Morgunblaðið - 03.12.1967, Side 32
SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1967.
KSKUK
Sudurlandstiraut 14 — Simi 38550
Þorskflök hækka
í Bandaríkjunum
SÍÐUSTU vikurnar hafa horfur
batnað á Bandaríkjamarkaði
„Þorlóksmessu-
umferð"
í Reykjovík
MIKIL umferð var um miðborg-
ina í gærmorgun og sögðu um-
ferðarlögregluþjónar, að helzt
minnti hún á umferðina á Þor-
láksmessu. Allar götur að og
frá miðborginni voru þéttskip-
aðar ökutækjum og gekk um-
ferðin því mjög hægt fyrir sig.
Uítið var þó um óhöpp í þessari
miklu umferð og þau, sem urðu,
voru öll smávægileg. Geysilegur
vatnselgur var á götunum vegna
hláku og rigningar, en ekki var
kunnugt um að hann hefði valdið
tjóni.
með verð á frystum fiski. Hið
opinbera verð á þorskblokkum,
sem var komið niður í 21—22
cent pundið, eftir að tollar hafa
verið greiddir, hefur þokazt upp
í 24'4 cent pundið.
Þess er þó að gæta að verð-
lag fer oft batnandi síðari hluta
árs á þessum markaði. Er því
ekki ennþá unnt að segja til um,
hvort verðlag á þessum mikil-
vægú útflutningsafurðum mun
halda áfram að hækka.
Þótt verð á þorskblokkum hafi
farið hækkandi hefur verðlag á
tilbúnum fiskréttum frá verk-
smiðjunum farið heldur lækk-
andi og er það bein afleiðing á
þeirri lækkun sem varð á fisk-
blokkunum.
Getur þetta haft áhrif um tíma
á heildarútkomu fyrirtækja, sem
eiga og reka eigin verksmiðjur
vestra, eins og t.d. Norðmenn og
íslendingar.
Stal 14.000 krónum
af gesti sínum
GESTUR á hóteli einu í Reykja-
vík stal 14.000 krónum af kunn-
ingja sínum, sem hann hafði
boðið inn í hótelherbergi sitt.
Lögreglan var kvödd á staðinn
og eftir nokkra leit fundust pen-
ingarnir undir gólfteppinu í her-
berginu. Við yfirheyrslu játaði
hótelgesturinn að hafa stolið
peningunum úr veski kunningja
síns.
Maður þessi hafði tekið á leigu
hótelherbergi í Reykjavík og boð
ið til sín fknim kunningjum sín-
um í fyrrinótt. Eftir nokkra
stund losaði hann sig við fjóra
þeirra, en einn sat eiffir að
sumbli með honum. Til handa-
lögmála mun hafa komið milli
þeirra og í þeim náði hótetgest-
urinn veskinu af ku'iningja sín-
um, tók úr því 14.000 krónur og
faldi peningana undir gólftepp-
inu í herberginu.
Félagarnir fjórir, sem höfðu
farið fyrr um nóttina, voru allt
annað en ánægðir yfir að skilja
vin sinn eftir hjá hótelgestinum
og hringdu því í lögregluna.
Hún kom strax á vettvang og
þe.gar málið var ra.onsakað korc
hið sanna í ljós. Hóteigestar-
inn var handtekinn og já’aði
þjófnaðinn við yfifheyrslu í gær.
Tengilíno frá sjónvarpshúsinu
til Vatnsenda bilaði
ÚTSENDING sjónvarpsins í
fyrrakvöld féll að mestu niður
vegna bilunar. Var aðeins hægt
að flytja fréttir, og rétt byrjun
þáttarins „Á öndverðum meiði,“
áður en stöðva varð útsendingu.
Samkvæmt upplýsngum Sig-
urðar Þorkelssonar verkfræðings
hjá Landssímanum, varð bil-
un tengilínu milli stúdíósins að
Laugaveg og Vatnsendastöðvar-
innar, en bæði prógrammið og
senditækin voru í lagi. Var bil-
unin á línunni viðtökumegin. Er
nú búið að gera við þessa bilun.
Flytja átti þáttinn Á öndverð-
um meiði í gærkveldi, en aðrir
þættir frestast fram í þessa viku.
m
Það er sjálfsagt allur snjór horfinn þegar þessi mynd kemur fyrir augu lesenda, en nokkur
fannst rétt að birta hana. Þó a ð fullorðna fólkið muldri önugleg a i barminn þegar það staulast
hnjótandi ferða sinna í snjónum, er augljóst að börnin kunna vel að meta hann, og hafa af hon-
um beztu skemmtun. Þessi hre ssilegu krakkar voru að leika sé r í snjókasti fyrir neðan barna-
skóla Austurbæjar, og Ólafur K. Magnússon, náði rétt að smella myndinni áður en kúlna
hríðin dundi á honum.
