Morgunblaðið - 01.10.1967, Blaðsíða 1
48 síður og Lesbók (inni í blaði II)
Johnson forseti í ræðu:
Sprengjuárás á
höfuðborg Biafra
— kveður ráðherra sína reiðubúna
til samningaviðræðna
San Antonio, Texas,
30. sept., NTB, AP.
í ÚTVARPS- og sjónvarps-
ræðu frá Texas í gærkvöldi
sagði Johnson Bandaríkjafor-
seti, að stjórn sín væri reiðu-
búin að hefja samningavið-
ræður við N-Víetnam, ef hún
hefði í höndunum tryggingu
fyrir að slíkar viðræður
kæmu að gagni. Johnson for-
seti kvaðst reiðubúinn að
hitta að máli Ho Chi minh,
forseta N-Víetnam, eða aðra
n-víetnamska ráðamenn hve-
nær sem vera skyldi. í ræðu
sinni gerði f orsetinn grein
fyrir hvað hann mundi vilja
gera til að koma á friði í
Víetnam og mátti túlka ræð-
una sem svar til þeirra, sem
segja að hann hefði ekki
reynt sitt bezta til þessa.
Joihin.s'on varaði Hanoi-stjórn-
ina við því, að stríðið mundi
halda áfram, ef koanmúnistar
féllust ekki á samnin.gaviðræð-
ur. Sagði hann, að Bandairíkja-
menn mun.du berjast til hins
Framhald á bls. 31
Lagos, 30. sept. NTB. — AP.
^ÁRÁS með sprengjuvörpum
var gerð í gærkvöldi á nyrztu
úthverfi Eniugu, höfuðborgar Bi-
afra, samkvæmt fréttum, sem
borizt hafa til Lagos. Ekki er
vitað um tjón af völdum árásar-
innar.
Hussein í
Kaíró og fer
til Moskvu
Hussein. í Kaíró
Aim.man 30. sept., NTB.
HUSSEIN Jórdaníukotiungiur
kemur í dag til Kairó til við-
ræðna við Nasser forseta um
ástandið fyrir botni Miðjarðar-
hafs. Á mánudaginn fer hann
til Moskvu.
í umræðum Allsherjarþings-
ins um ásta.rudið fyrir botni
Miðjarðarhafs í gær hafnaði
egypzki utanríkisráherrann,,
Mahmioud Riad tillögu fsraels-
manna um beinar sam.ningavið
ræður, og krafðist þess að ísra
elsmenm flyttu Skilyrðisiaust
hersveitir sínar burtu frá her-
tekn.u svæðunum.
í Tel Aviv er sagt, að Bgypt-
ar hafi .gert stórskotaárás á
ísraelskan varðflokk á austur-
balkka Súezskurðar í gærkvöld.
Atburður þessi gerðist 15 kim
fyrir sunnan Ismail'ia, þar sem
háð var átta kilukkustunda or-
rusta á miðvikudaginn,
Upplýsingamálaráðherrar 13
Arabalanda hafa ákveðið að
stofna sameiginlegan áróðurs-
málasjóð, og á hvert rikd um
sdg að leggja tvær milltjónir
punda í sjóðinn. Þetta var á-
kveð á fundi í Bizerta í Túnis,
og er ti'lganigurinn sagður sá að
kynma almenningi í heiminum
skioðanir Araba á atburðunum
fyrir botnd Miðjarðarhafs.
Leiðtogi laðskilnaðarstjórnar-
innar í Biafra, Ojukuwu, ofursti,
sagðd í útvarpsræðu í dag, að
íbúar Biafra væru staðráðnir í
að verja Enugu giegn öllum árás-
um samibandshersins. Fyrir tveim
dögum hermdu fréttir, að her-
sveitir samtoandsstjórnarinnar
væru aðeins nokkra kílómetra
frá toænum.
Býðst til að ræða
við Ho Chi Minh
Ojukuwu lýsti þvi yfir í út-
v.arpsriæðunni, ,að ekki kærni til
miála að flytja burtu íbúa Enugu.
Börn og mæðúr yrðu flu/ttar
burtu, en ekjki konur sem gegndu
störtfum er mikla þýðinigiu toefðu
með til’liti til styrjaldarinnar.
