Morgunblaðið - 17.06.1967, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1967.
23
Skordýraeitur hœttu-
tegt fuglalífi
trá Fuglavernarfélagi íslands
BRÁTT líður að hinni árlegu
úðun garða í Reykjaví'k með
skordýraeitri. Úðun hefur mjög
færst í vöxt á seinni árum og er
nú orðin svo stórfelld og vel
slkipulögð að furðu saetir. Þar
eð við teljum þetta alvarlegra
mál en fólki virðist almennt
Ijóst, viljum við benda á eftir-
farandi atriði í sambandi við
xnotkun skordýraeiturs:
1. Margar þær tegundir af
skordýraeitri sem hér eru á
markaði eru kemisk efni sem
HIN árlega prestastefna verður
haldin hér í Reykjavík dagana
lö.—21. júní þ.m. Hún hefst á
mánudaginn 19. júní, með messu
I Dómkirkjunni kl. 10,30. Dr.
Helge Brattgard, dómprófastur
í Linköping predikar, en altaris-
þjónustu annast séra Sigmar
Torfason prófastur á Skeggja-
stöðum og séra Árni Pálsson í
Söðulsholti. Kl. 14 sama dag
verður Prestastefnan sett í kap-
ellu Háskólane og flytur þá
bis'kupinn ávarp og yfirlits-
skýrslu. Kl. 16 þann dag verða
prestskonur í boði biskupsfrú-
arinnar á Tómasarhaga 16. Kl.
16 verður tekið fyrir aðalmál
Prestastefnunnar Endurskoðun
Helgisiðabókarinnar. Framsögu
hefur biskupinn, herra Sigur-
björn Einarsson. Þetta mál verð-
ur síðan rætt í umræðuhópum
næstu daga. Kl. 17.15 flytur Dr.
Helge Brattgárd, dómprófastur
fyrirlestur, sem nefnist Ráðs-
menn Guðs gjafa. Hvað segir
ORLOF húsmæðra í Kópavogi
Verður á sama tíma og síðast-
Œi'ðið sumar þ.e. fyrstu dagana í
é'gúst. Að þessu sinni verður
tíivalið að Laugum í Dalasýslu.
frá 31. júlí til 10. ágúst. Á Laug-
úm er innisundlaug, en flestum
ifconum finnst heilsubót að því
®ð fara í heita laug. Þarna er
veðursæld mikil, nóg af lautum
tog bollum til þess að njóta sól-
tbaðs, og einnig er þarna nokk-
mrt berjaland. Meðan á dvölinni
stendur, verður farin ein
bkemmtiferð um fögur héruð og
nkoðaðir sögustaðir, sem eru
Ifjölmargir á þessum slóðum. Að
Iþessu ®inni geta um 40 konur
(fengið að njóta orlofs á vegum
Prtofsnefndar Kópavogs. Þær
|sem ekki hafa farið áður, verða
Hátnar ganga fyrir, en hinar eru
Krelkomnar ef rúm er fyrir
Ihendi.
ekki eyðast heldur geymast i
jarðveginum um ófyrirsjáanleg-
an tíma. Af þessum flákki er
t.d. D.D.T. Aftur á móti eru
einnig til skordýraeitur sem
unnin eru úr jurtum og eyðast
fljótlega eftir notkun. í þeim
flokki eru t. d. rotenone og pyr-
etherum.
2. Það hefur komið í Ijós við
rannsóknir erlendis að ýmis
smádýr (t.d. maurar og könglar)
sem lifa á meindýrunum sem
úðað er gegn eru viðkvæmari
Biblían um það. Um kvöldið
kl. 19.30 flýtur séra Magnús
Guðmundsson Grundarfirði
Symoduserindi í útvarp, Kirkjan
og börnin. Kl. 16.15 á þriðjudag
flytur séra Gunnar Ösfenstad
fyrirlestur, sem nefnist Vitnis-
burður kristins safnaðar.
Á þriðjudagskvöld, kl. 19,36
flytur svo frú Dómhildur Jóns-
dóttir frá Höfðakaupsíað
synoduserindi í útvarp: Prests-
konan í dag. Prestastefnunni lýk-
ur á miðvikudaginn kl. 18.30
með bænagjörð í kapellu Háskól-
ans. Um kvöldið verða prestar
í boði heima hjá biskupi.
