Morgunblaðið - 28.06.1967, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 28.06.1967, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JUNI 1967. ^jtjornu- óLipiÉ EFTIR KRISTMANN GUÐMUNDSSON 21 okkar fæðast mjög smá, en alveg fullsköpuð. Og hjá okkur er það æðsta nautn kon,u að fæða barn- ið sitt. En þær eignast sjaldan fleiri en tvö“. „Þetta mátti ég vita!“ tautaði Danó vonsvikinn. Allmargir diskar höfðu nú lent í rjóðrinu, og Pimm leið- angursstjóri farþeganna kom að máli við Danó. Vildi hann vita hvort leyft væri að þeir lituð- ust þarna itm og 'heimsæktu hnattbúa. Danó svaraði því neitandi. „Þið megið fljúga yfisr, í þúsund feta hæð og skoða hvað sem þið viljið í firðsjánum“. sagði hann dálítið afundinn. „En hér má ekki lenda. Enginn fær að koma hingað fyrr en yfirmenn stjörnu skipsins okkar hafa gefið Vörð- um hinna æðstu fræða skýrslu um þetta mannkyn. Ég er ekki fær að dæma um hvort það er heldur börn eða hálf@uðir.“ 'Hann kom inn í íbúð Ómars, skömmu áður en skipið fór í geimþyt, og tóku þeir tal sam- an. „Aldrei á ævi minni hef ég komið á slíkan stað sem þenn- an,“ mælti 'hann lágróma. „Ég hef sett kross við hann á stjörnu korti mínu. Kannski kem ég ekki þangað aftur, en ég vil minnast hans þegar mér leiðist.“ „Heldurðu ekki að þér fynd- ist þar nokkuð tilbreytingarlítið í lengdinn?" sagði Ómar Holt, brosandi. Danó hugsaði sig um stundar- korn, svo hló ‘hann. „Þú hefur lög að mæla, vinur! Ég get ekki unað kyrrstöðu — en kannski lagast það þegar ég er orðinn gamall?" „Ætli átthagarnir verði þér ekki kærastir þá?“ Danó laut höfði. ,,Ég skal trúa þér fyrir dálitlu, sem ég segi ekki mörgum: „Á hnetti okkar eru börn að mestu huggetin, og kynlífið meira andlegs eðlis en líkamlegt. Þegar kona elskar karlmann mjög heitt, getur hún átt barn með honum, ef hún ósk ar þess — jafnvel þótt hann sé af ólíkum kynþætti. En raunar fæðir hún aðeins egg, og úr því kemur svo barnið eftir vissan tíma. — Þannig atvikaðist það að landi þinp, I-ngi Vítalín, eign- aðist dreng með stúlk-u frá Lai. — Einnig ég er tilkominn á þennan hátt: maður frá svipuð- um hnetti og Jörð þinni heim- sótti okkur og varð ástfanginn af ungri mey. Þau gátu ekki haft Nýjar vörur frá SUMARPEYSUR no. 2—6, verð frá kr. 88.40. SUMARBLÚSSUR TELPNA no. 6—12, verð frá kr. 151.50. STUTTBUXUR no. 2—8, verð frá kr. 122.60. VZ FLZ ILXJ3-TI 3ST •7» m GRETTISGATA 32 Ykkur sem vantar hjónarúm Athugið hvort ekki hentar yður að kaupa hjá okkur tvo samstæða bekki með tekk- göflum, og eignast þannig fallegt og vandað hjónarúm fyrir aðeins kr. 5.600.— ATH. viku afgreiðslufrestur. SVEFNBEKKJAIÐJAN Laufásvegi 4 — Sími 13492. eðlileg mök, en voru eigi að síð- ur gvo hugfangin svort af öðru að stúlkan varð barnshafandi. Þetta krakkagrey er ég! Og það eru örlög mín, því miður, að verða hrifinn af konum þeírra maimkynja er eignast lifandi börn, en miér er ékki mögulegt að geta við þeim afkvæmi.“ „Færðu þá aldrei fullnægingu ástar þinnar?" spurði Ómar Holt. „Jú, ég fæ ávallt þá hreinu og djúpu gleði, sem ástin gefur okk ur Laibúum. Og ég get gert all- ar konur ánægðar, nema að þessu eina leyti. En það hefur líka skilið á milli mín og þeirra sem mér hafa orðið kærar. Og þannig verður það sjálfsagt þau sjö eða átta hundruð ár, sem ég á eftir að lifa?“ ómar brosti. „Það er sjálfsagt blessun fyrir okkur Jarðarbúa, hvað við lifum stutt.