Morgunblaðið - 23.11.1967, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. NÓV. 1967
Leitað á Irmu.
— Erlent yfirlit
Fraimh. af bls. 15
þetta virki, og Bandaríkjamenn
urðu að senda liðsauka á vett-
vang. Norður-Víetnammenn hafa
sjaldan gert eins öflugar árásir
á Bandaríkjamenn og við Dak
menn upistórskotaárásum á
To og á öðrum stöðum á miðhá-
lendinu í haust. Fyrir einni viku
var sagt, að fjögur norður-víet-
nömsk herfylki tækju þátt í árás
inni á Dak To, alls um 6.000
menn, og um 1.000 hefðu fallið,
en samkvæmt því hefur mannfall
í liði þeirra verið fimm sinnum
meira en mannfallið í liði Banda
ríkjamanna og Suður-Víetmanna.
Um helgina dró úr bardögun-
um við Dak To, og í Saigon er
nú reynt að svara þeirri spurn-
ingu, hvað búi á bak við hinar
hörðu árásir fjandmannanna. —
Einfaldasta skýringin er sú, að
Norður-Víetnammenn hafi viljað
ná Dak To á sitt vald, en þar er
ein mikilvægasta bækistöð 4.
bandaríska herfylkisins. En
bandarískir herforingjar telja, að
aðaltilgangurinn hafi verið sá
að neyða Bandaríkjamenn til að
senda öflugan liðsauka á vett-
vang, þannig að raðir þeirra
yrðu þunnskipaðar 'á öðrum
svæðum.
Þetta tókst. Liðsauki var send-
ur frá Bhindinh-héraði á strönd-
inni og Phuyen, sem er næsta
hérað við Bhindinh, en á báðum
þessum svæðum hafa skærulið-
ar verið öflugir um 20 ára skeið.
Sennilega er það engin tilviljun,
að uppskera á hrísgrjónum
stendur nú yfir í Bhindinh og
Phuyen. Fréttir herma, að Víet-
congmenn hafi yfirgefið felu-
staði sína I hæðunum til þess að
hjálpa við uppskerustörfin og
krefjast sinn hluta hrísgrjón-
anna. — Tímabundin fjarvera
tveggja herdeilda, alls um 5.000
hermanna, dró úr líkum á því,
að þessara sjálfboðaliða við upp-
skeruna yrði vart.
Ein skýringin er sú, að Víet-
congmenn og Norður-Víetnam-
menn hafi vonað að þeir gætu
valdið nýju stjórninni í Saigon
erfiðleikum með því að valda
truflunum á friðunaraðgerðum
og vinna einn eða fleiri sigra á
„meginliðsstyrk" Bandaríkja-
manna auk þess sem áhrifin
gætu orðið þau í Bandaríkjun-
um, að sú skoðun fengi almenn-
ara fylgi nú er forsetakosning-
arnar nálgast, að ógerningur
sé að vinna sigur í styrjöldinni.
Egyptar áfell-
ast ekki Masser
NASSER Egyptalandsforseti er
enn traustur í sessi og ekkert
bendir til þess að vinsældir
hans hafi rýrnað. Hann er enn-
þá áhrifamesti leiðtoginn í héimi
Araba og sennilega eini leiðtog-
inn sem Egyptar eiga völ á,
þrátt fyrir hinn niðurlægjandi
ósigur fyrir fsraelsmönnum og
bágborið ástand í efnahagsmál-
um.
Þótt egypzku stjórninni hafi
ekkert miðað áfram í því að fá
fsraelsmenn til að yfirgefa
Sinaiskaga heldur stjórnin á-
fram að gefa yfirlýsingar, sem
eru ögrandi í garð ísraelsmanna.
Hinn óopinberi talsmaður Nass-
ers, Heykal, ritstjóri A1 Ahram,
skoraði nýlega á þjóðina að búa
sig undir langa og miskunnar-
lausa styrjöld við ísraelsmenn.
Sennilega er Nasser eini for-
ystumaður Egypta sem fengið
gæti þjóðina til að sætta sig við
einhvers konar samkomulag við
ísraelsmenn. Þetta hefur hann
ekki reynt að gera og afleiðingin
er sú að ef hann eða einhver
annar forystumaður tæki skyndi
lega þá ákvörðun að slaka til
gagnvart fsraelsmönnum mundi
það vekja megna andúð.
En Nasser telur bersýnilega að
hann þurfi ekki að láta undan.
Síðan upp komst um hið mis-
heppnaða samsæri Amers mar-
skálks gegn honum í sumar telur
hann að hann þurfi ekkert að
óttast af hálfu hersins. Matvæla-
birgðir eru töluverðar í landinu
og hann hefur fengið loforð fyr-
ir matvælum erlendis frá þannig
að hann telur að ekki þurfi að
óttast matvælaskort fyrr en
næsta vor.
