Morgunblaðið - 22.09.1967, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. SEPT. 1967
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar;
Ritstjórnarfulltrúi:
Fréttastjóri:
Auglýsingar:
Ritstjóm og afgreiðsla:
Auglýsingar:
I lausasölu:
Askriftargjald kr. 105.00
Hf. Arvakur, R'eykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
'Ámi Garðar Kristinsson.
Aðaistræti 6. Simi 10-100.
Aðalstræti 0. Siml 22-4-80.
Kr. 7.00 eintaídð.
á mánuði innanlands.
GRIKKLANDS-
STJÓRN KÆRÐ
¥ viðtali við Mbl. í gær skýrði
* Emil Jónsson, utanríkis-
ráðherra frá því, að ákveðið
hefði verið að ísland gerðist
aðili að kæru hinna Norður-
landanna gegn grísku herfor-
ingjastjórninni til mannrétt-
indanefndar Evrópuráðsins.
Upplýsti ráðherrann, að ein
ungis hefði staðið á því, að
utanríkisráðuneytinu bærist
kæran í hendur og af þeim
sökum ekki unnt að skýra frá
ákvörðun íslenzku ríkisstjórn
arinnar fyrr.
Þessi afstaða er í samræmi
við fyrri yfirlýsingar ríkis-
stjórnarinnar um Grikklands
málið en það hefur jafnan
verið stefna stjórnarinnar að
styðja lýðræði og mannrétt-
indi í Grikklandi í þeim al-
þjóðasamtökum, sem ísland
á aðild að. Enginn vafi er á
því, að almenningur hér á
landi mun fagna aðild íslands
að þessari kæru.
Atburðirnir í Grikklandi
hafa snortið frjálsa menn um
heim allan mjög djúpt, ekki
sízt vegna þess, að í Grikk-
landi stendur vagga lýðræðis
í heiminum og Grikkland
hefur lengi notið virðingar í
samtökum vestrænna þjóða
og gegnt þar mikilvægu hlut-
verki.
Framferði herforingja-
stjórnarinnar í Grikklandi
hefur verið með eindæmum
og hafa þeir ekki verið eftir-
bátar kommúnista í einu eða
öðru, sem lýtur að ofbeldi
og kúgun. Þannig er nú gíf-
urlegur fjöldi pólitískra fanga
í Grikklandi og þær fregnir,
sem ferðamenn flytja þaðan
eru næsta óhugnanlegar.
Það væri of mikil bjartsýni
að ætla að kæra Norðurland-
anna fjögurra til mannrétt-
indanefndar Evrópuráðsins
fengi því áorkað að herfor-
íngjastjórnin sæi að sér. Hins
vegar mun hún verða til þess
að vekja enn athygli á hlut-
skipti Grikkja undir ofbeldis-
stjórn og með því hefur hún
að töluverðu leyti náð til-
gangi sínum.
EIGA HERS-
HÖFÐINGJAR
AÐ RAÐA?
l?regnir hafa nú borizt um,
* að yfirmaður alls herafla
Bandaríkjanna á Kyrrahafs-
svæðinu, Sharp, flotaforingi,
hafi lagt fyrir öldungadeild
Bandaríkjaþings áætlun um,
hvernig hægt yrði að vinna
skjótan sigur í styrjöldinni í
Víetnam, ef flotaforinginn
fengi til þess frjálsar hendur.
Meginefni tillagna flotafor-
ingjans mun vera stórauknar
loftárásir á Norður-Víetnam
og mjög aukinn herafli Banda
ríkjanna í Suður-Víetnam.
Styrjöldin í Víetnam er harm
leikur eins og allar styrjaldir
og úr þeim harmleik yrði ekki
bætt með því að gefa hers-
höfðingjum frjálsar hendur.
MacNamara, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna hef-
ur lýst því yfir í vitnisburði
frammi fyrir hermálanefnd
öldungadeildarinnar, að loft-
árásirnar á Norður-Víetnam
geti ekki unnið styrjöldina í
Suður-Víetnam og þeim hafi
aldrei verið ætlað það. Vona
verður í lengstu lög, að hinir
pólitísku leiðtogar í Banda-
ríkjunum láti ekki þá skyssu
henda sig að gefa hershöfð-
ingjunum of frjálsar hendur.
Slíkt hefur sjaldnast orðið til
góðs, það yrði hörmulegt ef
svo færi í Víetnam.
