Morgunblaðið - 21.05.1968, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 19'68.
Logn og blíöa, en svali við hafið
— Vottar fyrir gróðri í uppsveitum
GÓÐVIÐRI hefur verið um allt
land undanfama daga, víða 10
stiga hiti eða meira, en svalara
á annesjum norðan og austan, og
næturfrost á Norðurlandi. I.ogn
og sól hefur verið og hitinn fór
í gær upp í 14 stig um miðjan
daginn sumstaðar suðvestan-
lands. En stillunum fylgir það að
lítil hreyfing er á ísnum, sem
liggur með öllu landinu norðan-
verðu og austan og þuðan suður
með, allt að Ingólfshöfða. Inni í
landinu gætir því sólbráðar með
og sums staðar farið að votta
fyrir góðri, en í nálægð íssins út
við sjóinn andar köldu og vinnur
sólin lítið á. Þó er sólin drjúg í
viðureigninni við ísinn og kuld-
ann, ef hennar gætir. Veðurstof-
an gerir ráð fyrir góðviðri áfram.
Litlar eða engar breytingar eiga
að verða í dag, en það til hins
betra, ef nokkuð er.
Vottar fyrir góðri í uppsveitum.
Mbl. leitaði frétta á þremur
stöðum um veðurfar og sauð-
burð, sem stendur sem hæst.
Jónais Pétursson var staddur á
Skriðuklaustri í Fljótsdal, þar
sem eru 700-800 fjár og sauð-
burður að byrja. Sagði hann að
kalda golan neðan af fjörðun-
um næði ekki svo langt inn í
landið. Hefði verið frostlaust um
nætur í 3-4 daga og hitinn kom-
izt upp í 8-9 stig. Féð væri úti,
en þyrfti að gefa því þar. Ef
svona héldi átfram, væri útlitið
Lík Iitlo
drengsins
fundið
LÍK litla drengsins, sem týndist
í vetrrr í Laugameshverfinu, og
mikið var leitað að, fannst á
sunnudag út við Akurey.
Tveir menn voru á báti úti á
Sundum fyrir hádegi á sunnudag.
Fóru þeir upp á rif, sem geng-
ur úr Akurey og sáu þar líkið
af drengnum. Gerðu þeir lögregl
unni aðvart og var líkið sótt.
Drengurinn var 3ja ára gamall
og hét Haraldur Bjamason.
Moí með 540
lestir of fiski
Togarinn Maí kom til Hafn-
arfjarðar í gær, drekkhlaðinn,
því fiskur var á þilfarinu. Var
skipið með 540 tonn af þorski
og karfa eftir 20 daga veiði-
ferð við Nýfundnaland og
Grænland. Aflanum var land-
I að í Hafnarfirði.
gott.
Jóhannes á Grímsstöðum í Mý-
vatnssveit sagði að eftir geysi-
mikinn kulda og vonskuveður,
væri nú búið að vera logn og sól-
skin í 4 daga. Enn væru þó næt
urfrost. Ekki er mikill snjór í
hlíðunum kringum Mývatnssveit
ina, og verður ekki lengi að
skipta um, ef þessu heldux
áfram, sagði Jóhannes. Strax er
kominn gróður í mellöndum við
Jökulsá, en þar er venjulega
sleppt ánum =em fyrst bera og
geldfénu. Er rétt verið að byrja
að flytja fé austur og er það
mjög mikils virði. Ærnar bera
allar í húsi núna. Ekki er það nú
mikið, en aðeins er að byrja að
votta fyrir gróðri, sagði Jóhann-
es.
Siggeir, bóndi í Holti á Síðu,
sagði, að þar sæist aðeins grænt
á túnum, en mikill klaki væri í
jörðu. Væri ljómandi veður,
bjart og kalt. Kuldinn leggur frá
ísnum, þó ekki sjáist hann enn.
Tvær nætur hafa verið frost-
lausar. Sauðburður er byrjaður
og gengur ágætlega.
Umferð hefur verið mikil aust
ur yfir Sanda, því nú er ekið alla
leið til Hornaf jarðar, meðan
kuldar haldast og ekki bráðnar
úr jöklum í árnar.
