Morgunblaðið - 11.04.1968, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1968
BJORN JOHANNSSON:
„SUMT REKALD KEMUR AD LANDI, ANNAÐ EKKI“
ÞEGAR flóðin miklu voru í
Ölfusá á dögunum var um tíma
óttast um hina rammgeru brú.
Þetta varð til þess að rifja
upp í huga mínum annan at-
burð, „stórfrétt," þar sem Olf-
usárbrú kemur við sögu„ að
vísu ekki núvernadi brú held-
ur gamla hengibrúin yfir Olf-
usá.
Fyrir rúmum 23 árum féll
•Ölfusárbrúin niður, þegar
mjólkurbíll var á leið yfir
hana með annan í eftirdragi.
Báðir bílarnir féllu í ána og
það má telja kraftaverk að
mennirnir tveir sem í þeim voru
komust lífs af. Báðir eru þeir
enn í fullu fjöri, búsettir á Sel-
fossi.
Atburður þessi er mér í
barnsminni af tvennum ástæð-
um. Ég var þá í sveit hjá afa-
systur minni, Margréti Jóns-
dóttur og manni hennar Guð-
mundi Eggertssyni, bónda að
Breiðamýrarholti í Flóa. Næsti
bær við er Keldnakot og þar
átti Jón Guðmundsson heima,
annar bílstjórinn, sem í ána fór,
„hetjan í sögunni". Og þegar
ég fór heim úr sveitinni varð
ekki komizt yfir Ölfusá nema
á báti og var það sannarlega
ævintýri fyrir lítinn dreng.
Frá atburði þessum er sagt
í Morgunblaðinu fimmtudaginn
7. september 1944, en brúin
féll niður aðfaranótt miðviku-
dags. Á forsíðu blaðsins var
mynd af Ölfusárbrú, þar sem
hún hékk á öðrum burð-
arstrengnum, skökk og snúin.
Aðalforsíðufréttin þennan dag
bar fyrirsögnina: „Framsveitir
inn í Þýskaland — Kanada-
menn umkringja Calais —
Snörp vörn Þjóðverja í Havre,
Brest og Boulogne.“
. Þótt forsíðan væri að mestu
helguð fréttum af heimsstyrj-
öldinni var atburðinum við Ölf
usá gerð rækileg skil í Morg-
unblaðinu. Sjálf fréttin tók yf-
ir alla blaðsíðu tvö og var
myndum prýdd og á blaðsíðu
4 var viðtal við Jón Guðmunds
son.
Fyrirsögn fréttarinnar á bls
2 var svohljóðandi: „Ölfusár-
brúin fellur niður — Annar
burðarstrengurinn slitnar —
Tveir bílar velta í ána — Reynt
verður að lyfta brúnni og nota
sem gangbrú."
Upphaf fréttarinnar var svo-
hljóðandi: „Aðfaranótt miðviku
dags sl. slitnaði annar (nyrðri)
aðalburðarstrengur á Ölfusár-
brúnni og hangir nú brúin
uppi á hinum strengnum. Voru
tveir vörubílar á brúnni, er
strengurinn slitnaði og féllu
þeir báðir niður í ána. Engir
farþegar voru í bílunum, en
báðir bílstjórarnir björguðust.
Það var um klukkan 2 um
nóttina, sem þessi atburður
skeði. Báðir bílarnir voru eign
Kaupfélags Árnesinga, en not-
aðir til mjólkurflutninga fyrir
Flóabúið. Annar var stór Dodge
bíll, og voru tómir mjólkur-
brúsar á honum, en hitt var
bíll af venjulegri stærð og var
hann með trjetexhleðslu. Hafði
sá bíll bilað í Reykjavíkurferð
og Dodge-bíllinn fenginn til að
draga hann austur.
