Morgunblaðið - 23.11.1967, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. NÓV. TfWT
Tékkar slegnir
út af írum í gær
En heimsmeistarar
Englands unnu 2-0
L.ANDSLIÐ frlands setti í gær-
kvöldi strik í alla spádóma sér-
fræðinga er liðið heimsótti lands
lið Tékka í Prag og vann 2—1.
Með þessu skeði það undarlega,
að írlendingar unnu þennan rið-
il i undankeppni landsliða
Evrópu, sesm nú er að nálgast
lokastig, fyrir Spánverja. Má
með sanni segja, að írlendingar
hafi bjargað heiðri Spánverja,
því þeir voru siðast meistarar í
þessari keppni — en áttu með
sigri möguleika að vinna riðil-
inn.
Heimsmeistaralið Engiands
mætti i öðrum riðli keppninn-
ar liði N-íra. Fór leikurinn fram
á Wembley að viðstöddum 85
þús. áhorfendum. Englendingar
voru aidrei í hættu og unnu
2—0. Mark í hvorum hálfleik
skoruð af Geoff Hurst og Botoby
Oharlton. Með þessum sigri hafa
Englendingar tryggt sig í úrslita
keppni 8 liða, þó þeir eigi einn
leik eftir.
Keppni í riðli Tékka og ír-
iendinga er lokið. Hafa Spán-
verjar 8 stig, Tékkar 7, Irland 5
og Tyrkland 4.
Mörk írlendinga skoruðu
Traecy (WBA) og O'Connor
(Fulham). Markið sem írar
fengu var sjálfsmark, skorað af
Dempsey (Fulham). Tékkar
léku vel úti á vellinum en kom
ust ekki gegnum vörn fra, en
áttu ætíð í brösum við sóknar-
menn íra við sitt mark.
Félagid dœmt úr
3. deild í 4. deild
Peterborough United, sem leik
ur í þriðju deild í Englandi hef-
ur nú fengið harðasta dóm sem
um getur í sögu ensku deild-
arkeppninnar í knattspyrnu. Fé-
lagið, sem er næstyngst af deild-
arfélögunum, hefur verið dæmt
tii að leika í fjórðu deild naesta
keppnistímabil hvernig sem
þeim gengur í vetur. Félagið er
í þriðja sæti i þriðju deild um
þessar mundir og hafði eins
mikla möguleika og hvert annað
félag að vinna sig upp í a'ðra
deild. Það er stjórn ensku deild-
anna (The Football League) sem
hefur fellt þennan þunga dóm
fyrir óleyfilegar greiðslur til
leikmanna á margvíslegan hátt.
Peterborough hefur ennfremur
fengið 500 punda sekt fyrir brot-
in.
Stjórn félagsins bjóst þó við
jafnvel enn harðari dómi, þ. e.
að félagið yrði að fara fram á
endurkjör í fjórðu deild næsta
sumar, en fjögur neðstu félög
fjórðu deildar verða að auð-
mýkja sig á þann hátt ár hvert.
Lið Vals fyrir leikinn á Nep-stadion. Vel má merkja þokuna.
Knattspyrnulegur ávinning-
ur, en fjárhagshliðin tvísýn
Óli B. Jónsson segir frá
IJngverjalandsför Valsmanna
Valsmenn sem léku tvo Evr-
ópuleiki sína í Búdapest á dög-
unum eru nú allir komnir heim.
Óli B. Jónsson þjálfari liðsins
varð á vegi okkar og lýsti mik-
illi hrifningu á móttökunum hjá
Ungverjum, og kvað hann mikla
og eftirtektarverða breytingu
hafa orðið á högum fólksins síð-
an 1965 að hann var þar sem
þjálfari Keflvíkinga, sem einnig
kepptu þar í Evrópukeppni meist
araliða.
• Ný leikaðferð
Við ræddum stuttlega um leik-
Íþróttahátíi MR
Á þriðjudagskvöldið fór fram
að Hálogalandi hin árlega
iþróttahátið Menntaskólans, en
hátíð þessi hefur alltaf boðið
upp á góða stemningu og hina
beztu skemmtun og verið vel
sótt af nemendum skólans, og
svo var einnig þetta kvöld og er
óhætt að segja að enginn hafi
farið leiður út.
Hátíðin hófst með því að for-
maður íþróttafélags skólans, Jón
Magnússon, setti hátíðina, en
síðan hófst handknattleikur
stúlkna milli MR og KÍ, rem
lyktaði 2:2. Knattspyrna drengja
MR—MH fór 5:2, en þá fór fram
leikur í knattspyrnu milli pilta
og stúlkna, sem er algjör ný-
lunda, en stúlkurnar unnu ör-
ugglega 3:1 í mjög skemmtileg-
um leik. Ví sigraði svo MR í
handknattleik 16:14 og stærð-
fræðideild van máladeiid í poka
hlaupi og MR—MA i körfubolta
42—18.
Var þá komið að lokaatriðinu
og hápunkti kvöldsins en það
var leikur kennara og nemenda,
sem var mjög tvisýnn og
skemmtilegur og höfðu kennarar
yfirhondina allan leikinn þar til
að nemendum tókst að jafna
10:10 rétt fyrir leikslok.
Myndin hér að ofan er ein-
mitt úr þessum leik og sézt
Óskar Marinósson skora glæsi-
lega fyrir kennara.
