Morgunblaðið - 01.10.1967, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.10.1967, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. OKT. 1967 3 Sr. Jón Auðuns dómprófastur: Hvað myndi hann segja? SÍÐUSTU sunn'udagana hötftum við skoðað myndir atf Jesú, mynd ir, sem guðspjöliin . hatfa geymt. Þær hatfa e. t. v. sýnt þér sitt hvað, sem þú ert ekki vanur að þér sé sýnt. En það hlýtur að v©ra girnilegt tii fróðleiks að vita, hverniig samtíðarmenn hans sáu ‘hann. Þessar myndiir eru fjarri því að getfa fuillikomna mynd atf Jesú. En þaer sýna vissa drætti hennar, sem tíðum gleymasit en eru þó áberandi í þeirri mynd af hon- um, sem guðspjöllin geyma. Hvernig sér þú Krist? Sér þú að jaifnaði mynd hins djarfa, vægðarlausa siðbótarmanns og höfund nýrrar trúar? Eða hetfir þú oftar fyrir augum einhiverja viðki v æm n is 1 ega s i Ikikápuiglains - mynd atf honum? He'lgimyndirn- ar atf thonum eru S'já'Lfsa'gt gerð- ar í „góðri trú“. Þær votta sjálf- sagt flesta-r lotningu manna fyr- ir honum og löngun til að hefja hann í hærra veldi en aðra menn. Það út atf fyrir sig er eðlilegt. En fja-rskalega eru margar þess- ar myndir ólíkar myndum hans sumum, sem guð'spjöllin hatfa varðveitt. Allt kann þetta' að vera eðlilegt. Svo er persóna hans víðtfeðm, svo er leyndardómu'r veru hans djúpur, að þau djúp hefir eng- inn kannað til botns. Túlkendur hans hafa aðeins náð misjafh- lega langt niður í djúp veru hans. Hann er enn, eins og Albert Sohweitzer saigði: Hinn óþekkti. En ekíki getum við svokallaðár játendur hans skuldað hon.um minna en það, að leita þess, að hafa um hann það eitt, sem sann- a,st má finna. Við 'höfum verið að reyna að gera akkiur 'ljóst, hvernig sam- tíðarmenn hans sáu 'hann fyrir 19 öldum. En hvað myndi hann segjla við mig og þig í daig, ef við mættum honum á veginum, sæj- um, heyrðum 'hiann á þessum sunnudagsmongni’? Myndi hann hefja upp róm og flytja vel samda, trúfræðilega predikiún? Ekki er það .líklegt. En hvað myndi hann segja? Hann færi naumast að tala um meyjarfæðingu sína, því að að því hní'ga sterk rök, að hann hatfi sjálfur aldrei heyrt hana nefnda á nafn. Myndi hann fara að boða þér friðþægingarlærdóm, sem varð til í hiuga 'guð'fræðinganna lö.ngu eftir dauð'a hanis? Tæplega mýndi bann gjöra það. Myndi hámn spyrja þig, hvort þú hefðír laugað þig hreinan af allri .synd í blóði sinu, blóði lambsins? Barnaskapur, því að launlheljga'rnaT mun hann ekki að nokkru m.arki hafa þekkt og þann lauisnarveg, sem þær kenndu. Myndi hann segja- þér eitthvað um 'Samband dauða síms og fyr- irgefningar syndanna? Eklki er það trúilegt að áliti mikillhæifra guðfiræðinga og 'kirkj'umanna, sem fullyrða, að sjálfur hatfi hann ekikent slíkt kenn.t. Myndi hann segja þér, að ógn- ir dauðiains og þau harmkvæli ÖÍH hefði Guð lagt á einkasoninn, til þess að þau borguðu syndir, sem þú myndir drýgja tveim ánþús- undum síða.r? Þú veizt, að ebker-t í þá áttina myndi ha.nn segja við þig og ekki aétlast til þess, að þú tryðir í dag öl'Lu þvi, sem í hugiskoti kynslóðanna hefir vakn að, þegar þær voru að reyna að gera sér ljósa leyndardómama um hann. Hvað myndi hann segja? Mynd,,i hann ekki segja hið sama og hainn sagði uppriisinn við Pét- ur, þar sem hann stóð á vatns- bakkanum og vinir 'ha.ns, lærd- sveina.rnir, þekktu hann ekki: „Fylg þú mér“! Er ekki þessi sá kjarni fcris'tin- dómsins, að ailt annað verður aufcaatriði hj'á því? Ken'ningar um hann fœðast feigar. Mínar kenningair og ann- arra. En fylgdin við 'h.a.nn leiðiir til lítfs, sem aldrei deyr. Frakkar styðja kröfuna um stöðvun loftárása — U Thant hvetur til stillingar v/ð Suez New Yor.k, fix septemlber. — (NTB-AP) — UTANRIItlSRAÐHERRA Frakka, Maurice Couve de Mur- ville, hvatti til þess á Alisherj- arþinginu í dag, að Bandarikja- menn gerðu ákveðnar ráðstafan- ir til að binda enda á styrjöld- ina í Víetnam. Hann tók undir kröfurnar um, að Bandarikja- menn hætti skilyrðislaust loft- árásum