Morgunblaðið - 30.07.1967, Side 2

Morgunblaðið - 30.07.1967, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1967 „Spurningin er: verður hægt að vcra í sólbaði í dag?“ (Ljósmynd: Ól. K. Magnússoiu. Enn nötrar Suður- landsundirlendi I fyrrinótt varð enn vart við alimarga jarðskjálftakippi á Suðurlandsundirlendi. Snarpasti kippurinn varð kl. 02.25 í fyrri- nótt o g fannst hann bæði í Reykjavík og Hafnarfirði og á Mýrum í Aiftaveri. Mun sé kipp- ur hafa fundizt mjög víða eins og af þessu má sjá. Ohagstæður vöruskipto- jöínuður FYRSTU sex mánuði ársins var vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæð- ur um 1508.085.000 krónur, en var á sama tíma í fyrra óhag- stæður um 617.784.000 krónur. Alls var útflutningur þessa mánuði nú 2065.462.000 krónur að verðmæti, en innflutningur 3573.574.000, þar af skip fyrir 273.238.000 og flugvélar fyrir 230.720.000 krónur. í júlímánuði var vöruskipta- jöfnuðurinn óhagstæður um 888.- 014 krónur, en þar er meðtal- inn innflutningur á skipum ög flugvélum fyrir 503.858.000 kr. í því sambandi skal tekið fram að innflutningur á skipum og flug- vélum er tekinn í skýrslu tvisvar á ári, með innfluttum vörum í júní og með innfluttum vörum í desember. Allar ofangreindar tölur eru bráðabirgðatölur frá Hagstofu ísiands. 1 Surtsey fundu rannsóknar- menn, sem þar eru staddir, kippi og á Hellu á Ranárvöllum fund- ust margir kippir og voru níu snarpir. í Villingaholti, þar sem í vikunni fundust 27 kippir, fundust nú 6 kippir og á Eyrar- bakka fundust 3. Ekki gat Mbl. fengið upplýs- ingaar hjá Veðurstofunni um styrkieika og upptök jarðskjálft- anna í gær, þar eð jarðskjálfta- fræðingurinn var ekki í bæn- um. Menzies vill einohagsbandolag hins enshumælondi heims Oxford, 29. júlí. NTB. Sir Robert Menzines, fyrrv,, for- sætisráðherra Ástralíu, lagði til í ræðu sem hann hélt í gækvöldi, að ensku- mælandi þjóðir og ríki í brezka samveldinu kæmu á sam- vinnu í efnahagsmálum, er gæti komið í staðinn fyrir brezka að- ild í Efnahagsbandalagi Evrópu. Menzies sagði, að ef viðræð- urnar um aðild Breta að EBE drægjust á langinn eins og allar líkur bentu til ættu Bretland, samveldislöndin og Bandaríkin að ráðfærast um möguleikana á því að þau gerðu með sér samn- inga um efnahagsmál. Hinn enskumælatndi heimur ræður yfir gífurlegum auðlindum og gagn- kvæmur skilningur ríkir þeirra á milli, sagði hann. Menzies sagði, að aðild Breta að EBE mundi veikja aðstöðu þeirra í samveldinu og leiða til sundrungar hins enskumælandi heims. Rólegt eftir óeirðir í 30 borpm USA — SamvÍBina um að sporna gegn nýjum óeirðum Washington, 29. júlí. NTB-AP. Leiðtogar blökkumanna og hvítra manna víðs vegar í Bandaríkjunum hafa tekið höndum saman um að koma í veg fyrir að hinar ofsalegu kynþáttaóeirðir, sem geisað hafa í 30 borgum í þessum mánuði, endurtaki sig. 70 manns hafa beðið bana í óeirðunum, rúmlega 5.000 hafa slasazt, og eignatjónið nemur mörg hundruð millj- ónum dollara. í dag átti Johnson forseti að sitja fyrsta fund ráðgjafanefnd- ar, sem komið var á fót á fimmtudaginn í þeim tilgangi að rannsaka orsakir uppþotanna. Nefndin heldur fund sinn í Hvíta húsinu, og á hún að gera tiilög- ur um aðgerðir til að ráða bót á því ástandi, sem leitt hefur til kynþáttaóeirðanna. Skipun nefndarinnar hefur mælzt vel fyrir á Þjóðþinginu, en leiðtogar demókrata og repú- blikana í öldungadeildinni hafa lýst því yfir, að þingið muni sjálft rannsaka ástandið þrátt fyr ir skipun nefndarinnar. Formað- ur nefndarinnar, Otto Kemer ríkisstjóri í Illinois, sagði í dag að í Bandaríkjunum væri ekk- ert rúm fyrir ofstopamenn, sem vildu breyta ríkjandi stjórnar- háttum. Áður en fundurinn verður haldinn, mun Johnson forseti fá skýrslu um ástandið í Detroit frá Robert McNamara landvarnar- ráðherra og hinum sérstaka að- stoðarmanni hans, Cyrus Vance, sem hefur rætt við George Rom- ney ríkisstjóra um möguleika á því að veitt verði sérstök fjár- hagsaðstoð til þess að ráða bót ■á ástandinu í Detroit. Hætta á nýjum