Morgunblaðið - 09.05.1967, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1967.
+—----
UNDIR
VERND
Hún var lögð af stað yfir göt-
unna, þegar hún kom auga á
hann. Hún starði á hann, í ein-
hverju ráðleysi og gleymdi
meira að segja að stíga upp á
gangstéttina aftur. Andartaki
seinna, datt hún í götuna í yfir-
liði og var næstum orðin undir
bílnum.
Hún heyrði ekki þegar hann
hemlaði snöggt, og heldur ekki
visisi hún af því, er hann tók
hana í fang sér og bar hana yfir
götuna og inn í leikfangabúðina.
18. kafli.
Davíð laut yfir hana, er hún
opnaði augun, en hún sá ekki
andlitið á honum nema eins og
í þoku.
— Davíð! sagði hún í hálfum
hljóðum. — Hvað var þetta?
HVers vegna ertu hérna? Ég hélt
að ég mundi aldrei sjá þig fram-
ar. Augu hennar lokuðust og
hún sagði án þess að vita, hvað
hún var að segja: — Þetta hefur
verið svo hræðilegt. Ég hef ver-
ið svo hræðilega einmana og
óhamingjusöm, Davíð.
— Náið í glas af vatni, sagði
Davíð hás við Marjorie, sem stóð
hinumegin við Paulu. — í guðs
bænum, getið þér ekki hafzt eitt
hvað að?
— Hm! sagði Marjorie. — Þér
virðist sjálfur hafa hafzt nóg
að. Látið yður ekki nægja að
eftir Maysie
Greig:
gera veslings stúlkuna óham-
ingjusama, heldur þurfið þér að
aka yfir hana í þokkabót.
— Mér hefur aldrei orðið
meir hverft við en þegar ég sá
hana á gangstéttinni, sagði hann.
— Og þó var það verra þegar
ég sá hann detta. En svo er guði
fyrir að þakka, að hemlarnir á
bílnum mínum eru góðir.
— Já, það má víst vera þakk-
látur fyrir það, sagði Marjorie
og fór svo fram til að ná í vatn-
ið.
Davíð neyddi einhverju af
vatninu ofan í Paulu og hún
raknaði við og komst til fullrar
meðvitundar.
— Davíð! Hún starði á hann.
— Ég skil ekkert í þessu......
Jú, nú man ég það. Þú varst
að aka eftir götunni í bílnum
þínum....... En hvað gerðist?
Hún rak upp ofurlítinn vand-
ræðalegan hlátur. — En ég er
víst ósködduð, svo að þú getur
ekki hafa ekið yfir mig. Hvernig
gekk þetta til?
— Það leið yfir þig, sagði
hann. — Til allrar hamingju gat
ég stöðvað bílinn í tæka tíð. Svo
tók ég þig upp og bar þig hing-
að inn.
— Ó! Hún lá á legubekk í
bakherberginu. Hún var með
höfuðverk. Kannski hafði hún
rekið það í þegar hún datt, en
það gat nú verið sama. Það var
sama um allt í heiminum nema
það, að Davíð stóð þarna yfir
henni og hélt öðriim handleggn
um um herðar hennar, að hún
var hjá honum aftur og hann
horfði framan í hana brosandi
og það bros var blíðara en hún
hafði nokkurntíma áður séð.
Hún reyndi að setjast upp. —
Ég held ég sé orðin góð aftur,
Davíð, þakka þér fyrir. Hún hló
ofurlítið og bætti við: — Ég veit
ekki, hversvegna það fór að líða
yfir mig. Það ...... það hefur
aldrei komið fyrir mig áður.
— Ég er feginn, að það leið
yfir þig, sagði hann alvarlega.
— Veiztu, Paula, að rétt þegar
þú varst að rakna við, sagðirðu
.....jseja......þú sagðir nokk-
uð...... æ, ég get varla sagt
þér, hvað þú sagðir, lauk hann
setningunni, hálfringlaður.
Hún fann roðann stíga upp í
andlit sér. Hana hitaði í andlit-
ið og hún leit undan, til þess að
hann sæi ekki tárin, sem voru að
brjótast fram í augu hennar.
