Morgunblaðið - 17.02.1968, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1968
Hraða ber framkvæmdum aðalum-
ferðaræða að og frá borginni
— Vegamálastjóri vinnur að nýrri brú yfir Elliðaár
Leikmenn annast guðs-
þjónustu ■ Bústaðasókn
Á SUNNUDAGINN, 18. febrúar
n.k. annast félagar úr Bræðra-
félagi Bústaðasóknar guðsþjón-
ustu safnaðarins og bjóða síðan
konum sínum og vinum á
skemmtun um kvöldið.
allir „kirkju“-gestir fjölritaða
messuskrá, þar sem ritaður er
víxllestur stjórnanda og safnað-
ar. Orgelleik og söngstjórn ann-
ast Jón G. Þórarinsson.
og veg upp Artúnsbrekkur
EINS og skýrt var frá í gær,
fluttu borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins á fundi borgar-
stjórnar í fyrradag tillögu þar
sem beint var þeim tilmælum
til vegamálastjórnarinnar að
hraða sem mest undirbúningi
og framkvæmdum við gerð aðal
umferðaleiða frá Reykjavík. Er
í tillögunni bent á, að til þeiss
að framkvæmdir Reykjavikur-
borgar við gerð aðalumferða-
leiða innan borgarinnar komi
að fullum notum, þurfi ríkis-
vald og nágrannasveitirnar að
vinna markvisst að því, að aðal
umferðaræðar utan borgarinnar
geti tekið greiðlega við um-
ferð að og frá Reykjavík. f
tillögunni er sérstaklega bent á
að hraða sem mest nýrri brú yfir
Elliðaá og veg upp Ártúns-
brekku, en vegamálastjóri hef-
ur að undanförnu unnið að und
irbúningi þeirrar framkvæmd-
ar.
Birgjr fsl. Gunnarsson mælti
fyrir tillögunni og benti í upp-
hafi ræðu sinnar á, að það yrði
æ meira áberandi, að aðalum-
ferðaræðar að og frá borginni,
gætu ekki með góðu móti tekið
við þeirri umferð, sem nauðsyn
leg væri, og væri sýnt að þetta
ástand versnaði, eftir því sem
lengra liði-
Rakti hann síðan helztu fram
fcvæmdir borgarinnar við gerð
hraðtorauta innan borgarsvæðis
ins, svo sem Kringlumýrarbraut
ar og Miklubrautar, en henni er
efcki hægt að ljúka fyrr en kom
in er ný brú yfir Elliðaár.
Þá rakti Birgir fsl. þau verk-
efni, er nauðsynlegt væri að
hefja framkvæmdir við, sem
fyrst. Nefndi hann þar m.a.
breikkun Skúlagötu og Lækjar-
götu og endurbyggingu Kalk-
ofnsvegar.
Þetta er í stórum dráttum yf
'irlit yfir hraðtorautaframkvæmd
ir, sem við blasa innan borgar-
landsins sjálfs og borgin sjálf
hefur veg og vanda að. Til þess
hinsvegar að þessi gerð aðalum
ferðaæða innan borgarinnar
bomi að fullum notum, þarf að
taka til höndum við gerð hrað-
brauta út úr borginni frá þeim
stöðum, þar sem gatnakerfi
sjálfrar borgarinnar endar-
Þar kemur til framtak ríkis-
valdsins eða vegamálastjórnar-
innar svo og nágrannasveitarfé
laganna að einhverju leyti.
Ég mun nú í stórum dráttum
gera grein fyrir því. hverjar
þessar brautir eru og hvernig
undirbúningi miðar áfram.
1. Vesturlandsvegur á að
liggja 1 beinu framhaldi Miklu
brautar yfir Elliðaár á nýrri
brú og upp Ártúnsbrekku og
mun hann að líkindum liggja
lítið eitt sunnar en núverandi
vegur upp Ártúnsbrekku. Veg-
ur þessi mun síðan liggja um
Mosfellssveit. Gert er ráð fyr-
ir að Vegamálastjórnin byggi
nýja brú yfir Elliðaár og geri
veginn áfram upp Ártúns-
brekku. Þetta er mjög mikilvæg
framkvæmd, því að það er kunn
ara en frá þurfi að segja. að á
þessum stað myndast oft mikil
umferðarteppa, sérstaklega
á sumrin. Á nokkrum
fundum borgarráðs að
undanförnu hefur þessi vegur
sérstaklega verið ræddur í til-
efni viðræðna borgarverkfræð-
ings við vegamálastjóra. Undir-
búningi er nú nokkuð á veg
komið og borgarráð hefur óform
lega fallizt á gerð hinnar nýju
brúar og legu vegarins, en gert
er þó ráð fyrir að það kæmi
endanlega til samþykktar. Vega
málastjóri hefur áhuga á að
gera þetta í sumar, en á þessu
stigi mun erfitt að fullyrða um
það.
