Morgunblaðið - 03.12.1967, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. DES. 1967
MARY ROBERTS RINEHART:
SKYSSAN MIKLA
aöi hann. Vafalaust hafði hann
verið athugaður, að minnsta
Itosti voru aillir vasar tómir. Eins
og hin fötin, var hann frá Eng-
landi, og natfn klæðsk'erans úr
Bondstræti í vasanum. En þar
var dálítið meira, sem sé númer,
sem lögreglan hefur líklega hald
ið ,að klæðskerinn sjálfur hefði
skrifað þar.
En svo var ekki. Þarna voru á
miða núrrier skrifuð með bleki
og vandlega frá gengin. Og ég
þekkti númerin sam>stundis.
Þetta voru skrásetningarnúm-
erin á skrautbilnum hennar
Maud.
Ég sagði Lydiiu ekki frá þessu.
Sem betur fór horfði hún ekki
á mig ,heldur leit hún kring um
sig í herberginu, eins og í vand-
ræðum.
— Ég man það allt í einu, Pat,
sagði hún. — Hvar eru lyklarn-
ir? Hann var með marga lykla,
á stálfesti. Heldurðu, að hann
hafi tekið þá með sér?
Það fór snöggöega hrollur uon
mig.
— Sagðirðu lögreglunni frá
þessu? spurði ég.
— Nei. Hefur það nokkra þýð
ingu?
— Það kynni það að hafa,
sagði ég. — Þetta kynnu að hafa
verið lyklarnir hans Evans.
Þeir voru teknií nóttina, sem ráð
izt var á hann.
34
— Evans? Næturvörðurinn í
Klaustrinu. Veiztu hvað þú ert
að segja, Pat?
— Já, það veit ég víst, því
miður.
15. kafli
Það var komið upp í vana hjá
mér að liggja andvaka, og ég
hafði nóg um að hutgsa áður en
ég gat sofnað þetta kivöld. Án
þess að hafa nokkrar sannanir
fyrir því, þóttist ég alveg viss
Fyrsti sykurlausi gosdrykkurinn á íslandi!
svalandi!
svalandi!
!£§
sykufloust
um, að Don Morgan hefði verið
á ferðinni þarna í nágrenninu,
áður en hann kom þa^yjað opin-
berlega. Kannski jafnvel svo
snemma sem í júní, og að ég
hefði séð hann — 'íklega að gá
að Audrey — geghum gluggann
á ileikhúsirau. En að öðru leyti
lá þetta ekki ljóst fyrir. Árás-,
in á Evans, lyklarnir, og tvær
tilraunir hans til að komast inn
í Klaustrið. Og svo loks stefnu-
mót hans við einhvern í ’eikhús-
inu, og endalok þess.
Því að stefnumót hafði þetta
verið. Ég var alveg viss urn, að
Lydia hafði á. réttu að standa.
Og svo þetta með bilnúmerin
hennar Maud. Hversvegna var
hann að skrifa þau niður og
geyma? Var Bessie við þetta rið
in og hafði hann séð hana í bíln
um hennar Maud? En sVo mundi
ég nokkuð, sem virtist útiloka
Bessie. í krvöldblöðunum hafði
staðið, að afgreiðslumaður i bíla
eftirlitinu sem sá mynd af Don
á mánudaginn, hafði sagt, að
hann kannaðist við hann sem
mann, er hafði fynr nokkrum
vikum spurr um eiganda tiltek-
ins bfls.
— Það datt alveg ofan yfir
mig, hafði maðurinn sagt. Svo
hatfði hann beint spurningunm
að einhverjum öðrum og gleyml
númerinu. En hann sagði, að
maðurinn hefði litið út eins og
hann hefði sloppið naumlega frá
einhverju og hefði haft handa-
skjálfta þegar hann var að
kveikja sér í vindlingi.
Þetta gat vitanlega verið hugs
anlegt. Og það gat meira að
segja líika staðið í sambandi við
taugaiáfaHlið hjá Maud. Ef Gus
hefði næstum verið búinn að
aka þunga bílnum á einhvern,
mundi hún aldrei fara að segja
frá því. En næsta morgun þegar
ég talaði við Gus, þverneitaði
hann, að neitt slíkt hetfði komið
fyrir sig.
— Þú getur spurt frúna, ef þú
trúir mér ekki, sagði hann með
þóttasvip. — Ég ók aldrei á
neinn þennan dag og ekkert líkt
því.
Þetta var á fimmtudag. Don
hafði verið myrtur laugardag-
inn áður, og málið virtist komdð
í sjálfheldu. Hopper og hinir
deynilögreglumennirnir úr borg-
inni, voru ildilega vonsviknir.
Þeir höfðu búizt við vel skipu-
lögðu morði, en að undanteknum
staðnum þar sem það var fram-
ið, voru þ-eir ein.skis vísari.
