Morgunblaðið - 09.05.1967, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 09.05.1967, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1967. 31 AcfaEfundur Vinnuveitenda- sambandsins 11. - 13. maí AÐALFUNDUR Yinnnveitenða- sambands fslands verð'ur hald- inn í Reykjavík dagana 11. til 13. maí næstkomandi að Hótei Söffu. Aðalfundurlnn hefst M. 2 sfð- degis n.k. fimmfcudag og mun formaður samtakanna, Kjartan Thors, setja fundinn. Fram- kvaemdastjóri þeirra, Björgvin Sigurðsson, flytur skýrslu stjórn - CHICHESTER Framhald af bls. 1. Sjór var sléttur i dag eftir nokkurra daga góðan byr, og þótt Chichester sjái fyrir end- ann á sjóferðinnl sagði hann „Það er ánægjulegt að standa á lóréttu þilfarinu á ný“. Hann kvaðst hafa búið við 35 gráðu halla í níu daga. Ákveðið hefur verið að Elisa- bet Bretadrottning slái Chichest- er til riddara við hátíðlega at- höfn skömmu eftir komu hans til Englands. arinnar um störf félagsins frá síðasta aðalfundi og ennfremur verða kosnar nefndir. Síðar um daginn verður stjórn arkosning. - TILMÆLI Framhald af bls. 1. hússins I Stokkhólmi til rann sóknar. Meðal ræðumanna á fundin- um í dag voru prófessor frá Japan, læknir og lögfræðingur frá Frakklandi og einn fulltrúi frá Pakistan. Fjallað var meðal annars um skýrslu rannsóknar- nefndar, sem forvigismenn rétt- arhaldanna sendu til Vietnam, — svo og játningar bandarískra flugmanna í Hanoi. Tveir blaðamenn bandarískir, sem meinaður var aðgangur að réttarhöldunum á laugardag, hafa sent mótmæli til blaða- fulltrúa sænska utanríkisráðu- neytisins, en fengið það svar, að ráðuneytið geti ekki hlutazt til um mál þetta, þar sem litið sé á réttarhöldin se miokaða einka- ráðstefnu. Á laugardag kom til smá- árekstra milli hópa ungmenna, sem annars vegar héldu uppi áróðri, slagorðum og slagorða- spjöldum fyrir Russel-réttar- höldunum og hinsvegar gegn kommúnistum, Rússum og svo framvegis — og lyktaði svo, að 25 voru handteknir. Faðir og tveir synir mynda þriðjung áhafnar — á 650 tonna fœreysku tlutningaskipi í REYKJAVÍKURHÖFN er nú statt færeyskt flutninga- skip, sem ber nafnið Cristian Holm. Þetta er nýlegt og glæsilegt skip, 650 lestir að stærð, og á því er aðeins átta manna áhöfn. Skipstjórinn og stýrimaður eru bræður, en faðir þeirra er háseti á skip- inu. Mynda þeir feðgar því þriðjung áhafnarinnar og mun það án efa vera næsta fátítt. Fréttamenn Mbl. brugðu sér um borð í skipið í gær, og ræddu þá lítillega við skipstjórann Sæbjörn Jacob- sen og stýrimanninn, Jakob Martein Jacobsen. >ek tjáðu okkur að þetta væri í þriðja sinn, sem Christian Holm kæmi til íslands, frá því að skipinu var hleypt af stokk- unum í maímánuði 1 fyrra. Skipið er smíðað í Færeyjum, og er stærsta flutningaskip sem Færeyingar hafa smíðað fyrir sjálfa sig til þessa. Á hinn bóginn er þar nú í smið- um eitt skip fyrir Dani, sem verður 50 tonnum stærra, eða um 700 tonn, en færeyskar skipasmíðastöðvar geta smíð- að skip allt upp í 1000 tonn. Við spurðum þá bræður hvort það væri ekki Oft æði erfitt að vera svo fáliðaðir á skipinu. Játtu þeir því, og kváðu vinnudaginn oft vera strangan. Hver maður yrði að vinna 12 tíma á sólarhring, eða réttara sagt taka tvær 6 tíma vaktir. Þeir gátu þess til samanburðar, að á íslenzkum flutningaskipum, áþekkum að stærð, væri allt upp í 16 manna áhöfn. Christian Holm kom hing- að aðallega með pappírsfarm núna, og sögðu þeir bræður, að skipið myndi sennilega ekki koma hingað meira í sumar. Það yrði þá mest megnis í flutningum til Græn lands, — flytti þangað trillur og fiskimenn frá Færeyjum, en sem kunnugt er veiða Fær eyingar mikið á linu við Grænland yfir sumartímann. Feðgarnir um borð í skipinu. T.v. Jakob M. Jacobsen, stýrl maður, Sæbjörn Jacobsen, skiistjóri, og faðirinn Herluf Ja cobsen, sem er aðstoðarmaður í vélarrúmi. 