Morgunblaðið - 03.09.1967, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. SEPT. 1967
31
Áttrœður í dag:
Sigtryggur Jónsson
fyrrv. hreppsstjóri
Hjón£n Guðrún Skairphéðinsidóttir og Gylfi Guðmundsson |
ásamt tveiggja ára dóttur þeirra Ruth. (Ljósm. K. Ben)
Misstu alla búslóð-
ina I brunanum
HJÓNIN Guðrún Skarphéð-
insdóttir og GyMi Guðmunds-
son, matreið'slumaður, eru á
meðal þeirra sem urðu fyrir
miMu tjóni er vöru’skemmur
Eimakipafélagsins í Rorgar-
fcúni brunnu aðfaranótt s.l.
fiimmtudags. í brunanum
misBtu þau alla sína búslóð.
Mbl. frét'ti um tjónið og átti
blaðamaður stutt rabb við
hjómin.
— Við erum í beimisófcn
hér hjá systur minni niú,
sagði Gyllfi í upphafi samtals-
kus, — þvi litla ánægju hötf-
um við atf að sitja á góitfinu
heiima hjá ofckur- Við áttum
alla okkar búslóð um borð í
Dettifossi og höfðum beðið
etftir henni í heilam mánuð.
Við fórum til Svíþjóðar fyrir
þremur árum, stuttu eftir að
við gitftum ökfcur. Ég hafði
fengið vimmu í veitingahiúsi
í Örebro í Mið Svíiþjóð. Vi'ð
leigðum ofckur þar íbúð og
byrjuðum að saifna í heimilið.
Við áttum orðið flestar þær
nauðsynjar, sem þarf til heirn
ilis. í júli s.l. komium við til
íslanids í sumarleyfi og vegna
þess að okfcur ldkaði vel hér,
áfcvað ég að fá mér vin/n/ui
hér og flytja frá Sviþjóð. Ég
féfck vinnu í Tjarnarbúð. Ég
fór utan til Svíþjóðar í ágúst
til að ganga frá búslóðinni og
pappírum- Strax og Dettifoss
kom á miðvikudaginn fór ég
í tollbúðina og fór þess á
leit, að flýtt yrði yrir upp-
skipum. búslóðarimnar, þar sem
óg hafði beðið lengi og við
höfðum varla stól í íbúðimni
til að sitja á. Ég bað þvi um
að fá bús’lóðina heim til mín
samdiægurs, en mér var sagt
að efcfci væri hægt að ganga
frá því svo fijótlega, en mér
sagt að koma í skemrournar
strax á fimmtudagsmorgun,
þegar búið væri að tollskoða.
Seinina féfck ég að vita að bú-
sfóðiin okkar var það síðiasta
sem inn í skemimurnar fór á
miðvifcudagskvöldið og hún
brann þar ölL
í DAG er áttræður að aldri Sig-
tryggur Jónsson, fyrrum hrepp-
stjóri Laxdælinga, frá Hrapps-
stöðum í Dalasýslu. Að vísu væri
e. t. v. réttara að segja frá
Hömrum í Laxárdal, því að þar
fæddist Sigtryggur 3. sept. 1887,
og þar ólst hann upp í skjóli
mætra foreldra, Jóns Jónas-
sonar, hreppstjóra, og konu hans,
Ástríðar Árnadóttur.
Man ég, að á heiðursskjali því,
sem ungmennafélagið Ólafur pá
í Laxárdal afhenti Sigtryggi fyr-
ir all mörgum árum sem einum
stofnanda félagsins og stjórnar-
formanni um 10 ára skeið, að þar
var hann nefndur frá Hömrum.
Fannst honum það vel við eiga,
enda þótt hann væri þá lengi bú-
inn að gera garðinn frægan a'ð
Hrappsstöðum og væri tíðast
kenndur við þann stað.
Örlagadísir þær, sem forðum
sátu við vöggu Sigtryggs, hafa
veitt honum af miklu örlæti fjöl-
þætta hæfileika og góða greind.
Hefði hann án efa notið sín vel
sem námsmaður góður á lang-
skólabraut. En sú leið var sveita-
piltum ógreið í þá daga. Hann
naut aðeins barnafræðslu á
þeirra tíma vísu, en sfðar tveggja
vetra náms við lýðskólann í
Hjarðarholti. Þetta er skammur
skólaferill. Hitt gerði gæfumun-
inn, að Sigtryggur mun fyrr og
síðar hafa verið einkar hæfur
til sjálfsnáms og lært margt í
lífsins skóla.
