ný innrétting í allan
stjórnpallinn, mannaíbúðir all
ar klæddar með harðplasti og
einum hásetaklefa bætt við,
þannig að öll áhöfnin býr nú
afturí, eldhúsinnrétting öli
endurnýjuð og síðast en ekki
sízt innréttuð setustofa aftast
1 skinu með sjónvarpi, út-
varpi, legubekk og tveimur
það yrði fljótara í snúningum.
Þá var sett í skipið nýjasta
síldarleitartækið frá Simrad,
sem án efa á eftir að vekja
mikla athygli meðal sjómanna
hér. Nýjungin í þessu tæki er
fólgin í því, að neðansjávar-
ratsjá er í sambandi við það,
þannig að þegar sér torfu
koma inn á asdicið, stillir
hann ratsjána eftir fjarlægð-
inni og getur þá séð hve stór
torfan er. Einnig er 45 gráðu
skásjá í asdicinu. Skipstjóri,
sem staddur var um borð í
Jóni Kjartanssyni í gær, sagði
við blaðamann Mbl. að það
væri auðvelt að leggja að
bryggju eftir ratsjá og því
ætti að vera jafn auðvelt að
leggja að fiskitorfu eftir rat-
sjá. Hann sagði einnig að
Jón Kjartansson væri nú
langstærsta og glæsilegasta
Vil taka á leigu
c.a. 5 herbergja íbúð nú þegar.
ÓLAFUR E. EINARSSON
Frakkastíg 13, Reykjavík — Sími 10590.
Aðalfundur
Fasteignalánafélags Samvinnumanna verður hald-
inn á Hótel Sögu föstudaginn 2. júní 1967 að lokn-
um aðaifundi Samvinnutrygginga og Líftrygginga-
félagsins Andvöku.
D a g s k t á :
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
titvarpsstjórar Norð-
urlanda á fundi hér
FUNDUR útvarpsstjóra Norð-
urlandanna hófst í Reykjavík í
gærmorgun og lýkur í kvöld.
Slíkir fundir eru haldnir reglu-
lega og er þetta sá þriðji á und-
anförnum sex mánuðum. Vil-
hjálmur Þ. Gíslason sagði m. a.,
að rætt hefði verið um ýmis
sameiginleg hagsmunamál sjón-
varps og útvarps á Norðurlönd-
um en útvarpsstjóramir eru
einnig allir stjómendur sjón-
varps.
Einnig var fjallað um afstöðu
Norðurlandanna til Evrópusam-
bandsins, sjónvarps um gerfi-
hnetti og ýmis lögfræðileg atriði
í því sambandi. fsland er nú
formlega orðið aðili að Nord-
vision og verður fundur 1 sam-
bandinu hinn 22 þessa mánaðar,
í Reykjavík. Skýrt var frá því,
að fyrir nokkru væri hafinn und-
irbúningur að litasjónvarpi á
Norðurlöndum, en ekki enn hægt
að segja nákvæmlega til um
hvenær það kæmist á, heldur
ekki hvaða land yrði fyrst með
það. Rætt var um skipti á dag-
skrám og sagði Vilhjálmur, að
hér eftir fengju Islendingar að
sjá og heyra meira norrænt efni
en áður.
Aðspurðir sögðu útvarpsstjór-
arnir, að sjónvarpið myndi ekki
ryðja útvarpinu úr vegi. Það
hefði þegar komið í ljós, að eftir
að nýjabrumið væri farið af
sjónvarpinu, hlustaði fólk meira
og meira á útvarp.
Hraunprýðis-
konur:
HRAUNPRÝÐI, kvennadeild
Slysavarnafélagsinst í Hafnar-
firði, mun að venju efna til kaffi
sölu á lokadaginn, 11. maí næst-
komandi, og verður hún í Al-
þýðuhúsinu og Sjálfstæðishúsinu
við Strandgötu.
Kvennadeildin biður félags-
konur að baka kökur fyrir félag
sitt og eins þær, sem gætu unnið
þennan dag, að láta skrá sig 1
síma 50571 og 50525.