Morgunblaðið - 09.05.1967, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1967.
Tóbaksbúð Tómasa?
á Laugavegi 62
Tómas trá London opnar sérverzfun
„Ég fékk allan minn skóla í
London.“
„Jæja, varstu í Englandi?"
„Nei, London á horni Austur-
strætis og Pósthússtrætis. og
ALLIR þekkja. Nei, London er
sérverzlun með tóbaksvörur,
ámóta þeirri verzlun, sem ég er
er nú að opna á Laugavegi 62.
„Ef þér fellur illa við að kalla
það, að ég hafi gengið í skóla
í London, máttu kalla það,
hvað sem þú villt, máske ég hafi
aðeins „heyjað“ mér reynslu
þar.“
Þannig mælir Tómas Sigurðs-
son, se|?i nýlega opnaði
nýja sérverzlun með tóbak og
tóbaksvörur á Laugavegi 62, en
það er hornið á Laugavegi og
Vitastíg. Við hittum Tómas og
konu hans frú Erlu Sandholt að
máli, sama daginn og þau sögðu
okkur frekar frá þessari verzlun.
„Ég var verzlunarstjóri í
London í 6 ár, svo að á því sérðu,
að ég hlýt að kunna eitthvað til
að segja um þennan varning. Og
þar lærði ég margt hjá Katli
Axelssyni.
Nú er það meining mín að
verzla með þessar nauðsynjavör-
ur karlmanna, en auk þess er
©
INNLENT LAN
RIKISSJOÐS ÍSLANDS1967, l.Fl
VERÐTRYGGÐ
SPARISKIRTEINI
Sala spariskírteina ríkissjóðs 1967, 1. fl., stendur nú yfir. Skírteinin
eru til sölu í viðskiptabönkum, bankaútibúum, stærri sparisjóðum
og hjá eftirfarandi verðbréfasölum í Reykjavík Ágústi Fjaldsted og
Benedikt Blöndal, Lækjargötu 2, málflutningsskrifstofu Einars B.
Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar og Guðmundar Pétursson-
ar, Aðalstræti 6, Gunnari J. Möller, Suðurgötu 4, Kauphöllinni
Lækjargötu 2 og Lögmönnum, Tryggvagötu 8.
Skírteinin eru einnig seld í afgreiðslu Seðlabankans, Hafnarstræti
14.
'r v .
% s.
xV^st*AV
SEÐLABANKI
ÍSLANDS
■*'1' 'VS
SUMARKÁPUR
NVTT LRVAL
Austurstræti
STRIGASKOR
Austurstræti
REYKJANESKJÖRDÆMI
Svæðafundir atvinnustéttanna:
Frambjóðendur Sjálfstæðisflok ksins 1 Reykjaneskjör<4r~'mi
boða til fundar um
VERZLU NAR M ÁL
á þriðjudagskvöld kl. 8.30 í Aða’veri, Keflavík.
Þátttakendur: Vatnsleysuströnd, Vogar, Grindavík, Hafnir,
Njarðvíkur, Keflavík, Garðar, Sandgerði.
Sjálfstæðisfólk og stuðningsfólk D-Iistans, úr öðrum hlutum
kjördæmisins er velkomið á fun lina á meðan húsrúm leyfir.
Sérstaklega eru launþegar og at vinnurekendur í verzlun og við-
skiptum hvattir til að fjölmenna.
FRAMBJÓÐENDUR.
ég með allskonar gjafavörur fyr-
ir karlmenn, fyrir utan smávegis
„gotterí“ sem ekki ætti að
spilla.
Við hjónin munum skiptagt á
að standa i búðinni, og hlökkum
mikið til að hitta væntanlega
viðskiptavini.“
Sá blaðamaður, sem þetta
skrifar, er sérlega hrifinn af píp-
um, og er ekki að undra, og bað
Tómas um að fylgja sér um
pípudeildina. Kom þá i ljós hið
makalausasta úrval, en þó eink-
anlega frá fyrirtækinu GBD, en
þær eru enskar og í nokkuð háu
verði, en það eru góðar pípur
allajafna.
„Hvað á svo barnið að heita?“
spurðum við.
„Tóbaksverzlun Tómasar, stutt
og laggott. Allt fæst hjá Tomma,
en þar er undir skilið, allt, sem
viðkemur tóbaki og reykingum."
Nú var svo mál með vexti, að
blaðamaður sá, sem naut þeirrar
ánægju að heimsækja Tomma á
Laygavegi 62, er pípureykinga-
maður. Byrjaði raunar að reykja
pípu seint á árinu 1946. Labbaði
niður til Steina í Bristol og
keypti ódýra, en góða pípu á tí-
kall. En allt um það, keypti
hann sér mjög dýrt tóbak, í
plotum, og hét Old English.
Spurði síðan nýja kaupmann-
inn, Tómas á Laugavegi 62, hvort
hann hefði Old English til sölu?
„Jú, ekki ber á öðru, og annað-
hvort væri,“ sagði Tómas. „Þetta
er sérverzlun með tóbak, og ég
vil, að allir viðskiptavinir mín-
ir verði ánægðir, og fari tottandi
sina pípu héðan út frá mér, eða
sinn „sígar“, og auk þess hef ég
margt, sem hentar herrum, en
það er nú önnur saga og flókn-
ari.“
Og við kvöddum þau hjónin,
Tómas og Erlu, fullvissir um
það, að í Tóbaksbúð Tómasar
ættum við erindi aftur. — Fr.S.
Sæmdur finnsku
Ljónsorðunni
FORSETI Finnlands hefur ný-
lega sæmt Agnar Kl. Jónsson,
ráðuneytisstjóra, stórkrossi hinn
ar finnsku Ljónsorðu.
Herra Ahti Karjalainen, utan-
ríkisráðherra Finnlands, afhenti
ráðuneytisstjóranum örðuna, er
hann var hér staddur á fundi
utanríkisráðherra Norðurlanda.
Viðstaddir afhendinguna voru
ambassador Finnlands á íslandi
herra Pentti Suomela og nokkr-
ir fleiri gestir.
ÚTSÖLUSTAÐIR: Kaupfélögin og S.Í.S.!
Austurstræti.