Sigtryggur hóf húskap á Svarf-
hóli í Laxárdal árið 1918, en á
Hrappsstöðum bjó hann í 40 ár,
frá 1919—1959. Snemma hlóðust
á hann margþætt trúnaðarstörf
í þágu sveitar og sýslu. Hygg ég
harla fágætt, að einn og sami
maður hafi gegnt jafnmörgum
störfum af slíku tagi í senn um
lengri eða skemmri tíma. Hann
var um skeið í stjóm Ungmenna-
sambands Dalamanna. Stofnandi
og formaður Loðdýraræktarfé-
lags Laxdæla. Hreppsnefndar-
maður og oddviti um langt skeið.
Formaður sóknarnefndar, safn-
aðarfulltrúi og sáttamaðuf. For-
maður áfengisvamarnefndar og
lengi í stjórn Búnaðarfélags Lax-
dæla. Fulltrúi á aðalfundum
Búnaðarsambands Dala- Snæfells
ness. í fasteignamatsnefnd. End-
urskoðandi hreppsreikninga.
Stundaði barnakennslu í tvo ára-
tugi. Prófdómari lengi síðan.
Deildarstjóri Kaupfél. Hvamms-
fjarðar og lengi endurskoðandi
og löggiltur vigtarmaður. Sýslu-
nefndarmaður um langa tíð og
hreppstjóri frá 1934—1959. í
stjórn Sparisjóðs Dalasýslu og
sparisjóðshaldari í nokkur ár.
Starfsmaður við sýslumannsemb-
ættið í Dalasýslu af og til árum
saman og oft settur sýslumaður
í fjarveru sýslumanns. Átti sæti
á lista Sjálfstæðisflokksins í
Vesturlandskjördæmi við Alþing
iskosningarnar haustið 1959. —
Riddari af fálkaorðu. —
Þegar ég tók við sýslumanns-
embætti í Dölum vorið 1955,
þurfti ég um margt að leita til
Sigtryggs hreppstjóra. Hann var
þá orðinn vel kunnugur embætt-
inu og kunni góð skil á öllum
hlutum. Við unnum saman við
embættið og Sparisjóð Dalasýslu.
Er margs að minnast frá þeim
árum. Man ég, að mér þótti
skafðið vandfyllt, þegar Sig-
tryggur fluttist alfarinn til
Reykjavíkur árið 1959. En því
fór fjarri, að Sigtryggur settist
í helgan stein í höfuðstaðnum.
Hann var óðara orðinn starfs-
maður Alþingis og ekki var þingi
fyrr lokið á vorin en hann birt-
ist á Skattstofu Reykjavíkur við
skrifstofustörf. Hann getur ekki
óvinnandi verið. Enn í dag vinn-
ur hann Alþingi á vetrum, en
Skattstofunni á sumrum. Vinnu-
þrekið og heilsan duga enn og
áhuginn er síbrennandi.
Sigtryggur er kvæntur hinni
mætustu konu, Guðrúnu Sigur-
björnsdóttur frá Svarfhóli í Lajf-
árdal. Börn þeirra eru þrjú: Jón,
aðalbókari Iðnaðarbanka íslands,
Sigurbjörn, aðstoðar-bankastjóri
Landsbanka íslands, kvæntur
Ragnhei'ði Viggósdóttur, — og
Margrét, húsfreyja í Reykjavík,
gift Eggerti Hjartarsyni frá
Hjarðarholti.
í dag getur Sigtryggur horft
yfir óvenjulangan og farsælan
starfsdag. Á þessum merkisdegi
verður hann að heiman, en þó
heima, því að mér er sagt, að
hann ætli að bregða sér vestur í
Dali. Ekki veit ég, hvort hann
verður á „bændadegi" Dala-
manna, sem haldinn er hátíðleg-
ur í Bú’ðardal í dag. Þangað yrði
hann vissulega velkominn. 1 hópi
bænda og búaliðs lifði hann sín
æsku- og manndómsár, unz
Reykjavík tókst að seiða hann
til sín rúmlega sjötugan, eins
og svo marga fleiri kjarnakvisti
úr sveitum landsins. Þessu ollu
breyttar áðstæður, en engin elli-
glöp. Hefur kerlingu Elli enn
ekki tekizt að koma Sigtryggi á
annað kné, hvað þá heldur bæði.
Ég þakka Sigtryggi góð kynni
og árna honum allra Heilla og
fjölskylda mín sendir þeim hjón-
um og niðjum þeirra óskir um
farsæld á komandi tímum.
Friðjón Þórðarson.
