Morgunblaðið - 09.05.1967, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1967.
3
«
Frá sýningu björgunarsveitar Slysavarnadeildarinnar Ingólfs sl. sunnudag. Björgunarþyrla
VarnarliÖsins sést bjarga manni úr sjó. í bakgrunn sézt dráttarbáturinn MagnL (I.jósm. Sv.
l»orm.).
Velheppnuð björgunar-
sýning Ingólfs
Merki 8VFI seld n.k. fimmtudag
rétta átti bátinn við, ef svo illa
tækist til að, hann blésist upp á
hvolfi.
Þar sem veður var mjög hag-
stætt sýndi þyrlan TF-EIR, sem
er sameign Slysavarnafélagsins
og Landhelgisgæzlunnar „lend-
ingu“ á opnu svæði við vikina.
Hefur þessi þyrla oft .síðan hún
kom til landsins 1965- sannað
kosti sína, sem nauðsynlegt
björgunartæki.
Þriðja og síðasta atriði björg-
unarinnar var að björgunarþyrla
Varnarli'ðsins sýndi hvernig
hægt er að þjarga manni úr
sjó með því að lyfta honum upp
úr sjónum með sérstaklega út-
búinni reim frá þyrlunni. Ef sá
nauðstaddi er sjúkur og getur
ekki sjálfur bjargað sér á upp-
leiðinni er hægt að senda niður
til hans hjálpanmann, því svo
traust er reimin að hún heldur
hæglega tveim meðalmönnum.
Sýning þessi var haldin til að
minnast 2ö ára afmælis slysa-
varnadeildarinnar Ingólfs, sem
var í febrúar s.l. og þakka vel-
unnurum deildarinnar allan
stúðning og hjálp. N.k. fimmtu-
dagur 11. þm. er fjáröflunardag-
ur Slysavarnafélagsins og gefst
þá almenningi kostur á að styðja
þessa hjálparstarfsemi með því
að kaupa merki félagsins, sem
þann dag verða seld um land
allt.
Björgunarsveit Slysavarna-
ðeildarinnar Ingólfs í Reykjavík
hélt björgunarsýningu á Rauð-
arárvíkinni s.l. sunnudag. Var
veður mjög hagstætt til sýning-
arinnar fremur hlýtt og sólskin
iiUru hverju. Þúsundir Reyk-
víkinga höfðu iagt leið sína nið-
ur að Skúlagötu tii að fylgjast
með sýningunni, sem í alla staði
heppnaðist vel.
Mátti greinilega sjá, að þrátt
fyrir sólarglætuna höfðu áhorf-
endu. klætt sig og var því
aúðséð að þeir höfðu gefið gaum
þeim tilmælum Slysavarnadeild-
arinnar um að klæðast vel, því
oft er napurt niðri við Víkina,
þó hlý-tt sé inni í Borginni. Sýnd
voru notkun fluglínutækja, eins
og við á þegar um björgun manns
lífa úr sjávarháska er að ræða.
Voru menn úr Björgunarsveit-
inni dregnir í land úr dráttar-
bátnum Magna, sem lék hlut-
verk nauðstadda skipsins. Voru
hinir „nauðstöddu" menn dregn-
ir í land í björgunarstól á línu
og í gúmmbát. Skotið var úr
línubyssum, sem eru í eigu Slysa
varnafélagsins. Fylgdust áhorf-
endur með af mikilli athygli,
þegar grænt ljós bar við himin,
sem ýmist gaf til kynna að
hinir naúðstöddu höfðu fengið
Iínuna, eða þá að þeir væru til-
búnir til að láta draga sig í
land. Góðu hátalarakerfi hafði
vexið komið fyrir við Víkina
og fræddi Hannes Hafstein, er-
indreki Slysavarnafélagsins á-
horfendur um allt það sem fram
fór.
Annað atriði sýningarinnar var
sýning á méðferð og notkun
gúmmibjörgunanbáts. Var bátn-
um kastað í sjóinn frá b/b Gísla
Johnsen. Stukku nokkrir frosk-
menn í sjóinn og sýndu hvernig
S j óllstæðislólk
FÉLAGAR í Heimdalli, Verði og
Óðni, sem fengið hafa senda
happdrættismiða í Landshapp-
drætti Sjálfstæðisflokksins, eru
vinsamlega beðnir að gera skil,
sem allra fyrst, því að óðum
styttist sá tími þar til dregið
verður.
UNGT LIÐ
Framhald af bls. 30.
Valsmenn fundu ekki „takt-
inn“ í þessum leik nema aðeins
fyrst og einstaka leikkafla. Vörn
in var sundurlaus' og Halldór
ræður ekki við miðvarðarstöð-
una enn. Framverðirnir áttu slak
an dag og framherjarnir urðu
því að sækja mjög aftur en það
sleit sóknina sundur, þannig að
hún var ekki bitmikil. Mesti
munur liðanna virðist þó fólg-
inn í því að Framarar hafa ó-
endanlegt úthald. Þeir hlupu
eins létt í lokin og í byrjun og
var þó leikurinn hraður og mikil
hlaup. Þetta gátu Valsmenn
ekki.
