Morgunblaðið - 06.05.1967, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1967.
23
íþróttamótum með góðum
árangri.
Áhugi Bjarna beindist einnig
mjög að almennum málum sveit
ar sinnar og héraðs svo og þjóð-
málum. Átti hann um langt
skeið sæti í sveitarstjórn Stokks-
eyrarhrepps og fræðslunefnd,
auk fleiri trúnaðarstarfa er hon-
um voru falin. Var hann alls-
staðar þar sem hann kom við
sögu traustur og ráðhollur.
Hann fylgdist með þróun allra
framfaramála sveitar sinnar af
lifandi áhuga og það ekki síður
á efri árum er hann sjálfur hafði
látið af beinni þátttöku í sveitar
málum.
Bjarni Júníusson var eins og
fyrr segir mikill áhugamaður
um þjóðmál. Gekk hann undir
merki Sjálfstæðisflokksins strax
við stofnun hans og fylgdi hon-
um að málum æ síðan og var
trúnaður hans við þann málstað
er hann hafði valið sér, staðfast-
ur og einlægur svo af bar. Hann
beitti sér fyrir því að Sjálfstæð
ismenn á Stokkseyri mynduðu
með sér félagsskap, var formað-
ur hans mörg fyrstu árin og
mjög virkur félagsmaður alla
tíð. Þá var hann mjög lengi
starfandi í félagsskap Sjálfstæð-
ismanna í Árnessýslu og gengdi
þar trúnaðarstörfum allt til ævi-
loka.
Bjarni Júníusson var maður
víðlesinn, fróðleiksfús og minn-
ugur vel. Var hann og allra
manna bezt að sér um menn og
málefni liðins tíma í sveit sinni
enda stutt að leita heimilda þar
eð hann sjálfur, forfeður hans
og frændalið höfðu um langan
aldur verið til forystu valdir i
Stokkseyrarhreppi. Bjarni Júni-
usson var einn svipmesti maður
sinnar samtíðar í byggðarlagi
sínu Hann var hinn fyrirmann-
legsati í allri framgöngu og bar
þess augljóst ættarmót að hann
var vaxinn af sterkum stofni.
Hann var góður ræðumaður á
mannfundum og í öllum við-
ræðum skemmtilegur og fræð-
andi. Átti hann því víða vinum
og kunningjum að mæta.
Þótt hann yrði að lúta því
eins og aðrir sem ná háum aldri,
að sjá vini sína og samferða-
menn falla í valinn og hverfa
einn af öðrum yfir landamærin
miklu þangað sem hann er nú
sjálfur farinn.
Vandamönnum hins látna
skulu færðar hér hlýjar samúð-
arkveðjur.
Að lokum þakka vinir og sam-
ferðamenn hinum framliðna öðl-
ingsmanni fyrir öll þau kynni
er þeir höfðu af honum á lífs-
leiðinni. Kynni er fyrst og
fremst mótuðust af því að
Bjarni Júníusson var drenglynd-
Til sölu - lítil íbúð
Kjallaraíbúð við Goðheima. Stór og björt stofa
innri gangur og eldhús ásamt W.C. geymsla. Laus
1. október eða fyrr eftir samkomulagi. Selst milli-
liðalaust. Verð 475 þúsund. Útborgun 250 þús. kr.
Tilboð sendist blaðinu fyrir 10. þ.m. merkt: „Goð-
heimar — 0878“.
Hárgreiðslustofa
til sölu
Til sölu Hárgreiðslustofa í fullum gangi
á góðum stað.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Skip & Fasteignir
Austurstræti 18, sími 21735.
Eftir lokun 36329.
GLERVERK
tilkynnir nýtt símanúmer
82935
Hef flestar þykktir af belgísku gleri, ennfremur
hamrað gler litað og ólitað annast samsetningu á
gleri eins fljótt og því verður við komið.
GLERVERK, Hjálmholti 6
(innan við Sjómannaskólann)
Steingrímur Þorsteinsson.
*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦$►
••••••••••••••••^••«
BLAÐBURÐARFOLK
ÓSKAST
Bogahlíð Vesturgata I Miðbær
Aðalstræti Lambastaðahverfi
Talið við afgreiðsluna sími 22480
ur heiðursmaður er ekki mátti
vamm sitt vita í neinu og bar í
hverju máli hreinan skjöld.
Helgi Ivarsson.
t
í DAG verður jarðsunginn frá
Stokkseyrarkirkju Bjarni Júní-
usson frá Syðra-Seli á Stokks-
eyri.