— Paula, hélt hann áfram og
röddin var blíðleg en þó ein-
beitt. — Ég verð að segja þér,
hvað þú sagðir. Ég vil vita,
hvort það er satt. Þú sagðist hafa
verið einmana síðan við skild-
um. Er það satt?
— Kannski, sagði hún og nú
gat hún ekki lengur haft hemil
á tárunum.
— Ó, Paula, sagði_ hann og
röddin var hálfkæfð. Ég hef líka
verið einmana og mér hefuT lið-
ið illa. Ég elska þig! Og á næsta
andartaki var hún í faðmi hans,
en hann kyssti burt tárin og
strauk hárið á henni frá enninu.
— Elskan mín, sagði hann. Mik-
ill bjáni hef ég verið að valda
okkur báðum svona mikilli sorg.
Þvi að ekkert skiptir neinu máli
nema ást okkar hvors á öðru.
Vitanlega þykir mér vænt um
krakkana og ég er þakklátur
Mavis, og mér líkar vel, hvernig
séð er um heimilið mitt, en það
er allt einskisvirði samanborið
við þetta. Ég vissi það í dag,
þegar ég sá þig á götunni. Þá
vissi ég, hversvegna ég hef ver
ið svo niðurdreginn og óánægð-
ur undanfarnar vikur. Þá vissi
ég, hvernig mér var jafnvel far-
ið að leiðast starfið mitt, í stað-
inn fyrir að hafa ánægju af því.
Paula, elskan mín. Ég elska þig!
— Og ég elska þig líka, Davíð.
Hún lagði arminn um hálsinn á
honum. Hún fann kossa han's á
vörum sér, jafnindæla kossa og
hann hafði gefið henni um kvöld
ið, eftir að þau höfðu verið í
næturklúbbnum, og ennþá
indælli vegna þeirrar þjáningar,
sem hún var búin að þola síðan.
— Þú virðist hafa haft got.t
af þessu yfirliði þínu, Paula,
sagði Mariorie, sem var komin í
dyrnar. — Ég hef aldrei séð þig
svona vel útlítandi vikum sam-
an.
Paula hló. Hún var staðin upp
af legubekknum og var að laga
á sér hárið með greiðu fyrir
framan spegilinn. Dav'ið stóð
hjá og hafði ekki augun af henni.
— Væri þér sama, Marjorie,
þó ég færi heldur í fyrra lagi í
dag, sagði hún. — Davíð ætlar
að aka mér heim.
— Já, það væri rétt af þér að
fara, svaraði hin. — Farið þér
með hana heim, hr. Hankin, en
í herrans nafni verið þér góður
við hana núna. Annað fer ég
ekki fram á.
Laglega andlitið á Davíð roðn
aði. — Já, en...... sagði hann
og hló síðan vandræðalega.
— Hvað átti hún við með
þessu að vera góður við þig?
sagði Davíð, skömmu seinna, er
þau sátu saman í framsætinu i
bílnum.
—- Það......það veit ég ekki,
tamaði hún.
— Veit hún nokkuð um.........
það sem gerðist síðast þegar við
hittumst? spurði hann vandræða
lega.
— Ekki hef ég sagt henni það,
en hún kann að hafa getið sér
þess til.
— Ef hún hefur bara getið
sér þess til, sagði hann og bætti
síðan við: — Ég er hlédrægur
maður, Paula, og mér er mein-
illa við, að fólk tali um einka-
mál mín.
— Já, en ég mundi aldrei fara
að tala um okkur við óviðkom-
andi fólk, sagði hún og móðgað-
ist við dylgjurnar, sem í orðun-
um lágu.
Hann leit við og brosti til henn-
ar. — Vitanlega færirðu aldrei
til þess. Hann tók aðra hönd-
ina af stýrinu og greip um hönd-
ina á henni. — Fyrirgefðu, ef
ég hef verið eitthvað snöggur í
bragði. Ég er hamingjusamur, og
ert þú það ekki líka? Og ég er
viss um, að við verðum ham-
ingjusöm þegar við erum gift —
það er ekki eins og við höfum
hlaupið í þetta í einhverju bráð
ræði, er það? Ég á við, að við
gáfum sjálfum okkur góðan um-
hugsunartíma, og eftir að hafa
verið aðskilin svona lengi, finn-
um við enn, að við elskum hvort
annað, og það þýðir sama sem,
a hjónabandið okkar verður
hamingjusamt.
