Morgunblaðið - 17.06.1967, Blaðsíða 12
■ 12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1967.
'Áttrœður mánudaginn 19. júní:
Jóhann Magnússon skip-
stióri Neskaupstað
rYRIR um það bfl hálfri öld
blómgaðist mikið athafnalíf um
byggðir Austurlands. I>jóðin var
að vakna til meðvitundar um
betri tíma. Vorblær nýrra fyrir-
heita barst í lofti. Öld véla og
nýrra og stórstígari atvinnu-
hátta, hélt innreið sína, Firðir og
víkur voru fullar af fiski og bát-
arnir stækkuðu og nýting hvers-
fconar sjávarafla veitti fólkinu
rýimri og betri kjör en áður hafði
verið með þjóðinni. Jafnframt
sást rofa fyrir tímum frelsis og
sjálfstæðis.
í landinu óx upp mikið mann-
val, er einkenndist af dugnaði og
d’áðmi'klum athöfnum í þágu
lands og þjóðar. I>essir hug-
djörfu hugsjóna- og athafna-
menn áttu eftir að móta hið
nýja ísland og hafa varandi
áhrif á framvindu og framþróun
1 atvinnumiálum til lands og
sjávar.
Einn þessara manna er Jó-
hann Magnússon, sem í dag fyll-
ir 8. tuginn, þótt vinum hans
þyki með ólíkindum, svo er Jó-
hann langt frá þvi að vera öld-
ungur, hvað heilsu og krafta
áhrærir.
Jóhann var einn af vormönn-
sin lands vors, á fyrstu tugum
þessarar aldar, er hlaut í vöggu-
gjöf óvenjulegan þrótt og kraft,
tókst ungur á hendur starf braut
ryðjandans í vestfirzkri sjó-
mannastétt, hóf kyndil nýrri og
betri tíma á loft og bar hann
tiil seinni kynslóða, er erfa át*u
landið.
Jóhann Magnússon, er vér
hyllum í dag, er fæddur 19. júní
árið 1887, að Eyri í Seyðisfirði í
Norður-ísafjarðarsýslu. Jóhann
er kominn af sterkum stofni ís-
firzkra sjósóknara og búhölda.
Hann ólst upp hjá móðurafa sín-
um Guðmundi Bárðarsyni, út-
vegsbónda á Eyri, er á sínum
tíma var einn af merkustu at-
hafnamönnum við Djúp og höfð-
inglundað stórmenni í athöfnum,
sjón og reynd. Engum manni
unni Jóhann jafn heitt og afa
sínum, enda mun hann hafa mót-
að hug og sýn hins unga sveins,
til framtíðarinnar fremur öllum
Öðrum mönnum. Enda reyndist
L Jóhann í mörgu líkur honum, er
P hann óx úr grasi. Ég hygg að
; honum þakki hann lííslán sitt og
óbifanlega bjartsýni í erfiðleik-
uan og raunum er verða ein-
í> hverntíma á vegi allra manna, á
f Jangri og viðburðaríkri ævi.
j i Bernskuárin á Eyri urðu Jó-
j. hanni, einn af þeim skólum er
> ungir ísfirzkir fullhugar sóttu í
. harðfengi og dug í fangbrögðum
við Ægi konung, en það urðu
Mutskipti allmárgra vestfirzkra
unglinga á þeirri tíð, að helga
Bjósókninni starfskrafta sína,
enda munu allflestir aflamenn
I togara- og síldarflotans er skar-
j að hafa fram úr á undanförnum
; árum vera af vestfirzku bergi
brotnir, eins og alþjóð er kunn-
Ugt.
Aðeins 12 ára að aldri tók Jó-
i hann að sækja sjó og ffluittist þá
j með móður sinni til ísafjarðar,
; þar sem hann bjó um allmörg ár.
f 17 ára gamall verður hann for-
j maður á vélb. Sigurfara, en
hann var eigandi hans, ásamt
fornvini sínum hinum kunna at-
hafna og merka vestfirzka sjó-
sóknara Páli Pálssyni í Hnífs-
dal, en milli þeirra og fjöl-
skyldna hafa um árin haldist
órjúfandi vináttubönd, þótt vík
hafi verið á milli vina, þá hafa
þeir í gegnum árin jafnan haldið
Ísambandi.
