Morgunblaðið - 27.07.1967, Page 15

Morgunblaðið - 27.07.1967, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 19*67 15 ERLENT YFIRLIT Ránið á Tshombe tálm- aði byltingu HVERS vegna gerðu hvítir málaliðar í Kongó uppreisn að- eins fímm dögum eftir að Moise Tshombe fyrrum forssetisráð- herra var rænt? Var hér um að ræða alþjóðlegt samsæri um valdarán í nafni Tshombes,- Var hér um að ræða innrás erlend- is frá eins og kongóska stjórn- in heldur fram? Margir diplómatar í Kongó eru þeirrar skoðunar, að sögn Henry Fanners, fréttaritara New York Times, að einhverjar ráðagerð- ir hafi verið uppi meðal stuðn- ingsmanna Tshombes um, að ná völdunum í austurhéruðum Kongó, ílytja Tshombe til lands :ns og lýsa yfir „frelsun“ Kongó í von um að stjórnin glataði yf- irráðum sínum í öðrum hlutum landsins fyrr eða síðar. Ránið á Tshombe hafi gert þessar ráða gerðir að engu, þegar þær voru enn á frumstigi, og málaliðarn- ir hafi látið til skarar skríða alllöngu áður en þeir ætluðu sér og áður en þeir höfðu lok- ið nauðsynlegum undirbúningi. Einnig er það álit kunnugra, að staðhæfing Kongóstjórnar um „innrás" hafi ekki haft við rök að styðjast fyrst er hún var sett fram, en hins vegar hafi málaliðum borizt aðstoð erlend is frá, meðal annars í flugvél- um, alllöngu eftir að uppreisn- in hófst. Blaðamenn og aðrir sem voru íhaldi hjá málaliðunum veittu því eftirtekt, að allmargir yfir- menn málaliðanna töluðu ensku með rhodesískum eða suður- afrískum hreim. Skýringin gæti verið sú, að sveit enskumælandi málaliða, sem leyst var upp í maí, hafi snúið aftur til Kongó. Síðan í maí hafa einungis frönskumælandi málaliðar dval Tshombe izt í Kongó með samþykki stjórnarinnar. Til marks um það, að fyrir hafi legið áætlun um valda- töku áður en málaliðarnir létu til skarar skríða, er á það bent, að skömmu áður en uppreisn- in hófst voru unnin skemmdar- verk á mikilvægum samgöngu- leiðum til umheimsins, Bengula járnbrautinni, sem helmingur kopars Katanga er fluttur um til, Angola og járnbrautinni til einu hafnarborgar landsins, Matadi. Sá, sem talinn er hafa stjórnar þessum og fleiri skemmdarverkum, er Frakki að nafni Savant, sem skaut upp í aðalbækistöðvum málaliðanna í síðustu viku. Fjárveitingar til blökkumanna feSldar á þingi Ljóst má vera af atburðum síð- ustu daga í Bandaríkjunum, að ekki hafa verið gerðar nægar ráðstafanir af hálfu stjórnar- valda í Washington til að koma í veg fyrir kynþáttaóeirðir í stórborgum landsins. Á þessu ári hefur komið til óeirða í Det- an drjúgan þátt í því að kynt þáttaóeirðir brjótast út. Lítið sem ekkert virðist hafa dregið úr óánægju blökkumanna síðan í óeirðunum í Wattshverfi í Los Angeles 1965 og ástandið hefur sízt batnað. Svo óeirðirnar í Newark séu teknar til saman- burðar, þá biðu 34 bana í Watts. 1302 særðust, 3952 vonu hand- teknir og tjónið var metið 40 milljónir dollara, en 26 biðu bana í Newark, 1200 særðust og 1275 voru handteknir. Ekki hef ur enn tekizt að semja yfirlit yfir tjón það, sem varð í New- arkóeirðunum. En óeirðirnar í Watts hafa leitt til þess, að yfirvöldin í Washington hafa gert ýmsar starfs þessara tveggja aðila verð ur ekkert ágengt. Borgarstjórnirn ar verða að verja framlögum stjórnarinnar og þingsins fljótt og skynsamlega. Þingið verður aftur á móti að samjþykkja fjár veitingarnar, og virðist vera heldur tregt til þess að því er síðustu dæmi sanna. Fást Arabar til að viður- • * kenha Israel Tilraun Rússa til að fá Araba til þess að fallast á einhvers- konar viðurkenningu á ísrael sem ríki hefur farið út um þúf- ur. Á aukafundi Allsherjarþings ins hefur málamiðlunartillaga Rússa og Bandaríkjamanna um, að fsraelsmenn flytji herlið sitt frá herteknu svæðunum, jafn- framt því sem Arabar viður- kenni tilverurétt ísraels, strand lliift m» ****** 4$ Þannig var umhorfs eftir kynþáttaóeirðirnar í Newark. roit og Newark, í fyrra urðu óeirðir í Cleveland, í hitteðfyrra í Los Angeles og Harlem 1964. Margt hefur verið gert til að bæta kjör blökkumanna, en af- staða stjórnarinnar og þingsins til kynþáttauppþota hefur stang azt á. Margir fréttaritarar í Wash- ington eru þeirrar skoðunar, að sumir þingmenn og leiðtogar hugleiði aðeins afleiðingar ólg- unnar meðal blökkumanna, en aðrir reyni að höggva að rótum vandamálsins. Tvö dæmi sýna þetta. Robert C. Weaver húsnæð ismálaráðherra hefur látið svo um mælt, að síðustu kynþátta- óeirðirnar