Morgunblaðið - 23.11.1967, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. NÓV. 1967
27
Kæran ekki á rökum reist
SAMBANP dýraverndunarfélaga
íslands kærði í sl. mánuði veiði-
ferð, sem íarin var í Súlnasker,
eina af úteyjum Vestmanmaeyja,
■t±l fýla og súlniatöku, svo sem
gert hefur verið í aldaraðir í
Eyjum. Með í ferðinni var kvik-
myndatökumaður frá Sjónvarp-
inu til þess að afla heimildar-
kvikmyndar um þennan þátt
bjargveiða í Vestmannaeyjum og
var myndin síðar sýnd í sjónvarp
inu.
Samband dýraverndunarfélaga
Islands kærði til bæjarfógetaem
bættisins í Vestmannaeyjum, sem
rannsakaði málið og sendi síðan
til saksóknara til umsagnar. Kær
an var varðandi ætlað brot um
fuglaveiðar og fuglafriðun nr.
33 frá 1966 í sambaindi við um-
rædda ferð, sem farin var 29.
ágúst sl. Samkvæmt bréfi Sak-
sóknara til bæjarfógetaembætt-
isins í Vestmannaejum, dagsettu
15. nóv., er kærunini vísað frá
þar sem 'hún hafi ekki verið á
rökum reist og málið látið nið-
ur falla.
- BREZKA ÞINGIÐ
Framhald af bls. 1.
frá Bandaríkjunum, og úr kaup-
um á skotfærum, flutningatækj-
um og öðrum útbúnaði hersins.
Þá hefur verið hætt við aðild
Breta að sameiginlegri herstöð
þeirra og Bandaríkjanna, sem
fyrirhugað var að reisa á Alba-
bra-eyju á Indlandshafi, og
ákveðið að leggja flugvélamóður
skipinu „Victorious". Þá minnt-
ist Wilson á lækkun útgjalda til
opinberra framkvæmda, og til
þjóðnýttra iðnfyrirtækja eins og
kolanámanna, járnbrautanna,
stáliðnaðarins og raforkuver-
anná. Hann ítrekaði þó fyrri um
mæli sín um að ekki yrði dregið
úr smíði íbúða, skóla og sjúkra-
húsa. Einnig hét hann því, að
ekki yrði dregið úr framlögum
til verksmiðjubygginga á þeim
svæðum, þar sem atvinnuleysi
ríkir nú.
Er Wilson hafði lokið máli
sínu, kom til nokkurra orða-
skipta milli hans og Edwards
iHeaths, leiðtoga íhaldsflokksins.
Bagði Heath, að gengisfellingin
væri afleiðing stefnu Verka-
mannaflokksins í efnahagsmái-
um, og að sú stefna væri óbréytt
frá 'því sem var. Þessu andmælti
Wilson, og sagði, að stefnan væri
rétt og hefði ekki valdið brey:-
ingunni á gengi pundsins. Hins
vegar hefðu deilurnar í löndun-
um fyrir botni Miðjarðarhafsins,
og þá ekki sízt lokun Súez-
skurðarins, leitt til gjaldeyris-
spákaupmennsku, sem grafið
hefði undan sterlingspundinu.
„GENGISFELLING Á FRAM-
TAKI“
Heath hafði orði fyrir stjórn-
arandstöðunni í umræðunum, og
sagði m.a.: „Gengisfelling punds
ins er gengisfelling á framtaki
í landinu. Þjóðin vítir ríkisstjórn
ina fyrir þessa auðmýkingu11.
Hann sagði, að stjórnin hefði
ekki gefið þinginu neina þá
skýringu, sem réttlætti gengis-
fellingu, né heldur gefið neina
Ijósa mynd af því, hverjar af-
leiðingar lækkunin mun hafa.
Engar upplýsingar hefðu verið
gefnar um sambandið milli
gengisfellingarinnar og fyrirhug
aðra aðgerða stjórnarinnar í
launamálum, og vantaði þar þýð
ingarmikinn hlekk. Með ákvörð-
un sinni hefur ríkisstjórnin lagt
þungar byrðar á gjaldeyrissjóði
margra landa, sagði Heath, með-
al annars fjölda Samveldis-
landa, sem áttu við erfiðleika
að stríða fyrir.
Umræðunum í þinginu lauk
með ávarpi James Callaghans,
fjármálaráðherra. Sagði hann,
að gengislækkunin væri að vísu
tákn afturfarar í efnahagsmál-
um Breta, sem núverandi ríkis-
stjórn væri fær um að bæta úr.
