Morgunblaðið - 09.05.1967, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 09.05.1967, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1967. Lárus Hinriksson bóndi — Minning Lárus Hinriksson var fædd- ur að Orrastöðum á Ásum í Húnaþingi 18. dag maímánaðar árið 1888 og andaðist 20. marz sL Foreldrar hans voru hjónin Sólveig Eysteinsdóttir og Hin- rik Magnússon, smiður og bóndi. Árið 1904 fór Lárus í bænda- skólann á Hólum og lauk það- an prófi vorið 1906, en dvald- ist sumarið eftir í Gróðrastöð Akureyrar og vann þar undir stjórn hins ágæta búnaðarfröm uðar Sigurðar Sigurðssonar, síð ar býnaðarmálastjóra. Þessa sumars var Lárusi jafnan ljúft t Dr Jón Dúason andaðist á Vífilsstöðum 5. þessa mánaðar. Vandamenn. t Frænka mín María Sigurjónsdóttir Urðarstíg 9, lézt laugardaginn 6. maí í Borgarsjúkrahúsinu. Fyrir hönd ættingja. Sigurlaug Vigfúsdóttir. t Faðir minn Björn Gíslason andaðist að Hrafnistu sunnu- daginn 7. þ.m. Jarðarförin ákveðin síðar. Gunnlaugur Scheving. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi Gísli SigurSsson járnsmiður, Aðalgötu 5, Keflavík, verður jarðsunginn frá Kefla- víkurkirkju fknmtudaginn 11. maí og hefst kl. 2 e.h. Bílferð verður fic B.S.f. kl. 12,45. Börn, tengdabörn Og barnabörn. t Útför föður okkar, tengda- föður, afa og langafa Hannesar Júlíussonar skósmiðs, Laugalæk 1, fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 10. maí kl. 13,30 e.h. Börn, tengdabörn, barna- börn og barnabarnabörn að minnast, bæði kynna sinna við Sigurð og starfsins við að planta og rótfesta hinn verð- andi skóg, sem nú skýlir og skreytir höfuðstað norðurlands. Að lokinni sumardvöl sinni í Gróðrastöð Akureyrar fór Lár- us heim til foreldrá sinna og vann að mestu á búi þeirra næstu sex árin, eða þar til hann kaupir Kurf, sem er smájörð með samliggjandi tún við Ör- lygsstaði og þar var hann ein- búi úr því, eða í fjörutíu og sex ár. Hann rak þar smábú til ársins 1947 að fjárskipti urðu. þá tók hann ekki kindur aftur og var skepnulaus eftir það. Tók hann nú upp farfuglahætti og fór suður til Reykjavíkur á haustin og dvaldist á heimili Mar grétar systur sinnar, yfir vet- urinn, á meðan hún lifði, en eftir lát hennar, var Reykjavík- urdvöl hans á vegum sona henn ar, sem sáu svo um, að alltaf beið hans herbergi og aðhlynn- ing, þegar hann vildi þar vera. Þetta er þá slóð mannsins, sem ég vildi minnast, hún er ekki merkileg eða óvenjuleg á neinn hátt, en þó tel ég að mað- urinn sem fór hana hafi verið t Þökkurn innilega auðsýnda samúð og vinátu við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, systur og ömmu, Sigurbjargar Sigfúsdóttur frá Framnesi í Glerárhverfi. Baldur Sveinsson, Arndís Þórðardóttir, Hallur Sveinsson, Elsa Vestmann, Jóhann Sveinsson, Anna Ólafsdótir, Sigurveig Sigfúsdóttir og barnabörn. t öllum þeim mörgu sem heiðrað hafa minningu Mörtu J. Magnúsdóttur og veit henni aðstoð á marg- an hátt, vottum við okkar innilegasta þakklæti. Hug- stæðast verður okkur ein- lægni og góðvild hjónanna Guðrúnar Auðunsdóttur og Konráðs Bjarnasonar. Halldóra Magnúsdóttir og aðrir aðstandendur. