Morgunblaðið - 23.11.1967, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. NÓV. 1967
3
„Þetta er eins og á Þorláksmessu
Óhemjuinikið keypt af heim-
ilistækjum, spariskírteini fyrir
35 milljónir seldust upp á
þrem dögum
- Rætt við kaupmenn
NOKKUÐ hefur horiS á
hamstri í Reykjavík undan-
farnia daga, og hefur þá eink-
um verið keypt mikið magn
af matvörum. Þá hefur fólk
einmig rokið til og keypt heim
ilis'tæki eins og það hefur
haft fé til og var grríðarleg
sala á þeim í öllum verzlun-
um, sem hafa þau á boðstól-
um. Mikið hefur verið hringt
í bilaumboð, og fólk viljað fá
nýja bíla á stundinni, en það
hefur ekki verið hægt, því
að þeir fást ekki tollafgreidd-
ir. Hin verðtryggðu spariskír
teini ríkissjóðs hafa runnið
út og eru nú uppseld. Frá
mánudegi þar til í gær seld-
ust skírteini fyrir um 35
milljónir, og verið er að
íhuga hvort setja eigi fleiri
sparisikirteini á markaðinn.
Mocgunblaðið hafði sam-
band við nokkur fyrirtæki í
gær, og spurðist fyrir um
sölu.
Jóhann Scheither, fram-
kvæmdastjóri hjá Vökul h.f.
sagði, að þegar á mánudaginn
hefði síminn byrjað að
hringja og menn viljað fá
nýja bíla. Það hefði þvií mið-
ur ekki verið hægt að selja
þeim þá vegna þess, að þeir
fengjust ekki tollafgreiddir.
Fyrirtækið hefði verið nýbú-
ið að fá 77 bíla af árgerð
1968, og hefði vissulega kos-
ið að geta selt þá, en yrðu
í stað þess að láta sér nægja
að selja eldri árgerðir, sem
þeir hefðu tekið upp í kostn-
að fyrir nýjum.
Gísli Steinsson hjá Gunn-
ar Ásgeirsson hf. sagði, að
þau sjónvörp og heimilistæki
sem fyrirtækið hefði haft á
lager, hefðu strax selst upp.
Því miður hefðu þeir aðeins
átt litlar birgðir, ekki verið
undir svona mikla sölu bún-
ir, og ekki gefizt tími til að
ná út úr tollinum því sem
þeir ættu þar.
Hjá Gevafoto hefur salst
áberandi mikið af sýningai-
véium og ýmsu sem til þeirra
þarf, en sala á ljósmyndavél-
um hins vegar verið svipuð
og venjulega.
Vilberg hjá Radíóstofu Vil-
bergs og Þorsteins sagði, að
þeir stæðu nú í svo til tómri
verzlun. Sjónvarpstæki, seg-
ulbönd, útvörp og útvarps-
plötuspilarar hefðu selst upp
á svipstundu og aðeins eftir
nokkrir plötuspilarar, sem
sjálfsagt hyrftu einnig fljót-
lega.
Sunnubúðirnar fjórar eru
löngu orðnar kaffilausar, og
þar vantar einnig ýmsa aðra
matvöru. Óskar Jóhannsson,
kaupmaður, sagði:
„Kaffið seldist upp strax
á þriðjudag. Ég hafði ekki
búizt við þessum ósköpum
frekar en aðrir, og því ekki
Það hafa margar frystikistur verið bornar út úr verzlunum
siðustu daga. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
birgt mig neitt upp. Við höf-
um þann háttinn á, að fá
aldrei kaffi eða smjörlíki
nema rétt til næsta dags svo
að þetta var ekki lengi að
fara. Fólk hefur aðallega ver
ið að sækjast eftir kaffi,
hveiti, sykri og smjörlíki, en
ég held að mér sé óhætt að
segja, að salan í heild hafi
verið helmingi meiri en venju
lega“.