Menn hentu að því gaman að
Framarar voru 12 á vellinum en
aðeins 10 Valsmenn. Gamanið
stafaði af því að Gunnlaugur
Hjálmarsson hinn frægi hand-
knattleiksmaður stóð í marki
Vals. Hann gerði þó sitt til að
skapa Val sigur, en er lítt sem
ekki í æfingu sem knattspyrnu-
maður og e.t.v. ekki vel gert
gagnvart kunnum görpum að ota
þeim út í leiki sem þeir ekki
hafa búið sig vel undir.
A. S*.
Clœsileg háfíðasýning
Leikfélags Akureyrar
Akureyri, 8. maí.
LEIKFÉLAG Akureyrar efndi
til stórglæsilegrar og minnis-
verðrar hátíðasýningar á sjón-
leiknum „Draumur á Jónsmessu
nótt“ eftir William Shakespeare
sl. laugardagskvöld í tilefni hálfr
ar aldar afmæli sínu.
Samkomuhús bæjarins var
smekklega skreytt íslenzku fána
litunum og merkjum Akureyrar
bæjar og leikfélagsins. Gestir
voru í hátíðaskapi og hvert sæti
skipað.
Helgi Hálfdánarson íslenzkaði
leikritið. Tónlist Mendelsohns
var leikin með af hljómflutnings
tækjum. Leikstjóri var Ragn-
hildur Steingrímsdóttir, ljósa-
menn Árni Valur Viggóson og
Vébjörn Eggertsson, leiktjalda-
málari Aðalsteinn Vestmann.
Dansa sömdu Margrét Rögnvalds
dóttir og Ragnheiður Stefáns-
dóttir, en Lilja Sigurðardóttir
dansaði sólódans. Haraldur
Adólfsson annaðist förðun ásamt
Ástu Kröyer. Búningarnir, sem
voru afar skrautlegir og smekk-
legir voru fegnir að láni frá
Englandi.
í leiknum komu fram rúm-
lega 30 manns, en með stærstu
hlutverkin fóru Páll Snorrason,
Einar Rafn Haraldsson, Marinó
Þorsteinsson, Þórey Aðalsteins-
dóttir, Guðlaug Hermannsdóttir,
Sæmundur Guðvinsson, Björg
Baldvinsdóttir og Hjördís Daní-
elsdóttir.
Að leikslokum voru leikendur
og leikstjóri hylltir með lang-
vinnu lófataki og þeim þökkuð
ein af allra glæsilegustu og
vönduðustu sýningum L. A. á
hálfrar aldar ferli þess, sýning,
sem var félaginu og öllum þeim,
sem hlut áttu að máli, til hins
mesta sóma.
Þá gekk fram formaður L. A.,
Jón Ingimarsson, ávarpaði leik-
endur og leikhúsgesti og færði
þeim, sem stutt hafa félagið fyrr
og síðar þakkir félagsstjórnar-
innar. Sérstaklega þakkaði hann
heiðursfélögunum og kallaði á
þá, sem viðstaddir voru, upp á
sviðið og færði þeim blómvendi,
þeim Svövu Jónsdóttur, Sigur-
jónu Jakobsdóttur, Þorsteini M.
Jónssyni, og Birni Sigmunds-
syni. Fimmti heiðursfélaginn,
Ágúst Kvaran, gat ekki verið
viðstaddur.
Einn þeirra fjögurra, sem enn
eru á lífi af stofnendum félags-
ins, Friðrik Júlíusson frá Barði,
var einnig kallaður upp á sviðið
og sæmdur blómum. Ættingjar
hinna tóku við blómum fyrir
þeirra hönd, en þeir Gísli R.
Magnússon, Tryggvi Jónatans-
son og Hallgrímur Sigtryggsson.
Því næst kvöddu eftirtaldir
sér hljóðs til að færa leikfélag-
inu þakkir, árnaðaróskir og
gjafir: Dr. Gylfi Þ. Gíslason,
menntamálaráðherra, Guðlaug-
ur Rósinkranz, þjóðleikhússtjóri,
Brynjólfur Jóhannesson, form.
Félags ísl. leikara, Sveinbjörn
Jónsson, framkvæmdastjóri
Bandalags ísl. leikfélaga, Stein-
dór Hjörleifsson form. Leikfé-
lags Reykjavíkur, Bjarni Einars
REYKJANESKJÖRDÆMI
í KVÖLD efna Sjálfstæðismenn
í Reykjaneskjördæmi til svæða-
fundar atvinnu’stétta í Aðalveri
í Keflavík og fjallar sá fundur
um verzlunar- og viðskiptamál.
Fundurinn hefst kl. 20.30. Á fund
inum mæta frambjóðendur Sjálf
stæðisflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi.
Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins hafa nú haldið nokkra
slíka svæðafundi atvinnustétta
og hafa þeir verið mjög vel sótt-
ir og miklar umræður hafa orð-
ið á þeim.
son, bæjarstjóri, og frú Svava
Jónsdóttir, leikkona.
Einnig bárust blómakröfur
frá tveim gömlum félögum,
Freymóði Jóhannssyni og Agnari
Magnússyni.