ALMENNINGUR
í ÚTGERÐ
UTAN UR HEIMI
V i ui
K'*
I G E R
*Kano
M O R O U R.
KADUNA
| G E R I
5><*0#..SN I G E R I A
I * Mp*
^ m,
r I j
-V/Eirjý
AFrTka
poRT
HNRCOURTL
A ðeins eitt almenningshluta-
félag mun hafa verið stofn
að hér á landi um rekstur
fisiki- og síldarbáts, félagið
Haf hf. Félagið hefur nú
ákveðið að greiða hluthöfum
sínum 10% arð. Það er ekki
oft sem slíkar tilkynningar
koma frá hlutafélögum hér-
lendis.
Hugmyndin um almenn-
ingshlutafélögin hefur smátt
og smátt verið að breiðast út
hér á landi, þótt enn hafi
ekki verið stofnað hér al-
menningshlutafélag um veru-
legan stórrekstur. Að því
mun þó vafalaust koma.
Hins vegar er sérstök
ástæða til þess að vekja at-
hygli á því almenningshluta-
félagi, sem að framan greinir.
Það veitir borgurum úr ýms-
um starfsgreinum tækifæri
til þátttöku í útgerðarrekstri
og væri vafalaus* gagnlegt ef
slíkt yrði í ríkara mæli. Það
mundi m.a. auka skilning hins
almenna borgara á þessum
höfuðatvinnuvegi þjóðarinn-
ar.
Benin - nýja lýðveldið I Nigeriu
FRÉTTIN um að miðvestur-
svæðið í Nigeríu hefur sagt
sig úr lögum við sambands-
stjórn landsins og lýst yfir
sjálfstæði sínu sem lýðveldi
undir nafninu Biafra, hefur
í för með sér róttæka breyt-
ingu á þvi viðhorfi, sem ríkt
hefur í landinu, síðan austur-
svæði landsins sagði sig úr
lögum við sambandsstjórnina
og lýsti yfir sjálfstæði sinu
undir nafninu Biafra.
Fáeinum vilkum eftir að
bcxrgarastyrjöldin brauzt út
milli herliðs frá Biafra og her
liðs sambandsstjórnarinnar,
gerðu liðsforingjar af Ibo-
ættflokknum uppreisn í Ben-
in, höfuðborg miðlvestarr-
svæðis landsins, og í byrjun
ágúst hertók herlið frá Biafra
mestan hluta þess landssvæð-
is, sem nú hefur lýst yfir
sjálfstæði sínu sem lýðveldið
Benin.
Yfirmaður hefliðs Biafra á
miðvestursvæðinu, Victor
Banjo hershöfðingi, lýsiti því
strax yfir, að þetta svæði væri
óháð bæði sacmbandsstjórn-
inni í Lagos og uppreisnar-
stjórninni í Emugu, höfuðborg
Biafras. Þegar í stað tók við
stjórn af honum Albert
Okonkwo major og það var
hann, sem í stuttri ræðu í út-
varpið í Benin skýrði frá því,
að stofnað hefði verið lýð-
veldið Benin.
Líkt og aðrir stjórnmála-
menn úr hernum í Nigeríu
hefur hinn 35 ára gamli her-
læknir, Albert Okohkwo,
borizt út í straumiðu stjórn-
málanna vegna ættflokka-
deilna I þessu víðáttumiklá
landi. Okonkwo hlaut lækn-
ismenntun sína í Bandaríkj-
unum og var major í heil-
brigðisdeild sambandshers-
ins, áður en stjórnmálaókyrrð
in í Nigeríu leiddi til þess, að
hann sneri sér að stjórnmál-
um.
Hann hefur stjórnað, með
herinn að baki sér, miðvest-
ursvæði Nigeríu, frá því að
herlið Biafra hertók svæðið
í byrjun ágúst. Okonkwo er
af Ibo-ættflokknum, en sá
ættflokkur er sá fjölmennasti
í Biafra, en er í minni hluta
í Benln.
Æbtflokkar í Nigeríu hafa
mikið vald samkvæmt venju
á landsvæðum sínum og
Okonkwo lýsti þvi yfir í út-
varpsræðu sinni, að hann
hefði ráðgazt við „smákon-
unga“ og höfðingja á mið-
vestursvæðinu, áður en hann
tók það ákref að lýsa yfir því,
að svæðið yrði sjálfstætt
ríki.