Leifur Karlsson hjá Fönix
sagði:
„Þetta er hreint eins og
Þorláksmessa. Við höfum því
miður ekki mikið af vörum
til reiðu, en nú eru hillurnar
að verða tómar. Það hefur
allt selst, frystikistur, þvotta-
vélar, ’brauðristar, ryksugur,
ísskápar, allt sem við höfum
á boðstólnum. Megnið var
selt tvo fyrstu dagana, en
það sem eftir var hefur ver-
ið að seljast í dag“.
Verzlunum J. Þorláksson
og Norðmann var lokað, og
því var haldið fram, að ver-
ið væri að geyma vörurnar
vegna erlendra skulda, svo
að hægt væri að fá fyrir þær .
endurkaupsverð.
Óskar Norðmann sagði:
„Forráðamenn fyrirtækisins
munu ekki óska eftir að fá
neitt nýtt verð á vörurnar.
Það eina sem við förum fram
á er, að fá bættan þann mis-
mun sem kann að verða við
gengisfellinguna, í samráði
Framhald á bls. 17.
„100 kvœði"
— Ljóðasafn eftir Jón úr Vör
FRÁ Helgafelli kom í dag út
falleg útgáfa af verkum Jóns úr
Vör, og hefur útgefandinn, Ein-
ar B. Sigurðsson, kallað safnið
„100 kvæði“, en það nálgast að
vera heildarútgáfa af verkum
skáldsins. f þessu safni munu
vera þau ljóð skáldsins, sem það
vill viðurkenna sem fullgerðan
skáldskap. Einar B. Sigurðsson
hefur annazt útgáfuna fyrir for-
lagið og ritar allítarlegan for-
mála, sem er hið merkasta verk.
Jón úr Vör hefur með réttu
verið kallaður einn af aðalbraut
ryðjendum nýrrar bókmennta-
stefnu í skáldskap og með verki
sínu „Þorpinu" hlotið viðurkenn
ingu sem brautryðjendaskáld á
ísiandi.
Jón úr Vör á tvöfalt afmæli á
þessu ári. Hann varð fimmtug-
ur 21. janúar síðastliðinn og ein
mitt þessa dagana eru liðin 30
ár síðan fyrsta útgáfa fyrstu
bókar hans, Ég ber að dyrum,
kom út.
Freistandi er í tilefni þessafr-
ar myndarlegu útgáfu og hinna
tveggja afmæla Jóns úr Vör að
birta nokkrar setningar úr rit-
dómum frá Svíþjóð er þar birt-
ust í blöðunum er „Þorpið“ kom
út í sænskri þýðingu.
Sænska ljóðskáldið heims-
kunna, Jóhannes Edfelt skrifar
í Dagens Nyheter, stærsta blað
Svíþjóðar: „Með fáum áhrifa-
miklum clráttum vexur höfund-
ur til lífs endurminningarnar
um fátækt bernskuáranna í skjóli
fósturforeldranna í húsinu við
rætur fjallsins .. Hin glögga
sjón er meginstyrkur Jóns úr
Vör ... Hann lýsir uppboði á
eignum fátæklinganna, verka-
mönnum, sem strita við þunga
koiavagnana, vinnunni á fisk-
reitunum, sjómönnunum undir
hvalbak og í erlendri höfn ......
Hver myndin tekur við af ann-
arri í þessum ljóðaflokki, allar
einfaldar en skýrar ... Afburða-
gott íslenzkt skáldrit ....“
Þá skrifar ljóðskáldið Stig
Carlson um „Þorpið“ í aðalmál-
gagn sósíaldemókrata Morgon-
Tidningen: „Þessi ljóðlist hefur
fjarrænleg seiðandi áhrif á sænsk
an lesanda, í henni kynnumst
við veruleika ólíkum þeim sem
við eigum að venjast." Skáldkon
an Viveka Heyman, sem þá var
kölluð óbilgjarnasti ritdómari
Svía, skrifar í Arbetaren: „Þetta
er einfaldasta gerð Ijóðlistar,
þar sem öllu ytra tildri er vís-
að á bug, aðeins leitað óbrotn-
ustu orða, og hins eina rétta
smáatriðis."
Bókarkápu gerði Kristján
Davíðsson, listmálari.
