Morgunblaðið - 11.04.1968, Page 32

Morgunblaðið - 11.04.1968, Page 32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1968 SUNINIIJFERÐIR TIL SÓLARLANDA Vinsœlar utanlandsferðir með íslenzkum fararstjórum Margra ára reynsla og ótvíræðar vinsældir tryggja farþegum okkar snuðrulaust ferða- lag undir leiðsögn reyndra fararstjóra, sem mörg ár í röð hafa farið sömu ferðirnar við- urkenndar og vinsælar af þeim mörgu, sem reynt hafa. Á síðasta ári komu yfir 3000 ánægðir farþegar heim úr SUNNU-ferðum. Við auglýsum sjaldan, því ánægðir viðskiptavinir komnir heim úr vel heppnuðum og skemmtilegum SUNNU-ferðum eru okkar bezta auglýsing. Nú þegar er mikið pantað í margar ferðir. LONDON — AMSTERDAM — KAU PM ANNAHÖFN Brottfarardagar: 7. júií — 11. júlí — 4. ágúst — 18. ágúst — 8. sept. — 15. sept. 12 dagar. Verð kr. 14.400.— Þessar stuttu og ódýru ferðir gefa fólki tækifæri til að kynnast þremur vinsælum stórborg- um Evrópu, sem þó eru aliar mjög ólíkar. Milljónaborgin London. tilkomumikil og sögu- fræg höfuðborg heimsveldis, með sínar frægu skemmtanir og tízkuhús. Amsterdam, heill- andi og fögur með fljót sín og skurði, blómum skrýdd og létt í skapi. Og svo „Borgin við sundið“, Kaupmannahöfn, þar sem íslendingar una sér betur en víðast á erlendri grund. Borg í sumarbúningi með Tívolí og ótal aðra skemmtistaði. Þar er hægt að framlengja dvöl í ferða- lok. Þessi stutta og ódýra ferð hefir átt vaxandi vinsældum að fagna með hverju ári. í fyrra voru farnar fimm slíkar ferðir og komust færri en vildu. Fararstjórar; Jón Helgason, Jón Sigurbjörnsson og Gunnar Eyjólfsson. PARÍS — RÍNARLÖND — SVISS Brottför 23. ágúst. — 17 daga ferð. — Verð kr. 22.840.— Þessi vinsæla ferð hefir verið farin svo til óbreytt í sjö ár, og jafnan við miklar vinsælir, enda fólk komið heim með öbrotgjarnar endurminningar. Fólki gefst hér tækifæri til að kynn- ast nokkrum fegurstu stöðum Evrópu, í rólegri ferð. Flogið er til Parísar og dvalið þar í borg fegurðar og gleði sólríka sumardaga. Frá París er flogið til Sviss, skroppið í skemmtiferð suður yfir fjallaskörðin til Ítalíu. Frá Sviss er farið fljúgandi til Rínarlanda, og dvalið fjóra daga við Rín í Rúdesheim, einum frægasta skemmtanabæ við sögufræga Rín. Þar er „Vín- hátíðin", þar sem drottningin er krýnd. Farið er í ökuferðir um Rínarbyggðir og siglt á fljótinu með skemmti’egum farþegaskipum. — Fararstjóri: Jón Helgason. EDINRORGARHÁTÍDIN Brottför 24. ágúst. — 7 daga ferð. — Verð kr. 8.900.— Þessi vinsæla ferð hefir verið farin á hverju ári í sex ár og jafnan fullskipuð. Fara allmargir árlega, enda er Edinborgarhátíðin mikilfenglegasta listahátíð álfunnar, auk þess sem Edin- borg er mjög fögur borg og ánægjulegt að dvelja þar sólheita sumardaga. Farið er I skemmti- ferðir upp í hálendi Skotlands og hin fögru vatnahéruð, er. jafnan komið heim á hótel í Edin- borg að kvöldi. Hægt er að framlengja dvölina og skreppa til London. Fararstjóri: Gunnar Eyjólfsson, leikari. ÍTALÍA — SEPTEMBERSÓL Brottför 1. september — 21 dagur. — Verð kr. 27.600.— Þessi luxusferð er mun ódýrari en aðrar hliðstæðar ferðir, vegna hagkvæmra viðskiptasam- banda SUNNU á Ítalíu. — Flogið til Milano og ekið þaðan um fegurstu byggðir Ítalíu, Fen- eyjar hina „Fljótandi borg“ ævintýra, söngs og sögu. Róm eru helgaðir fimm dagar, þvi þar er margt að sjá. Fró Róm liggur leiðin suður um Napoli, Pompei ti'l Sorrento, siglt með einu glæsilegasta hafskipi heims, risaskipinu Michelangelo 43 þús. smól. að stærð til Cannes á frönsku Riverian og ekið til Nizza, þar sem dvalið er síðustu daga ferðarinnar. Frá Nizza er flogið heim með viðkomu í London, þar sem hægt er að framlengja ferðina, ef óskað er. Fararstjóri: Thor Vilhjálmsson, rithöfundur. NEW YORK og fSLENDINGABYG GÐIR í AMERÍKU Brottför 29. júlí. — 16 dagar kr. 28.700.