Báðir bílarnir munu hafa far
ið veltu, er þeir fóru út af
brúnni. Annar sá sem var dreg-
inn lenti á grynningum nær
vesturbakka árinnar og var
vaðið út í til hans og tókst
þannig að bjarga bílstjóran-
um. En hinn lenti í aðal-álnum
og er þar strengur mikill og
hyldýpi. Bílstjórinn fór í kaf
með bílnum, en bjargaðist á
undraverðan hátt og er nánar
skýrt frá því á öðrum stað í
blaðinu (bls. 4).“
í áframhaldi fréttarinnar var
þess getið hversu brúin var
orðin ótraust vegna mikillar
notkunar og „ofþreytu járns-
ins“. Hafði verið bannað að
fara með meiri þunga en 6
tonn yfir brúna og farþegum
í stórum fólksbílum skylt að
ganga yfir hana. Þá var getið
fyrri bilana á brúnni, bolla-
lagt um aðrar samgönguleiðir
og nýja brú og skýrt frá því,
að vatnslaust hafi orðið í Sel-
fossþorpi vegna þess að vatns-
leiðslan kubbaðist í sundur und
ir brúnni.
Á bls. 4 var svo birt frá-
sögn ívars Guðmundssonar af
atburðinum og viðtal hans við
Jón Guðmundsson. Var birt
mynd af Jóni með. Fyrirsögnin
hljóðaði svo: „Saga bílstjórans
sem fjell í Ölfusá: Barst 1200
metra með straumþunganum á
— segir Jón Cuð-
mundsson yfir-
lögregluþjónn, sem
lenti í hinum mestu
svaðiHörum, þegar
Ölfusárbrúin féll
niður árið 1944
hjólbarða — Snarræði og dugn
aður tvítugs pilts.“
Upphaf frásagnarinnar var
svohljóðandi:
„Bílstjórinn, sem bjargaðist
á hinn undraverða hátt úr jök-
ulvatnsstrauminum í Ölfusá í
fyrrinótt, eftir að bíll hans
hafði oltið ofan af brúnni, er
tvítugur að aldri og hefur feng
ist við bifreiðaakstur í 3 sl.
ár. Hann heitir Jón Ingibergur
Guðmundsson, yngsta barn
hjónanna í Keldnakoti í Stokks
eyrarhreppi, Guðmundar Eir-
íkssonar og Þórunnar Jónsdótt
ur.
Talið er, að Jón hafi bor-
ist með straumnum um 1200
metra niður með ánni og er
hluti af þeirri leið hvað
straumharðastur í ánni.
Jón bjargaði lífi sínu með
frábæru snarræði og hugrekki.
Ekki eitt augnablik datt hon-
um í hug að gefast upp, og
hann man furðanlega atburða-
röðina skýrt, eins og þeir gerð-
ust, bæði áður en bíll hans fjell
í ána, meðan hann var í ánni
og eftir að hann hafði bjargað
sjer á land, eftir að hafa hang-
ið, fyrst á mjólkurbrúsa og síð
an á varadekki í hinum mikla
straumþunga Ölfusár.
Afrek Jóns mun verða talið
þrekvirki hið mesta og getur
enginn gert sjer ljóst hve mik-
ið það er, nema sá, er sjeð hef-
ur aðstæður allar og beljandi
jökulvatnið, þar sem Jón flaut
í ánni, alla leið frá brúnni, nið-
ur fyrir tangann, er gengur
fram í ána skammt fyrir neðan
hana, síðan eftir hávaðanum
vestan tangans niður, í lygn-
una og allt að 300 metra niður
fyrir túnið á Selfossi. — Úr
þessari heljarför slapp Jón ó-
meiddur að kalla. Hafði aðeins
skurð á höfði, sem hann hefur
sennilega fengið er bíllinn fjell
eða þegar hann fór út um glugg
ann á stýrishúsi bílsins."
Nokkru síðar segir í frásögn
fvars og viðtali hans við Jón:
„Það, sem næst skeði, skifti
engum togum. Jeg fann að bíll-
inn kastaðist til og tók loftköst
en nokkur gnýr heyrðist um
leið. Augnabliki síðar var jeg
í ánni.