ísbelti um hálft landið
Flugvél landhelgisgæzlunnar
sendir eftirfarandi skýrslu úr ís-
flugi:
Flugvél Landhelgisgæzlunnar
TF SIF, fór í ískönnunarflug um
hverfis landið á laugardag, og
voru forsætisráðherra, dr. Bjarni
Benediktsson og dómsmálaráð-
herra, Jóhann Hafstein, með í
því flugi til þess að kynna sér
aðstæður.
Ástand íssins var sem hér seg-
ir:
Hrútafjörður og Miðfjörður
eru lokaðir af ís, 7—9/10 að þétt
leika, einnig Steingrímsfjörður.
Húnaflói er þó íslítill að austan-
verðu. Strandagrunn er þakið
ís 7—9/10, og grunnleiði ófær.
Sigling að Horni virðist greið-
fær. Mjög erfið sigling er útaf
Óðinsboða-svæðinu og greiðfær-
Sinfóníuhljóm-
leiknr ó flkureyri
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands
leikur í Akureyrarkirkju í kvöld
kl. 8.30 á vegum Tónlistaríélags
Akureyrar Stjórnandi er Bodan
Wodisko og einleikari Bjöm Ól-
afsson. Verkefni eru eftir Moza/rt,
Beethoven og Schubert Tónleik-
amir eru bæði fyrir styrktarfé-
laga og aðra.
Kl. 4 í dag verða unglingatón-
leikar á sama stað. — Sv. P.
ast virðist vera 3—5 sjóm. NA
við Óðinsboða og þaðan í stefnu
á Skaga. Um 9 sjóm. 1 NV er
komið út úr ísnum. íshaft geng-
ur út frá Skaga og er þétt, eink-
um V-til, en sigling virðist þó
fær þar fyrir og síðan góð að
Siglunesi.
Dálítið íshaft er á siglingaleið
V-til í Eyjafirði, en er þó greið-
fært 2—4 sjóm. undan Siglunesi.
Siglingarleiðin til Grímseyjar er
fær. Bezta leið til Húsavíkur,
eins og er, virðist vera að fara
sunnanverðan Skjálfandaflóa.
Leiðin er þó mjög erfið eins og
er.
Tjörnesgrunnið er þakið ís
7—9/10 ,en þó virðist mega
brjótast í gegn inn á Axarfjörð á
öflugum skipum. Fremur lítill
ís er í austanverðum Axarfirði,
og gengur mjó renna meðfram
landi fyrir Rauðunúpa og Hraun
hafnartanga að Melrakkanesi.
Þistilfjörður að Langanesi er lok
aður. Bakkaflói fullur af ís
4—6/10 og 7—9/10 við land. Þó
er vök meðfram landi frá Langa
nesfonti og inn að Bakkafirði.
ísbelti, að þéttleika 7—9/10,
liggur að Austurlandi allt frá
Digranesi suður á móts við Ing-
ólfshöfða, og lokar öllum fjörð-
um Austanlands. Er ísbelti þetta
breiðast útaf Glettinganesi, 9
sjóm., en mjókkar síðan jafnt
og þétt og er ekki nema 1 sjórn.
og breidd ofan Tvískerja.
Gunnar H. Ólafsson,
skipherra.
Hólmavíkurkirkja vígð
á uppstigningardag
HIN nýja Hólmavíkurkirkja
verður vígð á uppstigningardag,
þ.e. á fimmtudaginn kemur.
Nóbelsverðlaun
í hagfrœði —
Á 300 ÁRA afmælishátíð sænska
ríkisbankans var ákveðið í sam-
ráði við Nóbelsstofnunina, að
efna til Nóbelsverðlauna í hag-
fræði.
Morgunblaðið sneri sér til dr.
Jóhannesar Nordal, seðlabanka-
stjóra, sem er nýkominn heim
frá Svíþjóð, þar sem hann var
gestur Svenska Riksbanken á
300 ára afmæli hans, og spurði
hann frétta um ferðina. Jóhann-
es sagði, að það hefði vakið
mikla athygli, að ríkisbanki
Svía hefði ákveðið í samráði við
Nóbelsstofnunina að efna til ár-
legra verðlauna fyrir vísinda-
störf á sviði hagfræði, en verð-
laun þessi verða jafnhá Nóbels-
verðlaunum fyrir afrek í öðrum
vísindagreinum og veitt á sama
hátt.
