Morgunblaðið - 09.05.1967, Qupperneq 12
1 12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1967.
Sveinn Benedikfsson:
Síldarverksmiðjurnar á Norður-
og Austurlandi 1966
Síldveiðin fyrir Norðurlandi
ög Austfjörðum hófst, að þessu
sinni, fyrr en nokkurntíma áður.
Eins og árinu áður aflaðist
fyrsta síldin á m/s Jón Kjart-
ansson, skipstjóri Þorsteinn
Gíslason. Fékk skipið 160 tonn
hinn 12. maí um 160 sjómílur
SAS af Seley. Var sildin frekar
smá og mögur og talin hafa
gengið frá Færeyjasvæðinu. A
útleið í öðrum túr fékk skipið
góðan afla 80 sjómílur frá landi
l sömu stefnu, var sú síld miklu
etærri og fallegri en síldin í fyrri
túrnum. Gangan, sem fyrsta
veiðin fékkst úr, virtist mjög
öflug og ganga alla leið norður
undix Jan-Mayen og ekki koma
aftur á Austfjarðamiðin sunn-
anverð fyrr en komið var langt
fram á haust.
Heildaraflinn 1966 var í há-
marki, þrátt fyrir það, að þrjá
fyrstu mánuði veiðitímans varð
að sækja meginhluta aflans á
eveiðisvæði 100—200 sjómílur A
og NA af landinu og alla leið
til Jan-Mayen um 360 sjómílna
leið.
Veður spillti veiði haust- og
vetrarmánuðina í október—des-
ember.
Engin veiði var fyrir Norður-
landi s.L sumar, en ágæt veiði
fyrir Austfjörðum frá því í miðj-
um ágúst fram í miðjan nóvem-
ber, að mjög dró úr veiðinni,
sökum veðurs og minnkandi
þátttöku.
Skipin hættu öll veiðum
nokkru fyrir jól.
í byrjun veiðitímans var síld-
In að mestu leyti mjög mögur og
erfið til vinnslu, en fitnaði þeg-
•r kom fram á sumarið. Hélzt
fitumagnið hátt fram á haustið,
en þá fór það minnkandi að
yanda.
Miklu meira magn veiddist af
stórri, gamalli og feitri síld en
búizt hafði verið við, einkum
í júní og frá síðari hluta ágúst-
mánaðar fram í nóvembermán-
uð, en eftir það var síldin mjög
blönduð smærri síld.
Talið er, að síldarárgangar, 10
ára og eldri, hafi numið um
22,6% af heildarmagninu miðað
við þyngd, þar af tæpur helm-
ingur 16 ára árgangur frá árinu
3950. Meðalþyngd pr. stk. var
496 grömm á 16 ára síld og með-
ellengd 37,3 cm.
Áætlað er að 7 ára árgangur
hafi numið um helming aflans
og 6 ára árgangur 18,5%, með-
ellengd fyrrnefnda árgangsins
var 33,4 cm. og þyngd 360 grömm
og hins síðarnefnda 32,5 cm. og
330 grömm.
Mun þetta vera þyngri síld,
miðað við aldur, en kunnugt er
um áður.
Stóra síldin virtist, að sumra
áliti koma, að verulegu leyti
austan frá Bjarnareyjarsvæðinu.
Verð á bræðslusíldarafurðum,
síldarlýsi og síldarmjöli, fór ört
fallandi, þegar fram á sumarið
kom, einkum á lýsinu. Kom
þetta verðfall mjög hart niður
á síldarverksmíðjunum vegna
þess að hráefnisverðið hafði ver-
ið ákveðið fyrir tímabilið frá
10. júní til 30. september miðað
við miklu hærra afurðaverð en
raun varð á.
Af þessum sökum voru síldar-
verksmiðjurnar flestar reknar
með tapi s.l. ár.
Saltsíld til útflutnings tókst að
selja fyrirfram með nokkru
hærra verði en árinu áður, og
hækkaði hráefnisverð saltsíldar
úr kr. 350.00, uppsöltuð tunna
í kr. 378.00.
Talsverðar skemmdir komu
fram á verkaðri síld og varð af-
koma söltunarstöðvanna m. a. af
þeim sökum mjög misjöfn.
Einstök síldveiðiskip fengu
meiri afla en áður hafði þekkzt
og einnig varð meðalaflinn hærri
en nokkumtíma áður, en mjög
var afkoma síldveiðiskipanna
misjöfn og tilkostnaður mikill.
