Morgunblaðið - 09.05.1967, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.05.1967, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUÐAGUR 9. MAÍ 1967. BÍLALEIGAN FERÐ SÍMI 34406 SENDU M MAGIVÚSAR SKIPHOLTI21 símar 21190 eftirlokun slmi 40381 * " Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. LITL A bílaieigan Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald. Bensin innifalið í leigugjaldi. Sími 14970 BÍLALEIGAINI V AKUR Sundlaugaveg 12. Sími 35:135. Eftir lokun 34936 og 36217. f-f==*Bnju£/i*Afr BAUOARARSTÍG 31 SlMI 22022 Fjaðiir. fjaðrablóð hljóðkúta? púströr o-fl varahlutir f margar gerðir bifreiða. Bilavörubúðin f’JÖÐRIN Laugavegi 168. — Simi 24180 Simi 22822 . 19775. Pottamold Blómaáburdur Einkennileg ályktun „Polymnestor“ skrifar: „Háttvirti Velvakandi! „Nú ber nýrra við“, hugsaði ég með sjálfum mér, þegar ég las í Morgunblaðinu í dag, sunnudaginn 7. maí 1967, frétta tilkynningu (óstytta) og álykt- un frá fámennu æskulýðsfélagi, cem tilheyrir einum stjórn- málaflokkanna hér (ekki Sjálf- stæðisflokknum). Ég minnist þess ekki, að nokkru sinni fyrr hafi Morgunblaðið gert póli- tískri ályktun stjórnmála- flokks, hvað þá æskulýðsfélags, jafnhátt undir höfði (Sjálf- stæðisflokkurinn og æskulýðs- félög hans hér vitanlega undan skilin). Ég held meira að segja, að ég fari með rétt mál, þegar ég slæ því fram, að Mbl. hafi fram að þessu ekki einu sinni minnzt á pólitíska ályktana- gerð ungkrata, ungkomma og ungra Framsóknarmanna, hvað þá birt ályktanir þeirra í heild og óstyttar fréttatilkynningar. Þetta er nú aukaatriði. Hitt fannst mér skrítnara, þegar sagt er frá því, að félagsskapur ungkrata hafi haldið fund til þess „að mótmæla valdaráni hers og fasista í Grikklandi“ og í ályktun er fordæmt „harð- lega valdarán það, er fasistar og gríski herinn frömdu". Ég þykist sæmilega kunnugur grískri sögu, ekki sízt seinni tíma, og vil benda hinum vísu Stúlkur óskast á hótel út á land. Upplýsingar í síma 41683. V erkstæðisf ormaður Kaupfélagið Þór vantar bifvélavirkja með meistara- réttindi nú þegar. Húsnæði fyrir hendi. Upplýsingar gefur kaupfélagsstjórinn. KAUPFÉLAGIÐ ÞÓR, Hellu. Skólagarðar Keflavíkur verða starfsrSektir í sumar fyrir börn á aldrinum 9—13 ára. Innritun fer fram í áhaldahúsi Kefla- víkurbæjar dagana 9.—12. þessa mánaðar. Garðyrkjustjóri. Austfirðingar Vel með farinn AUSTIN CHAMP jeppi með vatns- þéttum ROLLS ROYCE mótor, er til sölu og sýnis hjá vélsm. Stál h.f. Seyðisfirði. Greiðsluskilmálar. Bíll óskast Óska eftir að kaupa minni gerð af bíl, ekki eldri en árg. 1960. Greiðist með afborgunum. Tilboð með uppl. um tegund, árg. og verð sendist Mbl. fyrir 19. þ.m. merkt: „90 þús. 1975.“ ályktanahöfundum á þá stað- reynd, að seint mun gríski her- inn eiga samleið með fasistum. Gríski herinn var nefnilega fyrsti evrópski herinn, sem fasistaherdeildir Mússólínis réðust á snemma í seinustu styrjöld, (þegar nokkrar al- banskar herdeildir eru undan- skildar). Flestum ætti enn að vera í minni, hvernig ítalska fasistastjórnin sveik samninga á Grikkjum og sendi öflugan her frá Albaníu og inn í Grikk- land. Grikkir veittu frækilega vörn, eins og þeirra var von og vísa, og sneru henni að lok- um upp í sókn, svo að þeir höfðu suðurhluta Albaníu á valdi sínu, þegar Hitler neydd- ist til þess bjarga æru félaga síns, Músisólínis, og sendi naz- istasveitir sínar á