Þá sagði Jóhannes, að bank-
inn hefði einnig ákveðið að
stofna vísindasjóð og verja til
sjóðstofnunarinnar hluta af eig-
in fé bankans. Færi sænski bank
inn með þessu inn á svipaða
braut og náði hér fram að ganga
árið 1961 með lögum, er þá voru
sett um Seðlabanka íslands, en
þar er gert ráð fyrir, að Seðla-
bankinn greiði arð af stofnfé
sínu og renni hann til vísinda-
sjóðs.
Kirkjan hefur verið í byggingu
nokkur undanfarin ár, og er hið
glæsilegasta guðshús.
Við vígsluna mun sr. Andrés
Ólafsson, prófastur í Stranda-
sýslu predika, en herra Sigur-
björn Einarsson, biskup, mun
síðan vígja hina nýju kirkju.
Viðstaddir munu einnig verða
nokkrir fyrrverandi sóknar-
prestar á Hólmavík og í Staðar-
prestakalli.
Ferðir verða til Hólmavíkur
frá Umferðarmiðstöðinni hér í
Reykjavík á miðvikudag kl. 8
f.h. Fari'ð verður til baka frá
Hólmavík síðari hluta dags á
fimmtudag. Vígsla kirkjuhnar
hefst kl. 2 síðdegis á uppstigning-
ardag.
Hafásneindin gerði
ályktun til ríkisst jórnar
HAFÍSNEFNDIN hefur setið á
fundum undanfarna daga. Fund-
ur var sl. föstudag, en fyrsti
fundur nefndarinnar fullskipaðr-
ar á sunnudag. Hafa fundar-
menn verið að kynna sér ísmál-
in, bæði vegna hugsanlegra að-
gerða í framtfðinni og eins það
sem nú er mest aðkallandi.
Hoen vnrð
Norðurlonda-
meisturi —
AKUREYRI, 20. mai. — Síðasta
umferð í Norðurlandaskákmót-
inu á Akureyri var tefld í gær.
Freysteinn og Hoen gerðu jafn-
tefli, en Júlíus vann Sveden-
borg. Úrslitin í þriggja manna
keppninni urðu þau, að Hoen
varð Norðurlandameistari mað
4% vinning, annar varð Frey-
steinn Þorbergsson með 3% ög
þriðji Svedenborg með engan
vinning. Úrslit í fjögurra manna
keppninni urðu þau, að Hoen og
Freysteinn urðu efstir og jafnir
með 4% vinning hvor, þriðji
Júlíus Bogason með 2 vinninga
og fjórði Svedenborg með 1
vinning.
í gærkvöldi bauð bæjarstjóm
Akureyrar keppendum, skák-
stjóra og fleirum til kvöldverð-
ar á Hótel KEA og þar afhenti
bæjarstjórinn, Bjarni Einarsson,
verðlaun og þakkaði keppendum
komuna til Akureyrar.
f gær sat hafísnefndin svo aft-
ur á fundi og sendi í gærkvöldi
frá sér ályktun til rikisstjórnar-
innar. Próf. Ólafur Björnsson,
formaður nefndarinnar, vildi
ekki í gærkvöldi láta neitt upp
um efni þeirrar ályktunar, þar
eð ríkisstjórnin væri varla búin
að fá hana í hendur.
Stjórnmúlu-
sumbund við
Arabnríkin
TIL þess að treysta vináttubönd-
in og auka viðskipti og verzlun
við Arabaríkin og ýmis Afríku-
ríki, hefur verið ákveðið að taka
upp stjómmálasamband milli
íslands annars vegar og Samein-
aða Arabalýðveldisins og Eþi-
opíu hins vegar.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
Tónleikor Lúðra-
sveitorinnnr —
LÚÐRASVEIT Reýkjavíkur hélt
tónleika fyrir styrktarfélaga og
gesti í Háskólabíó sl. sumair. Fjöl
menmi var og leik lúðrasveitar-
innar mjög vel tekið. Stjómandi
var Páll Pálsson. Forsetfi íslands
var á tónleikumum og gerðist
hann styrktarféiagi sveitarinniar.