Morgunblaðið - 17.02.1968, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 196«
19 af 53 keppendum bættu
Olympíumet en Verkerk vann
— Barátta um sekúndubrot
í 1500 metra skautahlaupi
„HOLLENDINGURINN fljúg-
andi“ er hann gjarna kallaður,
sá er heitir Kees Verkerk. í gær
reyndist hann sannarlega fljúg-
andi í Grenoble. Enginn fékk
staðist hraða hans og fínheit í
1500 m hlaupi á skautum! Hann
fékk örlitla bót fyrir það að
Fred A. Meyer hrifsaði af hon-
um Olympíumet og heimsmet á
síðustu stundu í 5 km. hlaupinu
í fyrradag. Tími hans í gær
2:03.4 er hálfri sekúndu betri en
staðfest heimsmet hans á vega-
lengdinni, en tími Norðmanns-
ins Thomassens 2:02.5 bíður stað
festingar.
Keppnin var afar hörð og 19
af 53 keppendum bættu Olym-
píumetið sem sett var á síðustu
leikum fyrir 4 árum.
Öiium fannst sem Kees Ver
kerk ætti gullverðlaunin skil
ið. — Hann hefur veitt Norð-
mönnum hörðustu keppni í
lengri vegalengdum, var t.d.
„rændur“ gulli í fyrradag á
síðustu stundu eftir að hafa
bætt OL-metið um 14 sekúnd
ur og sett heimsmet.
í 1500 m hlaupinu var hann
í sérflokki. Hann var hálfri
annarri sekúndu á undan
landa sínum Ard Shenk (fyrr
um heimsmeistara) og slíkur
tímamunur þykir mikill í
skautahlaupi.
Það voru margir sem tilraun
gerðu til að hnekkja tíma Ver-
kerks, en engum tókst það.
Næst komust þeir Ivar Eriksen
og Magne Thomassen Noregi, en
hann er nýbakaður heimsmet-
hafi á vegalengdinni mieð 2:02.5
mín.
Það er erfitt fyrir Rússa að
Norsku stulkurnar
unnu enn eitt gull
— Kom á óvœnt en skipaði Noregi efst
á verðlauna- og stigalista
„ÉG viðurkenni, að ég átti í
stríði við sjálfan mig að láta
tárin ekki renna eins og þau
vildu“, sagði formaður norska
skíðasambandsins, eftir að
norsku stúlkurnar höfðu unnið
3x5 km boðgöngu kvenna í gær í
Autrans, skammt frá Grenobie.
Norsku stúlkurnar höfðu gengið
hraðar en nokkur hafði þorað að
vona. Sigurinn hékk lengi vel á
bláþræði, en varð um það er
lauk allöruggur eða 21 sekúnda
á milli sveitar Svía sem næst
kom.
Inger Aufles tók forystu fyrir
Noreg á fyrsta spretti og það
svo duglega, að aðrar sveitir áttu
ekki sigurvon eftir það.
Að vísu voru Norðmenn ugg-
andi meðan Toni Gustafsson var
í brautinni fyrir Svía — tvö-
faldur gullverðlaunáhafi í
kvennagöngu. — Hún saxaði á
forskot N'orðmanna, en tókst þó
ekki að ógna sigrinum.
Höfðu Norðmenn sparað Berit
Mördre til lokasprettsins og eng
inn gat ógnað henni og Ihafði
hún einnig 16 sek forskot er hún
hóf gönguna — og jók þá enn á
sigur Noregs.
Gangan varð nokkurskonar
sekúndustrið eins og úrslitalistanum: sjá má á
1. Noregur 57:30.0
2. Sví'þjóð 57:51.0
3. Scrvét 58:13.6
4. Finnland 58:45.1
5. Pólland 59:32.9
6. Austur-Þýzkaland 59:33.9
hugsa til baka er þeir unnu verð-
launapeninga eins og á færi-
bandi í skautáhlaupi. I ár er
uppskera þeirra til þessa fjórða
sæti Grisjins í 500 m. hlaupi.
Úrsiit í 1500 m hlaupi:
1. Kees Verkerk, Holland 2:03.4
2. ívar Eriksen, Sv’ílþjóð
og Ard Shenk, Holland, 2.05.0
4. M. Thomassen, Noregi, 2:05.1
5. B. Tveter, Noregi,
og J. Höglin, S’VÍþjóð, 2:05.2
Q$£P
NOREGUR hefur enn forystu'
1 í stigum og verðlaunum eftir \
að 27 keppnisgreinum er lok-
ið í Grenoble. Norðmenn j
hlutu í gær gullverðlaun og ]
silfurverðlaun og samtals 16'
stig. Sovétríkin eru 6 stigum/
eftir Norðmönnum í hinni*
, óopinberu stigakeppni.