- FERÐASPJALL
Framhald af bls. 5
Hvammsheiði. Á hægri hönd
sést yfir víðáttumikla aura en
til vinstri opnast Laxárdalur,
þar ku vera fagurt land og skógi
vaxið. Austan dalsins eru grón-
ir hálsar, Dalsfjall, og bærinn
Þórisdalur framanundir. Svo
leggur vegurinn á aurana og við
sjáum inn mikinn dal til vinstri,
botninn gráir, gróðurlausir aur-
ar, ofan þeirra grænn skógar-
kragi og grónar hlíðar. Austur
undir brekkunum er brúin á
Jökulsá í Lóni, þetta er dalur-
inn hennar, Jökulsárdalur, sem
hún hefur herjað á, miskunnar-
laust, og ekki síður láglendið
framundan. Á fallegum hjalla
austan við ána er bærinn Brekka
og kirkjustaðurinn Stafafell.
Þar er töluvert graslendi fram-
undan, niður að sjó, og bæirnir
Hnaunkot og Bær. Austur af þvi
er stórt sjávarlón, innan við mjó
an granda, og heitir Lón.
Jökulsárdalurinn vakti strax
athygli mína svo að ég ákvað
að skoða þetta umhverfi nánar.
Við ókum frekar ógreiðfærann
veg inn með hlíðinni, austan við
ána; þar er heillandi umhverfi.
Elfan kvíslar á aurum fléttar,
ömuxleiki, hið neðra.
Skógargróður og gráir klettar,
grænir rindar, hið efra.
En starsýnt var mér samt á
litaskrautið í skriðunum, hand-
an við ána. Þangað fórum við
einnig, inn hjá Þórisdal og ill-
færa slóð inn á Dalsfjall. Ofan
af háum klettáhöfða horfði ég
yfir þetta furðulega svæði en því
miður var þoka á háfjöllum. Við
þá yfirsýn sannfærðist ég um að
þetta svæði býr yfir ótrúlega
fjölbreyttri náttúrufegurð og
litadýrðin í skriðum, giljum og
gljúfrum er ótrúleg.
Ég spái því að þetta eigi eftir
að verða eitt vinsælasta ferða-
mannasvæði landsins, og það
þarf strax að fara að búa í hag-
inn fyrir væntanlega gesti. Báð
um megin dalsins þarf að gera
sæmilega greiðfæra sumarvegi.,
inn að Skyndidalsá að vestan og
inn í Austurskóga að austan, þá
getur hver og einn skussinn not
ið hinna aðgengilegri svæða. En
þar inn af bíða heillandi ævin-
týralönd, þeirra, sem fræknari
eru. Allir, sem ferðast hafa um
þann öræfaheim, segja að hann
eigi vart sinn líka á landi voru.
í sumar var ruddur jeppavegur
upp á Kjarrdalsheiði og inn að
Illakamtoi. Einnig var gerð
göngubrú á Jökulsárgljúfur og
kláfurinn gamli leystur af
hólmi. Fyrir þetta á vegamála-
sjóri þakkir skilið og því treysti
ég honum til frekari fram-
kvæmda. Svo skora ég á Ferða-
félag íslands að reisa þarna
myndarlegan skála, á hentugum
stað. Niðri í byggð er einnig
nauðsyn á einhverri ferðaþjón-
ustu, t.d. við brúna hjá Brekku.
Og síðast en ekki sízt, þetta
svæði má ekki eyðileggja með
sumarbústaðakraðaki, eins og
við Þingvallavatn.
Austurhluti Lónssveitar fannst
mér hlýlegur, enda í skjóli
hárra fjalla. Undir Reyðarár-
tindi er ’bærinn Reyðará og
nökkru austar eyðibýlið Svín-
hólar. Þar fellur Össurá fram úr
snotru gljúfri og í austurbrún
þess kemur fram berggangur úr
ljósri líparítsamryskju, sem í
eru glæður af koparkís. Nú
stendur yfir rannsókn á þessu
svæði, máske á eftir að hefjast
þarna námuvinnsla og þá verður
komandi í Lónið. Víkurfjall g
Hvalnesfjall (Austurhorn) loka
byggðinni að austan og þar eru
þæirnir Vík og Hvalnes. Hliðar-
vegur, að þessum bæjum er af
þjóðveginum í brekkufæti Lóns
heiðar en þar uppi eru sýslu-
mörk. Þarna lauk ferð minni um
sýsluna en höfuðstaðurinn var
eftir.
Höfn í Hornafirði er eina
kauptún sýslunnar og eina höfn
in. Bæjarstæðið, fremst á Hafn-
arnesi, er bæði sérkennilegt og
fagurt, Hornafjörður og Skarðs-
fjörður til hvorrar handar með
ótal grónum hólmum og eyjum,
framundan Hornafjarðarós, eitt
mesta straumvatn landsins, enda
ekki heiglum hent að lóðsa skip-
um um hann eða króka leiðina
að bryggjunni. Þetta er jöfnum
höndum verzlunar- og útgerðar-
staður, sem hefur vaxið mjög
ört á undanförnum árum, nýjar
byggingar setja svip sin á hann
og snyrtimennska virðist xáð-
andi, utanhúss. Þar sér maður
ekki hið nöturlega yfirbragð
sumra útgerðarbæja, ítök sveit-
anna eru greinilega sterk. Einn
bæjarbúi sagði við mig: „Guði
sé lof að síldarævintýrið hefur
ekki hertekið okkur“. Það er
mikið happ fyrir staðinn, að
höfnin er í útjaðri byggðarinnax
og verður í framtíðinni að
mestu aðskilin frá henni, þegar
nýja höfnin er fullgerð. Þá verð
ur innsiglingin einnig mun greið
ari.