vettvang, sem sneru taflinu fljótlega við. Gríski herinn var því hinn fyrsti í Evrópu, sem lenti í stríði við fasista, og það er staðreynd, að þeir herforingjar, sem nú hafa hrifsað til sín völdin í Grikklandi og brotið lýðræði þar á bak aftur ( til að koma í veg fyrir annað verra, að eigin sögn a.m.k., og um stundarsakir skulum við vona), hlutu eldskírn sína í bar áttunni við fasisma og nazisma. Þessir sömu menn voru ungir menn eða á bezta aldri, þegar fasisminn réðst til atlögu við land þeirra, og að kalla þá nú fasista eða fasistavini eða naz- istasvín, eins og hér hefur sézt og heyrzt, er álíka gáfulegt og að kalla þá kommúnista. Þegar land þeirra losnaði undan oki fasisma og nazisma f striðslok, þurftu þessir menn að verja land sitt gegn nýrri hættu: þ.e. kommúnisimanium, sem er sízt geðslegri stefna og mjög áþekk hinum tveimur um allar að- ferðir og verklag, svo sem kunnugt er. Þeir leggja nú það mat á hlutina, að land þeirra sé enn í hættu statt vegna undirróðurs kommúnista og Nasseristans Andrésar Papan- dreúsar, sem lýsti þvi yfir nokkrum dögum fyrir valda- töku herforingjanna, að ef i odda skærist, ætti hann og fylgismenn hans í hinu svo- kallaða „Miðflokkabandalagi“ vini „allt frá Albaníu til Kína.“ Okkur hér geðjast ekki að valdaráni, hver sem í hlut á, en gildk það ekki í þessu máli, eins og oftar, að spurningin var bara um það, hvor yrði fljótari til?“ Bréfið frá „Polymnestor" er lengra, en ekki verður birt meira úr því að sinni a.m.k. i ^ Rauða skikkjan og „The New York Times“ Kvikmyndin „Rauða ski'kkjan“ hefur fram að þessu ekki blotið allt of góða dóma gagnrýnenda. Nú hefur Vel- vakandi rekizt á ummæli eins þeirra, sem ekki er alltaf sér- staklega blíður á manninn. Það er Thomas Quinn Curtiss, sem skrifar í New York Tknes“ frá kviikmyndahátíðinni i Cannes. Hann segir, að nú hafi Danir sent frá sér kvikmynd um sögu frá fornöld, þegar erjur milli riddara úr helztu fjölskylduim ríkjanna virðisit hafa verið aðalstjórnmálin. Stjórnandinn, Gabriel Axel, hafi farið til Moskvu í leit að leikara, sem hafi m. a. orðið að vera snjall reiðmaður, fimur skylmingamaður, góður leik- ari, lærður í frönsku og ensku og geta lært dönsku á fjórum mánuðum. Hann hafi komið með Oleg Vidov til baka. Þá hafi Axel uppgötvað, að nú- tíma Danmörk væri ekki nokk- urn skapaðan hlut lík hinni fornu Danmörku. Því hafi hann haldið til fslands, til þess að láta taka myndina. Síðan segir gagnrýnandinn, að árangurinn hafi orðið eitt- hvað, sem kalla megi „a nort- hern“ (sbr. „a western"). Þ. e. kvikmynd úr villta norðrinu, full af grimmilegum og blóðug- um bardögum, bætt upp með ástasögu í stíl við Dekameron eftir Boccaccio. Myndin sé ekki líkleg til þess að hljóta verðlaun, en hrjúfur einfald- leiki hennar gamansemi, sem e.t.v. sé óviljandi, sé hress- andi. Arnarnes 1500 ferm. sjávarlóð við Haukanes til sölu. Tilboð óskast send afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 18. apríl, merkt: „967.“ Vörnbifreið Tilboð óskast í Thames Trader 70 diesel í góðu ásigkomulagi. Upplýsingar gefnar í síma 18707 frá kl. 9—17 virka daga. Seltjarnarneshreppur. Sumarbúðir Heimatrúboðsins Getum bætt við nokkrum telpum á aldrinum 6—10 ára til dvalar að Lækjarmóti, í Mosfellssveit. Dval- artími júní, júlí. Upplýsingar í síma 16279 frá kl. 5—7 eftir hádegi næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.