Mikilvægast er, að óánægja al-
mennings vegna hrakfaranna fyr
ir ísraelsmönnum hefur beinzt
gegn hernum en ekki honum
sjálfum, eða borgaralegum yfir-
völdum. Miðstéttirnar eru orðnar
þreyttar á stjórninni, en þær
mega sín minan en herinn og
æstur múgur verkamanna. — Ó-
spart er kvartað yfir skorti á
vörum, olíuskömmtun og léleg-
um vörugæðum, en óánægjan
beinist gegn stjórninni í heild en
ekki Nasser sjálfum.
Flestir telja, að ef kosningar
væru haldnar á morgun, færi
Nasser með sigur af hólmi. Þrátt
fyrir mikinn álitshnekki er-
lendis hefur Nasser einnig hald-
ið áhrifum sínum meðal leið-
toga Arabalandanna. Þótt Nasser
sé háður láni frá Feisal Saudi-
Arabíukonungi og verði að þola
harðar árásir Sýrlendinga og
Alsírmanna eru áhrif hans enn
mikil eins og sjá má á því að hin
ar andstæðu fylkingar þjóðernis
sinna í Suður-Arabíu hafa snúið
sér til hans í von um að hann
geti miðlað málum í deilum
þeirra. Byltingarstjórnin í Jem-
en lýsti þegar í stað yfir stuðn-
ingi við Nasser. Þegar stjórnir
Jórdaníu og Súdan ákváðu í
síðustu viku að þær vildu að
æðstu menn Araba héldu nýja
ráðstefnu ákváðu talsmenn
þeirra að gefa yfirlýsingar sínar
þar að lútandi í Kaíró. Áhrif
Nassers eru enn töluverð.
Japanir
vonsviknir
ÞRÁTT fyrir loforð bandcirísku
stjómarinnar um að skila Bonin-
eyjum hefur heimsókn Satos for-
sætisráðherra til Washington
valdið töluverðum vonbrigðum í
Japan. Megintilgangur heim-
sóknarinnar var að komast að
samkomulagi við bandarísku
stjórnina um Okinawa, þar sem
Bandaríkjamenn hafa mikilvæga
herstöð, en það tókst ekki. —
Japanir vilja, að þessari eyju
verði skilað, og Sato vonaði, að
bandaríska stjórnin mundi gera
einhverjar tilslakanir í þessu
máli. Vonir hans hafa ekki rætzt,
enda þótt hann lýsti því yfir
eftir viðræður sínar við Johnson
forseta, að hann vænti þess, að
eitthvað yrði aðhafzt í málinu á
næstu árum.
Sato forsætisráðherra hefur
lýst yfir fylgi við stefnu Banda-
ríkjastjórnar í Víetnammálinu
og tekið óvinsæla afstöðu í
nokkrum málum, sennilega í von
um, að Bandaríkjamenn slaki til
í Okinawa-málinu. Þannig hefur
Sato bakað sér mikla pólitískra
erfiðleika. Samkvæmt samkomu-
lagi er stjórnir Bandaríkjanna og
Japans gerðu á sínum tíma um
Okinawa kemst eyjan aftur und-
ir japönsk yfirráð að 22 árum
liðnum. fbúar eyjarinnar eru um
ein milljón.
Herstöðin í Okinawa hefur
mikla þýðingu fyrir Bandaríkja-
menn, ekki sízt vegna styrjald-
arinnar í Víetnam. En bandarísk
blöð, sem hafa gagnrýnt stjórn-
ina í Washington fyrir að sýna
ekki meiri samkomulagsvilja í
viðræðunum við Sato forsætis-
ráðherra, benda á, að varnar-
Lundúnarabb
Framfli. af bls. 5
við skulum vona, að Irmu
verði ekki meint af.
Leiddist sjómennsikan
ER ÁHÖFN sovézka skipsins
„Volga“ hélt hátíðlegt 50 ára
afmæli rússnesku byltingar-
innar nú fyrir skemmstu í
Manchester, laumaðist ein af
skipsþernunum, Antonia
Komarova frá borði og týnd-
ist. Lögreglunni var tilkynnt
samningur Bandaríkjanna og
Japans verði uppsegjanlegur
1970, og verði Okinawa-málið
ekki leyst fyrir þann tíma fái
þau öfl í Japan, er berjast fyrir
því að Japan segi sig úr banda-
laginu við Bandaríkin, byr í segl-
in. Mikilvægi Okinawa blikni í
samanburði við mikilvægi banda
lagsins við Japan og samkomu-
lag verði að takast á næstu tveim
ur árum, annað hvort þannig að
eyjunni verði skilað eða þannig
að Bandaríkjamenn lýsi því yf-
ir, að þeir muni láta af yfirráð-
um sínum að vissum árafjölda
liðnum.
