Morgunblaðið - 16.06.1967, Síða 22

Morgunblaðið - 16.06.1967, Síða 22
I 22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1967. I * Agúst Einarsson Bjólu — Minning ÁGÚST Einarsson, bóndi að Bjólu í Djúpárhreppi, andaðist að heimili sínu 10. þjm. og verð- ur jarðsunginn frá Oddakirkju í dag. Hann var fæddur í Rifs- halakoti í Ásahreppi 6. ágúst 1888. Foreldrar hans voru hjón- in Guðrún Jónsdóttir og Einar Guðmundsson, en þau voru fóst- urbörn Guðmundur á Korn- brekkum. Árið 1882 flýði fólkið frá Brekkum vegna sandfoks, en þá var Gunnarsholtshverfið kom- ið undir sand og óbjörgulegt um að lítast víða um RangárvellL t Eiginmaður minn, Pétur Guðmundsson, bifreiðastjóri, Sólheimum, Seltjarnarnesi, andaðist í Landaikotsspítala þann 14. þ.m. Fyrir rrúna hönd og barna okikar og annarra aðstand- enda. Guðrún Guðmundsson. t Eiginimaður minn og faðir okkar, Oddur Magnússon, Suðurgötu 121, Akranesi, lézt 14. þ. m. Vigdís Runólfsdóttir og börn. t Hjarikær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Guðni Pálsson, skipstjóri, Stigahlíð 18, sem andaðist að Hratfnistu 9. þ.an. verður jarðsunginn fná Frí'kirkjunni mánudag- inn 19. júní kl. 13,30. Jórunn Magnúsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Hjartikær maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafL Halldór Pálsson frá Nesi í Loðmundarfirði, sem andaðist 13. júni, verður jarðsiunginn frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 21. júní kl. 10,30 f.h. Athöfninni verður útvarpað. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hins látna er bent á líknarstofn- anir. Hólmfríður Björn.sdóttir, Björn Halldórsson, Auður H. ísfeld, Jón Kr. ísfeld, Leifur Halldórsson, Ámý Ingvaldsdóttir og bambörn. Guðmundur á Kornbrekkum átti jörðina Rifshalakot. Það þótti mikið happ að geta flu‘t þangað, sem venjulega var nóg gras eins og jafnan var á jörð- um sem áttu land að safamýrL Einar Guðmundsson var mikill dugnaðarmaður, framkvæmda- samur og hagsýnn. Hann var bróðir Eyjólfs „landshöfðingja“. Einar byrjaði búskap með sinni ágætu konu árið 1881. Árið 1909 flutti Einar frá Rifshala- koti að Bjólu, sem var þá eins og ávallt talin kostajörð. f Rifshalakoti vann Einar Guðmundsson stórvirki, með því að ræsa fram Rifshalakotsvatn og þurrka það upp. Þannig fékkst víðáttumikið og slétt stararengi við hlaðvarpann. Hjónin í Rifshalakoti urðu brátt efnuð og nutu ávaxtanna af jarðabótum, sem var nýung á þeim tíma. t Litli drengurinn okkar, Jón Gíslason, verður jarðsunginn frá Foss- vogsikirkju föstudaginn 16. júni kl. 15.00. Petrína BergVinsdóttir, Gísli Jónsson. t Hugheilar þakkir fyrir auð- sýnda samúð oig vinarhug við fráfall mannsins míns, Axels Oddssonar. Laufey Jónsdóttir. t Alúðarþaikkir fyrir auð- sýnda samúð við andlát og útför eiginmanns míns, Guðmundar Pálssonar frá Höfða. Sérstakar þakkir til Gísla Kristjánssonar, forstjóra Sundlhallar ísafjarðar, Ás- geirs frá Æðey og allra þeirra er glöddu hann með heimsóknum í veikindum hana. Elísa Einarsdóttir, börn, tengdabörn og fóstur- sonur. t Hugheilar þakkir færum við ölLum þeim er auðsýndu Sigrúnu Sigurðardóttur, frá TorfufeHi, góðvild og umhyggju og heiðrað hafa