Morgunblaðið - 11.04.1968, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 11.04.1968, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1988 19 IOTION J. ÞORLÁKSSON & NORÐMANN H.F. Bankastræti 11 — Skúlagötu 30. Heildverzl. Ýmir Garðastræti 4. Sími 14191. Ásgeir Asgeirsson, forseti Sam einaðs þings, flytur hátíðarræðuna 1930. minnzt á tiLkostnað með eftir- tölum, og er slíkt þó býsna al- gengt. Nei, það var fagnandi fólk, sem reið heim frá Þing- vallahátíð og flutti góð tíðindi til þeirra sem heima sátu. Mörgum óx meir ásmegin eftir Alþingishátíð en vanmáttartil finning, lílkt og var á næstu ár- um eftir Landnámshátíðina á Þingvöllum 1874. — Morgunblaðið segir líka síðan að margir munu hafa þekkt sjálfan sig „betur en áð- ur. En svo giftusamlega vildi til að sú þekking varð þegar allt kemur til alls frekar til að auka en rýra sjálfstraust okk- ar.“ — Jú, þar er ég fyllilega sammála Morgunblaðinu! — Vilduð þér, herra Forseti, fara nokkrum orðum um' undir ritun gerðardómssamninganna og þá þýðingu sem þeir höfðu fyrir Island? — Undirritun gerðardóms- samninganna var vissulega há- tíðleg athöfn sem bar þess skýran vott að íslendingar voru fullvalda þjóð, hliðstætt hinum fjórum Norðurlandaþjóðum. Þeir samningar sýndu einnig að vér vildum eiga gott eitt við bræðraþjóðirnar, og lúta rétt- inum einum en hvorki mætti né ofbeldi í öllum samskiptum. Bróðerni hinna náskyldu Norð- urlandaþjóða mætti verða mörgum öðrum til fyrirmyndar En eklki er mér kunnugt um að neinum ágreiningsmálum hafi enn verið vísað til gerðar- dómsins. Hin táknlega athöfn á Alþingishátíðinni stendur þó enn í fullu gildi. Að lokum vil ég benda á að engin landkynning hefur orðið oss íslendingum jafndrjúg og Alþingishátíðin. Þá komum vér fyrst fram sem frjáls og full- valda þjóð gagnvart umheim- inum. Þess heyri ég þráfaldlega minnzt erlendis allt fram á þennan dag. Það skapar oss jafnframt aukna ábyrgð á því að standa undir þeim alþjóða- orðstír sem vér höfum sem langþroskuð þingræðisþjóð. bláum himni. Það hitar um ihjartaræturnar. Tign fjallanna, niður ánna, grænka jarðarinn- ar og blámi himinsins rennur saman við minning Ingólfs og Úlfljóts, drengskap, manndóm, löggjöf og bókmenntir, — allt rennur Það saman í eina mynd, mynd hinnar ættgafgu Fjall- konu, dóttur íslenzkrar náttúru og norræns eðlis _ í brjóstum vorum og vinnum Íslandi með- an ævin endist. íslandi lengi lifi! Hr. Ásgeir Ásgeirsson hefur sýnt greinarhöfundi þá vinsemd að svara nokkrum persónuleg- um spurningum um viðhiorf sitt nú til Alþingishátíðarinnar 1930. Lék mér mest forvitni á að vita hvað honum væri minnisstæðast frá Alþingishá- tíðinnni og efst í huga er hann li'ti nú aftur til þessa tíma. — Það er margt sem mér líður fyrir hugskotssjónir, svar ar forsetinn. Kuldahret sem breyttist á fyrsta morgni hátíð- arinnar í blíðviðri.Sólin dreifði gráum skýjabólstrum-og hellti geislum sínum yfir Helgan Völl um hádegisbil. Tjaldlborgin, mannfjöldinn, á að gizka þrjá- tíu þúsundir úr