Morgunblaðið - 17.06.1967, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1%7.
11
Skóla húsið.
Húsmæðraskólanum <
ísafirði færðar góðar
gjafir
Húsmæðraökólanum á ísatfirði
var sagt upp miðvikiudagiim Jl.
maí. Skólastjóri Þorbjörg Bjarna
dóttir skýrði frá skólastaríinu
Skólinn starfaði í átta mán-
uði og eina viku. Skólaskipan
var öll með sama haetti og und-
anfarin ár.
32 nemendur luku burttfarar-
prófi. Hæztu einkunn hlutu Áe-
dís Gunnlaugsdóttir frá Flat-
eyri og Sigurveig Jónsdóttir frá
Flatey á Skjálfanda, fengu þær
báðar 9,17. Voxu þeim veitt verð
laun úr Camillusjóði.
Skólakositnaður hetfur hækkað
nokkuð frá siðasta vetri. Munu
nemendur þó ekki hfaa farið
með yfir 20 þús. til skólans, þar
innifalið fæðiskostnaður sem var
kr. 10.400.oo yfir allan tímann.
Fastir kennarar við skólann
voru auk skólastjóra Guðrúnar
Vigfúsdóttir, Hjördis Hjörleifs-
dóttir og Rannveig Hjaltadóttir
Aðstoðarstúlka var Emima Rafns-
dóttir.
Fjöldi gesta voru viðstaddir
ekólaslit, þar á meðai maxgir
gamlir nemendur frá ýmsum
árgöngum.
Ávörp og ræður fluttu auk
skólastjóra, formaður skólanefnd
ar Marias Þ. Guðmundsson, frú
Iðunn Eiríksdóttir formaður
Kvenfélagsins Óskar sem afhenti
verðlaun úr Camillusjóði. F'rú
Guðrún Vigfúisdóttir ávarpaði
Vill ofnemo
Indlandshjólp
Washington, 16. júní (AP)
WILLIAM O. Cowger, þingmað-
ur repúblikana fyrir Kentucky í
Fulltrúadeild Bandarikjaþings,
bar í dag fram frumvarp um að
fella úr gildi ákvörðun þingsins
frá þvi í marz um að veita Ind-
verjum 190 milljón dollara mat-
vælaaðstoð.
Cowger sagði að frú Indira
Gandhi, forsætisráðherra Ind-
lands, hefði að undanförnu hald
ið uppi harðri gagnrýni á Banda
ríkin og ráðizt á stefnu banda-
rísku stjórnarinnar, en rómað
Abdel Gamal Nasser sem „fram
faraafl"
„Mér er ómögulegt að skilja
það“, sagði þingmaðurinn,
„hversvegna við eigum að fæða
indversku þjóðina nú þegar Ind-
verjar hafa sagt skilið við hlut-
leysisstefnu sína og gagnrýna að
ítoð okkar og utanríkisstefnu."
j t h«nd\ mi«n^
að auglýsa í Morgunblaðinu
að það er ódýrast og Dcrt
gamla nemendur.
Frú Gyða Einarsdóttix talaði
fyxix hönd 26 ára nemenda og
færði skólanum kr. 10 þús. til
minningar um látna Skólasystur
Svanfríði Kristóbertsdóttir.
Frú Jóna Bjarnadóttir talaði
fyrir hönd 20 ára nemenda og
færði skólanum einnig kr 10 þús
Báðar þessar gjafir renna i Hí-
býlasjóð skólans.
>á talaði frú María Jóakims-
dóttir, einnig af hálfu 20 ára
nemenda, og gáfu þær forkunn-
ar fallega fán-astöng áletraða
ásamt falegum brauðfötum úr
tekki.
Þvi næst talaði frú Sigurborg
Benediktsdóttir af hálfu 10 ára
nemenda sem gáifu skuggamynda
vél og ljósmyndavél. Að síðustu
tók til máls ungfrú Margrét
Finnbogadóttir og hafði orð fyr-
ir brautskráðum nemendum.
Þakkaði hún skólastjóra og kenn
urum samveruna og færði skól-
anum vandaða klukku.
Margir færðu auk þess skól-
an-um blóm og árnuðu honum
heilla, þar á meðal tveir 30 ára
nemendur Frú Guðrún Árnadótt
ir fl-utti kveðjur og afhenti fall-
ega blómakörfu frá nemendum
úx Keflavík, sem voru í skólan-
um veturinn 1963-1964. Allar
þessar gjafir og kveðjur, þakkaði
skólastjórinn og þann hlýhug
sem að baki þeim lægi. Var síð-
an öil-um boðið til kaffidrykkju
í borðsal skólans. Þar söng skóla-
kórinn undir stjórn Ragnars H.
Ragnars sem ann-ast hefur söng-
kennislu í skólanum í vetur, und-
irleikari var Anna Sigurðar-
dóttir.
Bílastöð Hafnarfjarðar
Opið allan sólarhringinn.
5-16-66
Vandlátir reykja
MULATA — FORTUNA — HALF CORONA
DUET — VADA MEDIA — PICO.
Raftæknimenntaður
maður
óskast til starfa við verkáœtl-
anir o.tl. Upplýsingar í veitukerfis-
deild, Hafnarhúsi 4. hœð
RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR.
Hátí&armatur
Æ
I
MÚLAKAFFI
í dag, 17. júní, er opið hjá okkur frá kl. 9 f.h. —
kl. 23.30 í kvöld. — Hátíðamatur er framreiddur
hvenær sem er dagsins.
Matseðill 17. júní
Sveppasúpa
Innbökuð smálúðuflök m/remouladesósu
Lambasteik m/grænmeti
Vínarpylsur m/kartöflusalati
Vínarsneið Carne
Lambakótilettur m/grænmeti
Buff bauti Stroganoff m/ frönskum kartöflum
Grísasteik m/rauðkáli
Hamborgarhryggur m/rauðvínssósu
Matur framreiddur frá kl. 11 f.h. til kl. 10 e.h.
Kaffi, súkkulaði m/rjóma, kökur og smurt brauð
allan daginn.
Fjölskyldan borðar hjá
okkur í dag! - Skjót og
góð þjónusta! .
— GLEÐILEGA HÁTÍÐ —
IU9LLAKAFFI, HALLARMÍÚLA
MARY QUANT
SNYRTIVORUR
Bylting
Æ
1
snyrtivörum
FÁST í REYKJAVÍK
nðeins hja
Knrnnbæ
SNYRTIVÖRUDEILD
Klapparstíg 37
SÍMI 12937.
HEILDVERZLUN
BJÖRNS PÉTURSSONAR
& CO. H/F.
Laufásvegi 16, sími 18970.