2. Hafnarfjarðarvegur í fram
haldi Kringlumýrarbrautar um
Kópavog. Undirbúningi að bygg
ingu þessa vegar mun langt kom
ið, en þessari framkvæmd þarf
að hraða eins og unnt er, svo
slærnt sem ástandið er á núver-
andi vegi.
3- Þá er gert ráð fyrir nýrri
braut, svonefndri Reykjanes-
braut, er liggi í beinu framhaldi
af Elliðavogi, þar sem hann
sker Miklubraut um Blesugróf
og áfram. Á vegum borgarinn-
ar hefur að undanförnu verið
unnið fyrir vegamálastjóra að
lagningu þessa vegar frá Blesu-
gróf að vegamótum Breiðholts-
brautar í sambandi við nýja
byggð í Breiðtoolti. Undirbún-
ingl þessa kafla er nú að miestu
lokið, en þessari vegagerð þarf
að halda áfram í Fífuhvamm og
væri æskilegt að gera þar a.
m. k. bráðabirgðasamband við
Hafnarfjarðarveg til að létta
þungaumferð um Hafnarfjarðar
veginn. ,
4. Suðurlandsvegi framtíðar-
innar er ætlað að liggia frá
vegamótum Fossvogsbrautar og
Reykianestorautar rétt neðan
við Breiðtooltshverfið og þaðan
áfram sunnan Elliðaáa og að
Rauðhólum og áfram um Suður
land-
5. í framhaldi þess vegar,
sem ég gat um áður að koma
ætti úr Sóleyjargötu framhjá
umferðamiðstöð og Loftleiðum
í Fossvogi er gert ráð fyrir Fbss
vogsbraut um Fossvogsdal, er
tengist beint við Suðurlandsveg,
þannig að myndast geti greið-
fær leið að miðfoorginni um
tvær hraðbrautir fyrir þá, sem
koma utan frá borginni.
Hin öra þróun í okkar umferð
armálum gerir það að verkum,
að líklegt er að fliótlega þurfi
að gera tvær síðast nefndu
brautirnar, a.m.k. fljótlega eft-
Framh. á bls. 22
Það hefur nokkrum sinnum
gerzt við guðsþjónustur í Bú-
staðasókn, að presturinn hefur
fengið sér sæti, þegar kom að
prédikuninni, en eitthvert sókn
arbarnanna stigið í stólinn. Nú
á sunnudaginn kemur annast
meðlimir Bræðrafélags sóknar-
innar guðsþjónustuna að öllu
öðru leyti en því, að sóknarprest
urinn lýsir blessun í lokin.
Á sunnudaginn er það Aðal-
steinn Maack, byggingaeftirlits-
maður, sem stígur í stólinn og
prédikar, en flutningur ýmissa
liða er falinn þessum meðlim-
um Bræðrafélagsins: Davíð Kr.
Jenssyni, byggingameistara,
Gísla H. Jóhannssyni, verzlunar-
manni, Jóhanni Bj. Magnússyni,
kaupmanni, Jóni Jónssyni, fiski-
fræðingi og Úlfari Eysteinssyni,
matreiðslumanni.
Við guðsþjónustuna, sem hefst
kl. 2 í Réttarholtsskólanum, fá
Bítloi d ierð
Nýju Delhi 16. febr. AP.
BÍTLARNIR John Lennon'
og George Harrison komu \
flugleiðis til Nýju Delhi íí
1 gær. Konur þeirra eru í fylgd /
I með þeim. Bítlamir héldu ’
rakleitt til bústaðar læri-
meistara þeirra og andlegs j
' leiðarljóss, Maharisihi Mahesh
en ekki er vitað hversu langal
viðdvöl þeir Lennon og Harri-1
son hafa hjá honum að þessu {
sinni.
Ránsmálið í Kaupmannahötn:
íslendingurinn dæmdur í
15 mán. fangelsi
Eínkaskeyti til Mbl. 16. febr.