Þegar að lokinni Prestastefnu
hefst svo Guðfræðiráðstefna á
vegurn Þjóðkirkjunnar og Lút-
erska heimssambandsins, stend-
ur hún yfir frá 22. júní til 24.
júní. Viðfangsefni ráðsitefnunnar
er Ráðsmenn Guðs. Fyrirlesarar
verða Dr. Helge Brattgárd og
séra Gunnar Örstenstad.
(Frá skrifstofu biskups).
mánuði, á þriðjudögum og
Ifimmtudögum frá kl. 4—6. Þar
Iverður tekið á móti umsóknum
log veittar upplýsingar varðandi
lorlofsdvölina. Símanúmer skrif-
Istofunnar verður 41671.
(Frá Orlofsnefnd).
fyrir skordýraeitri en meindýr-
'in sjálf. Við úðun drepast því
öft miklu stærri hundraðshluti
þessara dýra heldur en af mein-
dýrunum sjáifum. Þannig hefur
úðun stundum þveröfug áhrif.
Þegar drepin hafa verið þau dýr
sem lifa á meindýrunum og
halda stofni þess í skefjum
fjölgar því oft geysilega. Við
endurtekna notkun sama lyfs
verða skordýr (einkum ýmis
meindýr) oft ónæm fyrir því í
mjög ríkum mæli.
3. Spörfuglar eyða óhemju
magni af skordýrum einkum um
varptímann er þeir ala unga sína
að mdklu leyti á skordýrum og
lirfum þeirra. Fuglar og ungar
þeirra drepast oft af því að éta
skordýr sem úðuð hafa verið og
margir þeirra sem ekki fá nógu
stóran skammt til áð drepast
verpa ófrjóum eggjum. Þrestir
og fleiri fuglar lifa miikið á
ánamöðkum. Skordýraeitur hef-
ur lítil áhrif á ánamaðka og er
óft mikið magn af því í þeim
sem þeir innbyrða með föllnu
laufi úðaðra trjáa og á annan
hátt. Fuglarnir drepast svo af
því að éta eitraða ánamaðka,
skordýraeitrið drepur þannig öt-
ulusta skordýraeyða sem til eru,
■spörfuiglana, sem auk þess veita
mönnum ótal ánægjustundir.
4. Húseigendur einkum þeir
sem eiga börn verða fyrir bein-
um óþægindum af úðuninni,
þartf að gæta varúðar í um-
gengni um garða sem úðaðir
harfa verið og börn eiga helzt
ekki að koma þangað í nokkurn*
tíma. Þessi óþægindi gætu menn
otft losnað við með því að láta
ekki úða garða sína að ástæðu-
lausu.
5. Víðtækar rannsóknir fara
nú fram á hringrás þessara efna
í lífheiminum og langvarandi
áhrifum þeirra á lífverur aðrar
en skordýr. Má þar t. d. benda á
rannsóknir á áhrifum af skor-
dýraeitri hjá fóstri hjá konum
sem neytt hafa fæðu meingaða
þessum eiturefnum.
Við viljum því hvetja fólk til
þess að úða ekki garða nema
þrýn ástæða sé til. Otft gietur
nægt að úða einstök tré eða
runna sem mikill maðkur er í.
“Ef nauðsynlegt reynist að úða
einstök tré eða garða, viljum
'vér beina þeim tilmælum til
'fólks að nota rotenone eða
pyrethrum frekar en hin lang-
æju kemisku efni. Fullrar var-
úðar verður þó einnig að gæta
‘í meðtferð þessara etfna. Þeim
sem vilja kynna sér þessi mál
nánar bendum vér á hina frægu
og stórmerku metsölubók Rachel
Carson, „Raddir vorsins þagna“
sem komið hefur út í íslenzkri
þýðingu.
(Fréttatilkynning frá
Fuglaverndarfélagi íslands).
Breytt símanúmer
Frá og með mánudeginum 19. júní er símanúmer
okkar 81600.
GRÆNMETISVERZLUN LANDBÚNAÐARINS.