Loks þakkaði Jón Ingimarsson
góðar gjafir og hlýjar óskir til
félagsins.
í gærkvöldi var fjölmennt og
veglegt afmælishóf að Hótel
KEA. — Sv. P.
Kosningaskrifstofur
Kópavogur
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf-
stæðisflokksins er í Sjálfstæðis-
húsinu, Borgarholtsbraut 6,
Kópavogi. Símar 40708, 42576 og
42577. Skrifstofan er opin frá kl.
9—22. Sjálfstæðisfólk er hvatt
til þess að koma á skrifstofuna
og gefa upplýsingar varðandi
kosningarnar.
H afnarfjörður
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf-
stæðisflokksins er í Sjálfstæðis-
húsinu, Strandgötu 29. Skrifstof-
an verður opin frá kl. 9—22.
Sjálfstæðisfólk er hvatt til
þess að koma þangað og gefa
upplýsingar varðandi kosning-
arnar.
Sími skrifstofunnar er 50228.
Suðurnes
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf-
stæðisfélaganna er að Hafnar-
götu 46, Keflavík, sími 2021.
Skrifstofan er opin kl. 2—6 og
8—10 síðdegis alla daga. Sjálf-
stæðisfólk vinsamlega gefið
skrifstofunni upplýsingar varð-
andi kosningarnar. Keflvíkingar,
vinsamlega gerið skil í Lands-
happdrættinu.
Vestmannaeyjar
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf-
stæðisflokksins í Vestmannaeyj-
um er í Samkomuhúsinu, simi
1344. Afgreiðsla Landshapp
drættisins er á sama stað.
STAKSTEIIMAR
Sundrung 07 .
óánægja
Það fer ekki hjá þvi, að kjós-
endur veiti athygli þeirri miklu
sundrung og óánægju, sem ríkir
innan stjórnarandstöðuflokk-
anna. Deilurnar innan Alþýðu-
bandalagsins hafa að undan-
förnu farið fram fyrir opnum
tjöldum og hvert mannsbarn á
landinu hefur átt þess kost að
fylgjast með þeim og haft gam-
an af. Jafnframt er mönnum að
verða sífellt ljósara, að innan
Framsóknarflokksins eru ekki
síður harðar deilur, mikil sundr-
ung og almenn óánægja. 1 grund
vallaratriðum byggist óánægjan
innan Framsóknarflokksins á
þeirri staðreynd, að Eysteini
Jónssyni hefur enn ekki tekizt,
þrátt fyrir tæpan áratug, sem
formaður flokksins að skapa
Framsóknarflokknum aðstöðu í
ríkisstjórn, en Framsóknarmenn
voru orðnir því vanir að vera
aðilar að ríkisstjórn, og það hef-
ur í raun og sannleika verið
þeirra lífakkeri að misnota þá
aðstöðu, sem vera í ríkisstjórn
hefur boðið upp á. Vegna þess
að Eysteini hefur mistekizt að
koma Framsókn í stjórn hef-
ur andstaðan gegn honum
magnast á síðustu árum, bæði
innan þingflokksins og innan
Framsóknarflokksins almennt
og margir eru þeirrar skoðunar,
að Eysteini muni aldrei takast
að skapa flokknum aðstöðu til
þátttöku í ríkisstjórn og gera sér
grein fyrir því, að rödd Eysteins
er rödd hins liðna tima.
Þorsteini og Jakobi
sparkað
Sundrungin innan Framsókn-
arflokksins tekur hins vegar á
sig margvíslegar myndir og á
flokksþinginu, sem haldið var í
marz sl. gerðust m.a. þeir at-
burðir, sem vakið hafa athygli
um land allt að Framsóknarmenn
vógu að þeim tveimur megin-
stoðum, sem fram til þessa hafa
haldið þeirra flokki uppi, bænd-
um og samvinnuhreyfingunni,
með því að sparka úr 100 manna
miðstjórn flokksins, Þorsteini
Sigurðsisyni, bónda á Vatnsleysu,
formanni Búnaðarfélags íslands
og Jakobi Frímannssyni, kaup-
félagsstjóra á Akureyri, sem
jafnframt er formaður Sam-
bands íslenzkra Samvinnufélaga.
Ástæðurnar fyrir því, að Fram-
sóknarmenn spörkuðu þessum
mönnum úr hinni fjölmennu mið
stjórn sinni, eru meðal annars
þær, að þótt andstæðingum
Framsóknarflokksins finnist nóg
um misnotkun Framsóknar-
manna t.d. á samvinnuhreyfing-
unni, finnst Framsóknarmönn-
um sjálfum, að þessir tveir menn
hafi ekki verið nógu eftirlátir
þeim að misnota þau tvö fjölda-
samtök, sem þeir eru í fyrirsvari
fyrir, í þágu Framsóknarflokks-
ins. En bændur á landinu og
stuðningsmenn samvinnuhreyf-
ingarinnar hafa vissulega veitt
því eftirtekt, að ekki er lengur
rúm fyrir Þorstein á Vatns-
leysu og Jakob Frímannsson i
100 manna miðstjórn Framsókn-
arflokksins.
l
\