“ „Ég verð að hryggja þig með því,“ sagði Danó, „að þú eldist ekki á meðan þú ert í samfélagi við okkur, og allavega mun það lengja líf þitt um fjölda ára.“ „Þá er að taka því.“ Ómar hló glaðlega. „En svo ég víki að öðru — hvert er ferðinni heitið héðan?“ „Ekki veit ég það með vissu. En mig grunar að nú eigi að sýna farþegunum nokkra hrika- lega 'hnetti, bæði þá sem eru á frumstigi sköpunarinnar og aðra, sem komnir eru á leiðar- enda.“ Þegar :skipið var komið í geimþyt, hóf Ómar Holt nám sitt að nýju við farþegaskólann, en auk þess leitaði hann fræðslu hjá vinum sínum. Þrátt fyrir margháttaða menntun hans, þótti honum sem hann væri barni líkur í návist þeirra, hvað vit og þekkingu snerti. Einna líkastur 'honum að and- legum þrosk-a var maðurinn frá Satúrnusi, Kallie, en þó miklu fremri í flestum greinum. Sátu þeir oft á tali og féll vel á með þeim. Ómar fékk nú vitneskju um að menn á Marz og Venusi óttuðust mjög 'hinar ábyrgðar- lausu kjarnorkutilraunir Jarðar búa, því ef svo til tækist að keðjusprenging yrði á Jörðinni, myndu þeir einnig verða fyrir þungum búsifjum af henni. Og þar eð þetta hafði áður komið fyrir í sólkerfin-u, og þá valdið ógurlegri eyðileggingu á næstu hnöttum, höfðu menn miklar á’hyggjur af þessu. ,,Við reynum að öllum mætti að hafa áhrif á ykkur,“ sagði Kallie. „Fjöldi manna frá Sat- úrnusi og Venusi eru nú starf- andi í öllum ríkjum Jarðar og gera allt sem þeir geta til að bena þróuninni í rétta átt. En þrátt fyrir hinar miklu gáfur ykkar á mörgum sviðum. virðist tæknin ætla að hlaupa með ykk ur í gönur, og eins og nú horf- ir ekki annað sýnna en að hún verði ykkur öllum að aldurtilla. Eigi að síður eruð þið komnir á það stig andlega, að við megum ekki beita ykkur valdi, nema með sérstöku samþykki Hnatta- sambandsins, en það verður að fá leyfi til þess frá Vörðum Hinna Æðstu Fræða. Og þar eð slíkar aðgerðir yrðu að vera mjög róttækar, er vafasamt að — Þú ert ískyggilega ófrínilegur, lagsi! þær yrðu leyfðar, þegar sivo 'há- þróað mannkyn sem ykkar á í hlut.“ „En ef okkuT væri það nú sjálfum fyrir beztu?“ sagði ís- lendingurinn lágróma. „Það er ekki víst að Örlaga- valdarnir gætu samt látið það viðgangast. Við skiljum ekki hin æðri rök.“ Kallie var þægilegur maður, og gaman að rabba við hann, en þó voru Ómari miklu kærari samverustundirnar með Miro Kama og Danó. Og óneitanlega leið honum allra bezt í félags- skap yngismeyjanna tveggja, Me-lú Ga-la og Ýmennu Kha. Þær voru báðar blíðar í við- móti, Ýmenna þó dálítið fjarræn í fasi á stundum, líkt og hún væri utan við sig. Framkoma þeirra öll var avo eðlileg og blátt áfram sem væri hann bróðir þeirra, en samt sem áður fann hann jafnan hið ljúfa undirspil kynþokkans í fari þeirra. Báðar komu þær alloft að heimsækja hann. og buðu honuim einnig til sín. Ýmenna bjó ein, í þægilegri vistarveru skammt frá 'honum, en Me-lú hafði herbergi í íbúð foreldra sinna. Og hennar vitj- aði harm oftast í tómstundum sínum. Þessi fagurskapaða og smávaxna mær var orðin hjarta hans svo nákomin að honum fannst hver „dagur“ til lítils Uð inn ef hann fék'k ekki að tala við hana. Raunar var hann þess fullviss að hann myndi aldrei geta fengið hana fyrir eiginkonu, því að hún til'heyrði háþróuðu mannkyni, og yar honum miklu fremri að skilningi og gáfum, þrátt fyrir æsku sína. En hann vildi njóta samivistanna