Morgunblaðið - 30.07.1967, Page 21

Morgunblaðið - 30.07.1967, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1967 21 Söguleg mynd: Grettissundmenn ásamt fyrsta Viðeyjarsundmanninum. Myndin er tekinn 18. maí 1962 í hófi er stjórn Í.S.t. hélt að Hótel Borg, þegar síðasti Grettissundmaðurinn var sæmdur afreksmerki Í.S.f. Þetta er eina myndin sem tekin var af sundmönnunum öllum sam- an. Talið frá vinstri: Erlingur Pálsson Grettissund 1927; Pétur Eiríksson Grettissund 1936; Haukur Einarsson frá Miðdal Grettissund 1939; Eyjólfur Jónsson Grettissund 1957 og 1959; Axei Kvaran lögregluvarðstjóri Grettissund 1961 og Benedikt G. Waage forseti I.SÍ. er fyrstur synti Viðeyjarsund 1914. kom, var margt manna saman- komið, til þess að fagna sund- kappanum. — Frú Elísabet Waage var þar með mikinn og fagran blómvönd frá í. S. í., er hún afhenti Erlingi. Að því loknu stje Guðmundur Björns- son landlæknir út úr mannfjöld- anum og ávarpaði Erling með ræðu þeirri er hjer birtist: Erlingur Pálsson! Allir íþróttamenn og íþrótta- vinir hjer í bæ segja þig vel- kominn heim úr þinni frækilegu Norðurför. Góðir hálsar! Um afrek Er- lings er þetta að segja: Hann lagði til sunds frá suður- odda Drangeyjar kl. 5,37 síðd., sunnudaginn 31. júlí og tók land á Hrossavíkurnefi innan við Reykjaá, hafði verið 4 st. 25 mín. á ileiðinni. Hann synti þol-skrið- sund alla leið, en hvíldi sig eitt- hvað 6 sinnum á bringusundi, 1-2 mín. í senn. Sjór var kyrr og andaði hag- stætt af austri tvo þriðjunga leiðarinnar, en úr því hrepti hann úfinn sjó_ og óhagstæðan útnyrðing. — Átti hann þá og að saekja móti sjávarstraumi og sóttist sundið erfiðilega síðasta þriðjung leiðarinnar. Bein vegalengd úr Drangey að lendingarstað Erlings er því sem næst 7% röst (km.), en stysta leið úr Drangey að Reykjanesi er um 6% röst. Sjávarhitinn var 11° C. Þetta er afrek Erlings. En þið öll, sem orð mín heyr- ið, gáið vel að því: Ef við sím- um út um heim það eitt að Er- lingur Pálsson hafi synt 7% röst, þá mun öðrum þjóð-um fátt um finnast. Þess eru sem sje dæmi, að menn hafa synt 60-70 rastir í einni lotu, hvíldarlaust. En frægastar eru orðnar sund- farirnar yfir Ermasund. Erma- sund er margfalt breiðara en Drangeyjarsund, það er um 33 rastir, þar sem mjóst er. Og þar er oft úfinn sjór og erfiðir straumar. Hvað ferst okkur um að tala þá Gretti Ásmundarson og Er- ling Pálsson, þó að þeir hafi synt yfir Drangeyjarsund, þeg- ar við vitum að annara þjóða menn hafa synt margfalt lengri leiðir? Þessu ætla ég að svara, og svarið verðið þið að muna nær sem þið talið við aðrar þjóðir um Drangeyjarsund og Gretti Ásmundarson og Erling Páls- son. Takið eftir: í Ermasundi er sjávarhitinn yfir 20° um mið- sumarskeið. En það vita þeir einir, sem öllti hafa vanist, hví- líkur feikna munur er á því, að synda í hlýjum sjó eða svölum. Jeg veit það, hefi reynt það; sund var hftsta íþrótt mín á æskuárum. — Allir íslenzkir sundmenn vita vel að þrótturinn þverrar margfalt fljótar í köldu vatni en vönmu. í Danmörku er sjávarhitinn oft 13-20° um mitt sumar. Og jeg var að tala um Ermasund, sem liggur allmiklu sunnar. Hjer er sjórinn aldrei hlýr, síst norðanlands. Þið munið hvað jeg sagði, að sjávarhitinn í Drangeyjarsundi var ekki nema 11°. Jeg er gamall sundmaður og læknir og þið megið trúa mjer: Það er fágætt afrek að synda 4yz stund í svo svölum sjó, að sjávarhitinn nemur ekki nema 11°. En ef þið trúið ekki á afrek Erlings Pálssonar, þá bjóðið heimsfrægum Ermasundsmönn- um hingað heim. Jeg leyfi mjer að efast um það, að margir þeirra haldi út hál'fa fimmtu stund í okkar svala sjó, þó þeir hafi haldið út 14-20 stundir í heitum sjó — kannske enginn, líklega enginn. Mjer er nær að halda að Erlingur okkar sje orð- inn heimsmeistari á sundi í svöl- um