geri það að verkum, að enn brýnna sé en áður að þingið samþykki fjárveitingar ti.1 ýmissa ráðstafana, er miða að því að endurskipuleggja borgir landsins í þeim tilgangi að gera þær byggilegri og bæta ástandið í hverfum blökku- manna, til dæmis með því að lækka húsaleigu. En þingið hef ur fellt báðar þessar tillögur, og fyrir nokkrum dögum felldi það frumvarp um eyðingu milljóna rottna í fátækrahverfum stór- borganna. Margir halda því fram, að ó- gerningur sé að bæta aðstöðu blökkumanna meðan óeirðir geisi, ábyrgðarleysi eigi ekki síð ur þátt í óeirðunum en óánægja með léleg lífskjör, og því sé eðlilegt að þingið leggi megin- áherzlu á að, haldið verði uppi lögum og reglu. Kn kaldhæðnis legt er, að þingið skuli fella frumvarpið um rottueyðingu eins og nú er ástatt. f fyrra bom 30 sinnum til kyn þáttaóeirða í Bandaríkjunum, en það sem af er þessu ári hafa rúmlega 20 sinnum brotizt út kynþáttaóeirðir í ýmsum borg- um, og þó er sumarið aðeins hálfnað. Búizt er við jafnmikl- um ef ekki meiri sumarhitum í ár en í fyrra, en þeir eiga jafn áætlanir til að bæta aðstöðu I blökkumanna, og meðal annars hefur verið reynt að byggja íbúðir fyrir blökkumenn, lækka húsaleigu blökkumanna í hverf um þeirra, fast hefur verið lagt að borgarstjórnum að byggja íbúðir fyrir láglaunafólk og þeim hótað með því að ella verði þær sviptar fjárveiting- um og loks hafa verið gerðar ráðstafanir til að veita atvinnu lausum blökkumönnum at- vinnu. Hér er um að ræða erf- itt starf, en stjórnin vonar að fyrr eða síðar beri það árangur og smám saman breyti blökku- mannahverfin um svip. En skilning virðist hafa skort af hálfu hinnar ýmsu borgar- stjórna og þingsins, en án sam- að á andstöðu Araba, sem síð- an hafa brugðið Rússum um svik við málstað þeirra. Bandaríkjamenn hafa haldið því fram, að ef knýja eigi ís- raelsmenn til að flytja burtu hersveitir sínar verði Arabar fyrst að fallast á að endi verði bundinn á styrjaldarástandið, sem ríkir milli þeirra og ísrales manna. Vonir standa til, að tak ast megi að fá Araba til að fall- ast á þetta skilyrði, og gæti það orðið fyrsta skrefið í þá átt, að þeir viðurkenndu ísrael. Rúss- ar hafa lagt mjög fast að Aröb- um að viðurkenna ísrael, ekki aðeins hjá SÞ, heldur einnig í viðræðum við arabíska leiðtoga í Kaíró og Moskvu. Að sögn Robert Stephens, fréttaritara Hussein Observers, getur jafnvel svo far ið, að Rússar sjálfir viðurkenni ísrael. Hann segir, að samkvæmt áreiðanlegum heimildum hafi Nasser foi'seti sýnt meiri áhuga á hófsamri málamiðlunarlausn en nýrri styrjöld við ísraels- menn í viðræðum við sovézku leiðtoga. En Sýrlendingar og Alsírbúar eru mótfallnir hvers konar friðarsamningum, enda telja þeir að þar með verði gengið til móts við þau Araba- ríki, sem fylgja Vesturveldun- um að málum. Saudi-Ara- bía vill að látið verði af olíu- banninu gegn Bretum og Banda ríkjamönnum og sambúðin við þá bætt. Þessi ágreiningur Ar- aba innbyrðis hefur leitt til þess að ekki hefur tekizt að efna til ráðstefnu æðstu manna allra Arabaríkjanna. Egyptar hafa beitt sér fyrir því, að slík ráðstefna verði hald in, og er ekki talið ólíklegt, að ef Nasser hyggist taka upp raun hæfa en óvinsæla stefnu gagn- vart Israel, vilji hann koma því til leiðar að sem flest Arabaríki og ekki sízt andstæðingar hans eins og Saudi-Arabíumenn skuld bindi sig til að fylgja þessari stefnu. í London er talið, að Rússar hafi takmarkað vopnasendingar sínar til Araba, ef til vill til að knýja þá til að semja við ísra- ! elsmenn. Rússar hafa sent fjölda | flugvéla og skriðdreka til Egypta I lands til að koma í veg fyrir að Egyptar verði algerlega j varnarlausir, en þeir virðast ekki munu ætla að bæta að fullu , upp það tjón, sem Arabar urðu ! fyrir á hergögnum. Súezskurðurinn eT eitt erfið- asta vandamálið, sem Egyptar eiga nú við að stríða, en lokun hans kostar þá um eina milljón dala á dag. Hins vegar teija þeir skurðinn eitt mikilvægasta vopn sitt í deilunum við ísraels menn. En ef Egyptar fallast á að endi verði bundinn á styrj- aldarástandið milli þeirra og fsraelsmanna, kippa þeir grund vellinum undan hinum lagalegu Framhrld á bls. 16 Frá uppreisninni í Kisangani (Stanleyville) í Kongó. Málaliðar á verði á götunum. Mynd- in var tekin úr hóteli, þar sem eriendir blaðamenn sátu í stofuvarðhaldi. Myndinni var smyglað úr landi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.