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim er auðsýndu samúð og vináttu við andlát og jarðarför Gunnars Runólfssonar hreppstjóra á Syðri-Rauðalæk. Sérstakar þakkir skulu færðar sveitungum hans fyrir veitta virðingu. Lára Pálsdóttir, Haraldur Halldórsson. - merkilegur og óvenjulegur að mörgu leyti. Lárus var dverg- hagur á smíðar og vandvirkur að sama skapi og það, sem hann smíðaði, var bæði traust og á- ferðafallegt, þó það væri unn- ið með fábrotnum tækjum, en hve langur tími fór til að vinna það var alveg aukaatriði, því Lárus þurfti aldrei að flýta sér og ys og hraði hinnar tuttug- ustu aldar brotnaði á honum líkt og straumþungt fljót á strandbergi. Hann hélt sínum háttum hvað sem aðrir sögðu og gerðu og engum manni hefi ég kynnst, sem ég tel ólíklegri til að verða „múgsál." Það þýddi ekki að segja við hann að þetta væri rétt og annað rangt, því þá kom spurningin, því er það rétt og því hitt rangt og þar til rökin lágu fyrir ljós og skýr, þá var þetta eða hitt bara mas. Hann laut engum, tignaði engan, hann var éngum manni líkur nema sjálfum sér, hann var ekki bergmál af nein- um öðrum og fyrir það munu samferðamenn hans virða hann mest og muna hann lengst. Hann kom venjulega norður um líkt leyti og lóan. Nú hefir hún ekki lengur samfylgd hans og munu þess margir sakna, því með þessum fágaða og dagfar- prúða manni var gott að blanda geði. Lárus var margfróður, en það hygg ég að íslenzk tunga hafi verið það viðfangsefni, er hann braut rækilegast til mergj ar, og þegar hann sat við út- varpið heyrðist hann stundum segja lágt við sjálfan sig: „Ekki hefði Snorri orðað þetta þann- ig“ Ekki get ég skilist svo við þetta efni að minnast ekki á trjálundinn, sesn hann plantaði sunnan undir lágreista bænum sínum. Það hafa margir gert til- raun til trjáræktar hér á strönd inni, en engum gengið vel, en þó Lárusi lang bezt, enda var umhirðan og nostrið alveg frá- bært. Og oft var tommustokk- urinn tekinn upp og vöxturinn mældur og þegar hæsta plant- an náði 3ja álna hæð, fannst mér ánægja hans líkjast gleði þeirra foreldra, sem hafa náð þeim áfanga í uppeldi efnilegra barna sinna, að þau voru fermd. Nú er skógarlundurinn hans orð inn það vaxinn að hann er að því kominn að sjá yfir mæninn á bænum er hefir veitt hon- um vaxtarskjól og tekur enn af honum sárustu norðannepjuna, sem gustar þó inn i skjólið svo hann drjúpir nú krónum sín- um, eða er hann nú lotlegur af því, að eðlisávísun hans skynji, að í vor eigi hann ekki von á neinum nærfærnum höndum er losi moldina við ræt- ur hans um leið og þær færa öllum vinum mínum, frænd fólki og tengdafóiki sem með hlýjum kveðjum, heillaóskum og mörgum rausnargjöfum sýndu mér vinátu á sextugs- afmæli mínu 24. apríl s.l. þakka ég- innilega og sendi mínar beztu kveðjur með ósk um gæfu og gengi í lífi og starfi. Óðinn S. Geirdal AkranesL henni frjóvgun. Um leið og ég kveð og þakka fimmtíu ára samfylgd, þá óska ég þess, að þegar við samferða- menn Lárusar Hinrikssonar er- um grafnir og gleymdir, þá verði sunnan