Eftir að keppni var lokið í'
skiðagreinum á fimmtudag-
inn var skipting verðlauna ál
, Grenoble-leikunum þannig:
Noregur
Sovét
Holiand
Frakkland
ítalia
I V-Þýzkaland
Svíþjóð
I Austurríki
Bandaríkin
| Finnland
”Kanada
Tékkóslóvakía
Sviss
' A-Þýzkaland
Rúmenía
5
3
3
3
3
2
2
2
1
1
1
1
0
0
0
5
4
3
3
0
2
2
1
4
2
1
0
2
2
0
1{
3 {
3 {
1|
0
2 (
2
3
1!
2
o!
1,(
2 (
2 1
11
Stig efstu þjóðanna eru:
Noregur 79, Sovét 73, Hol- j
, land 51.5, Frakkland 51,
Finnland 49.5, Austurríki 49,
Sviþjóð 45.5, Bandaríkin 36.5,
V-Þýzkaland 34, Ítalía 27.
Ramsey velur 16 menn
London, 14. felbrúar.
Sir Alf Ramsey stjórnandi enska
landsliðsins í knattspyrnu valdi
í dag 16 leikmenn, sem til greina
koma í landslið Englendinga
gegn Skotum í landsleiknum í
Glasgow laugardaginn 24. febrú-
ar. Þessir 16 leikmenn eru: Mark
verðir: Banks (Stoke City) og
Bonetti (Chelsea). Bakverðir:
Knowles (Tottenham), Newton
(Blackburn Rovers) og Wöson
(Everton). Framverðir: Jackie
Charlton (Leeds Utd.), Hunter
(Leeös Utd.), Labone (Everton),
Moore (West Ham Utd.) og
Mullery (Tottenham). Framherj
ar: Ball (Everton), Bobby Charl
ton (Manch.ester Utd.), Hunt
(Liverpool), Hurst og Peters
(West Ham Utd.) og Summer-
bee (Manehester City).
Ramsey hefur greinilega valið
reynda leikmenn enn einu sinni,
því hann sniðgengur framiherja
eins og Peter Osgood (Chelsea)
og Rodney Marsh (Q.P.R.) sem
báðir eru einleikssnillingar og
varnarmenn eins og Stephenson
(Crystal Palace) og Smith (Liv-
erpcol). Þessi landsleikur er af
mörgum talinn sá þýðingarmesti
sem þes'sar brezku þjóðir hafa
háð síðan þeir hófust árið 1872.
Ber eitt til. Þessi landslið eru
nú ekki einungis að keppa um
meistaratign Bretlandseyja, held
ur er þessi leikur liður í Evrópu-
keppni landsliða þar sem keppt
er um titilinn „Bezta knatt-
spyrnuland Evrópu". England
stendur aðeins betur að vígi, því
þeir ’hafa eitt stig umfram Sk'ot-
land og aðeins þessi eini leikur
eftir í Bretlandskeppninni. Eng-
lendingar þurfa því „aðeins“ að
gera jafntefli í þessum leik til að
komast í 8 landa úrslit. Það virð
ist þó erfitt fyrir Englendinga
að sigra Skota á Hampden Park,-
því S’kotar eru eina þjóðin sem
hefur sigrað England síðan þeir
unnu heimsmeistaratitilinn sum-
arið 191©3.
Oskar og Reynir
sigruðis á
Á OPNU badmintonmóti sem
K.R. hélt laugardaginn 10.
febrúar í K.R.-húsinu fóru leik-
ar þannig að í úrslitum sigruðu
Óskar Guðmundsson og Reynir
Þorsteinsson þá Jón Árnason og
Viðar Guðjónsson í meistarafl.
karla, í fyrri leiknum sigruðu
Óskar og Reynir nokkuð auð-
veldlega með 15—8, en sfðari
leikurinn var jafnari og mikil
spenna þegar liðin voru jöfn á
14—14. Var þá framlengt upp í
17. Leikurinn endaði svo 17—14
fyrir þá Óskar og Reyni. í 1.
flokki var keppnin mjög jöfn
QPR — Chrystal
Palace í dag
LEIKURINN í íslenzka sjónvarp
inu í dag verður milli Queen
Park Rangers og Crystal Palace.
QPR er efst í 2. deild og hefur
ekki tapað leik síðan löngu fyr-
ir jól. Rodney Marsh, miðherji
QPR, en hann lék í landliði Eng-
lendinga (undir 28 ára) gegn
Skoturn á dögunum ásamt mið-
verðinum Stephenson (Crystal
Palace), en þeir eiga einmitt
skemimtilega viðureign í leikn-
um i dag.