minningu henn- ar. SérstakLega þökkum við frú Jórunni Bjarnadóttiur og Erlendi Konráðssyni lækni, hjúkrun og umönnun. Systumar frá Torfufelli, fóstursonur, tengdabörn og barnabörn. Einar og Guðrún eignuðust 8 börn, sjö drengi og eina stúlku. Þrír drengir dóu ungir en fimm systkinin, Guðríður, Guðmund- ur, Ágúst og óskar komust til manndómsára. Guðríður dó ógift á blómaskeiði lífsins. Guðmundur hóf búskap að Ytra-Hóli í Landeyjum, flutti síðan til Vestmannaeyja og gerð- ist athafnasamur útgerðarmaðar þar. Guðjón bjó lengi í Rifshala- koti, hann var bókhneigður og fróðleiksfús og ágætur fræði- maður. Óskar var yngstur þeirra systkina og var settur til mennta. Hann hafði áh-uga fyrir sögu og fræðimennsku eins og Guðjón bróðir hans, en Óskar las læknisfræði og var ágætur læ'knir. Hann var heiisuveill seinni hluta ævinnar og dó á sl. vetrL Ágúst kvæntist 6. júní 1924 ágætri konu, Ingveldi Jónsdótt- ur frá Stokkseyri. Hófu þau Innilegar þakkir færi ég börnum mínum, tengdaiböm- um og barnabörnum, fyrir miklar gjafir og veitingar _ á 70 ára afmæli mínu. Ég þakka vinum mínum allar gjafirnar og komuna. Guð blessi ykkur. Arndís Kjartansdóttir. öllum þeirn vinum mínum sem glöddu mig á sjötugs afmælinu mínu þann 12. þ.m. með heimsóknum, blómum og skeytum votta óg mínar inni- legustu þakkir. Lifið heil Ólafur Þorláksson, Börmum. Innilegar þakkir og kveðj- ur til allra sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum á sjötugs afmæli mánu 3. júni sl. Sér- staklega þakka ég börnum mínurn og tengdabörnum ánægjulegan dag. Guð blessi ykkur öll. Bjarnveig Friðriksdóttir frá Gjögri, Strandasýslu. Innnilegar þakkir færi ég öllum þeim, er heiðruðu mig með gjöifum og heimsóknum á sjötugsafmæli mínu, 3. júni sl. — Kær kveðja til ykkar allra. Jón Jósefsson, Sámsstöðum, Laxárdal, Dalasýslu. búskap á Bjólu það ár. Á Bjólu hafa þau verið síðan og se+ið jörðina með sæmd. Hefir Bjólu- heimilið haldið þeirri rausn og myndarskap sem þar var áður en Ingveldur og Ágúst tóku við búsforráðum. Þau hjónin eign- uðust átta mannvænleg börn, eina dóttur og sjö syni. Eru þau öll á lífi og í fullu starfi við ýms nauðsynleg verkefni. Öll bera systkinin ættarmót dugandi og góðra foreldra og ættmenna, sem getið hafa sér góðan orðstír, þar sem leið þeixra lá. Þegar Ágúst á Bjólu er kvaddur rifjast upp margt frá fyrri tímum. Ég sem þessar línur rita man eftir honum, foreldrum hans og syst- kinum frá því ég fyrst fór að muna eftir mér. Upp í hugann koma margar minningar frá bernskuárunum, minningar sem gott er að rifja upp og ánægju- legt er að geyma. í Bjólu-hverfinu var gott fólk á þeim tima og er áreiðanlega enn. Þegar samferðamenn kveðja gefa menn sér jafnan tíma til hugleiðinga um liðinn tíma, um samtíðina og framtíðina. Það er mikils virði að hafa góðar minningar um samferða- mennina. Ágúst á Bjólu var þannig mað- ur að allir, sem honum kynntust munu hugsa hlýtt til hans og geyma góðar minningar um hann. Hugur samúðar og velvildar mun berast til eftirlifandi konu, barna og annarra vandamanna. Með Ágústi Einarssyni er geng inn mætur maður, þeirrar kyn- slóðar, sem mest hefur lagt fram til þess að þjóðin megi lifa frjáls og