í Tókíó hefur tilkynning sú, er
gefin var út að loknum viðræð-
um Satos og Johnsons vakið þó
nokkra óánægju, og er sagt að
um hvarf hennar og leit var
hafin. En leitin var ekki löng,
•því innan skamms gaf ung-
frúin sig fram við lögreguna
og fór fram á að hún yrði
send heim. Það kom í ijós, að
sbúlkan hafði ekki strokið til
að leita sér pólitísks hælist,
heldur einfaldiega vegna
þess, að henni lei'ddist sjó-
menns'kan. Hún flaug frá
London til Moskvu í gær og
kvaðst ætla að leita sér að
annarri vinnu.
forsetinn hafi fengið forsætisráð
herrann til að lýsa yfir fylgi við
óvinsæl sjónarmið, svo að hann
verði berskjaldaður fyrir árásum
andstæðinga sinna, bæði í flokki
sínum og utan hans. Hingað til
hefur Sato forðast að leggja dóm
á stefnu Kínverja, þar sem Jap-
anir eiga töluverð viðskipti við
þá, en nú tók hann undir af-
stöðu Bandaríkjastjórnar. í Víet-
nam-málinu hefur Sato áður
hvatt varfærnislega til þess, að
friðarviðræður verði hafnar og
loftárásum hætt, en hann hefur
aldrei áður gert það í opinberu
skjali.
Okinawa-málið og yfirlýsingar
1 hinni opinberu tilkynningu um
varnarmál munu sæta gagnrýni
vinstrisinna og hlutleysissinna,
og íhaldsmenn eru óánægðir með
loforð Satos um aukna aðstoð við
þróunarlöndin. Síðan í fyrra
hafa Bandaríkiamenn lagt fast
að Japönum að taka aukinn þátt
í vörnum Asíu og auka áhrif sín
í efnahagsmálum og stjórnmál-
um álfunnar, en um þetta eru
skiptar skoðanir í Japan.
Washington, 13. nóv. AP.
Fimmtíu og fimm ára gamall
maður skaut konu sína til bana
í skrifstofu í dómsmálaráðuneyt-
inu í Washington og lokaði sig
síðan af í tvær klukkustundir,
áður en hann framdi sjálfsmorð.
Atburður þessi gerðist í 10 hæða
byggingu, sem er í notkun banda
ríska dómsmálaráðuneytisins, í
þann mund, er þúsundir starfs-
manna stjórnarráðanna voru að
fara frá skrifstofum sínum, að
loknum vinnudegi. — Lögreglan
reyndi árangurslaust að telja
manninn á að varpa frá sér
skammbyssunni og koma út.
New York, 13. nóv. AP.
Hafkönnuðurinn Jacques Pic-
card kom til New York á mánu-
dag í því skyni, að undirbúa ferð
neðansjávar, en þar ætlar hann
að láta sig „reka“ með Golf-
straumnum frá Palm Beoch í
Florida til Halifax í Nova Scotia.
Þessi svissneski hafkönnuður,
sem nú er 45 ára að aldri, hyggst
far þessa ferð í nýjum ranm-
sóknarkafbáti, sem verið er að
smíða í Svisslandi.
Sunnubúöin sf. auglýsir
Höfum tekið við rekstri verzlunarinnar að Skaftahlíð 24, (áður Lídókjör) og rekum hana
undir nafninu SUNNUBÚÐIN.
Hér eftir, sem hingað til munum við leggja megináherzlu á að hafa jafnan sem fjölbreytt-
ast vöruúrval í verzlunum okkar.
Vekum sérstaka athygli á hagkvæmu verði, þegar keypt er í heilum pakkningum, eða mik-
ið magn í einu af hverri tegund.
frá eigin kjötvinnslu:
Kjötfars, bjúgu, kjötbúðingur, fiskbúðingur og alls konar álegg.
SUMMLBliÐIN
Sörlaskjóli 42.
Nýlenduvörur.
SLMMLBLIHM
Mávahlíð 26.
Kjötvörur,
nýlenduvörur,
sölutum.
SLMMLBLÐIM
Skaftahlíð 24.
Kjötvörur,
nýlenduvörur,
sölutum.
SLMMLBLÐIM
Langholtsvegi 17.
Kjötvörur
Nýlenduvörur.
kjötvinnsla.