— Flogið til New York og haldið þaðan flugleiðis eftir nokkurra daga dvöl til Noður Dakota, þar sem heimsóttar eru nokkrar meðal elztu byggða fslendinga í Ameríku, þar sem enn byggir heilaT sveitir svo til eingöngu fólk af íslenzku bergi brotið. Þaðan er ekið norður til Winnipeg og dvalizt í nokkra daga í Nýja íslandi og tekið þátt í hátíðahöldum fslendinga- dagsins í Gimli við Manitobavatn. Stanzað nokkra daga í New York á heímleiðinni. Farið til Washington og að Niagarafossum. — Fararstjóri: Jón Helgason. PORTUGAL — ÍTALÍA — SPÁNN og skemmtisigling Brottföt 11. október. — Verð kr. 34.800.— Þessi vinsæla ferð hefir verið farin nokkur undanfarin ár og er ferð hinna vandlátu, sem margt vilja sjá. Flogið til Lissabon, þaðan eftir tvo daga til Madeira. Siglt þaðan með glæsi legeista hafskipi ítala Michelangelo til Canarieyja, Gíbialtar, Mallorca, Sikileyjar og Napoli. Dvalið í Sorrento, Róm og Feneyjum á Ítalíu og flogið heim með dvöl í London. Fararstjóri- Jón Helgason. ÆVINTÝRAFERÐIN TIL AUSTURLANDA Brottför 6. október. — 21 dagur. — Verð kr. 28.900.— Þeir mörgu, sem tekið hafa þátt í þessum vinsælu ferðum SUNNU á ævintýraslóðÍT Austur- landa, eiga fæstir nógu sterk orð til að lýsa þeim undrum og furðum sem fyrir augun ber. Flogið til London og þaðan til Aþenu, þar sem dvalið eT í tvo daga. Flogið til Beirut. Skoð- aðir leyndardómar þessarar frægu borgar vegamóta í Austuiöndum nær. Heimisóttir pers- neskir teppasalar í fríhöfninni. Frá Beirut er flogið til Kairo og dvalið á góðu hóteli á bökk- um Nílar. Frá Kairo er flogið til Jerusalem, dvalið í fimm daga og skoðaðir allir helztu sögu- staðir Bibiíunnar. Frá Jerusalem er flogið til London og hægt að framlengja dvöl, ef óskað er. — Fararstjóri: Guðni Þórðarson. FERÐIR TIL HELGISTAÐA í AUSTURLÖNDUM og EVRÓPU Fararstjórl: séra Frank M. Halldórsson. Ferð til Biblíuiandanna Aþenu og Róm. Þessi ferð er með svipuðu sniði og séra Frank hefir stjórnað á hverju vor: undanfarin tvö ár. Flogið til Aþenu, Líbanon, Egyptalands og landsins helga. og dvalið í Róm á heimleið- inni. í þessari ferð kynnist fólk „vöggulöndum menningarinnar", og heimsækir alla helztu helgistaði í Bibiíulöndunum. — Brottför 23. júní. — 17 dagar. kr. 26.700.— ÍTALÍA — LOURDES — PARÍS Flog:ð til Róm. Farið til Assisi, Napoli og Pompei. Dvalið í Sorrento og i Feneyjum. Flogið þaðan til Frakklands og dvalið í kraftaverkabænum Lourdes. Síðan nokkra daga í París og flogið heim um London. — Brottför 8. júlí. — 16 dagar kr. 23.740.— JÓNSMESSUFERÐIN TIL NORÐURLANDA og SKOTLANDS Brottför 21. júní — 16 dagar kr. 18.700.— Þessi vinsæla ferð hefir verið farin árlega við miklar vinsældir. Flogið ti! Bergen. Ekið og siglt um hinar fögru fjalla- og fjarðabyggðir Vestur-Noregs, heimabyggðir íslenzku land- námsmannanna. Dvalið í Osló, Kaupmannahöfn, og að lokum tvo daga í Glasgow, þar sem fólk hefur frjálsan tíma og fer í stutta ferð um vatnahéruð skozku bálandanna. Fararstjóri: Jón Helgason. KAUPMANNAHÖFN — (Hamborg) — EDINBORG 12. september, — 10 dagar. — Verð kr. 9.400.— Þessi ódýra og vinsæla haustferð var farin árlega. Ferðin er svona ódýr vegna þess að SUNNA leigir flugvél til ferðarinnar. Dvalið í hinni glaðværu Kaupmcnnahöfn, skroppið í tvo daga til Hamborgar og stanzað í sólarhring í Edinborg á heimleiðinni. Þó þessi ferð sé nú auglýst í fyrsta sinn eru margir þeirra búnir að panta, sem voru með í fyrra. — Fararstjóri: Árni Waag. ÆSKULÝÐSFERÐIR séra Ólafs Skúlasonar Fyrir nokkrum árum stofnaði þáverandi æskulýðsfulltrúi Þjóð- kirkjunnar til þeirrar nýbeytni að efna til ódýrra æskulýðsferða til útlanda, eins og lengi hefir tíðkazt með nágrannaþjóðunum. Fyrir þremur árum fór séra Ólafur Skúlason fyrstu æskulýðs- ferðina á vegum SUNNU, í samvmnu við æskulýðsnefnd Þjóð- kirkjunnar, og vegna þess hve þessar ferðir hafa orðið vinsælar jafnt af hinu unga fólki og aðstandendum þess höfum við nú skipulagt, þrjár slíkar ódvrar æskulýðsferðir í sumar. Mallorka og London 17 dagar 3. júlí kr. 9.800.