— Ekki einu sinni, neitt til-
efni, nema hvað Bill Sterling
snertir, sagði Jim Conway, er
hann sat úti í garðinum þennan
dag og Roger var að reyna að
klifra upp á hnén á honurn. —
Engin fingraför, engir vindlinga-
stúfar með varalit á, engar kú1-
ur handa þeim að skotprófa.. . .
ekkert! Ef ég væri ekki með
þessar litlu sannanir mínar,
mundu þeir halda því fram, að
Morgan hefði fengið slag og
drukknað í lauginni.
En ég veit það núna, að þarna
var hann að gera minna úr rauð
hausnum Hopper en rétt var.
Því að ef satt skal segja, var
hann í óðaönn að grafast fyrir
málið. Einn dag hitti hann unga
lækninn, sem Lydia hatfði sótt
til Dons, þegar Bill SterÆing neit
aði að líta á hann. Hann hét
Craven og var heldur lítilfjör-
legt vitni.
— Þér töldiuð hann vera sjúk
an?
— Jú, það hélt ég. Vitanlega
er ekki hægt að sjá háfls-bólgu
utan á mönnum, bætti hann við,
svo sem í varnarskyni.
Hann haifði verið að gefa hon-
um smáskammta af dig-italis daig-
lega, — rétt til vonar og varna.
Að öðru leyti hafðd hann mælt
með hví.ld og varkárnislegu mat
aræði. — Mér fannst hann vera
í einhverri taugaspennu, sagði
hann. — Ég spurði hann, hvort
hann hefði einhverjar s'érstak-
ar áhyggjur en því neitaði hann.
„Nema hvað ég get ekki verið
hérna áfram“, sagði hann. „Frú
Morgan hefur verið mér mjög
góð, þegar mest lá á, en ég g<et
auðvitað ekki níðzt á henni 'til
langframa“.
— Yður hetfur ekki dottið í
hug, að hann væri hræddur við
eitthvað? Væri til dæmis í lífs-
hættu?
— Alls ekki.
Það var þá það. Þeir höfðu
ekki nema einn mann grunað-
an og sá maður var Bill. Hann
hafði bæði tilefni og tækitfæri,
og aðeins vitnisburður garð-
yrkjumannsins hjá Stoddard um
bílana tvo hindraði þá í að taka
hann fastan, tafarlaust. Jafnvel
þeir gátu ekki sannað, að hann
hefði falið morðbílinn þar sem
hann fannst, og sýnt sig svo í sín
um eigin bíd tveimur mínútum
seinna.
Engu að síður reyndiu þeir eft-
ir megni að finna sannanir gegn
honum, reyndu að afsanna mál
garðyrkjumannsins, -leibuðu ná-
kvæmlega í bíl Bills, rannsök-
uðu föt hans og hús, og spurðu
hann í þaula.
— Þekktuð þér Donald Morg-
an áður en hann kom heim?
— Nei, ég var við læknanám,
þegar þau fluttu hingað að aust-
an, og þegar hann fór að heim-
an, var ég við sjúkrahús í New
York.
— En þér áttuð hér heima.
Var ekki fjööskylda yðar hér?
— Jú. Foreldrar minir dóu
bæði meðan ég var við nám.
— En þér hafið verið hér á
sumrin og þá séð Morgan?
— Ég vann fyrir mér á náms-
árumum og átti því engin sumar-
frí. Ég siá engan af Morgan-fólk-
inu fyrr en ég settist hér að sem
starfandi læknir og þá var hann
þegar farinn að heiman.
Þá sneru þeir sér að lyklinum
að leikhúsinu og árásinni á
Bvans. Hversu vel hafði hann
þekkt Evans? Vissi h-ann, að
Evans bar á sér lyklana að
Klaustrinum? Hann svaraði
blátt áfram, að hann hefði a-ldrei
beint huga að slíku, en líklega
bæri næturvörður á sér lykla.
Hvað snerti lykilinn á lykla-
hringnum hans, þá hefði hann
enga hugmynd um, hvernig hann
væri þangað kominn. En þeir
hríðuðust í honum, eins og hund
snittur _____
smurt brauöIHOLLINlbrauötertur
)opið frá kl. 9-23:30
LAUGALÆK 6
3* SÍMI 30941-***rnæg bílastæði<
AKUREYRI
SPILAKVÖLD
Sjálfstæðisfélögin á Akureyri halda spilakvöld í
Sjálfstæðishúsinu nk. sunnudagskvöld, 3. desember,
hið þriðja og síðasta fyrir jól, og hefst það
kl. 20.30.
• Dagskrá: 1. Félagsvist. 2. Gísli Jónsson mennta-
skólakennari flytur stutt erindi um Sjálfstæðis-
kvennafélagið Vörn 30 ára. 3. Dans til kl. 01.
Hjómsveit Ingimars Eydal, Helena og Þorvaldur
skemmta.
Aðgöngumiðasalan í Sjálfstæðishúsinu verður
opnuð kl. 18.30 sama dag. — Tryggið ykkur miða
tímanlega og mætið stundvíslega.
VÖRN.