KR móti
og skemmtileg frá upphafi til
enda. Hörður Ragnarsson og Jó-
hannes Guðjónsson frá Akra-
nesi sigruðu fyrst þá Ormar
Skeggjason og Örn Ingólfsson
úr Val með 15—6, 4—15 og 15—7
og þar næst þá Harald Korni-
líusson og Finnþjörn Finnbjörns
son með 15—10 og 15—12.
í hinum riðlinum sigruðu
þeir Adolf Guðm. og Jóhann
Muller þá Björn Árnason og
Ásgeir Þorvaldsson með 15—14,
4—15 og 18—14, og síðan þá
Guðmund Jónsson og Hilmar
Steingrímsson með 9—15, 15—8
og 17—-15. Eins og sjá má hefur
þurft aukaleik í þessum leikj-
um flestum og eins var með úr-
slitin. Þar sigrúðu hinir ungu og
efnilegu leikmenn frá Akranesi
þá Adolf Guðmundsson og Jó-
hann Muller úr T.B.R. með
16—17, 15—13 og 15—6.
Nú var það reynt í fyrsta sinn
hér á landi í badmintonmóti, að
allir leikir voru tímasettir fyrir
fram í sérstakri leikskrá, en sá
háttur tíðkast erlendis á badmin
tonmóíum til hagræðis fyrir
keppendur og starfsmenn.
Reyndist þetta fyrirkomulag
mjög vel og fór mótið vel og
skipulega fram.
Mótstjóri var Sveinn Björns-
son.
- HRAÐA BER
Framhald af bls. 2.
ir að framkvæmidum við Vest-
urlandsveg og Hafnarfjarðarveg
lýkur,
Ég hef í stórum dráttum gert
grein fyrir þeim helztu umferð
arleiðúm að og úr borginni, sem
aðals'kipuilagið gerir ráð fyrir
ognauðsynlegt er að vinna að í
náinni framtíð. Þessar fram-
kvæmdir hvíla fyrst og fremst
á herðum vegamálastjórnarinn
ar og að einhverju leyti ná-
grannasveitarfélögunum, eins
og ég sagði áður- Borgarverk-
fræðingur hefur fylgst með
þessu máli og átt gott samstarf
við vegamálastjóra, en það er
álitt okfkar, sem flytjuim þessa
tillögu, að nauðsyn sé á því að
borgarstjórn Reykjavíkur af-
marki skýrt vilja sinn um það
að framkvæmdum þessum verði
hraðað sem mest. Eg efast ekk-
ert um góðan vilja þeirra, sem
mieð framkvæmdir þessar hafa
að gera af hálfu ríkisins, en við
vitum það öll, hvar í flokki,
sem við stöndum, að það er á-
vallt innan allra stjórnmála-
tflokka tilhneiging til að togast
á um það fé, sem ætlað er til
vegagerðar. Þessi reipdráttur
fer fram á milli einstakra kjör
diæma eða einstakra landshluta.
Framkvæmdir þessar, sem ég
hef fjallað um hér, eru hinsveg-
ar orðnar svo brýnt hagsmuna-
mál Reykvíkinga, að nauðsyn
ber til að markviss og glöggur
vilji borgarstjórnar komi fram
í þessu efni.
Að ræðu Birgis fsl. Gunnars-
sonar lokinni kvaddi sér hljóðs
Einar Ágústsson. Skýrði hann
frá því í upphafi, að hann hefði
í hyggju að leggja fram tillögu,
er falið hetfði í sér áskorun um
að hraða sem mest byggingu
nýrrar brúar yfir Elliðaár og
hefði riaunar lagt hana fram, en
degið hana til baka eftir viðtöl
við borgarverkfræðing og vega-
málastjóra. Þá ræddi Einar til-
lögu Sjálfstæðismanna og bar
fram viðaukatillögu, þess efnis,
að sfcorað var á ríkisstjórn og
Aliþingi að lláta sem mestan
'hluta tekna af umferðinrii
renna til vegamála-
Birgir ísl. Gunnarsson svar-
aði Einari og kvaðst sammála
um nauðsyn þess að fá aukið
fé til vegagerðar og lagði tiL
að viðaukatillaga Einars Ágústs
sonar orðaðist á þá leið, að borg
arstjórn teldi nauðsyn bera til
að auka tekjustofna til vega-
gerðar. ,
Auk þess tóku til máls Geir
Hallgrímsson, Kristján Guð-
mundsson, Sigurjón Björnsson,
Guðmundur Vigfússon, Jón
Snorri Þorleitfsson og Óskar
Hallgrímsson. Var tillögunum
vísað til borgarráðs til umsagn
ar milli umræðna.