Bræðslusíldarverðið
Bræðslusíldarverðið hafði und-
anfarin ár verið ákveðið, miðað
við hvert mál síldar. 150 lítra
en ef síldin var vegin reikn-
aðist málið 135 kíló. Misræmi
var á milli mælingar og vigtun-
ar, sem olli mikilli óánægju.
Samkvæmt tilmælum ríkis-
stjórnarinnar tóku allar síldar-
verksmiðjur upp vigtun sumarið
1966. Talið er að heildarkostn-
aður við þá breytingu hafi num-
ið um 25 millj. króna.
Verðlagsráð sjávarútvegsins
ákvað bræðslusíldarverðið kr.
1.15 pr. kg. fyrir tímabilið frá
1. maí til 31. maí og kr. 1,34 pr.
kg. fyrir tímabilið frá 1. júni til
9. júní.
Ekki náðist samkomulag um
verðið frá 10. júní til 30 sept-
ember 1966 og var það því
ákveðið með úrskurði yfiraefnd-
ar Verðlagsráðsins kr. 1.71 hvert
kíló og heimilt að greiða kr.
0.22 lægra pr. kg. fyrir bræðslu-
síld sem tekin væri í flutninga-
skip utan hafna.
Þetta verð var samþykkt með
atkvæðum síldarseljenda (sjó-
manna og útgerðarmanna) og
oddamanns, gegn atkvæðum
kaupenda (síldarverksmiðjanna).
Samkomulag varð í Verðlags-
ráði um bræðslusíldarverðið í
október kr. 1.37 pr. kg. og var
verðið síðan framlengt til og
með 5. nóvember.
Verðið fyrir bræðslusíldina
frá 6. nóvember til ársloka var
ákveðið með úrskurði meirihluta
yfirnefndar gegn atkvæðum selj-
enda kr. 1.37 frá og með 6. nóv.
til og með 15. nóv. og kr. 1.20
frá og með 16. nóv. til áramóta.
Fer hér á eftir yfiriit um það
hversu mikið sildarmagn var
móttekið til bræðslu á hverju
verði fyrir sig:
Tonn Kr. pr. kg.
12/5 —31/5 28.400 1.15
1/6 — 9/6 24.100 1.34
10/6 —30/9 352.353 1.71
1/10—15/11 145.572 1.37
16/11—31/12 60.552 1.20
Samt. tonn 610.977*)
Styrkleikahlutföll íslenzku og
norsku síldarinnar
í skýrslu Hafrannsóknarstofn-
unarinnar, undirritaðri 10. apríl
s.l. af Jakob Jakobssyni, segir
svo m. a.:
„Styrkleikahlutföll norsku og
íslenzku síldarinnar í aflanum
norðanlands og austan 1966 vora
í beinu framhaldi þeirrar þróun-
ar, sem hófst eftir 1962. Hlutur
íslenzku síldarinnar minnkaði
enn og var nú aðeins 3%, en
97% aflans var síld sif norskum
uppruna.
Ár fsl. síld Norsk síld
1962 53% 47%
*) Um 5.300 tonnum af þessari
síld var landað beint úr vf "
skipunum sunnanlands og v
an. Afsláttur var gefinn á um
77.568 tonnum, sem landað var
beint í flutningaskip, kr. 0.22 pr.
kíló.
1963 29% 71%
1964 13% 87%
1965 6,5% 93,5%
1966 3% 97%
nsóknir okkar á stærð ís-
lenzku síldarstofnanna benda
eindregið til þess, að þeir hafi
enn rýrnað og má því öruggt
telja, að 1967 verði svo til öll
síld, sem veiðist norðanlands og
austan, norsk síld.“
Þátttaka í veiðunum
Alls tóku þátt í veiðunum 186
skip á móti 210 skipum 1965.
Auk þess voru 19 skip á síldveið-
um, sem eingöngu stunduðu
veiðar við Suðurland. Alls stund-
uðu því síldveiðar 205 skip, þar
af lönduðu 57 skip á báðum
stöðum.
Heildarsíldveiðin
Hér er talin síld sem landað
var á höfnum frá Bolungavík
norður um land til Djúpavogs
og bræðslusíld flutt með m/s
Síldinni til Reykjavíkur. Síld
flutt í veiðiskipunum til SV-
lands er talin sérstaklega, en
hliðstæð síld er ekki meðtalin
í yfirlitinu vegna áranna 1964
og 1965.
