Morgunblaðið - 17.05.1968, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. MAI 1988.
Lúðrasveit Reykjavíkur
safnar styrktarmeðlímum
AÐALFUNDUR Lúðrasveitar
Reykjavíkur 1968 var haldinn í
Hljómskálanum 25. febrúar sl.
Á árinu lék Lúðrasveit Reykja
víkur samtals 27 sinnum opin-
berlega við ýmis tækifæri, svo
sem við kappleiki í íþróttum, al-
menn útihátíðahöld og í útvarpi.
Auk þess hélt Lúðrasveitin
tvenna tónleika í Háskólabíói á
árinu, og voru aðrir þeirra haldn
ir til styrktar Flugbjörgunar-
sveitinni í Reykjavík og hafa
lúðrasveitarmenn hug á að halda
fleiri slíka styrktartónleika og
styrkja með því góð málefni.
Úr fráfarandi stjórn voru end
urkjörnir formaður, Halldór Ein
arsson og varaformaður, Þórar-
inn Óskarsson, en aðrir í stjórn
voru kjörnir Finnur Jónsson,
gjaldkeri, Sverrir Sveinsson, rit
ari og Magnús Randrup, með-
stjórnandi.
Lúðrasveit Reykjavíkur hefur
ákveðið að hefjast handa um söfn
un styrktarmeðlima með það fyr
ir augum að efla starfsemi sína,
og halda reglulega hljómleika
fyrir styrktarmeðlimi og almenn
ing.
Rekstrarfjárskortur hefur stað
ið sveitinni mjög fyrir þrifum
á undanförnum árum, svo og
breyttir tímar. — Aðstæður eru
ekki fyrir hendi í borginni fyrir
útihljómleika þannig, að sveit-
in geti mætt fullskipuð og leik-
ið þá tónlist er almenningur í
dag vill heyra, en eins og gef-
ur að skilja hefur smekkur fólks
fyrir lúðrasveitarmúsik breytzt
frá þeim tíma er sveitin lék
marza og íslenzk ættjarðarlög á
góðviðriskvöldum á Austurvelli
forðum, en á árunum frá því
1922, er sveitin var stofnuð, og
allt fram undir síðustu heims-
styrjöld voru útihljómleikar
Lúðrasveitar Reykjavíkur ómiss-
andi þáttur í fábreyttu skemmt-
analifi Reykvíkinga.
Opinberir styrkir til lúðrasveit
arinnar hafa því miður ekki hald
izt í hendur við ört vaxandi dýr
tíð þannig að nauðsynlegt er fyr
ir sveitina að finná sér nýjar
fjáröflunarleiðir ef starfsemi
hennar á að geta blómgast og
Lúðrasveit Reykjavíkur geti
haldið nafni sínu á lofti. Takist
sveitinni að afla sér allt að 1000
styrktarmeðlimi er kominn grund
völlur fyrir sveitina að halda
reglulega hljómleika í stærsta
hljómleikasal landsins og telur
sveitin sig geta boðið styrktar-
meðlimum sínum upp á tvenna
hljómleika á ári, þannig að hver
styrktarmeðlimur fái senda 2
miða á hverja hljómleika fyrir
250.00 kr. ársgjald.
Efnisskrár tónleikanna munu
verða byggðar upp á fjölbreytt-
um og skemmtilegum tónverk-
um ásamt íslenzkum lögum og
einleiksverkum, og er óhætt að
fullyrða að undir stjórn og hand
leiðslu hins ágæta stjórnanda
sveitarinnar, mun verða vandað
til hverra tónleika svo sem frek
ast er unnt.
Lúðrasveit Reykjavíkur vill því
beina þeirri ósk til velunnara
sveitarinnar, svo og allra þeirra
er áhuga hafa á góðri lúðra-
sveitarhljómlist, að þeir gerist
styrkarmeðlimir sveitarinnar og
verður tekið á móti umsóknum
daglega í síma 18618 Einnig geta
menn sent umsóknir í pósti til
Lúðrasveitar Reykjavíkur,
Hljómskálanum, Reykjavík.
(Frá Lúðrasveit Reykjavíkur).