undir litla stein- húsinu í Kurfi hávaxinn trjá- lundur, sem minni á, að þar bjó eitt sinn hæglátur maður, er mat mannvit og andleg verð- mæti meir en þau efni sem möl- ur og ryð fá grandað. Á síðasta vetrardag 1967. Sigurður Björnsson. — Verksmiðjui Framh. af bls. 12 embermánaðar og varð síðar, þegar verðfallið skall yfir á ný. Afkoma verksmiðjanna Á árinu 1965 var hagnaður S.R. kr. 8.391.968,00 og höfðu þá verið færðar til gjalda fymingar kr. 31.150.258,00 en á árinu 1966 skortir skv. bráðabirgða rekstr- aryfirliti um kr. 23.000.000,00 til þess að hægt sé að standa straum af fyrningum á verksmiðjum S.R. og m/s Haferninum, því að að- eins eru fyrir hendi um 15 milj- ónir krónar upp í 38 milljóna króna fyrningar. Þótt bræðslusíldaraflinn væri árið 1966 um 66 þúsund tonnum meiri en árinu áður og nýting hráefnisins betri þá urðu síldar- verksmiðjurnar flestar samt fyrir miklu tapi. Stafaði tapið fyrst og fremst af hinu gífurlega verð- falli á síldarlýsi og síldarmjöli og að hráefnisverðið var miðað við miklu hærra afurðaverð en afurðirnar seldust fyrir, hráefnið dreifðist á fleiri verksmiðjur og kaupgjald og annar kostnaður fór vaxandi. Þá varð mjög léleg nýting og tap á þeirri síld, sem fyrst veidd- ist, þrátt fyrir miklu lægra bræðslusíldarverð. Innflutningstollar í Bretlandi _________ Það kemur mjög þungt niður á fslendingum, að þeir verða að greiða 10% innflutningstoll á síldarlýsinu í aðalmarkaðsland- inu, Bretlandi, en keppinautar þeirra, Norðmenn og Danir, sleppa við að greiða þennan toll, þar sem þeir eru meðlimir í frí- verzlunarbandalaginu (EFTA). Sama toll verður að greiða í Englandi af íslenzku þorskmjöli, karfamjöli og loðnumjöli, svo og af ísuðum fiski og hraðfrystum fiski. Síldarflutningaskip I byrjun júnímánaðar festu S.R. kaup á tankskipi til flutn- inga á bræðslusíld. Skipið, sem verið hafði 1 eigu norsks útgerðarfélags, hét áður m/s Lönn og hafði fyrir einum mánuði komið úr 8 ára „klöss- un“, Hafði það verið byggt í Haugasundi árið 1957. Sumar „dead weight“ er 3.700 tonn. Lengd 330’,7”* breidd 44’,7”, djúprista 18’,9V2”. Skipið er með 2100 hestafla Burmeister & Wain dieselvél og lestar um 3400/3500 tonn. Ganghraði þess er 12 sjó- mílur á klst. Áhöfn skipsins er 22. menn. Kaupverð skipsins var n. kr. 6.000.000,— eða ísl kr. 36.130.800, —•, þar að auki bættust ýmsir varahlutir og birgðir kr. 1.560.- 000,—. Ýmsar breytingar, sem gera þurfti á skipinu, ásamt los- unar- og löndunartækjum, kost- uðu um kr. 15.500.000,—. Kostn- aðaryerð skipsins nam alls ísl. kr. 53.190.800,—. Hafa S. R. lagt fram af því kr. 8.093.000,—, en kr. 45.097.500,— voru greiddar af láni, sem S.R. tóku erlendis til kaupanna með ábyrgð ríkissjóðs skv. heimild í bráðabirgðalögum, sem gefin voru út skv. ákvörð- un ríkisstjórnarinnar til þess að greiða fyrir kaupunum. Var lán- ið affallalaust og skyldi endur- greiðast að fullu eftir sex ár frá lántökudegi með jöfnum ár- legum afborgunum. Vextir voru 7y2 pr. anno. Síldarflutningaskipið hlaut nafnið Haförninn og kom til landsins í byrjun ágústmánaðar. Alk