öllum lands- hlutum, Vestur—íslendingar, Æulltrúar allra hinna traust- ustu lýðræðisþjóða, konungur og drottning íslands og Dan- merkur og Svíakrónprins. í sem fæstum orðum, það var ein- Konungsstúkan á Þingvöllum 1930. huga þjóð, stolt af þúsund ára þingsögu, fegin sínu nýfengna fullveldi og bjartsýn á fram- tíðina, sem hélt stórhátíð á hin- um söguríka stað. — Hver þótti yður erfiðasti hjallinn í undirbúningi hátíða haldanna? — Ég treysti mér varla að nefna eitt sérstakt vandamál öðrum fremur. Það voru marg- ar sundurleitar hugmyndir uppi meðal almennings um ein- stök atriði, og ágreiningur um það hve hátt risið skyldi vera á hátíðahöldunum. Viðfangsefn ið óx koll af kolli í meðferð Alþingisfhátíðarnefndarinnar og stórhugurinn. Samstarfið var lipurt og ágreiningslítið í nefndinni og framkvæmdastjór inn árvakur og úrræðagóður. Hrakspár mátti heyra úr ýms- um áttum, en þær rættust ekki. — Vellir voru sléttaðir og munu þá hafa horfið grónar götur. Vilduð þér, herra for- seti, segja nokkuð um afstöðu yðar til þessarar ákvörðunar? — Hún var jákvæð að því leyti sem kom til kasta nefnd- armanna. En annars réð Þing- vallanefnd að sjálfsögðu mestu um allt sem við kom Þjóðgarðs svæðinu. Það er nóg um troðn- inga í nágrenni Þingvalla og land allt eftir þingreiðar og lestarferðir, þó vellirnir fái að vera sléttir eins og þeir voru í upphafi. Kjarakaup — í Morgunblaðinu 6. júlí 1930 stendur þetta: „Margir. höfðu spáð því að við hefðum með hátíðahaldi þessu reist okkur hurðarás um öxl ... og gagn það sem hátíðin gerði okkur mundi fyrst og fremst verða á þá leið að við þekkt- um vanmátt okkar og vankanta betur en áður“. Hvað segið þér um þessar spár? — Sama og um aðrar hrak- spár. Það er ekki óeðlilegt né heldur óvenjulegt að einhverj- ir séu kvíðnir. Sumir eru jafn- vel alltaf svartsýnir. Og mér kemur ekki í hug, að Alþingis- hátíðarnefndin sjálf hafi alltaf verið örugg um að allt gengi að óskum. En svo fór þó um allt sem máli skipti. Gifta þjóð arinnar sat í stafni. Að hátíð- inni lokinni heyrði ég ekki GERIÐ GÓD Fáanlegar Coppertone-vör- ur: Suntan lotion, Suntan oil, Shade, Baby Tan og Noskote. Njótið hinnar útfjólubláu geislunar af fjallasnjónum - VERDIÐ BRÚN - BRENNIÐ EKKj - K O T I Ð COPPERTONE COPPERTONE er langvinsælasti sólaráburð- urinn í Bandaríkjunum. Vísindalegar rann- sóknir framkvæmdar af hlutlausum aðila, sýna að Coppertone sólaráhurður gerir húðina á eðlilegan hátt brúnni og fallegri á skemmri tíman, en nokkur annar sólaráburður sem vöi er á. ENSKIR OG ÞÝZKIR „IDEAL“ STÁLMIÐ- STÖÐVAROFNAR Á GAMLA VERÐINU. KAUP Á GÓÐUM OFNUM. Keflvíkingar Sýnikennsla í blómaskreytingum og meðferð á blómum, verður í Tjarnlundi fimmtudaginn 11. apríl kl. 20. Blómaskr.fræðingur frá Blómahúsinu annast fræðsluna. Skolphreinsun úti og inni Sótthreinsum að verki loknu. Vakt allan sólar- hringinn. Niðursetning á bruiinum og smáviðgerðir. Góð tæki og þjónusta. Rörverk sími 81617.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.