Þarna kom ég inn í stóra og
óvenju smekklega kaupfélags-
búð, í mörgum deildum með fjöl
breyttu vöruúrvali (falleg bóka
deild kom mér gleðilega á
óvart). Þar, og annars staðar
fannst mér rikja þjónustuandi,
ekkert í ætt við hina hvimleiðu
„lokunarpólitík" höfuðborgarinn
ar. Það er mikill fengur að hinu
nýja og myndarlega hóteli og
óskandi að vel takizt til með
rekstur þess. Ég dvaldi þar ekki
en talaði við gesti þess, inn-
lenda og útlenda, sem báru því
mjög gott orð. Ég gekk þar um
salarkynni og leizt yfirleitt vei
á það, sem ég sá (ekki gólfið
í anddyrinu). Borðsalur er vist-
legur og gangur rúmgóðir en höf
uðkostur byggingarinnar er þó
sá að gistirými er alveg aðskilið
frá þjónusturými. Fyrir þá
snjöllu lausn á afkitektinn heið-
ur skilið og þetta hefði „kolleg-
ar“ hans mátt hafa ríkar í huga,
er þeir voru að teikna sum
nýju hótelin í Reykjavík, t.d.
Loftleiðahótelið. Hótelið er á
fallegum stað á rúmgóðlri lóð og
ættu eigendurnir að fá snjalla
mann til að skipuleggja hana.
í kauptúninu er félagsheimili
og snotur sundlaug en ennþá
vantar ódýran matstað (cafe-
teriu). Fyrir ofan bæinn tók ég
eftir nokkrum kofumi, báðum
megin við veginn, sem mér
fannst óprýði að. Slíkar bygging
ar eiga heima á afviknari stað.
Á þessum stað hefur tekizt svo
vel til um margt og bæjarbúar
verða að halda í horfinu.
— Þið íslendingar
Framhald af bls. 16
Það hefur vakið athygli
mína að bílar hér eru almennt
með stýri vinstra megin eins
og á íslandi. Mun það vera af
sömu ástæðu, erfiðara er að
fá bíla með stýri hægra meg-
in.
Á blaðamannafundi í gær
(30. 8.) kom Lars Skjöld
fram ásamt sérfræðingum,
sem einnig eiga sæti í hægri
nefndinni. Var hann þá spurð
ur að því, hvort sjúkrahús
Stokkhólmsborgar hefðu
gert sérstakar ráðstafanir til
þess að hjúkra slösuðum hinn
3. september. Skjöld kvað
það ekki vera. Ekkert hefði
verið gert utan hins vanalega.
M. F.
— Víetnam
Fnamlhald aif bls. 1
búa geti nýju leiðtogarnir stað-
ið af sér yfirstandandi ófriðar-
afviðri og tvísýnu.“
Meðal þeirra 120 eftirlits-
manna, sem komnir eru til Suð-
ur-Vietnam til að fylgjast með
kosningunum, eru blaðamenn frá
Indlandi og Marokkó. Sögðu þeir
í dag við fréttamenn að svo virt-
ist sem kosningaundirbúningur-
inn væri allur hinn vandaðasti
og að þar væru engin svik við-
höfð. Hins vegar væri of snemmt
að segja hvort kosningarnar sjálf
ar færu heiðarlega fram. Gouriy-
or Gosh frá Indlandi sagði að
honum virtist vel af stað farið,
og var sérstaklega hritfinn af því
að hafa fengið að fylgjast með
framboðsfundum þar sem áheyr-
end,ur spurðu frambjóðendur og
deildu við þá um málefni kosn-
inganna. Sir Stephen Weir, sendi
herra Nýja Sjálands í Saigon og
fulltrúi lands síns við kosninga-
eftirlitið lýsti því yfir að hann
væri mjög ánægður með alian
kosningaundirbúning. Kvaðst
hann ekki vita hve mikil áhrif
hryðjuverk kommúnista hefðu á
kosningarnar sjálfar, en vonaðist
til að áhrifanna gætti lítt. Hann
sagðist hafa talað við fjölda kjós
enda, og alls staðar orðið var við
óhuga á að fá að leggja eitthvað
til málanna með því að greiða
atkvæði.