31 ÁRS íslendingur, Magnús
Jónas Sigurðsson að nafni, hefur
verið dæmdur í borgarréttinum
Athugasemd SIS út af
rannsökn bankanna
MBL. barst í gær eftirfarandi
fréttatilkynning frá Samfoandi
íslenzkra samvinnufélaga:
„Eins og fram hefur komið
hefur Samtoand ísl. samvinnu-
félaga ofreiknað frystihúsum á
sínum vegum fyrir framleiðslu
ársins 1966 til frystihúsanna. Þá
ar Sambandið að taka fram eft-
irfarandi að svo stöddu:
f febrúar mánuði 1967 var á-
kveðið að afreikna framleiðslu
ársns 1966 tl ifrysthúsanna, Þá
voru á vegum Sambandsins ó-
venjumiklar birgðir af freðfiski,
aðallega í Bandaríkjunum.
Sjávarafurðadeild Sambands-
ins og sölufélag þess í Banda-
ríkjunum framkvæmdu mat á
þessum birgðum miðað vð mark
aðshorfur. Þetta mat reyndist of
hátt af tveimur ástæðum fyrst
og fremst:
1. Mikið verðfall á fiskblokk
átti sér stað eftir febrúar 1967,
en við því hafði ekki verið bú-
izt.
2. Mikið og óvænt verðfall
varð á tilbúnum fiskréttum, þeg
ar líða tók á sumarið 1967, sem
ekki hafði heldur verið gert
ráð fyrir.
Þess skal getið, að hinar
miklu birgðír af freðfiski um
áramótin 1966-67 áttu að nokkru
rætur sínar að rekja til þess, að
hin nýja verksmiðja sölufélags-
ins, Iceland Products, var seinna
tilbúin en áætlað hafði verið
og við byrjunarörðugleika var
að etja-
Auk þess höfðu afskipanir
fyrri hluta ársins 1966 tafizt af
óviðráðanlegum orsökum, svo
sem strandi Jökulfellsins, en
það var fná siglingu í um
þriggja mánaða skeið, einmitt
á þeim tíma, sem markaðurinn
var hagstæðastur.
Samfoandið hefur lýst yfir því,
að það taki fulla ábyrgð á
greiðslu fulls skilaverðs til
bankanna".
í Kaupmannahöfn í fimmtán
mánaða fangelsi fyrir aðild sína
að ráni á Valdemarsgötu í Kaup-
mannahöfn hinn 3. janúar sl.
Ránið framdi hann ásamt öðrum
íslendingi, sem nú er í fangelsi
á íslandi fyrir tvær ránárásir á
Vesterbro í Kaupmannahöfn.
Magnús játaði fyrir réttinum
að hafa rænt peningafouddu með
35 dönskum krónum frá manni,
sem félagi hans hefði beint byssu
að inni í porti nokkru. Þegar
dómurinn hafði verið kveðinn
upp óskaði hann eftir því að
mega afplána refsinguna heima
á íslandi. Bón hans var skráð í
réttarbækur og verjandi hans,
Jette Hecht Johansen hóf þegar
viðræður við dönsk og íslenzk
yfirvöld um málið. En það get-
ur tekið sinn tíma að ganga frá
því, þar sem beiðnin verður lík-
legast að fara þá leið, að Magnús
sendi hana til yfirstjórnar ís-
dönsku fangelsanna, sem siðan
senda hana til yfirstjórnar ís-
lenzkra fangelsa.
Enda þótt Magnús hafi aðeins
verið dæmdur fyrir aðild að
ráni, er svo litið á, að dómurinn
sé mildur. Algengt er að rán
séu framin í Kaupmannafoöfn og
eru dómar danskra yfirvalda
fyrir þau yfirleitt harðir, til þess
að þeir verði öðrum tú viðvör-
unar.
Verjandi Magnúsar sagði, að
dómurinn væri eins mildur cg
hugsanlegt væri í Kaupmanna-
höfn. Upphaflega var Magnús
einnig sakaður um að hafa tekið
þátt í ránstoótun við ljósmynd-
ara frá Politiken, sem náði að
taka mynd af félaga toans og kom
þannig upp um hann. En ákæru-
valdið lét niður falla þá ákæru.
— Rytgaard.
Engar eáhyggjur
Washington, 16. febr. AP-NTB
SÍÐASTLIÐINN föstudag varð
varnarliðið á íslandi vart við
fimm rússneskar orrustuflugvél
ar, sem flugu í námunda við
Grænland og nýfundnaland, að
því er segir í frétt frá kana-
díska varnarmálaráðun.eytinu.