sínum á Norður-Víetnam og lagðist gegn tillögum Banda- ríkjamanna um að SÞ hafi milli- göngu um að leysa deiluna. í Washingiton sagði Jóhnson forseti í daig er hann sæmdi undiirtforimgja heiðursmeriki fyr- ir hnsys'til'ega framgöngu í Víet- nam, að Banda'rífcjamenn mundu halda áifram að beiita hervaidi í Víetnam þarngað til Norðuir- Vietnamistjórn gæfi til kynna að einhver von væri til þess að mötg'Ullieikar væru á því að finrna réttláta lausn á stríðin.u. Enginn hatar stríðið og manndrápi.n meira en ég, sagði fórsetinin. í ræðu sinni sagði Couve de Murville, að það værii blekking að haida að SÞ gæti leyst Víet- namdeiliuna og hann lagðist einin ig gegn þeirri .tillögu Bamdaríkja stjórnar að Öryggisráðið taki þáttf í ti.lraiun.unum ti.l að binda enda á styrjöldina. Ráðlherrann sagði, að tækj'u Bandanílkin ekki frumkvæðið nú, teldu Frakikar að við öðru væri ekiki að búastf, en að háð yrði vonilaus barátta um óálkveðinn tíma í Víetnam. Þessi barátfta væri gagnslaus því að ailir væru sammála um að herna'ðarileg lausn vaeri óhuigs- andi. Skýrsla um Súez U Thant tframkvæmdastjóri) sendi í dag Öryggisráðinu skýrslu, þar sem hanm skoraði á ísraelsmenn og Egypta að gæta s'tillingar við Súezs-kurð, þar sem 50 mienn féllu í stór- skotaliðs'orruistu í gær. í skýrsl- urani segir U Thant, að yfirmað- ur eftirlitsnetfndar SÞ, Odd Bull hershöfðingi, telji að komast hetfði mátt hjá möngurn þeim bardögum er geisað hatfa að und- antförnu etf báðir aðilar Ihetfðu sraúið sér tii etftirli'tsnietfndarínn- ar. Frank Aitfcen, aðistoðanutan- ríkisráð’herra írlands, hvatfti tii þess á Allisherjariþiniginu, að U Thant sendi série.gan fulltrúa til' Austurlanda nær til að kannai möguileika á fniðsamlegri lausn án þess að bíða þess að þimgið veiti honum umboð til að senda slíkan tfu.lltrúa. Vopnaeftirlit? Ba ndarísk a u tanríkisráðuneytf- ið og sendiraefnd Rú.ssa hjá SÞ víisuðu í dag á 'bug þeirri frétft ,,New York Times“, að stjórnir Band'aríkj'anna og Sovétníkjamnai hetfðu orðið ásáttar um að tak- marka vopnasendingar sinar til Au.sturlanda nær. Séff yfir orlofsheimilin í Fnjóskadal. Orlofsheimifi norðlenzkra verka- lýðsfélaga í Fnjóskadal SMÍÐI þeirra tíu húsa, sem Al- þýðusamband Norðurlands er að láta reisa að Illugastöðum í Fnjóskadal, er nú langt komin. Þau verða orlofsheimili ýmissa verkalýðsfélaga og keypti Al- þýðusamlband Norðurlands jörð- ina Illugastaði í þessu skyni haustið 1966, en hún hefur ekki verið í ábúð nú nokkur ár. Þarna í innanverðum Fnjóska- dal er veðursæld mikil og sum- anhitar, berjalönd ágæta og land vel fallið til skógræktar. Hvert land er 45 fermetrar að flatarmáli, þrjú svefnherbergi, setustofa, borðkrókur með eld- unartækjum, snyrtdklefi og steypubað. Húsin eiga að vera tilbúin til afhendingar 1. júní 1968 og er umsamið kostnaðar- verð hve-rs þeirra 400.000 krónur með fyrirvara um bneytingar á kaupgjaldi og verðlagi. Húsin eru úr timbri á steyptum grunni, stöðluð og gerð að mestu á verk- stfæði en sett samian á Illuiga- stöðum. Þau verða hituð upp með rafmagni. Tréverk h/f. á Dalvík tók verk ið að sér en framkvæmdastjóri þess er Ingólfur Jónsson, seim einnig er venkstjóri á verkstæði. Verkstjóri á byggingarstað er Sveinn Jónsson. Húsin eru öll seld. Verkalýðs- lélagið Eining á Akureyri á þrjú hús, Iðja, félag verksmiðjufólks á Akureyri, tvö, Sjómannafélag Akuxeyrar eitt, Verkalýð.sfélag Húsaví'kur, eitt, Verkalýðsfélagið Vaka, Sigiiuifirði, eitt, Venkalýðs- félögin á Sauðárkróki, Aldan og Fram eitt, og Hið íslenzka prentarafélag eitt. Skipulag 'hefur þegar verið gert .fyrir 17 hús og er ætlunin að steypa og ganga frá grunnum sjö húsa nú í haust svo að unnt verði að fullgera götur og vatns- og skólp- og rafmangsleiðslur fyrir allt hverfið samtímis. Allþýðusamband Norðurlands hefur séð um samninga vegna venksins og annast allar sameig- inLegiar friamkvæmdir. x > r r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.