Það er harmur í hjarta, sökn-
uður yfir látnum vini, trúum
vini, sem ávallt bar með sér
anda drenglyndis og tryggðar,
anda gleði og friðar.
Á síðustu árum Bjarna áttum
við saman langar og uppbyggi-
legar viðræður um trúmál. Ég
minnist sérstaklega jóladags-
morguns fyrir rúmu ári. Við
fórum samari til guðsþjónustu í
Skálholti. Dagurinn leið þá
fljótt .Vegurinn austur yfir
Fjall var stuttur. Við ræddum
á leiðinni um Pál postula og
bréfin hans. Við ræddum um
síra Hallgrím. Mér hefur ef til
vill orðið það ljósara þá en
nokkru sinni, að trúarlíf krist-
inna manna er öllu öðru fremur
bænalíf. í bæninni er sjálf upp-
sprettan að leyndardómi trúar-
innar, farvegur andans til vor,
„lykillinn að Drottins náð“. Og
Bjarni trúði á mátt bænarinnar.
því að hann hafði.reynt hann,
hafði fundið anda frelsarans um-
Vefja sig í bæninni, hafði fund-
ið yl handar Guðs. Það var sá
ylur, sem gaf honum friðinn, er
yfir honum hvíldi, jafnt í gleði
og sorg.
Þeir sáust lika skýrt f !ífi
Bjarna ávextir andans, þeir
sömu og Páll nefnir í bréfi sínu
til Galatamanna: „kærleiki,
gleði, friður, langlyndi, gæzka,
góðvild, trúmennska, hógværð,
bindindi". Á banasænginni vissi
hann að hverju stefndi og hann
skrifaði systur sinni: „Ég er ró-
legur“.
Guði séu þakkir fyrir slíkan
mann. Það skal vera erindi þess-
ara fátæklega orða til allra ætt-
ingja hans og vina. Guði skal
þakkað fyrir sli'kan samferða-
mann, og við útför hans skal
þess beðið frá kirkjunni, sem
hann sótti reglulega, að ættjörð
in hans hjartfólgna megi eign-
ast anda Guðs, friðinn, sem yf-
ir banasæng Bjarna hvíldi, frið-
inn frá Guði, sem „æðri er öll-
um skilningi“, því að sá friður er
forsmekkur dýrðarinnar, hlut-
deild í eilífa lífinu með Drottni
Jesú Kristi.
Guðjón Guðjónsson.
Verziunarhúsnæöi í Árbæjar-
hverfi til leigu
Höfum til leigu húsnæði fyrir verzlanir og þjón-
ustufyrirtæki í nýrri, glæsilegri verzlunarmiðstöð,
sem nú er að rísa í vesturhluta Árbæjarhverfis.
Húsnæðið er hentugt m. a. fyrir vefnaðarvöruverzl-
un, efnalaug, rakarastofu, hárgreiðslustofu, tann-
læknastofu, bóka- og ritfangaverzlun, snyrtivöru-
verzlun og blómabúð.
Blómaskreytingar
Skreyttar skálar, körfur, brúðarvendir, kransar,
krossar, kistu og kirkjuskreytingar.
símar 22822
19775.
Aðalfundur
Líftryggingafélagsins Andvöku verður haldinn á
Hótel sögu föstudaginn 2. júní 1967 kl. 2 e.h.
D a g s k r á :
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga um breytingar á samþykktum
félagsins.
STJÓRNIN,
Enskar postulínsveggflísar
Úrvalið aldrei meira en nú, yfir 30 litir.
Verð hvergi hagstæðara.
LITAVER
Grensásvegi 22 og 24. Símar 30280 og 32262.
I SIPOREX 1
LÉTTSTEYPUVEGGIR
I ALLA INNVEGGI
Fljótvirk og auðveld [
uppsetning. * •
Múrhúðun | )
óþörf.
Hátúni 4 A, Nóatúnshúsinu, sími 17533, Reykjavík.
Þeir aðilar, sem óska nánari upplýsinga, svo og þeir,
sem þegar hafa óskað eftir aðstöðu í húsinu eru
beðnir að hafa samband við skrifstofu vora sem
veitir allar nánari upplýsingar.
OflOJSS ODŒ DWOBmO
u H □ HARALDUR MAGNÚSSON Viöskiptafræöingur Tjarnargötu 16, simi 2 09 25 og 2 00 25,
vy vy vy yy vy vy vy vy vy vy