Landsvæði það, sem nú er
lýðveldið Benin, er um 3i9.000
ferkm. að flatarmáli og að
mestu þa'kið þykkum regn-
skógum. íbúarnir eru um 2,5
millj. og eru helztu ættflokk-
arnir Beniar, Ijawar, Sekiriar,
Iboar og Edoar. Höfuðborgin
Benin hefur 54.000 íbúa.
Iboarnir eru tiltöllega
fjölmennir, en eru í mikilli
andstöðu við Edoa, sem eru
stærsti ættflokkur miðvestur-
svæðisins.
Nafnið Benin er frægt í
sögu Nigeríu og borgin göm-
ul miðstöð menningar og list-
ar innfæddra manna allt frá
16. öld. Listmunir úr bronzi,
tré og fílabeini eru á meðal
hins fremsta í þjóðlegri list
Afríkulanda.
Landsavæði þetta var fyrst
kannað af Fortúgalsmönnum
og eftir að brezkir, franskir
og hollenakir könnunarleið-
angrar höfðu farið um það,
var það hernumið af Bretum
1897. Þá náði Benin yfir stórt
svæði við vesturströndina
fyrir austan núverandi
Ghana, en á síðustu áratug-
um hefur það verið minnkað
svo, að það nær aðeins yfir
svæðið umhverfis Benin.
Miðvestursvæðið var að-
greint sem sérstakt svæði
í Nígeríu.
Hinn 27. sept. nk. kemur
sex manna sendinefnd frá
Einingarhreyfingu Afrilku-
ríkja til Lagos í þiví skyni
að reyna að finna grundvöll
fyrir vopnahléi og síðar frið
arsamningum í borgarastyrj
öldinni.
Möguleikarnir á því, að
slíkt takist, virðist hins veg
ar vera mjög litlir. Sambands
stjórnin í Nígeríu hefur sýnt
lítinn áhuga á afskiptum ut
anaðkomandi aðila, þar sem
hún líbur á þessi mál sem
innanríkismál Nígeríu. Það
hefur verið gert fullkom-
lega ljóst, að stjórnin lítur
á sendinefnd Einingarsam-
takanna sem einungis ráð-
gefandi aðila. Nefndin fær
ekkert vald til þess að leita
sátta og öll samslkipti, sem
hún kemur til með að eiga
við stjórnina í Biafra, verð-
ur samlbandsstjórnin að hafa
fallizt á fyrirfram.
Eftir yfirlýsinguna um, að
miðvestursvæði landsins hafi
einnig sagt sig úr lögum við
sambandisríkið eru það að-
eins norður- og vestursvæð-
ið, sem eftir eru af sam-
bandsríkinu. Málum er nú
þannig farið í landinu, að
Yorumaættflokkurinn í
vestri styður sambandsstjórn
ina, sem hershöfðinginn Yak
ubu Gawon frá norðurhluta
landsins hefur forystu fyrir,
en bæði austur- og miðvest-
urhluti þess hafa snúið bak-
inu við Lagos tekið upp nöfn
in Biafra og Benin.
Plymout,h Massachusetts,
20. sept. — AP:
ALBERT Desalvo, sá, er segist
hafa myrt þrettán konur í Massa
chusetts fyrir nokkrum árum,
var í dag dæmdur í 7—10 ára
fangelsi fyrir að hafa flúið af
Bridgwater sjúkrahúsinu 24.
febrúar sl. Desalvo var dæmdur
í lífstíðarfangelsi í janúar sl.
fyrir að hafa ráðizt á fjórar kon
ur. Mál þeirra voru hinsvegar
alls óskyld morðmálinu.
Desalvo segist sjálfur vel hafa
vitað hvað hann var að gera,
þegar hann flúði af sjúkrahús-
inu, hann hefði vitað, að yrði
hann dæmdur, mundi athygli
beinast að sjúkrahúsinu og á-
standinu þar, sem ekki væri við
unandi. Hann hefði ekki fengið
þar þá læknisþjónustu, sem hon
um hefði borið. Saksóknari Don
ald Conn krafðist hæstu refsing
ar fyrir brot Desalvos á þeirri
forsendu, að hann væri stórhættu
legut umhverfi sínu.
New York, 20. sept. - NTB:
VERKFALLI kennara í New
York er haldið áfram, enda þótt
það hafi verið dæmt ólöglegt.
Aðeins 20% kennaranna hafa
mætt til vinnu og er úblit fyrir,
að svo verði áfram næstu daga.
Samningaviðræður hafa verið
teknar upp að nýju — en verk-
fallið hefur nú staðið í níu daga.