Morgunblaðið - 17.02.1968, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1968
um þessa ógnun. Því eruð þér
svo vissar um að maður yðar...?
— Viss um, hrópaði hún. Ég
veit það blátt áfram. Hann vill
losna við mig, því hann hefur
fundið stelpu, sem hann vill gift-
ast.
— En það gefur honum ekki
ástæðu til þess að vilja myrða
yður.
Nú var hann búinn að fá slæm
an verk í hnakkann. Hann var
orðinn 59 ára gamall, og hafði
aðeins sofið með höppum og
glöppum síðustu dægrin. Allur
líkaminn var dauðaþreyttur.
Bara að hann gæti teygt úr sér
á legubekk, og blundað ofurlít-
ið. Hann hafði megnustu skömm
á þessum kvenmanni, en var far-
inn að hugsa hlýlega til manns-
ins hennar.
Frú Halmy fann áhugaleysi
hans. Hún hallaði sér áfram og
horfði beint í augu hans, í því
skyni að vekja áhuga hans á
erindinu.
— Maðurinn minn sagði við
mig að hann væri leiður yfir
því að við hefðum yfirleitt gifzt.
Að hann harmaði að hafa ekki
hlustað betur á orð móður sinn-
ar. Hún hataði mig nefnilega.
17. FEBRÚAR.
Hrúturinn 21. marz — 20. apríl.
Þú átt skilið a'ð hvíla þig vel í dag eftir
erfiði og eril að undanförnu. Skemmtu þér
í kvöld, en ekki fram á nótt.
Nautið 21. apríl — 21. maí.
Annríki dagsins verður meira en þú hafir
ráð fyrir gert. Fréttir færðu góðar og ef til
vill óvæntar.
Tvíburarnir 22. maí — 21. júní.
Góður dagur til að kaupa eða selja fast-
eign. Vertu ekki of einsýnn í pólitík. At-
hugaðu fjárráð þín fyrir helgina.
Krabbinn 22. júní — 23. júlí.
Þig langar til þess eins og að hafa það
rólegt í dag. Reyndu samt að herða þig upp
og ljúka af skylduverkum.
Ljónið 24. júlí — 23. ágúst.
Hittu ástvini að máli og sýndu þeim góð-
veitingahúsið
vild, þeim mun þykja vænt um hugulsemi
þína. Hvíldu þig vel.
Jómfrúin 24. ágúst — 23. september.
Þú ert heldur mislyndur í dag og freisting
in er sterk til alls kyns óráðsíu. Vertu hag-
sýnn og raunsær.
Vogin 24. september — 23. október.
Taktu daginn snemma og verzlaðu fyrir
helgina. Færðu maka þínum og börnum
óvæntar smágjafir.
Drekinn 24. október — 22. nóvember.
Safnaðu saman vinum þínum og rifjaðu
upp gamlar samverustundir með þeim.
Farðu ekki í ferðalög í dag.
Bogmaðurinn 23. nóvember — 21. desember.
Gáleysislegt tal kemur þér í koll í dag.
Reyndu að sjá líf þitt í nýju ljósi. Farðu
snemma í háttinn.
Steingeitin 22. desember — 20. janúar.
Nöldur þitt verður oft og tfðum óþolandi
fyrir þína nánustu. Reyndu að setja þig í
þeirra spor og vera skipstilltari.
Vatnsberinn 21. janúar — 19. febrúar.
Það þýðir ekkert að gráta það sem liðið
er. Horfðu fram á við og vertu bjartsýnn
þrátt fyrir allt. Vertu þagmælskur.
Fiskarnir 20. febrúar — 20. marz.
Þú lendir í peningavandræðum í dag,
úr þeim mun rætast á óvæntan hátt.
en
ASKUR
BÝÐUR
YÐUR
HELGARMATINN
i handhœgum umbúðum til að táka
HEIM
GRILLAÐA KJÚKLINGA
ROAST BEEF
GLÓÐARSTEIKT LAMB
GLÓÐARSTEIKT NAUTAFILLÉ
gix)ðarst. grísakótelettur
HAM BORGARA
Gleðjið frúna —
fjölskylduna — vinina
— njótið
hinna Ijúffengu rétta
heima í stofujðar.
