Morgunblaðið - 30.07.1967, Blaðsíða 8
rt
8
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JÖLl 1967
OLAFUR SIGURÐSSON SKRIFAR UM
KVIKMYNDIR
Kvikmyndir ■ sjónvarpi
FRÁ I>VÍ sjónvarp fyrst hófst,
íhafa verið sýndar þar kvikmynd-
ir. Svo mikið þarf til að fylla
allan sólarhringinn, að alltaf hef-
ur verið þðrf fyrir kvikmyndir
til að fylla upp í eyður.
í Bandaríkjunum var byrjað á
því að sýna gamlar myndir frá
Evrópu, þar sem ameríski kvik-
myndaiðnaðurinn fékkst ekki til
að selja sínar til sjónvarpsins.
Neitað var að selja myndirnar á
þeim forsendum, að ástæðulaust
væri að hjálpa sjónvarpinu til að
Á efstu myndinni sjáum við breiðtjaldsfilmn, eins og hún lítur
út nm venjulega linsu. Á neðri myndunum þremur sést sena
úr „The Man fram Laramie, með James Stewart. Þar sést vel
hvemig velja verður mikilvægustu atriðin af breiðtjaldinu.
Enskir og þýzkir skór
koma í búðina á þriðjudag og miðvikudag.
Fallegir litir, faliegar gerðir.
SKOVAL
Austurstræti 18, Eymundssonarkjallara.
Þýzkir karlmannaskór
teknir upp í fyrramálið. Fallegt og fjölbreytt úrval
Verðið mjög hagstætt.
SKOVAL
Austurstræti 18, Eymundssonarkjallara.
drepa kvikmyndaiðnaðinn, með
því að láta því í té efni.
í fyrstu voru kvikmyndir aðal-
lega sýndar á kvöldin og á nótt-
umni. Voru þær oft ótrúlega lé-
legar, enda nutu þær takmark-
aðra vinsælda. >ó voru góðar
myndir innanum, en í miklum
minnihluta.
Upp úr 1950 fóru kvikmynda-
framleiðendur að skilja að hægt
væri að lifa með sjónvarpinu og
fóru að láta því í té kvikmyndir.
Var byrjað þar sem talmyndir
hófust og komst þá margt fyrir
augu almennings, sem eins hefði
mátt vera gleymt. Ekki gekk
þetta þó hraðar en svo, að árið
1961 voru flestar kvikmyndir,
sem sýndnr voru í bandarísku
sjónvarpi, gerðar í stríðinu eða
fyrr. Sú nýjasta var ellefu ára
gömul, eða gerð 1950.
Nú er að verða mikil breyting
á þessu. Sjónvarpið kaupir æ
nýrri myndir og greiðir þá einnig
hærra verð, en í stað þess eru
þaer sýndar á betri tíma, gjarnan
kl. 9. Á komandi vetri verða
sýndar kvikmyndir allt niður í
eins árs gamlar.
Meðal mynda, sem Bandarísk-
ir sjónvarpsáhorfendur fá að sjá
á komarvdj vetri eru þessar: Tom
Jones, The world of Henry Ori-
ent, The Yellow Rolls Royce,
How to murder Your Wife, The
Pink Panther, The Collector, The
Best Man, Tapikapi, A Shot in the
Dark, A Hard Day’s Night, Hud
og Ship of Fools.
Margar af þessum myndum
hótfa verið sýndar hér og eru all
góðar. Þetta hlýtur að Ieiða til
þess að enn aukist samkeppnin
við kvikmyndahúsin, sem hafa
verið að ná sér nokkur á strik
að undanförnu.
>á hefur Universal kvikmynda
félagið gengið enn lengra. >eir
hafa hafið framleiðslu á seríu af
kvikmyndum, sem eru gerðar
með sjónvarpið fyrst og fremst
í huga. >essar myndir hafa verið
frumsýndar í sjónvarpi og síð-
an sendar út til kvikmyndahús-
anna. >essi tilraun hefur gefizt
að því leyti vel, að hún hefur
borið sig, en er að flestu öðru
leyti umdeild. Sumir telja að
þessar kvikmyndir hafi verið of
lélegar, til þess að framhald geti
orðið á þessari framleiðslu. Aðr-
ir segja að þær séu ekki góðai,
en þó skárri en flest almennt
sjónvarpsefni, og enn, aðrir telja
þetta ágætar myndir.
Myndir þessar hafa allar kost-
að um eina milljón dollara í
framleiðslu. >að er einmitt sú
tala, sem yfirleitt hefur kostað að
framleiða svokallaðar ,,B mynd-
ir“, sem við höfum séð blessunar-
lega lítið af í seinni tíð. Hefur
miklu minna varið framleitt af
þeim, þar sem reynslan hefur
sýnt, að bjóða verður betri hluti,
til að keppa við sjónvarpið. >að
væri kaldhæðni örlaganna, ef
sjónvarpið yrði svo til að endur-
vekja þær.
