Morgunblaðið - 23.11.1967, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.11.1967, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. VTOV. 1967 Bifreíðastjórar Gerum við allar tegundir bifreiða. Almennar viðgerð ir. Sérgrein hemlaviðgerð- ir, henglavarahlutir. Hemlastilling hf., Súðavogi 14, sími 30135. Fatnaður — seljum sumt notað, sumt nýtt, allt ódýrt. LINDIN, Skúlagötu 51 - Sími 18825. Sandgerði Steinsteypt einbýlishús til sölu. — Góðir greiðsluskil- málar. Fasteignasala Vil- hjálms og Guðfinns, sími 2376. Brúnt seðlaveski tapaðist 9. nóv. ásamt öku- skírteini og persónuskilríkj um. Finnandi vinsamlega hringi í síma 34730 eða 31323. Fundarlaun. Til sölu íbúð í Árbæjarhverfi, 100 ferm., fullbúin. Hagstæðir greiðsluskilmálar. Uppl. í síma 35095. 4ra—5 herb. íbúð til leigu í Vesturbænum. — Tilb. sendist Mbl. fyrir föstudag merkt: „3®1“. Peningamenn Til sölu verzlunarhúsn., — eignarlóð, byggingaleyfi á verðmætum stað í Miðb. í góðri leigu. Tilb. sendist Mbl. fyrir 1. des. merkt: „Fjárfesting 8279“. Ódýr íbúð Til sölu, vistleg rishæð í sambýlishúsi á Melumum, útborgun 150 þús. við samn ing, 150 þús. eftir áramót. Sími 16567. íbúð óskast Einhleypan mann vantar litla íbúð strax. Uppl. í síma 20546 kl. 7—8 á kvöld in. ^ íbúð, 2—3 herb. og eldhús óskast til kaups, þarf að vera laus til íbúðar sem fyrst. Uppl. í síma 14663. Til sölu ársgömul Haka-þvottavél. Uppl. í síma 50899. Tapast hefur svartur hestur úr Mosfells- sveitardalnum, mark: stýft hægra, blaðstýft aftan vinstra. Vinsamlega hring- ið í síma 11153. Til sölu GAS 69 árg. 65 með blæj- um og í góðu lagi. Skipti koma til greina. Uppl. í síma 51570, Sveinlaugur. Til leigu nýleg 2ja herb. íbúð. Tilb. sendist Mbl. merkt: „467“. Ráðskona óskast á reglusamt heimili í KefLa vík. Uppl. í síma 1405. Jólakort Hallgrlmskirkju Halgrímskirkja í Sanrbæ á HvalfjarSarströnd hefur gefið út fallegt jólakort, sem hér birtist mynd af. Hún er af altari kirkj- unnar, en þar er eina „fresco“-myndin í kirkju hérlendis. Kort- ið fæst í mörgum bókabúðum, og hjá sóknarpresti og sóknar- nefnd, en sóknarnefnd er um þessar mundi að festa kaup á norsku pípuorgeli í kirkjuna, og verður það fyrsta norska pípu- orgelið, sem hingað kemur. —Áía^narueÁama l unnn Ég hefi oft hugsað ljóð um hafnarverkamanninn sem erjar, þarfur þjóð, er þekki heiðursgranninn. Og leggur líf og blóð, sín laun í borgarranninn. Ég hef oft hugsað ljóð um hafnarverkamanninn. Hann snemma úr rekkju rís, í rúmum börnin sofa. Hann kyssir víf og kýs, sitt kalda brauð að lofa, en sjaldan vinna er vís það veldur sálardofa. Hann snemma úr rekkju rís, í rúmum börnin sofa. Með þreytuþungum svip hann þræðir vanaslöð. Það blæs við bryggju skip, hann blessar þetta hljóð. í þessum góða grip á gull og brauð sú þjóð. Með þreytuþungum svip hann þræðir vanasló'ð. Ef vinnu vænkast ráð, hve vingast skapið fljótt. Hans höndin hríðarmáð, er hreyfð með nýjum þrótt. Hans gróði gleði og dáð, hans gæfa í störf er sótt. Ef vinnu vænkast ráð, hve vingast skapið fljótt. Við mál óg mannaklið í morgunfrjálsa blænum. Þá hljómar hafnarsvið þar hjartað slær í bænum. Til verka, vinnulið! þinn vegur rís á sænum. Við mál og mannaklið í morgunfrjálsa blænum. Ég lít hann við sitt verk, og virðingar hann nýtur. Og höndin stór og sterk sitt stál til orku brýtur. Sú þjóð er þörf og merk, sem þungu störfin hlýtur. Ég lít hann við sitt verk, og virðingar hann nýtur. Því blessist öld og ár þinn auðnavegur dýr. Og heiðri þínar þrár sú þjóð, sem völdin býr. Um sál og silfurhár fer sólargeisli hlýr. Því blessist öld og ár þinn auðnuvegur dýr. Kjartan Ólafsson. Enginn getur þjónað tveimur herrum því að annað hvort mun hann hata annan og elska hinn eða aðhyllast annan og lítilsvirða hinn. (Matt. 6:24). í dag er fimmtudagur 23. nóv- ember og er það 327. dagur