í En árið 1913 verða þáttaskil
( ævi Jóhanns Magnússonar, er
j hann ræðst á skútu er Duus
verzlun í Reýkjavík ábti og hét
Hafsteinn. Þá um vorið flytzt
hann austur tifl Norðfjarðar, en
þa var sjávarútvegur hér eystra
' *neð miklum blóma, e:ns og áður
L «r getið. Gerðist hann þá mótor-
isti hjá hinum kunna útgerðar-
manni Gísla Hjálmarssyni í
Neskaupstað, en hann rak all-
•uimfangsmikla útgerð hér um
þær mundir. Hjá honum var
Jóhann formaður um tveggja
ára skeið. Síðar á vélbátnum
Kraka, er Jón Sveinsson og
Magnús Hávarðsson gerðu hér út
í félagi.
Um margra ára skeið var Jó-
hann skipstjóri á bátum Sigfús-
ar Sveinssonar, hins mikla aust-
firzka athafnamanns.
Árið 1924 gekk Jóhann að eiga
Ingibjörgu Sveinsdóttux frá Við-
firði, hina gerfiflegustu konu, og
eignuðust þau eina dóttur barna,
Maríu Ingiríði, er gift er og bú-
sett í Reykjavík. Konu sína
missti Jóhann efitir bveggja ára
sambúð.
Síðari kona Jóhanns er Kristín
Magnúsdóttir, ættuð frá Dalvík,
hin mesta sæmdarkona og er
heimili þeirra í Neskaupstað
víðfrægt fyrir gestrisni og höfð-
ingslund.
Jóhann Magnússon er í mörgu
óvenjulegur maður, sem öllum
er kynnast honum, verður jafn-
an minnisstæður, er þeir heyra
góðs manns getið. Hann er
drenglundaður, stór í sniðum,
hvar sem hann kemur nærri og
höfðinglundaður svo af -ber.
Engan mann á hans aldri hefi ég
séð njóta sín betur í hópi glað-
værra æskumanna og er Jóhann
þá oft yngstur í anda í þeirra
hópi.
Yfir sál hans dregur afldrei
ský. Þar ríkir jafnan góðgirni og
mannkærleikur. Og ég fullyrði
að ég nfæli hér fyrir munn allra
hinna mörgu vina Jóhanns nær
og fjær á þessum merku tíma-
mótum í lífi hans. S.l. 11 ár hef-
ur Jóhann verið einn af forstjór-
um og meðeigendum söltunar-
sitöðvarinnar Sæsilfur hér í
Neskaupstað og rækt störf sín
þar af árvekni og kappi þrátt
fyrir háan afldur. •
Jóhann fer aldrei dult með
skoðanir sínar, er heill og óskipt-
ur í hverju máli. Hann ann fyrst
og fremst íslenzkum málstað og
styður af alhug þá stórstígu upp
byggingu er á sér stað með þjóð
vorri í dag. Bugur hans dvelur
þá gjarnan með hinum ungu og
dugmiklu aflamönnum norð
firzkrar sjómannastéttar og get
ég fullyrt að til Jóhanns sækja
þessir vinir hans, heill og far-
sæld á hinum nýju og glæsileg-
um skipum sínum, því að góður
hugur má sín mikils í lífi mann-
anna.
Jóhann var eins og áður er get
ið skipstjóri lengst ævi sinnar.
Hann var farsæll og virtur skip-
stjórnarmaður og vinsæll af
skipsfélögum sínum.
Sjómannsævi Jóhanns mun
lengi verða í minni höfð, eigi
sízt fyrir atvik eitt er kom fyrir
hann, er hann háði hildi við Ægi
konung, og ber sú frásaga að
sínu leyti blæ helgisagnar. Eitt
sinn er Jóhann var skipstjóri á
vélb. Gylli er gerður var út frá
Neskaupstað, hreppti hann ofsa-
veður fyrir sunnan land og var
lengi talinn af ásamt skipshöfn
sinni og öðrum báti. Heima beið
kona hans Kristín í bæn og von
og hét því ef maður hennar og
aðrir þeir er saknað var yrðu
heimitir heilir úr helju, skyldi
hún stofna slysavarnardeild á
staðnum.
Hamingjudísirnar urðu Jó-
hanni hliðhollar eins og jafnan á
ævi hans og Gyllir og Fylkir, en
svo hét hinn báturinn sigldu
heilu höldnu í höfn.
Slysavarnardeild kvenna í
Neskaupstað var stofnuð fyrir
tilstilli konu Jóhanns er var
formaður hennar, og hefir
jafnan starfað af mikilli prýði.
Fyrir tveimur árum var hald-
ið upp á 30 ára afmæli deifldar-
innar af miklum myndarskap og
þar sátu þau hjón i öndvegi og
voru sérstaklega heiðruð í til-
efni afmælisins.