Fóru vélarnar næst Nýfundna-
landi í um 100 km fjarlægð áð
ur en þær sveigðu burt-
Taismaður bandaríska land-
varnaráðuneytisins í Waishing-
ton sagði í dag, að alloft komi
fyrir að sovézkar orrustuþotur
fljúgi nærri ströndum Banda-
ríkjanna en þær hafi aldrei
Skert lofthelgi þeirra og því hafi
Bandaríkjamenn ekki haft nein
ar sérstakar áhyggjur af þessu
flugi. Til öryggis voru þó banda
rískar flugvélar af Keflavikur-
flugvelli sendar á eftir sovézku
vélunumi, flugmenn tóku mynd-
ir af þeim, kölluðu þær upp og
mæltust tíl að þær sneru burt.
Danska stjórnin kveðst ekki
hafa neinar upplýsingar. sem
bendi til þess, að sovézkar or-
rustuivélar hafi skert lofthelgi
Grænlands.
- VIETNAM
Framh. af bls. 1
segir að slíkar tölur verði ekki
birtar fyrr en að þeim loknum.
Hinsvegar upplýsti hann að 2
þúsund N-Vietnam hermenn
hefðu fallið í bardögunum um
borgina. Þá hefur talsmaður
flughers Suður Vietnamhers
staðhæft, að sumstaðar í Hue
hafi skæruliðar fundizt hlekkj-
aðir við vopn sín.
Barizt var víða annarsstaðar
í S-Vietnam í dag og loftárásir
gerðar bæði þar og á Nodður
Vietnam.
Alls hafa Bandaríkjamenn nú
misst 800 flugvélar í loftárásum
á Norður Vietnam.
Við Khe Sanh stöðina gerðu
B-52 sprengjuflugvélar loftárásir
á stöðvar skæruliða og N-Viet-
namhers. Hinsvegar var veður
svo slæmt við Khe Sanh í dag
að varpa varð vistum og vopn-
um til bandarísku hermannanna
úr fallhlífum. Var það gert eftir
tækjum, þar sem flugmennirnir
sáu ekki til jarðar og hefur slíkt
ekki gerzt í þessari styrjöld fyrr.
í dag komu tll Vientiane,
höfuborgar Laos þrír banda-
rískir flugmenn, sem stjórn
Norður-Vietnam hefur látfð
lausa. Höfðu þeir verið hand-
teknir í september og október
sl. er flugvélar þeirra voru
skotnar niður. Flugmennirnir
voru afhentir meðlimum banda-
rískra samtaka, sem berjast gegn
stefnu Bandaríkjastjórnar í
Vietnam, prófessor að nafni
Howard Zinn og presti að nafni
Daniel Berriegeng. Haft var eftir
einum flugmannanna David Paul
Matheny, að þeim hefði verið
séð fyrir helztu nauðsynjum
meðan þeir voru í fangelsi.
- 100 ÞUSUND
Framh. af bls. 24
bifreiðastjóra á Hreyfli, og að
ekki skuli hafa tekizt að finna
þann seka.
Vegna þessa atburðar teljum
við nauðsynlegt, að allt það sé
gjört, sem í mannlegu valdi
stendur til að auka öryggi bif-
reiðastjóra í starfi og tryggja
það, að slíkir atburðir endurtaki
sig ekki. Eina tiltækilegustu
leiðina til þess teljum við að
vinna að því, að talstöð verði
sett í allar atvinnubifreiðar, en
vegna hárra tolla á talstöðvum
hefur fjöldi bifreiðastjóra ekki
talið sig hafa efni á því að setja
slíkar stöðvar í bifreiðar sínar
enn sem komið er.
Af þessu tilefni skorar fund-
urinn á stjórn s.f. Hreyfils að
taka mál þetta upp við opinber
stjórnarvöld og vinna að því, að
tollur af talstöðvum, öryggis-
skilrúmum eða öðrum þeim ör-
yggistækjum, sem til greina
koma, verði stórlega lækkaður
til samræmis við toll á sams
konar öryggistækjum til sjávar-
útvegsins."
Ingólfur Þorsteinsson varð-
stjóri hjá rannsóknarlögreglunni
var viðstaddur fundinn og sagði
hann:
,,Ég held, að þetta peninga-
boð, gæti örvað fólk, sem fram
að þessu hefur ef til vill ekki
gert sér grein fyrir því, að það
byggi yfir upplýsingum viðvíkj-
andi þessu máli.
Ég vil enn einu sinni taka það
fram, að með allar upplýsingar,
sem rannsóknarlögreglunni eru
gefnar, er farið með sem trún-
aðarmál."
Þá sýndi stjórn s.f. Hreyfils
fréttamönnum milliskilrúm úr
öryggisgleri, sem komið hefur
verið fyrir í einum stöðvarbíln-
um. Slíkt skilrúm var reynt í
einum bíl fyrir um einu og
hálfu ári.