Ár: 1964 1965 1966
í bræðslu tonn 386.680 544.551 605.677*)
Uppsaltaðar tunnur 362.905 403.961 382.794
Uppsaltaðar tunnur autan-
lands vegna Suðurlands-
samninga 10.304
f frystingu uppm. tn. 51.289 57.892 51.428
Útflutt ísað uppm. tn. 22.263 7.917
Flutt með bátum til SV-lands stökum verksmiðjum árið 1966
frá Austfjörðum 25.491 tonn. talin í tonnum:
Móttekin bræðslusild hjá ein-
$,
Síldarverbsmiðjur rikisins:
S.R. Siglufirði 19.221 1) tonn
S.R. Húsavík 3.694 —
S.R. Raufarhöfn 45.748 —
S.R. Seyðisfirði 101.421 —
S.R. Reyðarfirði 35.474 —
205.558 tonn
S.R. Skagaströnd (1.110 tonn**)
Rauðka, Siglufirði 3.342 tonn
'Hraðfrystihús Ólafsfjarðar 4.961 —
Kveldúlfur h/f, Hjalteyri 6.042 2) —
Sildarverksmiðja Ákureyrarkaupst., Krossanesi 16.335 3)
Síldarverksmiðjan Þórshöfn 2.040
Oddafell h/f, Bakkafirði 1-358
Síldarverksmiðjan h/f, Vopnafirði 35.334
Síldarverksmiðjan Borgarfirði eystra 7.481
Hafsíld h/f, Seyðisfirði 52.740
Síldarvinnslan h/f, Neskaupstað 98.599
Hraðfrystihús Eskifirði h/f 70.034
Fiskimjölsverksmiðjan Fáskrúðsfirði 29.440
Saxa h/f, Stöðvarfirði 9.694
Síldariðjan h/f, Breiðdalsvík 7.810 —
Búlandstindur h/f, Djúpavogi 11.220 —
Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan, Rvík 36.482 4) —
Einar Guðfinnsson, Bolungarvík 7.200 5) —
Samtals: 605.676 tonn
1) Þar af flutt með m/s Haferninui.i 16.447 tonn
2) — — — — m/s Askita 4.740 —
3) — — — — m/s Sirion 13.504 —
4) — — — — m/s Síldin 36.482 —
5) — — — — m/s Dagstjörnunni 6.392 —
Samtals; 77.568 tonn
&
Afurðir
Áætlað hefur verið að úr
bræðslusíld sem landað var á
Norðurlandi, Austfjörðum eða
umskipað var í flutningaskip,
hafi fengizt þessar afurðir: Um
112.000 tonn af síldarlýsi og um
123.500 tonn af síldarmjöli.
Framleiðslan sunnanlands og
vestan nam um 7.000 tonnum af
síldarlýsi og um 12.000 tonnum
af mjöli.
Alls voru framleidd í landinu
um 119.000 tonn af sildarlýsi og
3.500 tonn af öðru lýsi og af
síldarmjöli um 135.500 tonn, af
karfamjöli 4.500 tonn, af loðnu-
mjöli 19.000 tonn og af þorsk-
mjöli 19.000 tonn, eða alls af
fisbmjöli um 178.000 tonn.
Heildar-fob-verðmæti bræðslu-
síldarafurðanna norðan- og aust-
anlands er talið hafa numið laus-
lega áætlað um 1520 milljónum
króna eða aðeins um 15 milljón-
um króna meira en í fyrra, þótt
móttekin bræðslusíld væri nú
*) Af erlendum skipum var
auk þessa landað í bræðslu 4.687
tonnum.
**) Frá Seyðisfirði til Skaga-
strandar voru flutt 1.110 tonn á
leiguskipi S.R., sem einnig var
notað til síldarmjölsflutninga til
Bretlands.
um 66 þúsund tonnum meiri lýs-
isframleiðslan lun 32 þúsund
tpnnum meiri og mjölframleiðsl-
an 13 þúsund tonnum meiri.
Sunnan- og vestanlands höfðu
verið framleidd 1965 18 þúsund
tonn af lýsi og 32 þúsund tonn
af síldarmjöli, en 1966 nam þessi
framleiðsla aðeins 7 þúsund
tonnum af lýsi og 12 þúsund
tonnum af síldarmjöli.
Verð á síldarlýsi og
síldarmjöli
í árslok 1965 var verð á síldar-
lýsi um £ 70-0-0 tonnið cif, en
fór síðan ört hækkandi fram í
miðjan febrúarmánuð, að það
komst upp í £ 80-0-0 tonnið á
takmörkuðu magni. Síðan tregð-
aðist eftirspurnin. Allar birgðir
af íslenzku síldarlýsi frá fyrra
ári höfðu verið seldar í byrjun
maímánaðar. Höfðu þá alls verið
seld fyrirfram um 10.000 tonn
af lýsi fyrir £ 76-0-0 til
£ 80-0-0 tonnið cif.
