Morgunblaðið - 17.02.1968, Side 24
Laugavegi % - Sími 19565
LAUGARDAGUR 17. FEBRUAR 1968
IHJARTA eORGABINNAR
ALMENNAR TRYGGINGAR þ
Rithöfundalél.
íslunds mót-
mæiir frelsis
skerðingu í (
Sovétríkjunum
Á FUNDI í Rithöfundafélagi
Islands 28- janúar sl. var sam
þykkt eftirfarandi ályktun:
„Fundur í Rithöfundafélagi
Islands 28. janúar 1968 for-
daemir skerðingu ritfrelsis
og málfrelsis í Sovétríkjun-
um, sem nýlegir dómar yfir
ungum rithöfundum þar
vitna um, og vonar að stjórn
arvöld Sovétríkjanna endur-
skoði afstöðu sína".
— til 6 mánaða vegna fjclskylduásfœðna
Hreindýr að falli
komin eystra
Skýrt frá ákvörðun s.f. Hreyfils og bílstjóranna á blaðamannafundinum í gær. Frá vinstri:
Ingjaldur tsaksson, form. s.f. Hreyfils, Stefán O. Magnússon, frkvstj félagsins og Ingimund-
ur Ingimundarson, varaformaður þess.
100 þús. til höfuðs morðingjanum
SAMVINNUFELAGIÐ Hreyfill
og bílstjórar á stöð félagsins
hafa lagt fram eitt hundrað þús-
und krónur til höfuðs morðingja
Gunnars Tryggvasonar. Er þetta
í fyrsta sinn, sem fé er lagt
fram til höfuðs afbrotamanni á
íslandi, en erlendis er mjög al-
gengt að svo sé gert.
Stjórn Samvinnufél. Hreyfils
boðaði fréttamenn á sinn fund í
gær og birti þeim eftirfarandi
tilkynningar:
„Samvinnufélagið Hreyfill og
bifreiðastjórar á stöð félagsins
hafa ákveðið að greiða kr. 100.
000. — eitt hundrað þúsund
krónur —■, þeim er upplýsingar
gefur sem leiða til þess að upp-
lýst verði hver myrti Gunnar
Tryggvason bifreiðastjóra á
Hreyfli."
„Aðalfundur s.f. Hreyfils, hald
inn 6. febr. 1968, harmar hin
hryllilegu atvik í sambandi við
dauða Gunnars Tryggvasonar,
Framh. á bls. 2
Egilsstöðum 16. febrúar,-
MJÖG alvarlegt ástand er hjá
hreindýrum þeim sem eru hér
um slóðir, og er mestur hluti
þeirra mjög illa haldinn.
í gærkvöldi rakst ég t.d. á
4 hreindýr í svokölluðum Hraun-
dal á snjóbílsleið til Borgarfjarð-
ar eystri og ókum við alveg að
þeim, en þau varla hreifðu sig
burtu og var mjög af þeim
dregið. Hreindýr eru svona á sig
komin um allt úthéraðið og það
hefur verið haglaust 'hér í lengri
tíma. Bóndinn í Hnefilsdal á
Jökuldal s'kírði svo frá að hrafn-
ar hefðu rá’ðizt á hreindýr sem
voru við bæinn og var eitt þeirra
ósjálfbjarga. Ástandið er sem
sagt mjög slæmt. Ef ekki er bægt
að gera eitthvað til þess að
bjarga hreindýrunum, er eina
ráðið að skjóta þau hreinlega
áður en þau drepast úr hor. I>að
er hryllilegt að ’horfa á þetta
svona og það hlýtur einhver að
bera ábyrgð á þessu. Ég tel
ástæðuna fyrir því að hreindýrin
koma svona mikið niður í hérað,
vera þá, að síðan hreindýrin
voru friðuð eru þau síður mann-
fælnari og sækja frekar nær
mannatoygigðum og fara þá frá
sæmilegum högum uppi á heiðum
en þar er miklu fremur sæmi-
legur haigi heldur en niðri á
láglendinu. H.
Vb. Trausti frá Súðavík talinn af
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
fól í gær lögreglustjóranum í
Reykjavik, að veita Bandaríkja
manninum George Markham
Noell landvistarleyfi á Islandi
til sex mánaða vegna fjöl-
skylduástæðna, en Noell er
kvæntur íslenzkri konu.
I\linningar-
athöfn í
Bolungarvík
á morgun
Á MORGUN, sunnudag, fer
fram minningarathöfn í Hóls-
kirkju í Bolungarvík um sjó-
mennina, sem fórust með Heið-
rúnu II. aðfaranótt 5. febrúar
sl. Séra Þorbergur Kristjánsson
sóknarprestur mun flytja minn
ingarræðu, en kór kirkjunnar
syngur.