Eitt er það enn, sem bendir til
að hlutverk kvikmynda eigi enn
eftir að vaxa í sjónvarpinu. >að
er sú staðreynd, að stöðugi vaxa
vinsældir lengri dagskrárliða.
>að var þannig fyrir tíu árum,
í Bandaríkjunum, að meginhluti
alls efnis í sjónvarpi var í hálf-
tíma þáttum. >etta breytist nú
ört og fjölgar þáttum, sem eru
klukkutími og allt upp í 90 mín-
útur.
Ekki er þó ástæða til að skilja
orð mín svo, að ég telji að sjón-
varpið muni útrýma kvikmynda-
húsunum í núverandi mynd. Með
al þess sem veldur ,eru tæknileg
ahriði, sem ekki er auðvelt að
leysa í sjónvarpi.
Einn stærsti erfiðleikiinn við að
sýna stórmyndir, eins og til dæm
is Boðorðin tíu, Ben Hur, og all-
ar aðrar, sem eru teknar í Pana-
vision. Cinemascope, eða hlið-
stæðum aðferðum, er lögun og
stærð myndarinnar. Stærðarhlut-
föll sjónvarpsskerms eru þrír á
AIMYSISAR
SIMI SS>4>8Q
hæð og f jórir á rbeidd. En stærð
og lögun kvikmyndar fer eftir
því hvenær hún var gerð, hvar
hún var gerð og svo eftir duttl-
ungum mannsins ,sem bjó hana
tiL í kviikmynidahúsi þarf ekki
annað en að draga tjaldið mis-
munandi langt frá, eftir því hvað
breitt tjald þarf, en málið er
ekki svona einfalt með sjónvarp-
«5.
Breiðtjaldamyndir er oft not-
að, sem safnheiti fyrir myndir
sem gerðar eru í Cinemascope,
eða Panavision. >essar myndir
eru í samþjöppuðu formi, þannig
að ef þær eru sýndar í gegn um
venjulegar linsur, er allt á mynd
inni teygt upp við, eins og sést á
minnstu myndinni. Með réttum
linsum teygja þær úr sér á þver-
veginn um að minnsta kosti helm
ing.
Vandamál sjónvarpsins er það,
að ekki er hægt að nota sam-
þjöppuðu myndina, og að ekki
næst nema hluti af breiðtjalds-
myndinini inn á skerminn. Eins
og fyrr segir eru stærðarhlutföll
sjónvarpsskerms þrír á móti fjór-
um, en breiðtjaldsmyndir þrír á
hæð á móti rúmlega sjö. >ar við
bætist að skermurinn er boga-
dreginn á alla kanta og næst því
ekki inn á hann nema rúmur
þriðjungur af breiðtjaldinu.
Áður en breiðtjaldsmynd er
sýnd í sjónvarpi þar því að fara
yfir flmuna ramma fyrir ramma
og ákveða hvaða hluta myndirn-
ar á að sýna og hverju á að
sleppa. Síðan er tekiin ný mynd,
af þeim hlutum ,sem sýna skal
og venjulega er hún svo færð yf-
ir á myndsegulband, að minnsta
kosti hjá stærri stöðvum.
Venjulega eru það starfsmenn
sjónvarpsins, sem velja hvernig
sýnt er úr breiðtjaldsmyndum.
>ess eru þó dæmi að leikstjóri
eða framleiðandi kvikmyndar
hafi þarna hönd í bagga. T. d.
var Ralph Nelson, sem vann
Oscar verðlaun fyrir Lilies of
the Field, fengitnn til að stjórna
endurtöku á myndinni fyrir sjón-
varp.
' í Bandaríkjunum eru þrjú sjón
varpskerfi, sem ná yfir landið
allt, auk smærri stöðva. Á þess-
um kerfum eru nú sýndar sex
kvikmyndir á viku, á bezta tíma
kvöldsins, venjulega milli níu og
ellefu. >etta eru nokkru fleiri
kvikmyndir, en framleiðslan nem
ur á nýjum myndum, þannig að
ekki getur orðið endalaus aukin-
ing í þessa átt.
Á útsölunni
Terylenebuxur herra kr. 695.— Terylenebuxur
fyrir drengi frá kr. 450.—, herrablússur kr. 595.—
herrapeysur frá kr. 250.—, rúllukragapeysur frá
kr. 250.— Anorkara frá kr. 220.— nylonúlpur barna
frá kr. 375.— og margt fleira. Sérlega hagstætt
verð.
SIGGABÚÐ, Skólavörðustíg 20.
SOKKARNÍR
sem sameina alla góða kosti með langri
endingu, hóflegu verði og nýjustu tízku-
litum.
. ' i ■ f+' -
* ♦
Hri::i30
*-§»**»« * ....
ISABELLA—REGINA SOKKAR
eru búnir til úr nýrri gerð af vandaðasta
Perlonþræði, er sameinar mýkt og fegurð
með óvenjulega langri endingu.
Beztu sokkakaupin á markaðnum.
Verð kr. 34.00. — Fást í næstu búð.
Heildsala:
Þórður Sveinsson & Co. Hf.