„En“, sagði hann, „þegar ég lít
hér yfir pallana, sé ég að þar er
enginn (meðal þingmanna
íhaldsflokksins), sem fær er um
það“.
Að lokinni umræðu var geng-
ið til atkvæðagreiðslu um
ákvörðun ríkisstjórnarinnar um
að fella gengi pundsins. Lýsti
Neðri málstofan yfir stuðningi
við gengisfellinguna með mikl-
um meirihluta atkvæða. Greiddu
335 þingmenn gengisfellingunni
atkvæði, en 258 voru á móti. Bú-
izt hafði verið við einhverjum
klofningi meðal þingmanna
Verkamannaflokksins um málið,
en aðeins einn þeirra sat hjá,
allir aðrir fylgdu stjórninni. Hjá
sat Richard Crawshaw, þingmað
ur frá Liverpool, sem lýsti þvi
yfir, áður en gengið var til at-
kvæða, að hann léti ekki flokks-
stjórnina 'kúga sig til fylgis í
þessu máli.
GULLSALAN
Gífurleg eftirspurn var á
markaðnum í London í dag eft-
ir gulli, og segja brezk blöð að
de Gaulle Frakklandsforseti sé
þar ábyrgur. Til dæmis segir
blaðið Evening News, að nú þeg
ar forsetinn hafi unnið á sterl-
ingspundinu, hyggist hann ráð-
ast gegn dollarnum með því að
kaupa gull fyrir dollarasjóði
Frakka. Hver sem áibyrgðina
ber, þá er það staðreynd, að
aldrei fyrr hefur verið selt jafn
mikið af gulli á markaðnum í
London og í dag. Ekki eru gefn-
ar út skýrslur um heildarsölu
dagsins, en fullyrt er, að alls
hafi verið seld um 20 tonn gulls,
og er söluverðið um tíu milljón-
ir sterlingspunda. Er þetta nokk
uð meira magn en dagsalan
komst hæst árið 1962, þegar
Kúbudeilán var í hámarki, en
þá var sett það sölumet, sem
gilt hefur til þessa. Eðlileg dag-
sala gulls á markaðnum í
London er um sex tonn.
Eftirspurnin eftir gulli olli
verðhækkun, og er hún talin
stafa m.a. af því, að Frakkar
sögðu sig í gær úr alþjóða „gull-
sjóðnum" svonefnda, sem ætlað
er að halda jafnvægi í gullverð-
inu. Aðild að þessum sjóði áttu
átta auðugustu ríki heims, þ.e.
Bandaríkin, Bretland, Belgía,
Frakkland, Ítalía, Holland, Vest-
ur->ýzkaland og Sviss. Lögðu
Bandaríkin fram helming gulls-
ins sem sjóðurinn hefur yfir að
ráða, en Frakkland aðeins 9%.
Mikil leynd hefur hvílt yfir
tilveru gullsjóðsins, sem notað-
ur hefur verið til'að mæta auk-
inni eftirspurn eftir gulli og
halda gullverðinu í um 35 doll-
urum á únsu gulls. Varð franska
blaðið „Le Monde“ fyrst til að
skýra frá tilveru hans, og þá
jafnframt að Frakkar hefðu sagt
sig úr sjóðnum. Telja efnahags-
sérfræðingar að blaðinu hafi af
yfirlögðu ráði verið skýrt frá
sjóðnum til að auka eftirspurn
eftir gulli.
f frétt Le Monde segir, að
fleiri ríki hafi í huga að segja
sig úr sjóðnum, og að sjóðurinn
hafi tapað rúmum milljarð doll-
ara undanfarið hálft annað ár
við að halda niðri gullverðinu.
Sérfræðingur brezka blaðsins
Evening News í efnahagsmálum
heldur því fram í dag, að úr-
sögn Frakka úr gullsjóðnum
boði varla neitt neyðarástand.
Ákvörðun þeirra sýni hinsvegar
að de Gaulle sé ákveðinn í að
knýja fram breytingar á al-
þjóða greiðsluháttum, hverjar
sem þær séu.
Franski frankinn féll lítillega
í verði í gjaldeyriskauphöllinni
í London, og er þetta talið benda
til ótta við að Frakkar muni
krefjast þess að Bandaríkin
kaupi dollarasjóði þeirra fyrrr
gull, eins og þeim ber skylda til,
sé þess krafizt.
