Morgunblaðið - 23.11.1967, Side 1
V*
28 SIÐUR
54. árg. 267. tbl.
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1967.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hætta er á styrjöld milíi
Grikkja og Tyrkja vegna Kýpur
Orðrómur um, að fyrkneskt herlið kunni að
stíga á land á Kýpur hvenær sem er
Istanbul, Ankara, Aþenu og
Nicosiu, 22. nóv., NTB-AP.
Tyrkneska stjórnin hafn-
aði í dag tilboði grísku stjórn
arinnar um viðræður til
lausnar Kýpurdeilunni. Sam-
fímis fóru um 80.000 manns
í kröfugöngu um götur Istan-
bul og heimtuðu styrjölcí
gegn Grikkjum. Báru göngu-
menn skilti, þar sem á stóð
m.a.: „Leiðin til Kýpur ligg-
ur gegnum Aþenu“, „Við er-
um sjálfboðaliðar og viljum
styrjöld“ og „Kýpur, hér
komum við“.
•fc Konstantin konungur
Grikklands kallaði saman
skyndifund æðsta herráðs
landsins og ríkisstjórnarinnar
i dag til þess að kanna hætt-
una á styrjöld við Tyrki
vegna hins versnandi ástands
í Kýpurdeilunni.
U Thant aðalframkvæmda
stjóri Sameinuðu þjóðanna
hefur tilkynnt, að hann muni
senda sérstakan fulltrúa til
Nicosiu, Aþenu og Ankara
með áskorun um að forða því,
að styrjöld brjótist út milli
Tyrkja og Grikkja. Segir
Kýpur
IJM Kýpurdeiluna er einnig
rætt í „Eriendum tíðindum" á
bls. 15 og í sérstakri grein á
bls. 21.
framkvæmdastjórinn ástand-
ið uggvænlegt.
Grivas hershöfðingja hef-
ur verið vikið frá sem yfir-
manni herliðs Grikkja á Kýp-
ur.
í NTB-frétt frá Moskvu segir,
að sovézka stjórnin hafi skorað
bæði á Tyrkland og Grikkland
að sýn,a skilning og láta vopn-
in ekki skera úr um lausn á
vandamálunum. í yfirlýsingu,
sem gefin var út af sovézku
stjórninni í kvöld segir, að Sov-
étríkin styðji áfram sjálfstæði
Kýpur. Segja Rússar, að „vissir
aðilar í Atlandshafsbandalaginu"
og herstjórnin í Aþenu beri á-
byrgð á deilunni nú, og fara þeir
fram.á friðsamlega lausn henn-
ar, þar sem tekið verði tillit til
Kýpurbúa.
í London leitast forsætisráð-
herra Kanada, Lester Pearson
og Harold Wilson, forsætisráð-
herra Bretlands við að finna frið
samlega lausn varðandi Kýpur,
en enda þótt þeir hafi haft sam
band við bæði grísku og tyrk-
nesku stjórnina, er enn ekkert
fyrir hendi, sem bendir til þess,
að viðleitni þeirra hafi borið á-
rangur.
Á Kýpur ríkir mikil spenna
og sendimenn erlendra ríkja þar
reyna að gera stjórnarvöldum
eyjarinnar ljóst að styrjaidarund
irbúningur Tyrkja sé alls ekki
blekking. Tyrkneskar könnunar-
flugvélar og sprengjuþotur
flugu yfir Kýpur mörgum sinn-
um í dag, að því er stjórnin í
Nicosiu skýrði frá. Varð vart við
flugvélarnar í 1500—3000 m hæð
yfir Nicosiu og norður- og aust-
ur strandsvæðum eyjarinnar.
Svipaða tilkynningu um ferðir
tyrkneskra flugvéla lét Kýpur-
stjóm einnig frá sér fara í gær.
Áttatíu þúsund í kröfugöngu í
Istanbul
í Istanbul, stærstu borg Tyrk-
lands, fóru um 80.000 manns
í kröfugöngu um götur borgar-
innar og kröfðust þess, að tyrk-
neska stjórnin lýst yfir styrjöld
gegn Grikklandi. Voru það stú-
dentar, sem skipulögðu þessa
kröfugöngu. Göngumenn báru
tyrkneska fána og skilti með her
skáum áletrunum, sem að fram-
an greinir og alls staðar, þar
sem þeir fóru glumdi trumbu-
sláttur og hergöngulög. Höfðu
meðlimir ýmissa stéttarfélaga
Framhald á bls. 21
Grivas
Konstantín konungur
Suleyman Demirel
forsætisráðherra Tyrklands
Brezka þingið samþykkir
gengisfellinguna
— Gífurleg gullsala á
markaðnum í London — Talin
ógnun við gengi dollarsins
Ihaldsflokksins
London, 22. nóv. (AP-NTB)
•jr Neðri málstofa brezka
þingsins staðfesti í dag með
77 atkvæða meirihluta
ákvörðun rikisstjórnarinnar
frá því s.l. laugardag um að
fella gengi sterlingspundsins
um 14.3%. Greiddu þingmenn
atkvæði eftir flokkum, og
voru fulltrúar Verkamanna-
flokksins fylgjandi aðgerðum
stjórnarinnar. en þingmenn
Miklar óeirðir í Indlandi
Upplausnarástand í mörgum sambandsríkjanna
á móti. At-
kvæði féllu þannig að 335
samþykktu gengisfellinguna,
en 258 voru á móti.