Þetta mun hafa verið rjett
fyrir klukkan 2 um nóttina,
því úrið mitt hefir stöðvast kl.
1.56. en það var ekki vatnshelt
og mun því hafa stöðvast um
leið og það kom í vatnið.
Lokaður inni í stýrishúsinu á
árbotninum.
Jón telur að bíll hans muni
hafa komið niður á stýrishús-
þakið í árbotninum, því Jón
fann, að hann fjell á bakið,
En í straumnum í ánni mun
bíllinn hafa snúist við og stað-
ið á hjólunum er hann stöðvað-
ist.
Það fyrsta, sem Jón reyndi
að gera, var að brjóta fram-
rúðuna í stýrishúsinu, en hafði
ekki nema bera hnefana og
tókst það ekki. Af því dregur
hann, að bíllinn hafi snúið með
framendann móti straumi og
þessvegna hafi sjer ekki tekist
að brjóta rúðuna.
Er þetta mistókst reyndi Jón
að brjótast út um dyraglugg-
ann vinstra megin á bílnum. Er
honum ekki ljóst, hvort hann
hefur brotið rúðuna, eða hvort
hún hefir verið hálfopin og sjer
hafi tekist að draga rúðuna nið
ur, en allt um það, Jón komst
þar út úr bílnum og barst fljótt
uppá yfirborðið.
Nær í tómann mjólkurbrúsa
Þegar Jóni skaut upp á yfir-
borðið sá hann tómann mjólk-
urbrúsa á floti skammt frá sjer.
Náði Jón taki á brúsanum og
hjelt sjer í hann. En takið á
brúsanum var slæmt: brúsinn
valt í straumiðunni og vildi
snúast úr höndunum á Jóni.
Var hann ekki með brúsann
nema örlitla stund, en þá sá
hann varadekk bílsins á floti
skammt frá sjer. Hafði dekk
þetta legið aftast á vörupalli
bifreiðarinnar og var það upp-
blásið á “felgu“. Sleppti Jón
nú brúsanum og synti að dekk-
inu. Hafði hann þá flotholt,
sem var öruggara og hægara
að halda sjer í felguna en brús
ann.“
Undir lok frásagnarinnar seg
ir:
Ýmist undir eða ofan á dekkinu
Jón bar nú óðfluga með
straumnum niður ána og allt í
einu tók hjólið að snúast og
Jón með, því hann ríghjelt sjer
í felguna sem áður. „Var ég
ýmist undir eða ofan á dekk-
un og þá fyrst saup jeg dálítið
af vatni. Mun jeg þá hafa ver-
ið í hávaðanum, sem er fyrir
vestan Selfossbæinn.
En brátt tók vatnið að lygna
og ferðin að hægjast. Sá jeg
þá í tunglsljósinu, að jeg var
úti í miðri á og virtist mjer
vera jafnlangt til beggja ár-
bakka. Tók jeg þá að synda
með fótunum en sleppti samt
ekki taki á dekkinu. Synti jeg
í áttina til eystri bakkans og
komst brátt til lands.
Gekk jeg þaðan upp að Sel-
fossbænum, en mjer er sagt, að
jeg muni hafa komið á land
um 300 metra fyrir neðan tún-
ið á Selfossi. Á hlaðinu hitti
jeg mann. Háttaði ég ofan í
rúm á Selfossi. Fékk kaffi og
brennivín og hresstist brátt.
Þangað kom læknirinn og gerði
að sárinu á höfðinu á mjer.“
Þannig sagði Morgunblaðið
og Jón Guðmundsson sjálfur
frá atburðinum, sem gerðist fyr
ir rúmum 23 árum. I dag er
Jón yfirlögregluþjónn á Sel-
Ölfusárbrúin eftir falliS, séð frá vestri bakkanum. Annar bíllinn á grynningunum, hinn sökk
í hyldýpið nokkru neðar í ánni. (Ljósm: Jón Sen)