Fjórðungsmót hesta-
manna á Austurlandi
Skoðun Sovétsérfrœðinga:
Hagnaður mikilvægari
en að uppfylla kvóta
Moskvu, 14. ma, NTB.
• Fái sovézkir efnahagssérfræð-
ingar vilja sínum framgengt má
búast við, að launaumslög sovézk
ra verkamanna verði á næstunni
þyngri en þau hafa verið til
þessa. Einnig eru þeir sagðir
vilja auka verulega notkun raf-
eindaheila í iðnaðaráætlanagerð
um og bæta vinnuskilyrði hús-
mæðra.
1 dag komu saman til fundar
í Moskvu tvö þúsund efnahags-
sérfræðingar til þess að ræða
þær endurbætúr, sem gerðar
hafa verið í efnahagslífi Sovét-
ríkjanrta á síðustu tveimur árum.
Sagði yfirmaður áætlananefndar
ríkisins, Nikolai K. Baibakov í
setningarræðu fundarins, að fjár
veitingar til iðnaðar yrðu auknar
og hagur einstakra verkamanna
bættur með þa'ð í huga að auka
verðgildi framleiðslunnar og
bæta hana. Koma þessi ummæli
hans heim og saman við skýrslu
áætlananefndarinnar, þar sem
segir, að hagnaður sé mikilvæg
ari en að uppfylla einhverja
ákveðna framleíðslukvóta.
Baibakov upplýsti einnig, að
Sovétmenn miðuðu a'ð því, að
92% allra vinnufærra Sovétborg-
SÍLDVERKUNAR-
OG REYKISNÁMSKEIÐ
Síldarútvegsnefnd hefir ákveðið að haldið verði síld-
verkunar- og beykisnámskeið í Reykjaví í vor, ef
nægileg þátttaka fæst.
Ráðgert er að námskeiðið hefjist 17. maí n.k.
Skilyrði fyrir þátttöku er að þeir, sem námskeiðið
sækja, hafi unnið minnst þrjár síldarvertíðir. á viður-
kenndri söltunarstöð. Umsóknum þurfa að fylgja vott-
orð frá viðkomandi verkstjóra, þar sem tilgreint sé,
hvaða ár og á hvaða söltunarstöð eða stöðvum um-
sækjendur hafi unnið. Með umsóknunum skal til-
greina aldur umsækjenda.
Umsóknir skulu sendar skrifstofu Síldarútvegs-
nefndar, Austurstræti 10 A, Reykjavík, fyrir 25. maí
n.k.
Á námskeiðinu verður rætt um söltun um borð í
síldveiðiskipum og er skipstjórum, sem ætla sér að
láta salta um borð í sumar, eða fulltrúum þeirra,
boðið að sækja fyrri hluta námskeiðsins.
Nánari upplýsingar um námskeiðið gefa Jón Þor
kelsson, síldarmatsmaður, Miklubraut 80, í síma 14092
og Haraldur Gunnlaugsson, Skjólbraut 4, Kópavogi
í síma 40198, en þeir hafa á hendi umsjón með nám-
skeiðinu.
SÍLDARÚTVEGSNEFND.
ara störfuðu við framleiðslu á
vegum ríkisins, — hefur það m.a.
í för með sér, að kónur muni
vinna utan heimilis í auknum
mæli, en samkvæmt opinberri
skilgreiningu Sovétmanna á hús
móðurstarfinu er það „heimilis
þrælahald og þjóðfélagslega gagn
lausast allra starfa".
Á VEGUM Búnaðarfélags íslands
og Landssamþands hestamanna
verður haldið Fjórðungsmót á
Austurlanidi dagana 27. og 28.
júlí í sumar. Eru það hestamanna
félögin á Austurlandi er að mót
inu standa, en Hestamannafélag-
ið Freyfaxi á Héraði hefur tekið
að sér að sjá um framkvæmd
mótsins.
Hefur félagið kosið eftirtalda
menn í undirbúningsnefnd er
vinnur í samvinnu við stjórn fé-
lagsins, en formaður hennar er
Pétur Jónsson, Egilsstöðum.
Jón Magnússon, Uppsölum;
Gunnar Egilsson, Egilsstöðum;
Jón Bergsson Ketilsstöðum; Ást-
ráður Magnússon, Egilsstöðum og
Sigfús Þorsteinsson, Egilsstöðum,
sem er formaður nefndarinnar.