GEAR - IHOTORAR
Prestastefnan
hefst á mánud.
Orloi húsmæðra
í Kópavogi
Skritfstotfa á vegurn Orlofs-
nefndar, verður opin í Félags-
fheimiili Kópavogs, 2. hæð, í júlí
Líf í Skjaldarey
Eigandi Skjaldareyjar á Breiða
firði, hetfur beðið blaðið að leið-
rétta þá frásögn, sem birtiist í
biaðinu í gær, að minnkur hefði
1 tfyrrasumar eytot öllu Uíi i eynni
Kveður hann þá frásögn ekki
rétta. Dýrið hafði verið unnið
áðui' en það gerði mikinn skaða.
Nýkomið:
Gearmótorar
0,4 — 0,6 — 1,1 —
1,5 — 2,2 — 3,0 kw.
Strömberg - rafmótorar
0,25 — 7,5 kw.
HANNES ÞORSTEINSSON, heildverzlun,
Sími: 2-44-55.
Vanur bókhaldari óskast
til að annast vélabókhald, innheimtu og fleira.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu vora.
BRÆÐURNIR ORMSSON H.F.
Lágmúla 9, Reykjavík.
Jónsmessumót
J.ónsmessumót Árnesingafélagsins verður haldið að
Þjórsárveri í Villingaholtshreppi laugardaginn 24.
júní n.k. og hefst með borðhaldi kl. 19.00.
Almenn samkoma hefst kl. 21.00.
Fjölbreytt skemmtiatriði að venju.
Bílferð verður frá Umferðamiðstöðinni kl. 5 síð-
degis og til baka að samkomunni lokinni.
Ath. Þátttaka í borðhaldinu tilkynnist fyrir þriðju
dagskvöld 20. júní í verzlunina Blóm og grænmeti á
Skólavörðustíg 3 A. Sími 16711.
Árnesingafélagið í Reykjavík.
Eignarskipti
3/o íbúða hús -
einbýlishús
Nýlegt vandað steinhús, kjallari og tvær hæðir, sem
í eru tvær 3ja—4ra herb. íbúðir og 2ja herb. íbúð
í kjallara, ásamt bílskúr og ræktaðri og girtri lóð
á hitaveitusvæði í Austurborginni, fæst í skiptum
fyrir nýtízku einbýlishús um 140—170 ferm. á einni
hæð í borginni. Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
NÝJA FASTEIGNASALAN,
Laugavegi 12 — Sími 24300.
Frá Ljósmæðraskóla
*
Islands
Samkvæmt venju hefst kennsla í skólanum hinn
1. október n.k.
Inntökuskilyrði:
Umsækjendur skulu ekki vera yngri en 20 ára
og ekki eldri en 30 ára, er þeir hefja nám. Undir-
búningsmenntun skal vera gagnfræðapróf eða til-
svarandi skólapróf. Krafizt er góðrar andlegrar og
líkamlegrar heilbrigði. Heilbrigðisástand verður
nánar athugað í skólanum.
Eiginhandarumsókn sendist forstöðumanni skól-
ans í Fæðingardeild Landsspítalans fyrir 1. ágúst
1967. Umsókn skal fylgja læknisvottorð um andlega
og líkamlega heilbrigði, aldursvottorð og löggilt
eftirit gagnfræðaprófs. Umsækjendur eru beðnir að
skrifa greinilegt heimilisfang á umsóknina, og hver
sé næsta símstöð við heimili þeirra.
Umsóknareyðublöð fást í skólanum.
Upplýsingar um kjör nemenda:
Ljósmæðraskóli íslands er heimavistarskóli og búa
nemendur í heimavist námstímann.
Nemendur fá laun námstímann. Fyrra námsárið
kr. 3.847,— á mánuði og síðara námsárið kr. 5.496,—
á mánuði. Auk þess fá nemar greiddar lögboðnar
tryggingar og skólabúning.
Húsnæði ásamt húsbúnaði, fæði, þvotti og rúm-
fatnaði, sem Ljósmæðraskólinn lætur nemendum í
té, greiða þeir samkvæmt mati skattstjóra Reykja-
víkur.
Fæðingardeild Landspítalans, 15. júní ’67.
SKÓLASTJÓRINN.