Morgunblaðið - 16.06.1967, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FöSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1%7.
BÍLALE3GAN
■ ÍERÐ-
Daggjald kr. 350,-
og pr. km kr. 3,30.
SÍMI 34406
SENDUM
MAGINÚSAR
SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190
eftirlokun s!mi 40381 ~
Hverfisgðtn 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigngjald.
Bensín innifalið í leigugjaidi.
Sími 14970
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Snndlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir lnkun 34936 og 36217.
f ----7B/IA IF/trAM
RAUDARARSTlG 31 SfMl 22022
GARÐASTRÆTi 2.SÍMI16770
^ Greinargerð
M.M.F.R. og tilboðin
Kristjón skrifar:
„Kæ.ri Velvaikandi!
í yfirlýsinguim Meistarasam-
bands byggingarmanna og Mál
•arameistarafélaigs Reykjavíkur
í dagblöðunum nýlega er al-
menningur fræddur um mjög
merkilegt mál, þ. e., hvernig
gengið er frá tilboðum í bygg-
ingariðnaðinum, svo og margt
annað fróðlegt þessum málum
viðkomandi.
Sérstaklega athyglisverð er
•rúmlega 2000 orða greinargerð
M.M.F.R. Mér finnst, að þeir
ættu að semja fleiri langlokur
■um byggingamál, almenningi
■tiil fróðleiks, enda margbjóðast
þeir til þess, ef tilefni gefst til.
Að visu var það óvenjuleg
frekja hjá málarameistaranum
í Keflavík að bjóðast til að
■selja efni og mála byggingu
Rannsóknarstofnunar land'bún-
aðarins á Keldnaíholti fyrir
nokkra tugi þúsunda lægra
verð en félagar í UMFR, og
þetta leyfir hann sér að gera,
aðeins til þess að verða „hlut-
skarpastur í keppninni um
málningarvinnuna“.
I>að er nokkuð langt gengið
að ráðast með lágum tilboðum
inn á Reykjavíkursvæðið, því
að þar er samstaða um upp-
mælingarkerfin og ekki leyfð
samkeppni milli einstaklinga.
Slíkt myndi aðeins lækka bygg
íngarkostnað og rýra allgóðar
tekjur meistaranna. Það er svo
annað mál, þótt verkin séu
misjafnlega vel unnin; iðnað-
•armenn eru mistækir, eins og
aðrir menn, og vart er það í
verkahring mælingamannanna
að meta vandvirknina, þegar
afköstin eru reiknuð út.
Mér finnst það misráðið hjá
MMFR að bera sig saman við
Dagsbrúnarverkamenn; slíkt er
fjarstæða. Verkamenn verða að
semja um sín laun við atvinnu-
veitendur en málarameistarar
taka venjulegast laun sín skv.
uppmælingatexta. Við hverja
þeir hafa samið um þessa texta
veit ég ekki. „
Að loknum lestri greinar-
gerðar stjórnar MMFR, dettur
manni í hug, hver hinna níu
samstöðu-meistara hefði átt að
„hreppa hnossið", ef Keflvík-
ingurinn hefði ekki farið að
undirbjóða Reykjavíkursam-
stæðuna.
Því miður verður það ekki
séð af sfcrifum M.B. og MMFR,
að þeir vilji raunverulega
stuðla að lækkun byggingar-
kostnaðar í okkar góðu höfuð-
borg. A.m.k. verður það ekki
lesið úr greinargerð M.B., að
þeir hafi selt íbúðir á lægra
verði en aðrir, og hver er þá
munurinn á þeim, sem byggja
til að græða, og hinum, sem
selja sína framleiðslu jafn
dýrt?
Kristján“.