SIAKSTEIIVAR
Draga í land
Stjórnarandstæðingar hafa í
umræðunum um efnahagsmálin
undanfarnar. vikur stöðugt hamr
að á því, að taka bæri vanda-
mál atvinnuveganna til athug-
unar samhliða öðrum nauðsyn-
legum ráðstöfunum og vitað var
löngu áður en gengisfelling
sterlingspundsins var kunngerð,
að háværar raddir V'oru um það
i röðum stjórnarandstæðinga,
að gengisfelling væri óhjákvæmi
leg og var það ekki sízt í röð-
um Framsóknarmanna, sem
telja að erfiðleikar SÍS mundu
leysast að verulegu leyti með
gengisfellingru. Þegar brezka
ríkisstjórnin breytti gengi sterl-
ingspundsins sl. laugardag
breyttust á svipstundu viðhorfin
í efnahagsmálum Islendinga og
strax eftir helgina kom í ljós,
að viðbrögð manna voru á einn
veg, bæði forustumanna verka-
lýðs og vinnuveitenda svo og
stjórnarandstöðublaðanna, að
ekki yrði hjá því komizt að
fylgja í kjölfar Breta. Nú er
hins vegar komið í ljós, sem
vænta mátti, að bæði Tíminn og
Þjóðviljinn eru farin að draga
í land. Nú er látið að þvi liggja
að ekki sé nauðsynlegt að breyta
gengi krónunnar nema að mjög
takmörkuðu leyti og allar breyt-
ingar umfram það séu afleiðing
„ringulreiðar, handahófs fjár-
festingar og óðaverðbólgu." Nú
er sem sé ekki lengur talað um
nauðsyn þess að leysa vanda-
mál atvinuveganna samhliða
öðruni nauðsynlegum aðgerðum,
Ný viðhorf
Það er alveg ljóst, að gengis-
felling sterlingspundsins hefur
skapað alveg ný viðhorf í efna-
hagsmálum hér á landi. Gengis-
felling er mjög róttæk ráðstöfun
og hún verður að vera vandlega
undirbúin. Framkvæmd hennar
skiptir einnig verulegu máli.
Vegna hinna breyttu viðhorfa er
nú eðlilegt að vandamál atvinnu
veganna verði tekin til meðferð
ar samhliða öðrum ráðstöfunum
og hugsanleg gengisbreyting ís-
lenzku krónunnar miðuð við það
að bregðast ekki einungis við
vandamálum, sem skapast vegna
lækkunar á gengi sterlingspunds
ins heldur og einnig að leysa
með samhliða aðgerðum þau
vandamál, sem við höfum þegar
átt við að etja og unnið að
lausn á. Ríkisstjórnin stefndi að
þvi að leysa efnahagsvandamál
þjóðarinnar vegna verðfalls og
aflabrests án gengisfellingar
enda skapar slík aðgerð mörg
ný vandamál, sem komist verð-
ur hjá með öðrum aðgerðum en
gengislækkun. En ný viðhorf
krefjast nýrra aðgerða og að
vandamálin verði tekin öðrum
tökum en áður var ætlað. Verði
ákvörðun Seðlabankans í sam-
ráði við ríkisstjórnina sú, að
fella gengi íslenzku krónunnar
meir en sem nemur gengisfell-
ingu sterlingspundsins er það
vegna þess, að það er talið nauð
synlegt vegna þeirra áfalla, sem
íslenzkt atvinnulif hefur orðið
fyrir sökum verðfalls og afla-
brests. Það vandamál leysist ekki
að sjálfu sér með gengisfellingu
sterlingspundsins og sams konar
lækkun á gengi íslenzku krón-
unnar. Gengisfelling sterlings-
pundsins gerir vandamálið þvert
á móti enn flóknara úrlausnar
fyrir okkur.
Enn við sama
heygcirðshornið
En það er ljóst af forustu-
greinum Tímans og Þjóðviljans
í gær, að þeir aðilar, sem þar
ráða málum eru enn við sama
heygarðshornið. Þeir neita stöð-
ugt að horfast í augu við vanda
málið eins og það liggur fyrir.
Það verða mikil tíðindi í stjórn-
máium á Islandi þcgar stjórnar-
andstæðingar hætta að blekkja
sjálfa sig og aðra.