George Markham Noell gegndi
herþjónustu í Kailiforníu, þegar
honum barst tilkynning um það,
að senda ætti hann til Viet-
Nam- Tók þá Noell á'kvörð-
un um að flýja og komst yfir
landiamiærin til Kanada, en það
an fór hann til New York, þar
sem hann komst í Loftleiðaflug
vél, er flutti hann og konu hans
til íslands.
Með honum fórust 4 menn
VÉLBÁTURINN Trausti f. S. 54
frá Súðavík er nú talinn af og
leit hætt. Með m.b. Trausta fór-
ust fjórir menn: Jón Magnússon,
skipstjóri, frá ísafirði, 36 ára,
ókvæntur, en lætur eftir sig
eitt barn. Jón Ólafsson, stýri-
maður, frá Garðstöðum í Ögur-
hreppi, 33 ára, ókvæntur og
barnlaus. Halldór Rúnar Júlíus-
Bandaríkjamanninum
veitt landvistarleyfi
son, vélstjóri frá Súðavík 30 ára,
lætur eftir sig konu og sex börn.
Eðvarð Guðleifsson, matsveinn,
frá Súðavík, 45 ára, ókvæntur
og barnlaus.
V/b. Trausti, sem var 40 lesta
trébátur, fór í róður frá Súða-
vík á mánudagskvöld. Milli
klukkan 16:30 og 17:00 á þriðju-
dag hafði m/b Guðný frá ísa-
firði samband við bátinn og var
hann þá hættur að draga og á
leið í land. Að öllu eðlilegu
hefði báturinn átt að koma að
landi um klukkan 23:00 á þriðju
dagskvöld.
Veður fór versnandi á miðun-
um fram eftir kvöldi og þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir náðist
ekkert samband við v/b Trausta.
Leit að bátnum var hafin þegar
um klukkan 21:00 á þriðjudags-
kvöld og var leitað bæði úr
! lofti og á sjó og landi þar til
í gær. Um fimmtíu bátar og skip
tóku þátt í leitinni, einnig tvær
flugvélar, SIF, flugvél Landhelg
isgæzlunnar, og flugvél Björns
Pálssonar. Þá tóku hundruð
manna þátt í leitinni á landi.
Þessi umfangsmikla leit bar
| engan árangur og í gær var v/b
i Trausti talinn af.
Bað Noell um hæli á íslandi
sem pólitiskur flóttamaður og
gaf þá ástœðu, að hann værj
andvígur stefnu Bandaríkja-
stjórnar í Viet Nam. Þau hjónin
komu til íslands 28. janúar sl.
Ven j'ul e gur la n dv is ta rleyf is -
tími, sem veittur er á íslandi er
sex miánuðir, en að þeim tóma
liðnum verður að sækja um
framlengingu á landvistarleyf-
inu-
Útlendingar, sem giftir eru
íslenzkum ríkisborgurum, geta
öðlast íslenzkan ríkisborgara-
rétt að þremur árum liðnum,
en annars að fimm eða tóu ár-
um liðnum.
rrá viðræðufundinum í gær.
ViÍræSufundur ASl og
samtaka vinnuveitenda
i FYRSTI viðræðufundur A.S.Í.
og samtaka vinnuveitenda var
haldinn í gær. Af hálfu viðræðu
nefndar A.S.f. var gerð grein
fyrir kröfu verkalýðsfélaganna
um fullar vísitölubætur á kaup
frá og með 1. marz n.k. Var
krafa þessi rædd á fundinum og
ákveðið að halda næsta viðræðu
fund n.k. miðvikudag. Stjórnar-
fundir hafa verið boðaðir í sam-
tökum vinnuveitenda á þriðju-
dag.
Hér fer á eftir fréttatilkynn-
ing A.S.Í.:
„Með ályktun þeirri um kjara-
mál, sem samþykkt var einróma
á 30. þingi sambandsins, sem
lauk störfum 1. þ.m. var megin-
áherzla lögð á að verkalýðssam-
tökin einbeittu afli sínu að því
verkefni að tryggja fullar vísi-
tölubætur á kaup. Lík samþykkt
var gerð á þingi Verkamannasam
bands íslands, sem haldið var að
Alþýðusambandsþingi loknu. í
ályktunum beggja þessara þinga
voru verkalýðsfélögin kvödd til
að undirbúa verkfallsaðgerðir
hinn 1. marz n.k., ef nauðsyn
reyndist til þess að ná fram þess-
ari meginkröfu samtakanna.
Miðstjórn A.S.Í. hefur fyrir
nokkru ritað sambandsfélögum
Framh. á bls. 23