★ Ágireining.ur hefur riisið upp
innan nefndar þeirrar, er .skipuð
var á ráðstefnu æðstu manna Af-
ríkuríkja í KinShasa fyrir hálfum
mánuði til að fjalla um éstandið
í Nígeríu. Vegna ágreimngs verð
ur för nefndarinnar til Nígeríu
sennilega frestað, en hún átti að
fara til Lagos 5. októtoer. Stjórn-
in í Lagos heldur því fr,am, að
það sé ekki 'h'lutverk nefndar-
innar að miðla málum í deilu
toennar og Bdaframanna, sem hún
telur innanrí'kismál, og sakar
stjórn Ghana um að taka svari
Biaframanna.
Framkvæmdir við byggingu álverksmiðjunnar í Straumsvík og hafnargerð þar halda nú áfram
af fullum krafti. Myndina tók Mats Wibe Lund fyrir nokkrum dögum af athafnasvæðinu þar.
Konungurinn styöur
okkur, segir Kolias
Blöð í Aþenu gagnrýna Kanellopoulos
Aþenu, 30. september — NTB —
GRÍSKI forsætisráðherrann,
Konstantín Kollias, sagði banda
rískum blaðamönnum í ðag, að
stjórn hans nyti trausts Kon-
Aftökur í Indónesíu
Djakarta, 30. sept. AP.
FORSPRAKKI kommúnistasam-
særisins í Indónesiu haustið
1965, Untug offursti, var tekinn
af lífi í dag í Djakarta. Bundið var
fyrir augu Untungs áður en hann
var skotinn, og allan tímann
söng hann „Internasjónalinn“,
baráttusöng verkamanna.
Með Untung voru skotnir tveir
liðsforingjar í indónesíska hern-
um, sem sagðir voru samsekir.
Þrímenningarnir voru skotnir í
dögun í útjaðri þorpsins Lem-
bang. Ljósmyndarar hersins
mynduðu aftökurnar og sögu
þeir, að Untung hefði engin
óttamerki sýnt.
Eins og greint hefur verið frá
í fréttum, beindist móðursýki
sú, er greip um sig meðal Indó-
nesa eftir samsærLstilraunina,
aðallega að Untung ofursta, og
fáeinum öðrum ráðajTÉnnum í
indónesíska hernum. A "húsveggi
í Indónesíu voru mánuðum sam-
an máluð orðin „Gantung Unt-
ung“, sem merkir „Hengjum
Untung“.
stantíns konungs. Hann sagði
að stjórn Grikkland væri eng-
in herforingjastjórn, enda væru
flestir ráðherrar stjómarinnai
óbreyttir borgarar.
Kollias sagði, að rúmlega tvc
þúsund kommúnistar sætu enn
í fangelsi, en þeir yrðu látnii
lausir jafnskjótt og þeir undir-
rituðu yfirlýsingu um, að þeii
mundu ekki berjast gegn stjórn
inni. Hann sagði, að ný stjórn-
arskrá mundi efla framkvæmdt
valdið og fækka þingmönnum.
Forsætisráðherrann rædd
einnig ástandið í efnahagsmál-
unum og kvað það aldrei haf*
verið eins gott á undanförnurr
Framhald á bls. 3i
Skordýroeitur vurð 30 uð bonu
Tijuna, Mexíkó, 30 sept. AP.
FRÁ þvi var skýrt fyrir fáein-
um dögum, samkvæmt upplýs-
ingum AP-fréttastoíunnar, að
30 böm hefðu látizt í landamæra
borginni Tijuana í Mexíkó af
mjólkureitrun. Voru forsvars-
menn La Vanquita mjólkurstöðv-
arinnar í Tijuana kallaðir fyrir
rétt af þessum sökum. Nú hefur
fréttastofan upplýst, að hér var
ekki um mjólkureitrun að ræða
heldur skordýraeitur.
Þegar fullvíst varð hvað mat-
areitruninni olli lokuðu állir
bakarar í Tijuana verzlunum
sinum. Talið er önuggt, að skoæ-
dýraeitur í brauðum hafi valdið
eitruninni. Eins og áður er sagt,
hafa 30 börn látizt af brauðeitr-
uninni en 380 fullorðnir hafa
veikzt. Yfirvöld í Tijuana
segja, að eiturvaldurinn — skor-
dýraeitrið — hafi borizt í hveiti
til Tijuana áður en brauðið, sem
dauðsifölliunum olli, var bakað.
Sem kunnugt er úða heilbrigðis-
yfirvöld í Ameríku og annars-
staðar oft born gegn skordýrum
áður en kornið er sent úr landi.
í Tijuana leituðu heilbrigðis-
yfirvöld vendilega að þessu eitri
í öðrum matvörum, en í Ijós
kom, að það var einungis í korn-
vörunni.