ársins 1967. Eftir lifa 38 dagar. Klemens- messa. — Árdegisháflæði kl. 8.58. Síð degisháflæði kl. 21.33. Upplýsingar um læknaþjónustu í borginni eru gefnar í sima 18888, símsvara Læknafélags Reykjavík- ur. Slysavarðstofan í Heilsuverndar- stöðinni. Opin allan sólarhringinn — aðeins móttaka slasaðra — sími: 2-12-30. Læknavarðstofan. Opin frá kl. 5 síðdegis til 8 að morgni. Auk þessa alla helgidaga. — Sími 2-12-30. Neyðarvaktin *Svarar aðelns á virkum dögum frá kl. 8 tll kl. 5, sími 1-15-10 og laugard. kl. 8—1. Kvöldvarzla í lyfjabúðum I Reykjavík vikunna 18. nóv. — 25. nóv. er í Ingólfs apóteki og Laug- arnesapóteki. Næturlæknir í Hafnarflrði að- faranótt 24. nóv. er Sigurður Þor- steinsson, simi 52270. Næturlæknir í Keflavík: 21/11 og 22/11 Jón K. Jóhannsson. 23/11 Kjartan Ólafsson. Keflavikurapótek er opið virka daga kl. 9—19, laugardaga kl. 9—2 og sunnudaga frá kl. 1—3. Framvegis verður tekið á mótl þeim, sem gefa vilja blóð i Blóð- bankann, sem hér segir: mánud., þriðjud., fimmtud. og föstud. frá kl. 9—11 f.h. og 2—4 e.h. Miðviku- daga frá kl. 2—8 e.h. og laugardaga frá kl. 9—11 f.h. Sérstök athygli skal vakin á miðvikudögum vegna kvöldtímans. Bilanasími Rafmagnsveitu Rvík- ur á skrifstofutíma er 18-222. Næt- ur- og helgidagavarzla, 18-230. Skolphreinsun hjá borginni. — Kvöld- og næturvakt, simar 8-16-17 og 3-37-44. Orð lífsins svarar í síma 10-000. IOOF 11 = 14911238 !4 = E.T. II. IOOF 5 = 14911238)4 = E.T. 2. SK. st'. st '. 596711237 — Vn — 7. FRÉTTIR Æskulýðsfélag Garðakirkju Heimsækjum Æskulýðsfélag Bú- staðasóknar í kvöld. — Bilferð frá Barnaskólanum kl. 8. Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt heldur aðalfund í kvöld (fimmtud.) i Sjálfstæðishúsinu kl. 8,30. Dagskráin: Lagabreytingar, venjuleg aðalfundarstörf. Kaffi- drykkja og skemmtiatriði. Hjálpræðisherinn Á fimmtudaginn 23. nóv. kl. 8,30 efnir lúðrasveit Hjálpræðishersins til söng- og hljómleikasamkomu í sal Hjálpræðishersins. Majór Guðfinna Jóhannesdóttir, yfirforingi, stjórnar. Efnt verður til samskota handa lúðrasveitinni til kaupa á nýjum hljóðfærum. Mikill og fjörugur hersöngur og hlj óðf æraleikur. Allir velkomnir. Ókeypis að- gangur. Frá Styrkarfélagi vangefinna Konur í Styrktarfélagi vangef- inna eru minntar á jólakaffisöl- una og skyndihappdrættið í Sig- túni sunnudaginn 3. des. nk. Happdrættismunir afhendist í skrifstofu félagsins Laugavegi 11, fyrir 3. des., en kaffibrauð fyr- ir hádegi í Sigtúni 3. des. Frá Styrktarfélagi Keflavíkur- kirkju, Keflavík Vinningar í leikfangahappdrætti félagsins eru til sýnis í glugga Verzlunarbankans, Hafnargötu 31. Dregið verður 10. desember. Heimatrúboðið Almenn samkoma í kvöld kL 8.30. Allir velkomnir. Fíladelfía, Reykjavík Samkoma okkar fellur niður í kvöld. En við bendum í samkomu í Fíladelfíu í Keflavík í kvöld kL 8.30 og næstu kvöld á sama tíma með þátttöku þeirra Barbro og Áke Wallen. Arabíska félagið á fslandi sem stofnað var 28. október sl. heldur fyrsta félagsfund sinn í Miðbæ að Háaleitisbraut 58—60 sunnudaginn 26. nóvember 1967 kl. 3 e. h. Dagskrá: Félagslög, kvlk- myndasýning, inntaka nýrra með- lima. Veitingar á staðnum. F. h. félagssstjórnar Guðni Þórðarson. Kristnsboðsvikan Samkoma í húsi KFUM og K kl. 20.30. Kristniboðsfélag kvenna ann ast. Kristniboðsþáttur. Frú Lilja Kristjánsdóttir hefur hugleiðingu. Æskulýðskór syngur. Einsöngur. sá NÆST bezti Tveir karlar voru einu sinni að rífast. Annar segir me'ð mestu fyrirlitningu: „Þú ert asni, naut og belja, sem ekkert veizt, kannt eða skilur“. „Jæja, ekki ert þú betri", segir hinn, ,aumkunar- verðari og aumari en skynlaus skepna og hefur ekki skott til að skýla blygðun þinni“. -9/75/7 ÚAltT------ De Gaulle telur lækkun pundsins ekki nægjanlega til inngöngu Breta í EBE.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.