Verðið á lýsinu fór ört lækk-
andi, er kom fram í maímánuð
og sölur frá íslandi stöðvuðust
að mestu.
Verð á síldarmjöli fór einnig
ört lækkandi.
Þegar yfirnefnd Verðlagsráðs
sjávarútvegsins (meirihluti
nefndarinnar) ákvað verðið fyr-
ir tímabilið frá 10. júní til 30.
september var verðið á lýsinu
áætlað £ 70-10-0 fyrir tonnið cif
og á mjölinu var verðið áætlað
19 shillingar og 6 pence fyrir
proteineiningu í 1000 kg af mjöli
cif.
Þegar kom fram á sumarið tók
svo að segja alveg fyrir sölur á
síldarlýsi þar til í miðjum ágúst,
að seld voru 10—12 þúsund tonn
á £ 60 til 61 tonnið cif. í sept-
ember féll verðið niður 1
£ 51-10-0 og í október niður 1
£ 50-0-0. .
Verðfallið var talið stafa af
aukinni lýsisframleiðslu í Perú,
Noregi, Danmörku, íslandi og
fleiri löndum og af miklu og
skipulagslausu framboði Perú-
manna á sílækkandi verði.
Síðari hluta októbermánaðar
var sjáanlegt, að framhald á
hinn: gífurlegu framleiðslu aðal-
fiskveiðiþjóðanna, Perúmanna og
Norðmanna, á lýsi og einnig á
fiskmjöli myndi valda algjöru
verðhruni á þessum afurðum á
heimsmarkaðnum. Verð á lýsi
var þá fallið frá því í miðjum
febrúar 1966 um 37%% og mjöl-
verðið um nærri 25%. (Verð-
fallið frá því verði sem lagt
hafði verið til grundvallar
bræðslusíldarverðinu frá 10. júni
til 30. september nam um 29%
á lýsinu og 15% á mjölverðinu).
Þegar svona var komið ákváðu
Norðmenn að banna vinnslu á
síld og makríl til bræðslu í Nor-
egi frá byrjun nóvember til árs-
loka, enda voru þá flestar þrær
og geymslur hjá þeim fullar.
1 Perú skall á verkfall vegna
ágreinings um hráefnisverð i
byrjun nóvember. Var ekki vitað
í byrjun, hvort stöðvun veiðanna
þar myndi verða langvinn.
Gífurlegar birgðir voru af fisk-
mjöli í Perú eða yfir 400 þús.
tonn og Norðmenn áttu og mikl-
ar birgðir síldarmjöls. Þá áttu
lýsiskaupendur einnig miklaLT
lýsisbirgðir.
Veiðistöðvanir Norðmanna og
Perúmanna, ásamt minni fram-
leiðslu í USA af sojabaunum en
vænzt hafði verið, urðu til þess,
að verðfall afurðanna stöðvaðist,
en vegna hinna miklu birgða
hækkaði verðið ekki fyrst í stað,
en upp úr 20. nóvember, þegar
séð varð að stöðvunin á veiðun-
um í Perú myndi standa lengur
en búizt hafði verið við, hækk-
aði lýsisverðið smám saman úr
um £ 50-0-0 tonnið cif upp í
65-0-0 10.—13. desember, en stóð
þó ekki í þvi verði nema 3—4
daga. Um miðjan desember hófu
Perúmenn veiðar að nýju og
féll þá verðið á lýsinu á nokkr-
um dögum um nálægt £ 15-0-0
tonnið cif, en hækkaði síðan aft-
ur um nokkur sterlingspund, en
lækkaði í marzmánuði 1967 nið-
ur í um £ 50-0-0 pr. tonn cif.
Verð á síldarmjöli hækkaði
aftur úr 16 sh. og 6 pence pro-
teineiningin í tonni cif, sem það
hafði fallið niður í, uppí 16/9 til
17 sh. og 3 pence í desember. f
marzlok 1967 var verðið um 16
sh. og 6 pence proteineiningin
í tonni.
Síldarverksmiðjum ríkisins
tókst að selja miklar birgðir af
síldarlýsi og talsverðar birgðir
af síldarmjöli • á þeim skamm-
vinna tíma, sem þessi hækkun
afurðaverðsins varaði og bætti
það hag S.R. um rúmlega 30
milljónir króna, miðað við það
lága verð, sem verið hafði í okt-
óbermánuði og fyrri hluta nóv-
Framh. á bls. 22