Það skein ofurlítil undrun úr
bláum augum hennar. Var hon-
um alvara, að halda, að þessar
kvalafullu vikur hefðu sannað
ást þeirra, hvors til annars. Hélt
hann virkilega, að hægt væri að
sanna ástina, prófa hana með ein
hverri tilraun, ef svo mætti
segja?
— Ég veit ekki, hvað hefur
gengið að mér, Paula. Mér hefur
liðið fjandalega. Þú veizt, bætti
hann við með feimnislegum
hlátri, — að ég hef farið hérna
framhjá húsinu, aftur og aftur,
í þeirri einu von að sjá þér
bregða fyrir.
— En þér datt aldrei í hug
að koma upp og hringja dyra-
bjöllunni?
— Nú.......höfðum við ekki
ákveðið að gera enda á þessu?
sagði hann og roðnaði. — Ég á
við, að við komum okkur víst
saman um það þá?
— En hvað hefur breytzt síð-
an?
— Það hefur ekkert breytzt,
sagði hann, — nema hvað við vit
um núna, að við elskum raun-
verulega hvort annað. Áður
hefði þetta bara getað verið
skot.
— Ég skil, hvíslaði hún. Hún
vætti þurrar varirnar. Húi vissi
ekki aimennilega, hvað koni
henni til að segja: — Og hún
Mavis? Verður hún sannfærð
um, að þetta sé einlæg ást hjá
okkur?
— Það verður hún að vera,
sagði hann. — Þetta er okkar
mál, og henni algjörlega óvið-
komandi.
En enda þótt hann reyndi að
vera einbeittur, tók hún eftir, að
hann var ofurlítið skjálfraddað-
ur. Hann bætti við: — Ég verð
segja henni það. Ég ætla að fara
heim og segja henni það strax 1
kvöld.
Allt f einu var hún farin að
vorkenna honum. Hin ákafa ást,
sem hafði gripið hana fyrir
skammri stundu, var orðin að
einhverri móðurlegri tilfinningu.
Henni fannst hann vera eins og
einhver hræddur smástrákur,
sem hefði verið sagt að fara
heim og játa einhverja yfirsjón
fyrir henni mömmu sinni. Hún
lagði ósjálfrátt höndina á arm
hans.
— Við skulum fara bæði og
segja Mavis frá þessu, Davíð. Ég
held, að ef við færum bæði sam-
an, yrði það auðveldara. Þú skil-
ur, að þá mundi hún sjá, að okk
ur er alvara.
Hún heyrði, að honum létti.
— Þetta er gott ráð, Paula,
það er miklu betra, að við segj-
um henni það bæði saman.
Hann hafði verið að fara í ein-
hverju viðskiptaerindi, þegar
hann hitti hana í Bondstræti. En
nú, eftir nokkrar klukkustundir,
virtist hann fyrst muna eftir
þvi. — Það er bara viðtal við
annan málfærslumann. Ég ætla
að hringja hann upp heima frá
þér, ef ég má. Ef hann getur tal-
að við mig núna, ætla ég að
Einföld í byggingu, en býr yfir samt dásamlegum eigin-
leikum. Hún saumar blindfald, hún „appliqucrer“, saumar
hnappagöt og fcstir á tölur; stoppar í sokka og bróderar
án hjóls.
SJÁLFVIRK ÚTSAUMSHJÓL
15 hjól fyrir mismunandi útsaum fylgja vélinni.
Öllum sporum, er stjórnað frá sama stað á vélinni.
STAÐSETNING NÁLARINNAR ER TIL VINSTRI.
Þér munuð bezt finna þægindi þess að hafa nálina vinstra
megin þegar þér eruð að sauma hnappagöt og festa á tölur.
INNBYGGT LJÓS, SEM LÝSIR Á SPORIÐ.
Gefur góða birtu við vinnuna.
SJÁLFVIRK SPÓLA, HRAÐVIRK OG ÖRUGG.
Verð kr. 6.195,oo.
(Með 4ra tíma ókeypis kennslu).
Sími
11687
21240
Tfekla
Laugavegi
170-172
•V