Morgunblaðið - 17.06.1967, Page 16
16
MORGUNBLAÐIO, LAUGARDAGUR 17. JUNI 1967.
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
f lausasölu kr.
Áski’iftargjald kr. 105.00
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
7.00 eintakið.
á. mánuði innanlands.
ÞJÓÐHÁTfÐ
¥ DAG minnast íslendingar stoínunar hins íslenzika lýð-
veldis árið 1944 ag votta um leið virðingu sína minn-
ingu Jóns Sigurðssonar. Þennan dag horfum við til baka
yfir nær 1100 ára sögu íslands byiggðar, hugsum stolt til
þeirra, sem fyrstir byggðu ísland, minnumst með virðingu
hinna, sem með þrautseigju og hugrekki tryggðu það, að
'þetta land lagðist ekki í auðn, þótt fólkið byggi um aldir við
erlenda áþján, sbort og margvísliegt harðæri. Sá íslend-
ingur sem nobkru sinni gleymir sögu þjóðar sinnar,
gleymir þeim afrekum, sem forfeður okíkar unnu, gleymir
þeim ótrúlegu erfiðleikum, sem fólkið í þessu landi átti
við að búa fyrr á öldum, er ekki lengur í þeim tengstum
við land sitt og þjóð, sem hann þarf að vera.
FRÉTTAMYNDIR
Israelskir skriðdrekar sækja upp á sýrlenzku hæðirnar 10. júní sl. ísraelsmenn halda því fram
að sýrlenzkir hermdarverkamenn hafi gert árásir á ísrael frá hæðum þessum undanfarin ár.
En um leið og við heitum því í dag, eins og við höfum
svo oft gert áður, að geyma stolta sögu feðra ofckar og
kenna hana óbornum kynslóðum, svo að tengsl
nútímana og framtíðarinnar við fortíðina rofni aldrei,
Itítum við fram á veg og fhugum stöðu lands okfcar og
þjóðar í nýjum og síbneytil'egum heimi. Frá því að lýð-
veldi var stofnað á Þingvöllum hinn 17. júní 1944 hafa
miklar breytingar orðið í veröldinni í kringum okkur. Og
þegar þjóðhátíðardagur ísLendinga verður haldinn hátíðleg-
ur um næstu aldamót verða breytingarnar orðnar
ennþá meiri. Það er hlutverk ungrar og upprennandi kyn-
slóðar, stúdentanna, sem hafa verið að útskrifast þessa
dagana og jafnaldra þeirra, að tryggja sjállfstæði og fulll-
veldi íslands í heimi aldamótaáranna, að varðveita ís-(
lenzka tungu og menningararfleifð í veröld, sem veitir
einnig Okkur, sem í þessu landi búum, meiri og stærri
tækifæri en nökkru sinni fyrr, en skapar um Leið smá-
þjóðum miklar hættur.
: Þær kynslóðir, sem á þessari öld hafa leitt sjálfstæðis-
baráttuna tiil sigurs og leitt þjóðina fyrstu sporin í þeim
heimi, sem síðari heimsstyrjöldin skapaði, hafa þegar unn-
ið svo mikið starf, að sú æska, sem nú er, verður að taka
Handteknir Arabar í gamla borgarhlutanum standa upp vid húsveggi með hendur yfir höfði
sér meðan leitað er á þeim.
ó öllu því, sem hún á tiil eigi hún að standa þeim á sporði.
ísl'enzjk æska hefur búið við betri kjör en foreldrar henn-
ar áttu við að búa í sinni æsku. Hún þefckir ekki erfiðleika
ög bröpp kjör þeirra tíma, hún er vel menntuð og henn-
ar eru tækifærin, hún þekkir ebki þá tíð, þegar ungir og
gláfaðir menn urðu að brjótast til mennta með miikluim
erfiðleikum og tókst það stundum ekki. Hún þekkir yfirleitt
ékkert nema veLmegun og velsæld og að allt- leiiki í lyndi. En
einmitt vegna þess, að hún hetfur aldrei kynnzst þeim erfiðu
lafskjörum, sem foreldrar hennar þekktu í sinni æsku ríður
á miklu, að hún þekki og skilji sögu þjóðar sinnar og
geri sér raunsæja grein fyrir þeiim erfiðu verkefnum, sem
hún á sjálf eftir að leysa í framtíðinni.
En til allrar hamingju hafa nýir og betri tímar ekki
spillt íslenzkri æsku. Hún hefur í dag tifl. að bera heil-
brigðan þjóðernislegan metnað, um leið og hún er reiðu-
búin og fús til þess að njóta þeirra menningarverðmæta,
sem orðið hafa til með öðrum þjóðum. Henni hefur e.t.v.
tekizt betur að skapa jafnvægi miflli þess, sem íslenzkt er
og hins sem er erlent og hún villl njóta, en kynslóðinni á
undan henni. Tækifæri hennar tiil þess að vísa íslandi
örugga leið inn í nýjan beim næstu aldamót bygigjast ein-
mitt á því, að hún kunni í framtíðinni að halda eðlilegu
og heilbrigðu jafnvægi milfli þessa.
' Minnumst í dag þeirra, sem fyrst og fremsf hafa skapað
okkur tækfæri til þess að lifa sem frjáls þjóð í frjálsu
landi. Brýnum í dag þá, sem eiga að ávaxta þennan arf á
næstu áratugum, að sú arfleifð sem þeir skili frá sér verði
ekki síðri, en sú sem þeir tóku við
m ■
// x
.
' 'j.,/-'
Hermenn ísraelsmanna sækja inn í bæínn Gaza
• -~v“ W m
1 ■•••• ??'■£*.
mm $£ i * < ’ B