Nefndin hóf undirbúning móts
ins sl. sumar með byggingu sýn
ingarsvæðis og hlaupabrauta í
námunda við Félagsheimilið Iða
velli á Völlum. Sýningarsvæðið
var þá einnig girt með 2,5 km.
langri girðingu, en eftir er að
koma upp girðingum fyrir lang-
ferða/hesta og hólfum fyrir sýn-
ingar- og kappreiðahross.
Við sýningarsvæðið eru ágæt
tjaldstæði á bökkum Grímsár.
Ætlunin er að sýningarsvæði
þetta verði framtíðar atíhafna-
svæði hestamanna á Héraði og
á að geta orðið gott þegar frá því
hefur verið gengið til fulls. Til
þesis þarf mikið fjármagn og hef-
ur nú verið efnt til happdrættis
til fjáröflunar. Vinningar eru 3
hroiss og verður dregið í því að
kvöldi síðari mótsdagsins.. Nokkr
ir miðar hafa verið sendir hesta
mannafélögum víðsvegar um
landið til sölu og er það von fé-
lagsins að þau bregðist vel við
þeirri málaleitan.
Á mótinu verða sýnd kynbóta-
hross, stóðhestar og hryssuT, góð
hestar og kappreiðar haldnar. —
Keppt verður í eftirtöldum hlaup
um: 250 m, 300 m, 800 m og
skeiði. Er að því stemmt að mót-
ið geti orðið sem skemmtilegast
fyrir unga og gamla Meðal ann-
ans verða dansleikir og mun
hljómsveitin Gautar frá Siglu-
firði skemmta
AUGLYSINGAR
SÍMI 22*4*80
KARLAKÓRINN GEYSIR
frá Akureyri, í söngför um Suðurland.
Stjórnandi: Jan Kisa. — Undirleikari: Phiiip Jenkins.
8AMSÖMGVAR
Að Flúðum, Hrunamannahreppi: föstudaginn 17. maí kl. 21.30.
REYKJAVÍK: í Gamla Bíói, laugardaginn 18. maí kl. 15.00.
Aðgöngumiðasala við innganginn. í Reykjavík einnig hjá: Bókabúðum Lár-
usar Blöndal, Vesturveri og Skólavörðustíg 2, Leðurverzlun Jóns Brynjólfs-
sonar, Austurstræti 3.
Fræ í grasbletti, golfvelli og íþróttavelli
Hreinleiki 98% Spirunarhæfni 85% Vallarsveifgras. Höfum fengið dálítið magn af hinu nýja afbrigði FYLKING, sem ber af flestum (frá Svalöf, einkaleyfisframleiðsla). Harðgert, myndar þétta, sterka grasrót. Mjög áferðarfallegt og fellur seint. Lágvaxið og bezt að nota eintómt eða aðeins með öðrum lágvöxnum tegundum, slá snöggt. Sáð- magn í velli: 50—60 kg ha. Blettir við hús: 1—3 kg. í 100 fermetra. — Pantið í tíma, lítið til, ófáan- legt meira í ár.
85%/85% Höfum einnig danskt vallarsveifgras, stofn DASAS. Ágæt þrautreynd tegund, O.E.C.D.-vottorð. Sáð- magn: 15—25 kg. í ha. til fóðurs, í íþróttavelii helmingi meira. Vandið sáninguna.
90%/90% Túnvingull: Danskur túnvingull, stofn DASAS, O.E.C.D.- vottorð. Góð reynsla hér (er t. d. á Miklatúni austanverðu). Sáðmagn eins og vallarsveifgras.
98%/90% Skammært rýgresi: Aikunnur þrautreyndur stofn E.F. 486. DASAS. Hentugt eitt sér eða saman við annað þar sem óskað er að fá gras fljótt (en endist ekki). Sáðmagn í ha: 25 kg til fóður, í bletti helm- ingi meira eða þrefalt. Vandið sáninguna (og vinnslu á sáðreit).
MJÓLKURFÉLAG REYKJAVÍKUR
Laugavegi 164 — Sími 1 11 25.