flutti skipið 16.447 tonn til Siglufjarðar á tímabilinu frá því í byrjun ágúst til 1. desember. Eftir 1. okt. flutti skipið aðeins um 4.000 tonn vegna rysjótts veðurs og erfiðleika á umskipun í skipið á hafi úti í stormi og miklum öldugangi. Nú í vor verður settur út- búnaður í skipið til þess að auð- velda umsikipun á síldinni úr veiðiskipunum við erfið skilyrðL Önnur ástæða fyrir því, hversu lítið var flutt af bræðslusíld frá veiðiskipunum með flutninga- skipunum s.l. haust var sú, að veiðin var oftastnær ekki meiri en svo, að ekki urðu langar biðir eftir löndun hjá síldarverksmiðj- unum á Austfjörðum, vegna þess að óhagstæð veðrátta dró mjög úr veiðinni. Frá jólum 1966 til marzloka 1967 fór m/s Haförninn 6 ferðir með lýsi til ýmsra hafna í Evr- ópu og flutti 3.300 til 3.500 tonn í ferð. Þótt mikið tap hafi orðið á rekstrLm/s Hafarnarins á s.l. ári, standa vonir til þess, að skipið geti sinnt hlutverki sínu með góðum árangri fyrir alla aðila á komandi árum. Eins og áður segir voru alls flutt á flutningaskipum 77.568 tonn. sem umskipað var á hafi úti. Komu flutningarnir síld- veiðiflotanum að góðu gagni einkum fyrrihluta vertíðarinnar meðan lengst var að sækja. Hinsvegar urðu haust- og vetr- arflutningar á bræðslusíld miklu minni en árinu áður. Að þessu sinni urðu flutningarnir mjög kostnaðarsamir fyrir verksmiðj- urnar, en engu að siður eru þeir nauðsynlegir til þess að gera veiðisvæði síldveiðiflotans sem víðfeðmast. Afkastageta verksmiðjanna Á árinu 1966 voru afköst síld- arevrksmiðjanna á Norðaustur- landi og Austfjörðum aukin um nálægt 33%. Eru afköstin þá komin upp í um 6.200 tonn bræðslusíldar á sólarhring hjá síldarverksmiðjunum á svæðinu frá Raúfarhöfn til Djúpavogs. Tvær nýjar síldarverksmiðiur eru í byggingu, Fjarðasíld h/f á Seyðisfirði og Rauðubjörg h/f í Neskaupstað. Munu afköst þess- ara verksmiðja vera áætluð sam- tals um 600/700 tonn bræðslu- síldar á sólarhring. Sólarhrings- afköst síldarverksmiðjanna á Norðurlandi, að frátalinni Rauf- arhöfn, nema um 6.000 tonnum bræðslusíldar á sólarhring og álíkrt miklu sunnan- og vestan- lands. Horfur Horfur um verðlag á bræðslu- síldarafurðum, síldarlýsi og síld- armjöli, eru með allra lakasta móti. Hefur heimsmarkaðsverð á þessum vörum farið hríðlækk- andi frá því í fyrravor eins og frá er greint í kaflanum um verð á síldarlýsi og síldarmjöli, að undanteknum þeim blota, sem varð á verðfallinu um þriggja vikna tíma í lok nóvember og fram í desembermánuð. Oft hefur verið sagt „að svip- ull væri sjávarafli" og þó eink- um síldveiðin. Ekki á það síður við verðlag afurðanna en aflann sjálfen. Nú er sjáanlegt, að örðugleik- ar eru framundan í síldarútveg- inum, þeim atvinnuvegi, sem mesta björg hefur fært í bú á undanförnum árum. Vér íslendingar verðum að mæta þessum örðugleikum, sem bezt vér getum, minnugir þess, að vér erum betur búnir, að ýmsu leyti, til þess að mæta and- streyminu, en vér höfum verið nokkurntíma áður, þegar hlið- stæðan vanda hefur borið að höndum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.