Morgunblaðið - 22.09.1967, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. SEPT. 1967
23
um stráCa veg, eins og þar færi
raunalaus maður. — Hann var
hetja, mitt í sínu umkomuieysi.
Stór'brotinn, en mannlegux, per-
sónuleiki, sem margt mátti læra
af. — Hinn annar strengur í
hörpu hans — og þeirra þýðas.t-
ur — var umönnun hans og hug-
arþel tiil þeirra, sem í vonleysi
stóðu andspænis örlögum sínum,
en voru hans tíðu samferðamenn
á hjúkrahúsaferli hans. Honum
auðnaðist oft að smeygja ljós-
geisla inn í sálarlíf þeirra, þótt
hann reri sjálfur í sama báti.
Hann strauk oft, þennan streng.
— Þar var aldrei falskur tónn.
— Hann gerði þflð jafnan svo, að
sem minnst færi fyrir þvl —
— Það var í senn, furðulegt og
hrífandi
Sá hinn þriðji strengur hörp-
unnar, hljómaði æ sjaldnar, hin
síðari ár. En það var skop-skyn
hans og græskulausa glettni.
Hann var hugmyndaríkur á því
sviði og færði mörgum sam-
ferðamanninum léttara yfir-
bragð með því.
Vissulega hljómuðu fleiri
strengir í hörpu Magnúsar.
Einnig þeir, sem hjáróma voru,
því að hann var ekki brestalaus,
frekar en aðrir mannlegir menn.
En það verður eintal hans við
guð sinn, sem ég blanda mér
ekki í, — þó er rétt að hafa það
í huga, að þeir, sem heilbrigðir
teljast, snúast ekki ætíð mieð
skynsamlegasta hættL gegn ör-
lögum sínum. Þeir mæla heldiur
ekki alitaf af háttvísi og geð-
prýði. En þó að það réttlæti ekki
neitt í sjálfu sér, er ekki fráleitt
að leiða hugann að því, hvers
sé þá að vænta af þeim, sem
stöðugt er ógnað með þjéning-
um og dauða.
Þó að oft væri skyggsýnt og
kuldalegt, yfir leiðum Magnús-
ar, hér í heimi, þá lýsti honum
þó og yljaði margur sólargeislinn
frá samferðafólkinu. Læknar
hans gerðu margt fallegt oig vel
fyrir hann, og þá sérstaklega
Katrín og Skúli Thoroddsen,
sem um margra ára bil, voru
heimilislæknar hans, — Skúli
var þar um margt fyrirmynd
annarra lækna, með lipurð sinni
og skilningi á þörfum hans og
getu, svo þráfaldlega, sem til
hans var leitað. Mér leikur svo
hugur á, að þar hafi ekki alltaf
komið gjald fyrir. — Samstarfs-
menn hans, margir, sýndu hon-
um oftlega hlýhug og rausn. —
Systkini hans gerðu honum
mögulegt, að sitja að föðurleyfð
þeirra og held ég að það hafi
yljað honum hvað mest. — Dæt-
ur hans fjórar uxu upp eins og
gleymméreyjar í gróanda, af
miklum þroska, og urðu fleiruro
hugleiknar. Sex mannvænleg
barnabörn voru honum einnig
miklir yndisaukar.
Flyt ég öllum þessium og öðr-
um velunnurum hans, alúðar-
þakkir fyrir ilminn og birtuna.
Síðast, en ekki sízt, átti hann
eigin/konu, sem annaðist hann
og hjúkraði honum, næmar og
betur en nokkur annar. — Hún
skilur sálir. — Hún bar með hon-
um byrðar hans af slíkri hug-
prýði og reisn, að fágætt er.
Hún annaðisit líka dæturnar
þeirra fjórar, af þeirri umönn-
un, sem aðeins móðir getur gert.
— Það var fögur dáð, sem þar
var drýgð. — Hún átti líka sín-
ar vonir og sínar þrár, eins og
hann. En þær voru dæmdar til
að deyja með hans. í harminum
er fegurðdn stundum mest.
f allsleysi sínu, er hún kona
ríkust, í allri smæð sinn, er hún
stærst. Mér finnst hún hafa
fært inn í mannlífið frábæra feg-
urð. Það er ekki á mínu valdi,
að þakka henni fyrir það. Það
verður ger.t af öðrum, mér
mi'klu meiri á hennar lokadægri.
Við, tengdasynir Magnúsar,
flytjum honum miklar þakkir
og stórar fyrir daötur hans,
fyrst og fremst. Það eru epli,
sem ekki hafa fallið langt frá
eikinni, enda allar hinir mestu
kvenkostir. Við þökkum honum
fyrir samfylgdina og hlýhug
allan. Persóhulega óska ég þess
og bið, að sú vegferð hans, sem
nú er hafin, verði áfallaminni
en sú, sem hann átti hér.
Með alúðar kveðju.
Skarphéðinn Össurarson.
Telpnaúlpur
TEDDY-nylonulpur með gæruskinns-
bryddingum á hettunni nú til einlitar og
munstraðar.
Vinsælasta telpnaúlpan á markaðnum.
Þér eigið alltaf leið um Laugaveginn.
Laugavegi 31.
Tónlistarskóli
Mosfellshrepps
tekur til starfa 2. október n.k.
Kennslugreinar: Píanó, blásturshljóðfæri, blokk-
flauta, tónfræði og tónlistarsaga. Einnig fiðlu-
leikur ef næg þátttaka fæst.
Umsóknir um skólavist sendist til símstöðvarinnar
að Brúarlandi fyrir 27. sept. n.k.
SKÓLASTJÓRI.
Sláturtíðin er
að hefjast
Plastfötur fyrir slátur og saltkjöt
plastbalar og föt
plastöskjur í frystikistur
álpappír, plastpokar
sláturgarn, rúllupylsugarn
hakkavélar, rúllupylsupressur
niðursuðuglös V2 1, % 1, 11, IV2 1, 2 1.
tmaent
REYKJAVÍK
Hafnarstræti 21 sími 1-33-36.
Suðurlandsbraut 32 sími 3-8775.
PLYMOUTH BELVEDERE II.
NOKKRAR AF HINUM GLÆSILEGU OG VINSÆLU PLYMOUTH BELVEDERE II,
ÁRGERÐ 1967, FYRIRLIGGJANDI.
ÞAR SEM ÞEGAR HAFA VERID TILKYNNTAR NOKKRAR HÆKKANIR Á VERÐI 1968 ÁRGERÐANNA,
ER VÆNTANLEGAR ERU TIL LANDSINS í I.OK NÆSTA MÁNAÐAR, RÁÐIÆGGJUM VÉR VÆNTAN-
liEGUM VIDSKIPTAVINUM VORUM AÐ HAFA SAMBAND VIÐ UMBOÐIÐ SEM FYRST TIL AÐ TRYGGJA
SÉR 1967 ÁRGERÐINA.
MUNIÐ HIN HAGSTÆÐU KJÖR.
CHRYSLER
Vlymoutfi
CHRYSLER-UMBOÐIÐ VÖKULL h.f.
Hringbraut 121, sími 10600.