-Ar Þeir lesa ekki og
þeir hlusta ekki
„Nölduirskjóða“ skrifar meðal
annars:
„Og svo er það áreiðanlega
alveg rétt, sem ég sá haldið
f.ram í dálkum yrðar, að út-
varp, myndvarp og blaðamenn,
sem einkum þurfa á því að
halda að lesa aðfinnslugreinar
Um málfar og hlýða á útvarps-
þætti um íslenakt mál, gera
það aldrei. Þeir endurtaka ein-
mitt sífellt sömu ambögurnar
og heimskuvillurnar, sem hat-
rammlegast er ráðizt gegn hjá
aðfinnslufólki og nöldu.rskjóð-
um eins og mér. Það er ekki
einleikið, að nokkrum dögum
eftir að sá barnaskólalærdóm-
ur var enn einu sinni þulinn
yfir alþjóð, að stríð, óeirðir,
pestir og brunar brjótast ekki
út, skyldu öll blöðin (og út-
varpið auðvitað líka) vera
sammála um, að stríð hefði
„brotizt út“ milli Gyðinga og
Araba. Hvers konar menntun-
arleysi er þetta eiginlega? Og
ha-fa þessir menn ekki snefil af
virðingu og. næmi fyrir móður-
máli sínu?
Má ég koma með nofckur
gullkiorn, sem ég hef séð und-
anfarna daga í blöðum og tíma-
ritum? (Ég er of sein til þess
að geta skrifað útvarpsvitleys-
urnar órðrétt niður, en útvarp-
ið, sem er ríkisrekið, verður að
'standa vörð um vandað mál-
far)i
„Hann fékk ungur tilfinningu
fyrir gagntakandi krafti bók-
inenntanna“ stóð með feitu
letri í Lesbók Morgunblaðsins
fyrir nokkru. Sá, sem þetta
‘gat skrifað, þyrfti að verða ör-
Títið „gagnteknari“ af bók-
menntum.
„Sumardagurinn fyrsti fór
Vel fram“. (Fyrirsögn í blaði).
„Hjálpið mér, stundi hann“.
„Ég kæri mig ekki um meira
rauðvín, örvænti hún“. „Slökkv
5ð þetta ljós, veinaði hann
1 alvöruþrunginni skelfingu“.
„Þú hefðir betra af því að
missa þesisa byssu, urxaði
*hann“. „Farðu ekki frá mér
strax, söng hjarta hennar“. „Þú
ert sannfæddur djöfull, hvæsti
hún og brakaði milli tann-
ianna“. „Hinir gömlu virkis-
múrar voru yfirgnæfandi hall-
■andi frarn á við yfir ógnþrung-
inn og skuggalegan vínekru-
dalinn, enda var þetta í miðju
•Suð-Austurríki".
Ég læt þess'i glæsiiegu
tíæmi úr framhaldssögum blaða
'(Morgunblaðið þó undanskilið)
óg tímarita nægja til þess að
Isýna hæfileika þýðendanna.
Af nógu er að taka. Sérstak-
lega er eftirtakanlegt, að nú
órðið er fólk í framhaldssög-
óm hætt að hugsa, hvísla, tala
eða æpa. Það veinar, stynur,
geltir, urrar, hvæsir, brakar,
andar, örvæntir, hryllir og
sogar inn í sálarlífið (,,hann
fcemur aldrei aftur, sogaði hún
tíjúpt inn í sálarlíf sitt og
•reyndi að gera þessa hræðilegu
'staðreynd að óumflýjanlegum
•paunveruleika“).
— Meira birtir Velvakandi
ekfci úr bréfi Nöldurskjóðu að
sinni.
Bifvélavirki — rafvélavirki
eða maður sem unnið hefur við bílarafkerfi óskast
nú þegar eða síðar. Góð vinnuskilyrði.
Upplýsingar í síma 81352.
BLOSSI S.F., Suðurlandsbraut 10.
Til lcigu lager- og iðnaðar-
húsnæði
rúmlega 200 ferm.
ÁSBJÖRN ÓLAFSSON,
Grettisgötu 2, sími 24440.
NYGENstriginn er
STERKARI EN STÁL
INTERNATIONAL
300% söluaukning á
GENERAL jeppa hjól-
barðanum á sl. ári
sannar ótvírœtt
ytirburði hans
Forðizt
eftir-
líkingar
ADEINS
GENERAL HJÖLBARÐINN ER
MEÐ NYGEN STRIGA
GENERAL.
ihternational
Opið virka daga frá kl. 7.30 — 22.
Laugardaga frá kl. 7.30 — 18.
hiólbarðinn hf.
LAUGAVEG178 SÍMI3S2G0
í
*