Þær voru önnum kafnar frúrnar, þegar ljósmyndari Mbl. leit við í sendiherrabústaðnum í
gær. Við fremri borðið eru frá v.: Frú Helga Þorsteinsdóttir, frú Dorothy Sampas, frú Au-
gusta Ward, frú Thomsen og frá Granbert. Fyrir aftan þær eru: frú Unnur Símonardóttir,
frú Guðrún Holt, frú Elín Hannam, frú Karitas Sigmundsson, frú Áslaug Boucher og frú
Anna Jónsdóttir.
Sendiráðskonur halda bazar
KVENFÉLAGIÐ „Vinarhjálp"
heldur bazar að Hótel Sögu kl.
tvö á sunnudaginn. 1 því eru
konur úr erlendum sendiráðum,
- REIKNINGAR KÁ
Framhald af bls. 28
kvæma könniun fraimkvæmda-
stjóra félagsins á fjárreiðum
þess, að nokkrir eignaliðir ó
reikningi ársins 1965 hafa
reynzt óraunhæfir, og hafa nú
verið afskrifaðir. Teljum við eft-
ir nána athugun, að þessar leið-
réttingar séu réttmætar. Auk
þess kemur í ljós mikill rekstr-
arhalli á árinu 1966, sem við
getum ekki betur séð en sé
raunverulegur.
Það skal tekið fram að gefnu
tilefni, að hvorki nú né endra-
nær höfum við haft möguleika
á að kanna til hilýtar öll gögn,
né endurreikna alla skrifstofu-
vinnu, enda teljum við skrifstof-
una nú undir traustri forystu
framkvæmdastjórans."
Annar endurskoðendanna Páitl
Diðriksson stóð upp á fundinum,
er hinar löngu umræður stóðu
um reikningana og lýsti því yfir,
að hann myndi ekki taka endur-
kjöri sem endurskoðandi félagls-
ins. Hinn endurskoðandimn
baðst einnig undan endur-kjöri
og voru í þeirra stað kjörnir
Hörður Sigurgrtmsson í Holti og
Páll Lýðsson í Litlu-Sandrvík.
Fram kom sú hugmynd í um-
ræðunum að framkvæmd yrði
endurskoðun af löggiltum end-
UFskoðendum á reikningum fé-
lagsins frá undanförnuim órum.
Sú hugmynd náði ekki fylgi og
voru reikningamir samþykktir
með öllum þorra atkvæða mót-
atkvæðalaust.
Reikningarnir sýna, að rekstr-
arfé félagsins nemur allt að 80
rnilljónum króna, þegar talinn
er stofnsjóður félagsmanina, inn-
lánsdeild, varasjóður og lán til
skamms tíma.
Kaupfélagsstjórinn upplýsti
að við reikningsuppgjör stæðu
reikningar bænda eins vel og
kostur væri á árinu, en afurðir
sínar fengju þeir greiddar til-
tölulega skömmu fyrir uppgjör.
Þá hefði félagið ráðist í að láná
til bygginga og taka þannig að
sér hlutverk annara stofnana.
Hefðu þessar ráðstafanix einnig
skapað því érfiðleika. Ha-nn
sagði og að þótt félagið hefði
lent í vanskilum væru það að-
eins tímabundnir erifiðleikar og
enn hefði enginn borið tap af
viðskiptum við Kaupfélag Ár-
nesinga og vonaðist hann til að
svo yrði ekki.
í stjórn félagsins voru kjörnir
á aðalfundinum Sigurður Ingi
Sigurðsison, oddviti Selfossi og
til vara Helgi Jóhanmsson, Núp-
um. Aðrir í'stjórn eru: Páli
Hallgrímsson, sýslumaður, for-
maður, Þórarinn Sigurjónsson,
Laugardælum, Guðmundur Guð
munidsson, Efri-Brú og Einar
Gestsson á Hæli.
bandarískar konur af Keflavíkur
flugvelli og íslenzkar vinkonur
þeirra. Félagið var stofnað fyr-
ir einum sex árum og koma
frúrnar jafnan saman á fimmtu-
dögum og spila eða sitja við
hannyrðir.