Söltun fyrir Svía á Seyðisfirði:
Saltendur segja Síldarútvegsnef nd
pukrast með samninga og verð
Seyðisfirði, 2. desember.
SÍLDARSALTENDUR á Seyð-
isfirði fengu nýlega fyrstu
greiðslu fyrir síld, sem þeir
fluttu út til Svíþjóðar í síðasta
mánuði. Þeim brá heldur en
Island-T ékkósló vakía í dag kl. 4
*
— I síðasta leik þessara liða varð jafntefli
ÍSLENZKA landsliðið í hand-
knattleik mætir í dag Tékkum í
landsleik í IþróttahöUinni í
Laugardal. Tékkar eru sem kunn
ugt er heimsmeistarar í þessari
grein, og hafa verið í fremstu
röð handknattleiksþjóða um ára-
bil. Leikurinn í dag hefst klukk-
an 16 eftir hádegi, eða kl. 4, en
forsala á miðum verður í höll-
inni frá kl. 1 í dag. Landsliðin
keppa svo aftur á mánudags-
kvöld, og hefst leikurinn þá kl.
20.15, en forsala á miðum verð-
ur í bókaverzlun Lárusar
Blöndals í Vesturveri og Skóla-
vörðustíg frá kl. 9—18.
Þetta er í fyrsta skipti sem
tékkneskt landslið heimsækir ís-
land, en fjögur tékknesk félags-
lið hafa leikið hér áður, og hafa
úrslit verið á ýmsan veg. Á hinn
bóginn hafa íslenzka og tékk-
neska iandsliðið tvívegis keppt á
erlendri grund í leikjum í heims
meistarakeppni. Árið 1958 sigr-
uðu Tékkar með 27:17, en 1961
varð jatfntefli öllum á óvænt,
15:15. Verður því næsta fróð-
legt að fylgjast með úrslitum í
þessum leikjum hér, en vara-
samt er að gera sér neinar gylli-
vonir um sigur.
íslenzka landsliðið er þannig
skipað í dag: Þorsteinn Björns-
son, Fram, Logi Kristjárnsson,
Haukum, Örn Hallsteinsson, FH,
Geir Hallsteinsson FH, Stefán
Sandholt, Val, Sigurður Einars-
son, Fram, Sigurbergur Sigisteins
son. Fram. Hermann Gunnars-
son, Val, Ingólfur Öskarsson, fyr
irliði, Fram Guðjón Jónsson,
Fram, Einar Magnússon, Víking.
ekki í brún, þegar í ljós kom,
að þeir fengu 40 krónum minna
fyrif tunnuna, en þeir höfðu á‘ð-
ur fengið fyrir svíasíld. Við nán-
ari athugun virðist ástæðan vera
sú, að þessi síld hafði ekki verið
magadregin.
Síðari hluta októbermánaðar,
þegar sildin færðist nær landi
var hún fremur rýr, eða um
20% feit. Þá óskuðu, eða leyfðu,
sumir sænskir umbo'ðsmenn, að
síldin yrði ekki slógdregin, enda
var síldin átulaus og slógið því
aðallega innfita. Töldu sumir
síldarkaupendanna þetta aðeins
til bóta, þar sem rýra síldin
yrði mýkri og bústnari við að
halda þessari innfitu.
Á sumum sérverkunarskýrsl-
um var þetta tekið fram að
beiðni Svíanna. Að minnsta
kosti einn saltandi spurði sænska
umboðsmanninn til hvers ætti að
skrá þetta í sérverkunarskýrsl-
una og fékk það svar, áð „það
ætti að standa í skýrslunni". Ekk
ert frekar var sagt og taldi því
saltandinn, að þetta væri aðeins
venjuleg sérvizka Svíanna.
Nú hefur hins vegar komið
í ljós, að hér er um verðmismun
að ræða — verðmismun, sem ís-
lenzkir saltendur vissu ekkert
um og fengu enga aðvörun um
frá Síldarútvegsnefnd, þar til
þeir fengu fyrstu greiðslu fyrir
svíasíldina. #
Þess má geta, að saltendur
greiddu sama fersksíldarverð til
báta og sömu söltunarlaun til
kvenna fyrir óslógdregna síld og
þá magadregnu. Allar líkur
benda því til, að leynipukríð,
sem Síldarútvegsnefnd er með í
sambandi við sölusamninga og
verð, eigi eftir að kosta síldar-
saltendur nokkur hundruð þús-
und krónur.
Það virðist vera skoðun Síld-
arútvegsnefndar, að saltendur
Framhaild á bl. 31.
DAGAR j
TIL JÖLA 1
1____________
21