Ég nefni þessa heillariku sögu,
til þess að leggja áherzlu á, að
störfum og lífi Jóhanns Magnús-
sonar hefir ætíð fyflgt heill og
hamingja,
Ég var svo heppinn þe;. . á
fyrsta ári mínu hér, að kynnast
þessum unga öldungi. Kynni
okkar hafa ætið einkennzt af
stakri tryggð hans við minningu
föður míns og afa og vináttu
við ætbmenn mína við Djúp.
Margar ánægj ustundir hefi ég
átt á heiimili þeirra þeirra hjóna
í Neskaupstað.
Um margra ára skeið eftir að
Jóhann kom í land, veittu þau
hjón forustu sjúkraskýli hér í
bæ, er rekið var af bæjarfélag-
inu, áður en Fjórðungssjúkra-
sjúkrahúsið var reist. Hjúkraði
Kristín kona hans mörgum
sjúklingum, innlendum og er-
lendum sjómönnum er hingað
leituðu, af mikilli umhyggju,
enda eina lærða hjúkrunarkon-
an hér um slóðir um árabil.
Vóru þau hjón jafnan samhent
í þessum líknarstörfum. Þar var
eigi fyrst og fremst spurt um
hagnað og þóknun í þjónustunni
við hina sjúku.
Fyrir allt þetta er þeim þakk-
að og hið merka starf þeirra
hjóna í þágu heilbrigðismála
staðarins metið hér í Neskaup-
stað af verðleikum.
Á þessum merku tímamótum,
árna ég og fjölskyldá mín góð-
um vini heilla og hamingju og
bið honum og hinni göfugu konu
hans allrar blessunar á komandi
árum og óska þeim langra >g
bjantra lífdaga. Mæli ég hér
einnig fyrir hina fjölmörgu vini
hans hér um slóðir.
Á vordegi er sól er hæst á lofti
er gott að geta borið þessa ósk
fram, enda í samræmi við hug og
hjarta afmælisbarnsins, er vér
hyllum í dag.
Árni Sigurðsson.
Afmæliskveðja.
Ótrúlegt er það en satt er það
samt, að Jóhann Magnússon, út-
gerðarmaður í Neskaupstað, fyll-
ir áttunda tuginn á mánudag-
inn kemur. Það þarf ekki löng
kynni af Jóhanni til að sjá og
finna og þar fer hetjumenni í
sjón og raun. Jöhann hefir marga
fjöruna sopið um sina daga en
heill og sterkur gekk hann frá
leik og starfi. Ég sendi honum
mínar innilegustu hamingju-
óskir og hans góðu konu um
leið og ég þakka honum frábær
kynni og elskusemi í minn garð
og mikilsverðan stuðning.
Megi hann enn um mörg
ókomin ár ganga brattstígur
fram lífsbrautina, miðlandi
bjartsýni, stórhug og vinar-
gleði.
Sverrir Hermannsson.
Aukastarf
Gott aukastarf, algjörlega sjálfstætt. Góðir mögu-
leikar um að auka tekjur sínar n.æstu ótakmarkað
eftir dugnaði hvar á landinu sem er. Jafnt fyrir
karla sem konur. Sendið nafn og símanúmer til Mbl.
merkt: „Aukastarf 99 —754“.
Auglýsing
um breytt símanúmer lögreglu-
stjóraembœttisins í Reykjavík
Frá og með 19. júní verða símanúmer
embættisins sem hér segir:
Aðalsími (10 línur) 10200
Lögregluvarðstofa 11166
Skráning bifreiða 16834
Sjá nánar í símaskrá.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 15. júní 1967.
SOKKARNIR
sem sameina alla góða kosti með langri end-
ingu, hóflegu verði, og nýjustu tízkulitum.
KOSTAKJÖR
Enn á ný hafa hinar miklu sokkaverksmiðjur í
Tékkóslóvakíu lækkað verðið á framleiðslu sinni.
Hinir viðurkenndu, fallegu og óslítandi 30 DENIER
ÍSABELLA-REGINA sokkar kosta nú í smásölu
um 34,00 (í stað kr. 42,00 áður) og ÍSABELLA 20
den. um kr. 27,00 (í stað kr. 35,00 áður). — Vöru-
gæði getíð hin sömu. — Fallegir sokkar sem fara
vel og endast lengi. Notið þessi kjarakaup, sem
eru einstök fyrir fyrsta flokks sokka.
Heildsala:
ÞÓRÐUR SVEINSSON & CO. HF.