Morgunblaðið - 22.09.1967, Qupperneq 12
5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. SEPT. 1967
(
Tíu íslenzkir myndlista-
menn sýna í Liibeck
EINS og fram hefur komið í
Mbl. stendur nú yfir sýning á
íslenzkri málaralist á vegum
Myndlistafélagsins í boði Lúbeck
borgar. Blaðinu hefur nú borizt
fréttatilkynning um sýninguna
frá íslenzka aðalræðismannin-
um í Lúbeck og fer hún hér á
eftir. Kemur þar meðal annars
fram, að góð aðsókn hefur
verið að sýningunni og hennar
getið vinsamlega í blaðafregn-
um og víðar.
rik Sigurðsson, Sigurð K. Árna-
son, Svein Björnsson og Jutta
Devulder Guðbergsson, en Jutta,
sem er fædd í Lúbeck, hefur átt
frumkivæði að þessari sýningu.
Fyrir hönd menntamálastjórn-
ar Lúbeck sáu forstjóri og list-
fræðingar borgarsafnanna um
uppsetningu og annan .undirbún-
ing. Er sýningunni mjög vel fyr-
irkomið í sýningarsal safnhúss-
ins Dom-Musem.
Dagblöðin í Lúbeck birtu vin-
Málverk frá sýningunni eftir Finn Jónsson.
Fimimtudaginn 7. september
sl. var opnuð í Lúbeck málverka
sýning, sem Myndlistarfélagið
hefur efnt til í boði Hansaborg-
arinnar. Sýnd verða um 80 mál-
verk eftir 10 íslenzka listamenn,
þá Ásgrím Jónsson, Gunnlaug
Blöndal, Jóhannes S. Kjarval,
Finn Jónsson, Helgu Weisshapp-
el, Jón Gunnarsson, Pétur Frið-
gjarnlegar tilkynningar um sýn-
inguna opnunardaginn. Hennar
var einnig getið í útvarps-frétta-
þætti fyrir Schleswig-Holstein
sama dag.
Við opnunina voru viðstaddir
forráðamenn borgarinnar, auk
margra gesta. Frú Jutta Guð-
bergsson mætti, sem fulltrúi
Myndlistarfélagsins og var hún
í íslenzkum búningi, sem setti
sérstakan blæ á samkömuna. í
ávarpi, sem herra Heine, borgar-
ráðherra (senator), flutti fyrir
hönd stjórnar Hansaborgarinnar
Lúbeck, en .undir hann heyra
menntamál, skýrði hann frá að-
draganda þessarar sýningar,
sem hann fagnaði mjög. Senator-
inn þakkaði frú Jutta Guðbergs-
son mjög fyrir frumkvæði
hennar, alla vinnuna og fyrir-
höfn, og færði henni fagran
blómvönd. Einnig þakkaði hann
ræðismanni íslands, Franz E.
Siemsen, fyrir góða aðstoð.
Ræddi hann um verzlunar- og
menningartengslin milli íslands
Málverk eftir Asgrím Jónsson.
lánuð af ÁsgrímssafnL
töluðu alþjóðamál. Væri sýning
þessi mjög vel tii þess fallin að
auka kynni og vitneskju fólks
Sveinn Björnsson á tíu málverk á sýningunm.
og Þýzkalands og sagði m.a., að
samskiptin á swiði menningar
væru stundum erfiðleikum háð
vegna tungunnar, en málverk
um ísland.
Síðan tók til máls, Franz E.
Siemsen, ræðismaður. í opnunar
ræðu sinni dró hann upp mynd
Sex verka hans eru á sýningunni
af náttúru íslands og íslending-
um fyrir áheyrendum og rakti í
stórum dráttum sögu hinnar
mjög svo ungu íslenzku málara-
listar, sem á mjög skömmum
tíma hefði náð viðurkenningu og
hylli þjóðarinnar. Væri íslenzk-
um listamönnum heiður og
ánægja, að fá einnig tækifæri
til að kynna sig erlendis. Gat
hann þess, að það væri nú í
þriðja sinn að íslenzk myndlistar
sýning væri haldin í Lúbeck, en
fyrri sýningar voru 1928 — fyrsta
yfirlitssýning íslenzkra málara,
— og 1962. í lok ræðu sinnar
þakkaði ræðismaðurinn sérstak-
lega herra senator Heine fyrir
vinsemd og áhuga á íslenzkum
málefnum, en sýning Myndlistar
félagsins hefði orðið að veru-
leika- fyrst og fremst vegna
persónulegs stuðnings senators-
ins.
Sýninguni var mjög vel tekið
af gestunum, og er hún Mynd-
listafélaginu og fslendingum til
sóma. Hefur hún verið vel sótt,
en hún stendur yfir til 1. októ-
ber. Fer hún þá til Berlínar og
e.t.v. víðar.
DANSSKÓLI
ASTVALDSSONAR
mnMi
Skólinn tekur til starfa mánudaginn 2. október.
Barnaflokkar — Unglingaflokkar. Flokkar fyrir fullorðna
einstaklinga. Flokkar fyrir hjón. — Byrjendur—Framhald.
Innritun og allar upplýsingar daglega
í eftirtöldum símum:
REYKJAVÍK:
1-01-18 og 2-03-45 frá kl. 10—12 og 1—7.
Kennt verður að Brautarholti 4.
KÓPAVOGUR:
3-81-26 frá kl. 10—12 og 1—7.
Kennt verður í félagsheimilinu.
HAFNARFJÖRÐUR:
3-81-26 frá kl. 10—12 og 1—7
Kennt verður í Góðtemplarahúsínu.
KEFLAVÍK:
2097 frá kl. 3—7.
Kennt verður í Ungmennafélagshúsinu.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
LIMGLINGAR
„POP“ dansarnir í ár:
SNEEKERS
SOUL
TOPOL
OOH, LA, LA
PUPPET DANCE
(PUPPET ON A STRING)
Gjöld óbreytt.
Við kennum alla sam-
kvæmisdansa og barna-
dansa, jafnt þá gömlu sem
þá allra nýjustu. Þjálfun
fyrir alþjóðamerkið.