— Flogið beint til Mallorka og dvalið þar á stúdentagarði, þar sem sundlaug er Í garðinum. Farið í skemmti- og skoðunar- ferðir, siglt og synt. Stanzað tvo daga i London á heimleið. Fararstjóri: séra Ólafur Skúlason. Danmörk—Stokkholm og sænsku Dalirnir 15 dagar 18. júlí kr. 10.900.— Flogið til Kaupmannahafnar. Dvalið þar í nokkra daga. Farið með lest til Stokkhólms og dvalið þar. Siglt um Skerjagarðinn. Þaðan er haldið til ,,Dalana“ og dval:ð í nokkra daga á sænsku æskulýðsheimili við hið undurfagra Siljanvatn. Fararstjóri: Unnur Halldórsdóttir safnaðarsystir. Danmörk — Noregur — Svíþjóð 15 dagar 11. júlí kr. 9.800.— Fkigið t:l Danmerkur. Ekið þaðan til Noregs. Dvalið á Æsku- lýðsheimili við Oslófjörð. Farið um Svíþjóð og dvalið nokkra daga í Kaupmannahöfn. Flogið heim. Fararstjóri: Séra Sigurður Haukur Guðjónsson. Danmörk — Þýzkal. — Rinarlönd — Holland. 27. jún 21 dagur kr. 11.800.— Flogið til Kaupmannahafnar. Ekið um Fjón og Jótland til Þýzkalands. Dvalið í Rínarlöndum. Komið til Hollands og dvalið í Kaupmannahöfn síðustu daga ferðarinnar. Flogið heim. Fararstjóri: Séra Bjöm Jónsson MALLORKA — LONDON 17 dagar. Brottfarardagar: 8. maí — 5. júní — 12. júní — 3. júlí — 17. júlí — 31. jvili — 14. ágúst — 18. ágúst — 14. sept. — 25. sept. — 9. okt. — 23. okt. — Verð frá kr. 8.900,— Þessar ótrúiega ódýru ferðir til hinna sólríku Spánarstranda og London getum við haft svona ódýrar vegna þess að vin- sæidir þeirra leyfa að teknar séu heilar flugvélar á leigu, sem flytja farþegana á milli áfangastaða og hótelin gefa SUNNU beztu fáanleg kjör vegna þess að skr'fstofan semur um fyrir rúmlega 100 gesti yfir árið, til margra ára. Búið er í tvær vikur á glæsilegum baðstrand'hótelum með einkasundlaugum og baði með hverju herbergi aðeins 7 km. frú miðri höfuðborginni PALMA. Mallorca er vinsælasti ferðamannastaðurinn í Evrópu í dag, enda fær fólk þar allt sem hugurinn girnist. Sól, náttúrufegurð og fjölbeytt skemmt- analíf. góð hótel og góðan mat Á heimleiðinni er stanzað tvo daga í London. Innifalið í verði ferðar eru flugferðir, ferðir milli flugvalla og hótela. gisting og þrjár máltíðir á dag á Mallorca og gisting og morgunverður í London. Þið fljúgið með þotu Flugfélagsins beint til Mallorca á 4 tímum og njótið leiðsagnar og aðstoðar ágætra íslenzkra fararstjóra og skrifstofu okkar á Mallorca. Þið getið valið um dýrðlega aðbúð á beztu hótelum í bremur verðflokkum, eða dvöl í luxusíbúð- um og getið fengið bíl með. Nú þarf engrnn lengur að fara til Kaupmannahafnar til að komast ódýrt til Mallorca með „billeg- um“ skrifstofum dönskum og taka alla þá áhættu, sem því fylgir. íslenzkar ferðir hæfa íslendingum bezt, því við gerum okkur ekki ánægða nema með það bszta. Fararstjórar: Daði Runólfsson og Alda Snæhólm. í SLIMNIJFERÐIJIVI eru eingöngu notuð góð hótel. Flogið lengstu leiðirnar og ekið eingöngu þar sem landslagsfegurð er mest. Kjörorð okkar er: Aðeins það bezta er nógu gott fyrir okkar farþega. Við gefum sjálfum okkur ekki einkunn, en spyrjið þá mörgu sem reynt hafa SUNNU-ferðir og velja þær aftur ár eftir ár. Kynnið ykkur verð og gæði annarra ferða — og vandið valið. Biðjið um ná- kvæma ferðaáætlun og pantið snemma, því yfirleitt komast aldrei allir sem vilja í SUNNU-ferðir. Það eru ferðir, sem fólk getur treyst. FERflASKRIFSTOFAN SUIMIMA Bankastræti 7 — Símar 16400 og 12070.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.