við hana eins lengi og unnt var. Foreldrar hennar tó'ku honum alltaf vel, er hann kom í heim- sókn. Ú-mann Ga-la var kennari við æðri skóla á hnetti sínum, vitur maður og fróður. Hann sagði Ómari margt um Hnatta- sambandið, þar sem 'hver einasti kynþáttur naut fyllsta sjálfræð- is; frelsi þeirra aðeins takmark- að af Lögum Skaparans, er Verðir Hinna Æðstu Fræða höfðu sett öllum lífverum, sem bundnar voru þessu mik’a bræðralagi. — „Ég veit ekki með vissiu,“ mælti Ú-mann Ga-la, hiversu margar jarðstjörnur eru nú tengdar sambandinu, því stöð ugt bætast nýjar við. En ég hygg að þær séu ekki færri en tvær milljónÍT — og er það þó að- eins mjög lítill hluti byggðra og byggilegra hnatta í sólnahverfi okkar. Talið er að meira en millj arður ára, samkvæmt tímaskipt ingu þeirri, sem gildir hér um borð, sé liðinn frá því að fyrsti vísir þessara vináttutengsla varð til. En fulivíst er að einnig fyrir þann tíma voru til háþróuð mannkyn, er gátu ferðast milli stjarna. Allflestir kynþættir, sem við þekkjum til, eru að einh.verju leyti í mannsmynd, og obbinn af þeim reyndar ok'kur likur. Þó er talsvert af skyni gæddum ver um, sem eru öðruvísi skaþaðar. Til dæmis eru í heimi mínum tvær tegundir frábrugðnar okk- ur, en þó vel viti bornar, önnur meira að segja mi'klu háþróaðri en við. En þessu muntu sjálfur kynnast, því aii komið verður við á jörð okkar“. „Það þykir mér vænt um að heyra,“ sagði Ómar Holt lág- róma, og leit til Me-lú. Faðir hennar varð þess var og brosti lítið eitt. „Menn eru nú ekki alltaf eins, þó að þeir séu skap- aðir í sömu mynd,“ sagði hann íh'ugull. „Litarháttur hörundsins er breytilegur, og blóðsins sömu leiðis, fingur mismargir; lögun andlits og lí'kama fer dálítið eft ir því hvernig þeir fanvegir dýra ríkisins eru sem þróunin hefur lagt leið sína eftir. Sérhver kyn- þáttur á sér óralamga leið að baki, þegar persónulegar sálir fara að taak sér bústað í honum, og þó er vegur okkar til full- komnunar mannlegrar tilveru þá aðeins að hefjast.“ „Mér óar við þeim firna fjar- lægðum," sagði Ómar, yfirkom- inn af tilhugsuninni einni sam- an. Me-lú litla brosti til hans. „En lífið sjálft er svo dásamlegt,“ mælti hún. „Og alltaf eigum við ný og undursamleg ævintýri f vændum." Hún laut höfði, varð undirfurðuleg á svipinn og bætti við í hálfum hljóðum: „Ástin bregður Ijóma sínum yfir allt.“ „Það er rétt dóttir mín,“ sagði faðir hennar, alvarlegur í bragði. „En ljóma ljóssins fylgja oftast skuggar, og ástin getur einnig valdið sársauka. Einkum er hætta á því, þegar maður og kona af fjarskyldum mannkynj- um fella hugi saman “ Hann leit á ómar Holt og hér áfram: „Ég held að það sé rétt að segja ykkur það núna strax, að náið samband ykkar á milli gæti vald ið miklum vonbrigðum. Reiðstu mér ekki, ungi vinur, þótt ég gerist opinskár, þvi að það er öllum fyrir beztu að talað sé af fullri hreinskilni um hlutina. Konur okkar mannkyns eiga ekki lifandi börn, heldur egg, og kynlíf okkar er frábrugðið því sem þú munnt eiga að venj ast. Og svo skulum við ekki tala meira um þetta. Þið megið hvor ugt ykkar skilja mig svo, að ég sé að reyna að spilla vináttu ýkkar eða gleði.“ Ómar hafði grunað eitthvað þessu lí'kt, það hafði lítil á'hrif á samskipti þeirra, Me-lú og hans. Er hún fylgdi honum til dyra \ þetta sinn, leit hún rannsak-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.