Efþér óskið
getið þér hringt og pantað -
við sendum leigubíl
með réttina heim
tiljðar.
A SICU R matreiðir fyrir yður
alla daga vilcunnar
SuðurlamUbmut 14 sími 38550
Nú er hann hættur að vera Napoleon, læknir, — nú heldur hann
að hann sé de Gaulle.
— Hversvegna? Nemetz var að
vona að hljómurinn í hans eigin
rödd svipti af honum þeim svefn
höfga sem var alveg að yfir-
buga hann.
— Ég var ekki nógu góð handa
honum. Ég átti enga peninga.
Við giftumst 1945, rétt eftir stríð-
ið. Þá skipti það enn nokkru
2
máli hvort maður var ríkur eða
fátækur. Nú má það einu gilda,
bætti hún við með stuttum hlátri.
— Nú erum við komin út fyrir
efnið, sagði Nemetz. Snúum okk-
ur að dr. Halmy og ógnunum
hans. Hvað sagði hann alveg ná-
kvæmlega?
Brosi sjálfsánægju brá fyrir
í andliti hennar.
— Jú, sjáið þér til, hann vill
stinga af með stelpunni. Flýja
til Vesturlanda. Hann sagði það
að vísu ekki við mig, en ég
fann það út, og sagði það við
hann. Ennfremur að ég vildi
ekki sleppa honum. Það yrði þá
að mér dauðri, sagði ég.
— Já, þér sögðuð þetta við
hann. En hvað sagði hann við
yður?
— Ég get ekki munað orðin.
En hvað sem því líður gerði ég
honum það ljóst að hann gæti
ekki stungið af, svona uppúr
þurru. Ég er þó konan hans.
Við höfum verið gift í ellefu
ár. Lögin eru mín megin. Hvað
um það ef allir eiginmenn hlypu
út í buskann, bara fyrir það
að bylting er í landinu, og landa-
mærin eru opin? Ég sagði við
hann að ég skyldi sjá um að
hann kæmist hvergi. Þá var þáð
sem hann sagði að hann mundi
myrða mig. Skjóta mig. Hann á
byssu. Ég veit það vel. Ég hef
séð hana með eigin augum. Má
ég spyrja hr. .. Hvað hefur slík-
ur maður að gera með byssu?
Nemetz stóð á fætur. Til þess
var hann neyddur, ef hann átti
ekki að velta útaf.
— Kæra frú Halmy. Tólf ára
Husqvarna - eldavélasett
Utborgun Kr. 3000.00.
Mánaðarlega Kr. 3000.00.
VÖRUMARKAÐURINN,
Ármúla 1 A.
GRAFVELAR
TIL SÖLU
38RB 1% yd Ruston Bucyrus GRAFVEL serial 17993
knúin 6VPHN Ruston díselvél, á standard beltum
en yfirstærð af skóm (33 in.) Víraútbúnaður, 45 feta
bóma (10 ft og 15 ft jib framlengingar einnig fáan-
legar). Yfirfarinn beltaút.búnaður.
VERÐ £8.500 F.O.B. Hull.
54RB 2% yd Ruston Bucyrus grafvél seriel 33368
með 6RPHN Pacman dísilvél — löng og breið belti.
Víraútbúnaður. Yfirfarinn beltaútbúnaður.
VERÐ £11.500 F.O.B. Hull.
19RB 5/8 yd Ruston Bucyrus grafvél 23.500 serial
með Ruston dísilvél, standard beltum og víraútbún-
aði. Yfirfarinn.
VERÐ £3.875 F.O.B. Hull.
Þetta eru aðeins fáar vélar af okkar fjölbreytta úr-
vali af þungavinnuvélum. Ennfremur fyrirliggjandi
á lager:
RAFSTÖÐVAR, VÉLAVERKFÆRI, VOKVAPRESS-
UR, ALLSKONAR IÐNAÐARVELAR, VORU-
LYFTARAR og FLUTNINGARTÆKI.
Hafið samband við:
GLOBUS HF.
Lágmúla 5, Reykjavík, sími 81555 e,a
GEORGE COHEN MACHINERY LTD.,
London W. 12, England. Símnefni Omniplant London.