152 st. hifi í hor- hoiu á Akranesi Christian Holm i Reykjavik urhotn. SVO sem kunnugt er, sam- þykkti meirihluti bæjarstjórnar Akraness, að hefja djúpborun eftir heitu vatni í kaupstaðn- um nú á þessu vori. Á síðastliðnu ári voru í tilraunaskyni gerðar þrjár hölur, um 100 metra hvor, — ein niöri í kaupstaðnum, en hinar tvær sitt hvoru megin Akrafjalls. Það var álit sérfræðinga, að þessi tilraunaborun gæfi til kynna, að á öllum þessum stöð- um væri um jarðhita að ræða. f framhaldi af þessum upplýs- ingum, og að ráði sérfræðing- anna, var svo hafizt handa með djúpborun niður í kaupstaðnum nú i vor. Borholan er nú orðin um 1240 metra djúp og hefur hitinn allt- af jafnt og þétt farið vaxandi og er nú kominn í 152 stig. — Nokkurt vatn er i holunni, sem kemur upp á yfirborðið, en ekki vitað hvað magnið er mikið, fyrr en borun líkur, og komið hefur verið fyrir dælu við holuna. Ráð gert er að borað verði enn dýpra, þar sem hitinn fer enn vaxandL - BUSCHINI Framhald af bls. 32. - GRIKKLAND Framhald af bls. 1. bætir hann við. Anna María, drottning Kon- stantíns, á von á barni sínu einhvern tíma næstu daga — væntanlega á tímabilinu 10.—20. maí nk., að því er opinber tals- maður konungshjónanna skýrði frá í dag. Hún mun ala barn- ið í Tatoi-höll skammt utan við Aþenu — en fyrra barn þeirra hjóna, Alexia, sem nú er 22 mán aða, fæddist í sumarhöll kon- ungs á eynni Corfu. Loks er að geta AP-fregnar frá New York, þar sem segir að Kenneth Galbriath, fyrrum sendiherra Bandarikjanna í Ind- landi hafi fyrir hönd 250 banda- rískra efnahagssérfræðinga, sem láta sér annt um örlög Andreas- ar Papandreous, snúið sér til Bandaríkjaforseta og spurt, hvort hann sé fáanl. til að láta mál þetta til sín taka. Segir í fréttinni. að Lyndon B. Johnson 'hafi játað því og sagt, að hann 'hafi sjálfur persónulegan áihuga á máli Andreasar Papandreous og muni, ef hann verði dæmdur til dauða, beita áhrifum sínum til að koma í veg fyrir að slík- ■um dómi verði fullnægt. Fregn þessi er höfð eftir vikuritinu Newsweek, sem jafnframt birt- ir viðtal við innanríkisráðherra Grikklands, þar sem hann segir að stjórnarskrá Bandaríkjanna geti orðið Grikkí"m mikilvæg • leiðsögn við saniningu nýrrar I stjórnarskrár. sonar, hrl., kr. 15 þúsund. Busehini skipstjóri áfrýjaði dóminum til Hæstaréttar og hef- ur hann sett tryggingu fyrir sektinni og kostnaði. Boston Kestrel lét úr höfn um kl. 3 síðdegis í dag. Mál skipstjórans var tekið fyrir seint á laugardagskvöld og lauk vitnaleiðslum um miðnætti aðfaranótt mánudags. Ófeigur Eiríksson, bæjarfögeti, kvað dóminn upp og meðdóm- endur hans voru Sigurjón Ingv- arsson og Guðjón Marteinsson. — Ásgeir. - BÁÐIR FELLDU Framhald af bls. 32. er hann tilnefndi dómanda í hans stað. Gerðardómurinn setur sér sjálfur starfsreglur. Hann aflar sér af sjálfsdáðum nauðsynlegra gagna. Skyldir eru deiluaðilar að láta dóminum í té skýrslur og upplýsingar, sem dómurinn kann að æskja og aðilar geta í té látið. 