ýý Mikil eftirspurn hefur ver
ið eftir gulli á gullmarkaðn-
um í London í dag, og voru
seld þar alls 20 tonn, en með-
al dagssalan nemur um sex
tonnum. Er talið að Frakkar
stefni nú að því að koma doll-
araforða sínum í gull, og
grafa með því undan gengi
dollarans.
Harold Wilson, forsætisráð-
herra, tók til máls við umræður
um gengisfellinguna í Neðri mál
stofunni í dag. Sagði hann, að
ríkisstjórnin hafi gert rétt í því
að fella ekki gengi pundsins um
leið og hún tók við völdum ár-
ið 1964, en hinsvegai hafi skki
verið unnt að bíða lengur nú.
Skömmu áður en forsætisráð-
herrann tók til máls, barst hon-
um tilkynning þess efnis, að
verkalýðssamtökin brezku, TUC,
hefðu samþykkt með yfirgnæf-
andi meirihluta að styðja stjórn
ina „á þessum erfiðu tímum í
öllu, sem miðar að því að skapa
jafnvægi í efnahagsmálum og
aukna þróun þeirra mála, og að
því að útrýma atvinnuleysi“.
Einnig heita samtökin stjórninni
stuðningi við að koma í veg fyr-
ir hækkanir kaupgjalds og verð-
lags, sem gætu gert að engu
áhrif gengisfellingarinnar.
Wilson ræddi aðallega lækkun
opinberra útgjalda, og þá fyrst
og fremst lækkun fjárveitinga til
varnarmála. Verður mjög dreg-
ið úr flugvéla- og þyrlukaupum
Framhald á bls. 27.
Kalkutta, 22. nóvember
NTB-AP.
Æstur manngrúi háði í dag
harða götubardaga við lög-
regluna í borginni Kalkutta
í Indlandi og voru 80 manns
handteknir vegna stjórnmála
óeirða, sem nú virðast vera
að breiðast út um allt Ind-
land.
Fólkið kastaði grjóti að lög-
reglumönnum, sem sjálfir beittu
bambusprikum með stálhólkum
í því skyni að koma á röð og
reglu. Lögreglan beitti einnig
skotvopnum til þess að dreifá
hópi, sem kveikt hafði í lög-
reglubifreið.
Ekki hafa borizt fréttir um
manntjón vegna þessara árekstra,
en helztu leiðtogar Samfylking-
arhreyfingarinnar í Kalkutta
voru fluttir í sjúkrahús, eftir að
lögreglan hafði leyst upp fund
hennar í dag. Það var frávikn-
ing samsteypustjórnarinnar í
sambandsríkinu Bengal, þar sem
kommúnistar réðu mestu, sem
var orsök óeirðanna.
Alls hafa 70 andstöðuleiðtogar,
vinstri sinnaðir verkalýðsleið-
togar og forystumenn stúdenta
verið handteknir í Kalkutta
samkvæmt lögum, sem heimila,
að fólki verði haldið í fangelsi
í sex mánuði, án þess að verða
leitt fyrir dómara.
Allir fundir og mótmælaað-
gerðir hafa verið bannaðar af
hinni nýju stjórn Bengals, sem
vann embættiseið á þriðjudags-
kvöld.
Upplausnin breiðist út.
Áskorun um verkfall af hálfu
vinstri sinnaðra aðila leiddi til
þess, að öllum stjórnarbygging-
um og skólum var lokað í Kal-
kutta í dag. Ferðir sporvagna og
strætisvagna lágu niðri og verzl-
anir voru næstum auðar.
Á meðan óeirðirnar áttu sér
stað í Kalkutta, féll stjórn Sam-
fylkingarhreyfingarinnar í sam-
bandsríkinu Punjab, eftir að 17
Framihald á 'bls. 27.
Samningar í far-
mannadeilunni
MBL. barst í gær svohljóð-
andi tilkynning frá Far-
manna- og fiskimannasam-
bandi íslands og samninga-
nefnd kaupskipanna:
„Samkomulag hefur orðið
milli útgerðarmanna og samn-
inganefndar farmanna. Sam-
komulagið verður borið undir
félagsfundi í félögunum á
morgun (þ.e. fimmtudaginn
23. nóvember) kl. 14. Sömu-
leiðis mun framkvæmdastjórn
Vinnuveitendasambandsins og
stjórn Vinnumálasambands
samvinnufélaganna fjalla um
samninginn síðdegis á morg-
un.“
Samkomulag var milli
samningsaðila um að láta ekk
ert uppi um efnisatriði hinna
nýju samninga í gærkvöldi.
II