Morgunblaðið - 17.02.1968, Qupperneq 8
r
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1969
8
PISTLAR
ÚR EYJUM
Veðráttan: Janúarmánuður var
I heild mjög stormasamur og
veðráttan erfið bæði til lands
og sjávar. Árið byrjaði með norð
angarði og frost komst í 12—14
stig, sem er frekar fátítt hér,
og stendur sjaldnast lengi. Sam-
fara þessum veðraham setti nið-
ur talsverðan snjó, og segja má
að snjór hafi verið á jörðu, meira
og minna síðan um áramót, og
mun um langt árabil ekki hafa
sett svo mikin snjó niður sem nú.
Vetur hafa verið undanfarin ár
mjög snjóléttir.
Um mánaðamótin seinustu brá
til betra veðurs, norðan og norð
austan áttar og hefur haldizt
svo síðan.
Gæftir og aflabrögð: Fyrri-
hluta janúarmánaðar var ekkert
róið til fiskjar héðan úr Eyjum.
Eftir að ákveðið var um fisk-
verð um miðjan janúar og grund
Bílstjóri
helzt með meirapróf óskast til að aka einkabíl, einnig
til lagerstarfa. Tilboð með upplýsingum um aldur og
fyrri störf sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 20.
febrúar merkt: „Bílstjóri — 5281“.
Píanóstillingar
Tek að mér píanóstilingar og viðgerðir. Pöntun-
um veitt móttaka í síma 83243 og 15287.
LEIFUR H. MAGNUSSON.
völlur fyrir útgerð var talinn
vera fyrir hendi, 'hófust róðrar.
Sjós'ókn var mjög erfið sökum ó-
gæfta, en veður batnaði er dró
að mánaðamótum, og seinasta
hálfan mánuðinn þ.e., það sem
af er febrúar hafa verið góðar
gæftir og línubátar geta róið
samfleitt í 2 vikur. Aflabrögð
á línu, hafa verið eftir atvikum,
venjulega 4—9 lestir á bát í
róðri. Meira eigum við nú ekki
að venjast á þetta veiðarfæri.
Meirihluti aflans hefur verið
langa. Athygli hefur þó vakið
að meira er nú í aflanum af
ýsu og þorski, heldur en á und-
anförnum árum. Þykir það spá
góðu um aflabrögð í vetur.
Bátar þeir sem fyrirhugað er
að stundi togveiðar í veturbyrj
uðu yfirleitt ekki veiðar fyrr
heldur en um seinustu mánaða-
mót. Afli þeirra hefur verið ákaf
lega rýr. Varla nokkur bátur
fengið viðbragð. Annars er afla
hjá togbátum varla að vænta
ÍR-ingar, skíðafólk.
Dvalið verður í skálanum
um helgina. Lyftan verður í
gangL Veitingar eru seldar í
skálanum. Væntanlegir nætur
gestir eru vinsamlega beðnir
að tilkynna þátttöku í síma
36304 á föstudagskvöld. Á
sunnudag kl. 1 fer Hamragils-
mótið fram við skálann. Ferð-
ir verða frá Félagsheimili
Kópavogs kl. 1,30 og frá Um-
ferðarmiðstöðinni kl. 2 á laug
ardag og kl. 10 f. h. á sunnu-
dag. — Stjórnin.
fyrr heldur en loðnan er gengin,
og hennar er varla að vænta,
úr þessu, fyrr heldur en í byrj-
un marz.
Útgerð: Svipaður fjöldi báta
mun verða gerður út frá Eyjum
í ár og var á s.l. ári. Eftir því
sem næst verður komizt verða
bátarnir 74 að tölu til. Af þess-
um bátafjölda munu 57 stunda
togveiðar, þar af 40 að stað-
aldri út vertíðina. Hluti af tog-
veiðiflotanum mun er á vertíð
líður taka til við neta- eða nóta-
veiði. Línuveiðar stunda eins og
er 12 bátar, en þeir munu svo
er á vertíð líður taka upp veið-
ar í net, en gert er ráð fyrir
að 23 bátar munu stunda neta-
veiði um það er lýkur. Um veið-
ar 1 þorsk- og loðnunót er ekki
vitað með vissu, er hald manna
er að þessar veiðar stundi um 10
bátar. Athyglisvert er að, þátt-
taka í togveiðum fer vaxandi éir
frá ári. Er það að vonum. Kostn
aður við þessar veiðar er mun
minni heldur við t.d., línu og net.