Ljósmynd Mbl. Knstmn
Benediktsson.
iná tvo við Óla B. Han kva‘ð
Valsmenn hafa beitt nýrri leik-
aðferð, þeirri að leika með 3
miðframverði. Mætti þvi kalla
keffið 5-2-3. Þetta hefði hann
ákveðið að gera eftir fyrri kynni
sín af ungverskri knattspyrnu
og sóknarmönnum þeirra.
Óli kvað kerfið hafa tekizt
vel í framkvæmd hjá Val, ef
undan er skilinn fyrri hálfleik-
ur í fyrri leiknum. Hefði leik-
mönnum Vals ekki fyllilega tek-
izt að framfylgja kerfinu þá, og
það hefði kostað mörk. Alls urðu
mörk Vasas í þessum leik 6 gegn
engu. Voru 2 markanna skoruð
úr gegnumbroti ungverskra sókn
armanna utan af velli — meðan
varnarkerfi Vals var enn ekki
„komið í gang“, 1 úr sjálfsmarki
og 3 úr sóknarpressu. Áttu Ung-
verjar þungar lotur sóknar að
marki Vals, en fundu ekki leið-
ina gegnum þéttskipaða vörnina
á eigin spýtur, en við skot úr
þvögu eða þegar knötturinn
hrökk af vörn til Ungverja,
fengu Valsmenn ekki að gert.
Þessi leikur hófst kl. 4.15 (2.15
að ísl. tima). Var þá 7-—8 stiga
hiti en þoka og reykur (smog)
sem fór vaxandi. Ljós vallar-
ins loguðu allan tímann.
Er á leið leikinn náðu Vals-
menn æ betri leik — og sóknar-
tilraunum. Átti Hermann m.a.
mjög gott skot, sem var glæsi-
lega varið.
• Þoka og slagsmál
Strax á eftir þessum leik hófst
leikur Ferencvaros og Real
Zaragossa í „borgakeppninni".
Varð þokan þá mun þéttari og
frá hliðarlínu sá varla út á mi'ðj-
an völl. Markverðir áttu í mikl-
um vanda og rýndu út í þokuna.
Leiknúm varð að slíta eftir
stutta stund. Fór hann síðan
fram daginn eftir og þá urðu
mestu slagsmál, sem ég hef séð í
leik, sagði Óli. Var Varga barinn
niður, án þess knötturinn væri
nærri, peysur rifnar og eitt sinn
mótmæitu allir Spánverjarnir og
gerðu aðsúg að dómaranum.
Hann var ákveðinn, gaf þeim
mínútu frest til að hefja leik —
og þeir hlýddu.
SlÐARI LEIKURINN.
Síðari leikurinn, sem leikinn
var í Varpolito (80 km frá Búda-
pest), unnu Vasasmenn 5:1. Stóð
3:0 í hléi, en 2:1 urðu úrslitin í
síðari hálfleik.
Síðari hálfleikurinn var bezti
leikkafli Vals í ferðinni. Þá tókst
liðinu að breyta vörn í sókn
oft. Hermann komst tvívegis inn
fyrir vörn og skoraði fallegt
mark. Bergsveinn komst innfyrir
og var dæmdur rangstæður —
en áhorfendur, voru ekki ailir á
sama máli. Þá komst nýliðinn
Birgír Einarsson innfyrir en mis-
tókst. Loks komst Reynir í gott
skotfæri, skotið hæfði stöngina,
sem þarna er ferhyrnd, hrökk
fyrir opið mark, en Hermann var
ekki viðbúinn og missti af tæki-
færinu. — Eftir leikinn sagði
einn Ungverjanna, að ef Vals-
menn fengju fleiri leiki þarna,
færi þeim svo fram að tvísýnt
yrði um sigur.
• Samanburður
Til samanburðar me'ð Val og
öðrum aðkomuliðum má geta
þess að írsku meistararnir léku
tvo leiki við Vasas. Varð 0:0 í
Dublin en í Búdapest unnu Va-
sasmenn 8:1. Þá léku þarna bik-
armeistarar Austurríkis við Uj-
pesti Dozja og vann Dozja 6:1.
Óli B. rómaði móttökur Vasas-
manna og hvað dvöl Vaismanna
hafa verið mjög ánægjulega í
borginni. Þar væri lífið svo til
komið í sama horf og á Vestur-
löndum, m.a.s. bítlamúsík í
miklum metum. Skriffinska við
komu og brottför frá landinu
væri hinsvegar sú sama og hvim-
leið mjög. Vaismenn fengu góð
æfingaskilyrði, fóru útsýnisfehð-
ir, sáu Leðurblökuna í frægu
óperuhúsi, fóru í dýragarðinn,
verzluðu, styttu sér stundir með
félagsvist, áttu eitt fríkvöld en
annars var allt fallið í ró 10.30—
11 á kvöldin.
• Ávinningur
Varðandi þátttöku ísienzkra
■ liða í Evrópukeppni sagði Óli
B. að mikill ávinningur væri
að því að kynnast slíkum lið-
um sem Valur gerði nú og
sjá önnur í leik. Fjárhags-
hliðin hjá íslenzkum liðum
væri hins vegar tvíeggjuð,
einkum ef þau kæmust áfram
í keppninni. Nú hefðu Ung-
verjar verið sérlega samvinnu
góðir og e.t.v. bjargað Val
frá 1—309 þús. kr. tapi.