3. gr. Gerðardómurinn skal við af kjörum annarra sambærilegra launþega hér á landi og efna- 'hagsástandinu í landinu. 4. gr. Verkfall lyfjafræðinga, er hófst 10. apríl 1967 skal falla niður. 5. gr. Úrskurður gerðardóms- ins skal gilda frá gildistöku sam- komulags þessa til 31. desember 1967, og framlengist samningur aðila frá 18. febr. 1966 til sama tíma með þeim breytingum, sem leiða af úrskurði gerðardómsins. 6. gr. Kostnaður við gerðar- dóminn, þar á meðal laun gerð- ardómsmanna, eftir ákvörðun ráðherra, greiðist úr ríkissjóði. 7. gr. Samkomulag þetta öðlast gildi, er báðir aðilar kjaradeil- unnar hafa samþykkt það. Sáttasemjari ríkisins 6. maí 1967. Torfi Hjartarson." (sign) Atkvæðagreiðsla um miðlun- artillöguna fór fram á sunnudag og stóð yfir til kl. 4 síðdegis í gær. Atkvæði voru talin hjá sáttasemjara ríkisins í Alþingis- húsinu kl. 6. Hjá Apótekarafélagi Islands voru 26 á kjörskrá. Atkvæði féllu þannig, að einn sagði já, en 20 nei. Fimm greiddu ekki atkvæði. Hjá Lyfjafræðingafélagi ls- lands voru 49 á kjörskrá, 6 lyfja- fræðingar í félaginu tóku ekki þátt í atkvæðagreiðslunni, því þeir starfa hjá hinu opinbera og eru ekki í verkfalli. Atkvæði greiddu 37. Atkvæði féllu þann- ig, að 8 sögðu já, en 28 sögðu nei. Einn seðill var auður. Verkfall lyfjafræðinga mun halda áfram, en í gærmorgun voru 4 vikur liðnar frá þvi þeir lögðu niður vinnu. Dr. Jón Dúa- son látinn DR. JÓN DÚASON lézt sl. föstn dag að Vífilsstöðum. Hann fæddist 30. júlí 1888 i Langhús- um i Haganeshreppi, Skagafirði, sonur Dúa Grimssonar, bónda, og Eugeníu Jónsdóttur. Jón tók sfcúdentspróf frá MR 1913, las þjóðfélagsfræði við Hafnarháskóla 1913—1919, cand. polit. 1919, sfcundaði framhalds- nám í bankamálum 1919—1921. Starfaði á stjórnarskrifsfcofum í Höfn 1921—1926. Varði ritgerð fyrir doktorsgráðu í lögum við háskólann f Osló 1928. ’ Dr. Jón Dúason stundaði riit- störf um langt árabil og hefur m.a. skrifað mikið um Græn- land og um réttartilkall íslands til þess. Skólovist ó NorSuilöndom NORRÆNA félagið hefur milli- göngu um vist á lýðháskólum á Norðurlöndum næsta vetur. — Þeir sem hug hafa á slíkri vist eru beðnir að hringja í sima 21655 ellegar að koma í Hafnar- stræti 15 til að fá umsóknar- eyðublöð til útfyllingar. Skrifsfcofa félagsins er opin fcl. 4—7 e.h. og skal sækja um skólavist sem fyrst. Skilyrði fyr- ir skólavist eru: 18 ára aldur og tvenn meðmæli um siðprýði og góða hegðun. Sumarskólar í Danmörku Talsverðar breytingar hafa nýlega verið gerðar á fræðslu- kerfi Dana. Hefur þetta m.a. haft áihrif á sumarskóla, sem nokkuð hefur fækkað. Mest hafa áhrifin þó orðið á tíma skólanna, flestir þeirra hafa nú ekki lengri námskeið en sem .svarar tveim vikum. Um 35 lýðháskól- ar hafa þó enn námskeið, sem nefnd eru „sumarnámskeið“, en flest eru þau á tímanum frá 1. maí — júlí. Falla þau ekki að frítíma íslenzkra unglinga. Hef- ur þetta valdið Norræna félag- inu danska miklum erfiðleikum vegna íslenzkra nemenda, sem sótt hafa um skólavist í júní- júlí-ágúst. Vegna þessara um- breytinga allra eru þeir foreldr- ar sem óska upplýsinga um sum- arskóla beðnir að snúa sér til Höjskolernes Sekretatiat, Var- torv, Farvergade 27, Köbenhavn ö, Danmörk. Telefon: Byen 8680, sem g-efa allar nánari upp- lýsingar. "

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.