Þar sem veiðarfærakostnaðurinn
er mun minni. Við togveiðarmá
komast af með færri skipverja,
minna fjármagn en bundið í veið
arfærum og svo mætti lengi telja.
Annars er vertíðin að komast
í fullan gang og í dag 12. febrúar
eru 55 bátar byrjaðir veiðar.
Templarahöllin: Fyrir um það
bil tveim tugum ára, hófu bind-
indismenn hér í Eyjum byggingu
á stórhýsi fyrir starfsemi sína.
Af ýmsum ástæðum gátu templ-
arar ekki lokið við smíði þessa
húss. Stóð húsið hálfklárað og
ónotað um árabil. Komst svo hús
ið fyrir nokkru í eigu bæjar-
félagsins og var þá ákveðið að
gera þetta hús að samastað fyrir
hin ýmsu félög er starfa að
menningar- íþrótta- @g æskulýðs
málvm. Segja má að þetta verk
hafi sótzt heldur seint, og mikið
verk er ennþá óunnið þar til
þetta hús er fullgert. Þó er svo
komið að húsið er að komast í
gagnið — a.m.k. að hluta.
Skátafélagið Faxi, sem verið
hefur á hrakhólum með húsnæði
fyrir starfsemi sína, fékk hluta
af húsnæði í Templarahöllinni
til afnota. Húsnæði þetta þurfti
þegar skátarnir fengu það til
ráðstöfunar, mikilla endurbóta
við, svo nothæft gæti talist. BÆJ
arfélagið gat ekki vegna fjárhags
örðugleika liðsinnt skátunum sen
skyldi. Gripu þá skátarnir til
þess að leggja sjálfir fram vinnu
til þess að koma húsnæðinu í
nothæft ástand. Var að þessu
gengið af miklum dugnaði og
myndarskap, og með þeim ár-
angri að þeir buðu nokkrum
gestum til vígsluhátíðar þessa
húsnæðis síns fyrir liðlega viku.
Er skátarnir fyrstu félagasam-
tökin er flytja inn í þetta vænt-
anlega félagsheimili Vestmanna-
eyja.
Þessi vígzluhátíð skátanna var
sérlega ánægjuleg. Kom fram að
um 300 félagar eru nú innan
Skátahreyfingarinnar, og þaraf
um 200 virkir, að því er Halldór
Guðmundsson, skátaforingi sagði
mér. Er það ekki lítils virði fyr-
ir bæjarfélagið að innan þess
skuli vera starfandi svo þrótt-
mikil félagssamtök æskufólks
sem þessi, sem alla starfsemi sína
miða við að gera sem hæfasta
og bezta þegna úr upprennandi
æsku. Bj. Guðm.
Þessar
2/o, 3/o, 4ra og 5
herbergja íbúðir
á einum tegursta stað í
Breiðholtshverfinu, eru til sölu.
íbúðir þessar eru seldar tilbúnar
undir tréverk og málningu, ásamt
sameign frágenginni og eru
tilbúnar til afhendingar á
miðju sumri komanda.
Lóð verður frágengin samkvœmt
ákvörðun borgarverkfrœðings.
Söluverð þessara íbúða
er mjög sanngjarnt
Ath. að lánsumsóknir til
Húsnœðismálastjórnar þurfa
að hafa borizt fyrir 15 marz n.k.
'Hr sto a □n o iP a Þ
zo cn- □1 3 830 □
«.>12
Fasteignasalan Hátúni 4a
Símar 21870 — 20998.
Til sölu
15 tonna Bantam bílkrani og Ingersoll-Rand
Giroflow loftpressa 250 cub.fet.
Upplýsingar í síma 21131 og 21359, Akureyri.
Stúlka óskast
á heimili Þórarins Olgeirssonar í Grimsby. Yngri
en 18 ára koma ekki til greina.
Upplýsingar í Bankastræti 14, uppi.
Barnaskemmtun
í Austurbæjarbíói á morgun,
sunnudag, kl. 1.30.
Kátir krakkar,
Baldur og Konni,
Alli Rúts,
Drengjahljómsveitin
Stjörnur,
Ketill Larsen o. fl.
Aðgöngumiðar seldir í Aust-
urbæjarbíói í dag frá kl. 4.