óeirðum. Allt er nú með tiltölulega kyrrum kjörum í Detroit, en í óeirðunum þar hafa 39 manns beðið bana. Fallhlífarhermenn- irnir, sem stjórnin í Washing- ton sendi á vettvang, hafa yfir- gefið nokkur hverfi og orðrómur er á kreiki um. að allir hermenn og þióðvarðliðar verði fluttir frá borvinni. f ráði er að sleppa ilr haldi 1.000 föngum, en alls Prag, 28. júlí. Tékkneska utanríkisráðuneytið hefur mótmælt harðlega meint- um óeirðum rauðra varðliða fyr- ir framan tékkneska sendiráðið í Peking. Haförnlnn í GREIN um síldarflutningaskip- ið Haförninn, sem birtist í Mbl. síðastliðinn fimmtudag féll nið- ur nafn skipstjórans, Jóhanns Sigurbjörnssonar, sem er skip- stjóri í veikindaforföllum Sig- urðar Þorsteinssonar. Aden, 28. júlí. Brezkur hermaður skaut til bana á föstudag þrjá Araba í Aden, er þeir hlupu í átt til mosku einnar eftir sprengjutil- ræði í grenndinní. NORÐANÁTTIN hélzt enn á landinu í gærmorgun óg voru ekki horfur á áttarbreytingu yfir helgina. Á NA-landi var kalsaveður, slydduél allt nið- ur í byggð og hiti við frost- mar á Grímsstöðum. Bjart var á S- og V-landi og hitinn kominn í 10—12 stig kl. 9, en sums staðar var næturkuldinn nærri frostmarki. Lægðdn S í hafi var á talsverðri hreyf- ingu austur, en líklegt að hún mund: sveigja til, norðausfurs og, h'Ida við N- eða NA-átt- inni. voru 3.000 blökkumenn hand- teknir. í mörgum borgum er alvarleg hætta á ofbeldisverkum, og mál- gagn þingmanna repúblikana hermir, a'ð hættan sé mest í Oakland í Kaliforníu og höfuð- borginni Washington. Gott dæmi um ástandið eins og það er nú, er vesturhluti Chicagoborgar. Þar aðstoða 300 þeldökkir og hvítir borgarar lögregluna við að dreifa hópum óeirðaseggja og bæla niður óeirðir, þegar þess gerist þörf. Mörg skemmdarverk og rán hafa verið framin og mikið hefur verið um íkveikjur í hverfinu síðan á fimmtudag, þegar þeldökkur lögreglumaður drap blökkumann, sem ógnaði honum með hnífi. í ríkinu Tennessee er einnig mikil hætta á óeir’ðum. Þar hafa 15.000 þjóðvarðliðar verið við öllu búnir síðan á fimmtudags- kvöld þegar eldsprengjum var kastað í Memphis. Hvítur maður beið bana í kyn- þáttaóeirðum í Wilmington í Delaware í gær, þegar skotið var á hann úr bíl, sem blökku- menn voru í. Nokkrir þeldökkir unglingar brutu rúður verzlana í blökkumannahverfinu í Wil- mington, og á vínstúkum í bæn- um slógust blökkumenn og hvít- ir, 14 voru handteknir. Þeldökkir óknyttaunglingar efndu til uppþota á bökkum Washingtonvatns í Seattle að- faranótt föstudags, og einnig hafa orðið uppþot í South Bend í Indiana, Passaic í New Jersey og skammt frá Sacramento í Kaliforníu. í Washington hefur George A. Smithers, öldungadeildarmaður frá Florida, skorað á Ramsey Clark dómsmálará'ðherra að svipta blökkumannaleiðtogann Stokely Carmichael borgararétti, ekki sízt vegna þess að ýmis- legt bendi til þess að hann hefði fengið þjálfun í skæruhernaði í erlendu ríki. í riti sem repúblikanar gefa út hefur Johnson forseti verið kall- aður „veiklyndur forseti" og sak- aður um hik. óákveðni og jafn- vel kæruleysi gagnvart kyn- báttaóeirðunum. Eviópuþing Lionsmanna í Biussel LIONSMENN á íslandi eru um þessar mundir að hefja undir- búning að þátttöku í Evrópu Forum í haust. Umdæmisstjóri, Gunnar Helgason, hefir falið Ferðaskrifstofunni Sögu (Njáli Símonarsyni) að annast undir- búninginn, en Evrópuþingið verð ur að þessu sinni haldið í Briis- sel dagana 19.—22, okt. n.k. Undirbúningurinn verður að hefjast snemma, vegna þess að tilkynna þarf þátttöku til aðal- stöðvanna í Brussel fyrir 1. sept. n k. Lionsmenn hyggjast gera meiri háttar kynnisfer’ð í sambandi við þingið og ferðast nokkuð um Belgíu, koma við í Luxemburg, Amsterdam og London. Gert er ráð fyrir að ferðin öll taki 1Ö daga. 1 fyrra fóru um 80 manns á Evrópu Forum, sem þá var haldið í London. Eru þar með- taldir makar og aðrir géstir. Lionsmenn eru nú orðnir um 1200 hér á landi , 36 klúbbum víðsvegar um landið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.