Fyrir fjórum árum ákváðu
þær svo að snúa sér að líknar-
málum, og safna fé handa ís-
lenzkum börnum, sem af ein-
hverjum ástæðum ættu erfitt í
lífinu. Og fyrir fé sem þær hafa
aflað sér með því að halda baz-
ar árlega, hafa þær m.a. gefið
barnadeild Landakotsspítalans
fullkomin súrefnistæki, Sólheim
um í Grímsnesi fullkomið þvotta
Byssum
stolið
BROTIZT var inn í heildverzl-
un nálægt miðborginni um
helgina og hafði innbrotsmaður-
inn á brott með sér fjórar byss-
ur: þrjár 22 cal. kindabyssur af
V.A.P. gerð og einn 22 cal. riff-
il af Sakogerð. Þeir, sem kynnu
að geta gefið einhverjar upplýs-
ingar, eru vinsamlegast beðnir
að láta rannsóknarlögregluna
vita.
hús og í fyrra voru Skálatúni
gefnar 150 þúsund krónur til
húsgagnakaupa. Ekki hefur enn
verið ákveðið hvað gert verður
við ágóðann í þetta skipti, en
honum verður varið á svipaðan
hátt. Konurnar höfðu safnazt
saman í bústað brezka sendiherr
ans í gær, til þess að leggja síð-
ustu hönd að undirbúningi baz-
arins og var varla hægt að þver-
fóta þar fyrir munum, sem eiga
að fara á bazarinn. Auk þess
voru margir kassar fullir af varn
ingi í geymslu víðsvegar um
bæinn. Allir munirnir eru unn-
ir í sjálfboðavinnu og efnið ann
aðhvort fengið gefins eða keypt.
Hafsteinn
Baldvinsson
ráðinn til
H-nefndarinnar
BENEDIKT Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri framkvæmdanefnd
ar hægri umferðar, tjáði Mbl. í
gærkvöldi, að Hafsteinn Bald-
vinsson, lögfræðingur, hefði ver-
ið ráðinn til þess að veita upp-
lýsinga. og fræðslustarfsemi
nefndarinnar forstöðu.
- KÝPUR
Framhald af bls. 21
Áskorun frá U Thant
U Thant aðalframkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna tilkynnti í
kvöld, að hann hefði ákveðið að
senda sérstakan fulltrúa til Nico
siu, Aþenu og Ankara til þess
að leggja þar fram eindregna
áskorun til ríkisstjórna landanna
þriggja í því skyni að forðast
það, að styrjöld brjótist út vegna
Kýpur.
Segir til kynningu U Thants að
fréttirnar um hemaðarundirbún
ing og hinar hótandi yfirlýsing-
ar ríkisstjórnanna, séu uggvekj-
andi.
Samtimis sendj U Thant sam-
hljóða símskeyti til ríkisstjórna
landanna þriggja um að sýna
mikla varkárni og gera allt til
þess að draga úr spennunni. í
kvöld var enn ekki búið að á-
kveða, hvern U Thant myndi
skipa sem hinn sérstaka sendi-
mann sinn, en frá því var skýrt,
að hann hefði stöðugt samband
við sendiráð Grikkja og Tyrkja
hjá Sameinuðu þjóðunum.
- INDLAND
Framhald af bls. 1.
af þingmönnum sambandsþings-
ins höfðu hætt stuðningi sínum
vfð hana. Sambandsþingið verð-
ur nú rofið og nýjar kosningar
látnar fara fram.
í sambandsríkinu Haryana
norðanlega í Indlandi tók ind-
verska sambandsstjórnin völdin
í sínar hendur á mánudag og í
gærkvöldi leit svo út, sem betta
vandræðaástand væri að breið-
ast út til sambandsríkisins Uthar
Pradesh, þar sem tveir komm-
únistar í stjórn sambandsríkisins
hafa sagt af sér, sökum þess að
þeir telja, að indverski kommún-
istaflokkurinn hafi ekki haldið
loforð sín.
í Vestur-Bengal kveikti fólk
í dag í tveimur járnbrautarvögn-
um fyrir utan Kalkutta og löm-
uðu umferð þar með öðrum
hætti. Þá hafa átt sér stað mót-
mælaaðgerðir einnig í öðrum
sambandsrikjum til stuðnings
Samfylkingarhreyfingunni.
Ekki farið að gefa
skepnum í Grímsey
Grímsey, 22. nóv.
HER hafa verið ólátaveður ann-
að slagið og eilíf veðrabrigði, en
hámarki náði veðrið í gærkvöldi
um kl. 11 og stóð hann þá á vest
an. — Sæmilegur fiskreitingur
hefur verið, þegar hægt hefur
en það
sjaldan
verið að komast á sjó
hefur verið ákaflega
vegna ógæfta.
Snjólétt hefur þó verið hér og
engar skepnur farnar að taka
gjöf enn. — M. Sím.