sjó. Þá er annað: Hugsum okkur 8 rasta sund og andstreymi, það mi'kið, að nemi að meðaltali tveim röstum á stund, og sund- mann er syndir þetta sund á 4 stundum — þá hefur hann synt — ekki 8 heldur 16 rastir. Mig grunar að Erlingur hafi átt andstrítt, andstreymt, og hafi sundleið hans í raun og veru numið allmiklu meiru en 7% röst — kannske allt að 10 röst- um. Það veit jeg ekki. En þetta vitum við um Gretti Ásmundarson. Hann hafðizt við í Drangey 4 síðustu ár æfi sinn- ar, árin 1028-1001. Nú bar svo við að eldur slokknaði fyrir þeim bræðrum, honum og Illuga, á einni nóttu. Það var 1030. Þá tók Grettir það til bragðs að leggjast til lands, því ibát höfðu þeir engan. „Mik- ið þýkir mjer það,“ sagði Ellugi. Eigi mun jeg á sundi drukkna", sagði Grettir. Veður var gott. Hann fór að áliðnum degi úr eyjunni, lagð- ist inn fjörðinn, og var straum- ur með honum, en kyrrt með öllu. Hann sótti fast sundið og kom inn til Reykjaness, þá er sett var sólu. Hann gekk til bæj- ar að Reykjum, og fór í laug tun nóttina, og fór síðan í stofu. Hann var móður mjög og sofn- aði fast. Lá hann þar alt á dag fram. En er það frjettist að Grettir hefði lagst viku sjávar, þótti öllum frábær frækleikur hans. Þá hafði Grettir fjóra um þrítugt er þetta gerðist (Erling- ur Pálsson hefir nú einn um þrítugt.) Síðan eru liðin nærfelt 900 ár. éir. Og hjer stendur Erlingur Grettismaki — annar maður síðan land bygðist, sem lagst hefur til lands úr Drangey. Okkur þykir frábær frækn- leikur þinn, góður drengur, og við segjum þig velkominn heim til okkar aftur. Við segjum að þessi unga 20. öld merki og marki upphaf nýrra gullalda hjer á landi. Við lítum á upprisu íþróttalífs for- feðra vorra sem tímanna tákn. Við heilsum þjer, Erlingur Grettismaki, og bjóðum þig margvelkominn hingað heim aftur. Fjórfalt „húrra“-hróp gall við, er landlæknir hafði lokið ræðu sinni. Þakkaði Erlingur ræðu landlæknis með nokkrum orð.um. Sagði hann, að það sem hefði komið sjer til þess að reyna þessa sundraun, hefði fyrst og fremst verið það, að enn þann dag í dag væru þeir menn til hjer á landi, sem ekki tryðu því, að Grettir hefði synt úr Drang- ey til lands. Hann vildi sanna þessum vantrúuðu mönnum að frásögnin um sund Grettis væri rjett. Þá óskaði hann þess, að þetta sund sitt mætti verða til þess að vekja áhuga meðal íþróttamanna, styrkja þá til nýrra dáða. Var Erlingur síðan borinn á „gullstól" upp steinbryggjuna. Fífa auglýsir Sumarútsalan er hafin 20—50% afsláttur. Meðal annars telpnamjaðmabuxur, rúllukragapeysur, peysujakkar, sól- og sundföt, kjólar á 1—6 ára. Kápur, úlpur og molskinnsbuxur. Drengja tery- lenebuxur, mjaðmabuxur, gallabuxur, skyrtu- peysur, úlpur og molskinnsbuxur. Dömustretch- buxur, blússur, peysur, sól- og sundföt. Herra- skyrtur, peysur, skyrtupeysur og sundskýlur. Verzlunin Fifa Laugavegi 99. (Inngangur frá Snorrabraut). Gróðurmold mokuð ókeypis á bíla við Bjarmaland 10 í Fossvogi á mánudaginn 31. júlí og næstu daga. Luxor — Radionette Luxor og Radionette sjónvarpstæki. Nýjar sendingar. Húsgagnaverzlunin Búslóð við Nóatún. — Sími 18520. ÞJÓÐHÁTÍÐIN VESTMANNAEYJUM Hópferðir á vegum ferðaskrifstofu okkar. TIL VESTMANNAEYJA: Miðvikudag 2. ágúst kl. 19. Fimmtudag 3. ágúst kl. 17, 19, 21. Föstudag 4. ágúst kl. 11, 15, 17, 19. Laugardag 5. ágúst kl. 9, 11, 13, 15. Fleiri ferðir ef þörf gerist. FRÁ VESTMANNAEYJUM Sunnudag 6. ágúst kl. 14, 16, 18, 20, 22. Mánudag 7. ágúst kl. 9, 11, 13, 15, 17, 19, 21. Fleiri ferðir ef þörf gerist. Verð kr. 1060,00 tram og til baka Innifalið í verði: Flug, keyrsla af flugvelli og aðgöngumiði að þjóðhátíðinni. Far- miðar seldir á ferðaskrifstofunni. LAND5BN ** FERÐASKRIFSTOFA Laugavegi 54. — Símar 22875 og 22890.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.