sjálfstæð við batnandi kjör í landinu. I. J. Árni Árnason, skip- stjóri — Minning í DAG verður lagður til hinztu hvíldar göfugmennið og barna- vinurinn Árni Árnason Gerðum í Garði. Þegar ég á slíkum vega- mótum hugsa um Árna og beim- ili hans er hugur minn svo full- ur af þakklæti og ljúfum end- urminningum að mig brestur orð, þegar ég vildi festa eitthvað af því á blað. Heimili foreldra rninna og heimili Árna og Guð- rúnar konu hans stóðu á sama hlaðinu í Gerðum. Ég minnist þess að þrátt fyrir allar annir Árna, því honum féll aldrei verk úr hendi, þá haifði hann alltaf tíma til að sinna kenjum okkar krakkanna, leysa vandamál okk- ar eftir beztu getu, hann gerði það svo vel og með gloðu geðL að öll börn hændust að honum, elskuðu hann og virtu. Ekkí dró það úr ásókn minni og annara barna að koma heim til Árna. Þax var lfka haukur í homi, þar sem Guðrún kona Árna var, hún opnaði heimili þeirra fjrrir okkur og tók okkur af svo mikl- um Skilningi og ástúð, að eftir- sóttasta markmiðið var að kom- ast inn til Gunnu og Árna. Ég minnist þessara heimsókna minna til þeirra með sérstöku þakklæti, því þangað fór ég í tíma og ótkna. Árni mun hafa komið mjög ungur í Garðinn, austan undan Eyjafjöllum, fór hann fljótlega að fást við sjóróðra. Hjá athafna- manninum Finn'boiga á Búðum var hann lengi skipstjóri á ýms- um skipum bæði frá Garði og af Snæfellsnesi. Á heimili for- eldra minna í Garðinum var oft mjög mannmaxgt enda rekin þaðan talsverð útgerð. Árni réð- ist til föður míns sem skipstjóri og var þá á heimili okkar í lang- an tíma. Af Árna fór mikið orð sem skipstjóra, vegna fiskisæld- ar og ekki síður hve mjög hann fór vel með alla hluti. Svo góður yfirmaður var Árni og vellátinn að aldrei varð honum manna vant. Seinna réðist á heimili okk- ar ung og glæsileg stúlka frá Akranesi, Guðrún Þórðardóttir, afburða fjölhæf og dugleg. Það fór svo að á meðan á dvöl þeirra hjá foreldrum mín- um stóð, ákváðu þau að fylgjast að á lífsleiðinni. Þau giftu sig í Gerðum og hafa búið þar alla tíð síðan. Ég tel það vera einhvert mesta lán um æfina fyrir oktour syst- íkinin að leiðir þessara góðu hjóna skyldi liggja saman um heimili okkar. Ýmsir erfiðleikar steðjuðu að eins og oft vill verða á mannmörgu heimilL við syst- kinin vorum 14, svo sem veik- indi o.fl., margt þurfti að at- huga og bæta úr utan húss og innan. Alltaf voru þessi góðu hjón boðinn og búinn til að leysa allan vanda, og alla hluti gátu þau. Guðrún saumaði og matreiddi o.fl. o.fl. Ámii var slítour hagleikismaður að hann gat smíðað allt, gert við allt, það lék allt í höndunum á honum bæði á sjó og landi. Minningarnar eru óþrjótandi, en allar fagrar og uimfram allt góðar. Árni minn við systkinin send- um þér, okkar innilegasta þakk- læti, fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur og foreldra okkar. Megi Guðsvegir, verða þínir vegir bjartir og fagrir. Kristín Guðmundsdóttir, frá Gerðum. Bifvélavirki óskast AFGREIÐSLA SMJÖRLÍKISGERÐANNA Sími 11690. Froskköfun Námskeið í froskköfun verður haldið í Keflavík eftir 20 .júní ef næg þátttaka fæst. Þátttaka til- kynnist í síma 1878 Keflavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.