Morgunblaðið - 21.05.1968, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.05.1968, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1068. 31 Á sunnudaginn gekk Leifur H araldsson á Seyðisfirði á f jöll o g tók þá þessa mynd yfir ísi lagðan Seyðisfjörð. Myndin e r tekin úr 800-1000 m hæð. Kosningar á Italíu Róm ,20. maí — (AP-NTB) ÞINGKOSNINGAR fóru fram á Ítalíu í gær, sunnudag, og í dag, og var kjörsókn óvenju mikil. Kjörstöðum var lokað klukkan tvö síðdegis í dag ,og hófst þá talning atkvæða. Kosnir voru - ÍSAL Framh. af bls. 32 áæltun standist með aukinni vinnu. Að sögn forsvarsmanna ISAL tapaðist bæði tími og fé í verkfallinu sl. vetur. Ef höfnin verður ekki tilbúin þegar verksmiðjan hefur fram- leiðslu munu hafnir Reykjavíkur og Hafnarfjarðar ver'öa notaðar til upp- og útskipunar. Um 600 menn vinna nú í Straumsvík og þar af eru ís- lendingar um 85%. Áætlaður byggingarkostnaður við verk- smiðjuna er 35 milljón dollarar, eða liðlega 1800 milljónir ísl. kr. Búið er að eyða um 11 millj. dollara, eða um 600 millj. ísl. kr. og búið er að semja um byggingarframkvæmdir fyrir 27 milljón dollara. Frá byrjun hefur verið greitt í vinnulaun miðað vi‘ð eitt ár um 100 millj. kr. og eru það áætl- aðar launagreiðslur í næstu fram tíð. Nú eru 25 islendingar í Sviss á vegum ISAL til þjálf- unar og hafa þeir verið liðlega hálfan þjálfunartímann, sem er eitt ár. Áætlaður kostnaður við þjálfun þessara starfsmanna er 9 millj. kr. Alusuisse er nú að byggja samskonar verksmiðju og þá í Straumsvík í Essen í Ruhr-hér- aði í Þýzkalandi. Einnig munu þeir væntanlega hefja byggingu slíkrar verksmiðju innan tfðar í Suður-Afríku og víðar. íslenzka álframleiðslan mun verða flutt út til margra landa og má þar nefna: Bretlands, Bandaríkjanna, Suður-Ameríku og einnig til ýmissa Evrópulanda, m.a. Tyrk- lands. Forsvarsmenn Alusuisse lögðu á það áherzlu að þeir væru mjög ánægðir með gang verksins og alla samvinnu við innlenda að- ila. 315 þingmenn Öldungadeildar- innar og 630 fulltrúadeildarþing menn. Endanleg úrslit verða ekki kunn fyrr en síðdegis á morgun, þriðjudag. Ekki er vitað til þess, að kom- ið hafi til neinna alvarlegra árekstra í sambandi við kosn- ingarnar, sem fóru mjög frið- samlega fram. Talið er víst, að samsteypu- stjórn Aldo Moros, forsætisráð- herra, haldi fylgi sínu, en stjórn- in er skipuð fulltrúum kristi- legra demókrata, sósíalista og repúblikana. Nokkur eftirvænt- ing ríkir varðandi fylgi komm- únista. Kommúnistaflokkur íta- Vísitola hækk- or um 2 stig Kauplagsnefnd hefur reiknað vísitölu framfærslukostnaðar í maíbyrjun 1968 og reyndist hún vera 103 stig eða tveimur stig- um hærri en í febrúarbyrjun. Hækkun varð á ýmsum liðum í grundvelli vísitölunnar og fylgdi hún í kjölfar genigisbreyt- inigarinnar á síðastliðnu hausti. Einnig hækkuðu kartöflur um síðustu mánaðamót vegna þess að innfluttar kartöflur komu á markaðinn. Kauplagsnefnd hefur sam- kvæmt 4. gr. samkomulags Al- þýðusambands ísiands og sam- taka vinnuveitenda frá 18. marz 1968, reiknað verðlagsuppbót eft ir breytingu þeirri, sem orðið hefur á framfærslukostnaði í Reykjavik frá 1. nóvember 1967 og til 1. maí 1968. Samkvæmt nið urstöðu þessa útreiknings skal á tírmabilinu 1. júní til 31. ágúst 1968 greiða 4.38% verðlagsupp- bót á laun þeirra launþega, sem nefnt samkomulag tekur til, með þeim takmörkunum, sem ákveðn ar eru í 2. grein þess. Þessi verð lagsuppbót miðast við grunn- laun, og kemur í stað 3% verð- lagsuppbótar, sem gildir á tíima- bil'inu 19. marz til 31. maí 1968. líu er öflugasti flokkur komm- únista vestan járntjalds, og hlaut við síðustu kosningar um fjórð- ung greiddra atkvæða. Segja sumir, að hann hafi misst spón úr aski sínum fyrir þessar kosn- ingar þegar friðarviðræður hóf- ust í París milli styrjaldaraðila í Vietnam, og gætu þær viðræð- ur haft einhver áhrif á úrslitin. Alls voru um 36 milljónir kjós enda á kjörskrá og sums staðar var kjörsóknin 96%. Þorsteinn Eggertsson Mdlverkasýning í Keflovík UNGIJR keflvískur listmálari, Þorsteinn Eggertsson, opnaði sl. sunnudag sýningu á 22 málverk- um í sérstökum sýningarsal Iðn- félagshússins í Keflavík. Verkin eru unnin á tímabilinu 1961— 1967. Sýning Þorsteins stendur væntanlega yfir til 26. þ.m. Þorsteinn Eggertsson hefur áð- ur sýnt á samsýningum hérlend- is á Mokkakaffi og víðar. Hann stundaði myndlistarnám í Kaup- mannahöfn fyrir fáeinum árum og hefur eftir komuna til Is- lands kennt teiknun í barnaskól- um í Reykjavík og Keflavík. Hann hefur ennfremur lagt drjúga hönd á textagerð o. fl. Sýning Þorsteins í Iðnfélagshús- inu er fyrsta einkasýning hans fram að þessu. Flestar myndanna á sýningunni eru til sölu. Geta má þess, að salurinn í Iðnfélagshúsinu, sem Þorsteinn sýnir í nú, er sérstaklega gerður fyrir listaverkasýningar og er í honum mikill fengur fyrir mynd listarmenn á Suðurnesjum. EL C0RD0PES átti við sauðmeinlaust naut — Eitt mesta 'nautabanahneyksli Spánar á síðari tímum Madrid, 20. maí — NTB Á LAUGARDAGINN gerðist atburður í Madrid, sem sagð- ur er einsdæmi og- eitt mesta nautabanahneyksli síðari tíma á Spáni. Hinn kunni nautabani, Migulin, sem heit- ir fullu nafni Miguel Mateo, var meðal áhorfenda, þar sem helzti keppinautur hans, EI Cordobes, hinn frægi, var að berjast við naut eitt við mikla hrifningu. Allt í einu gerði Migulin sér lítið fyrir og snaraði sér inn á leikvang- inn, klæddur venjulegum dökkum fötum og vopnlaus, tók í horn nautsins og reyndi allt hvað hann gat til að egna dýrið gegn sér. Áhorf- endur stóðu á öndinni af æs- ingi, en ekkert gerðist.... Nautið sýndi engin merki þess, að það ætlaði að ráðast á nautabanann. Loks gekk hann um með það, kyssti það á ennið og hallaði sér upp að því og alltaf var nautið jafn vinalcgt og friðsamlegt. Keppi nauturinn, E1 Cordobes, horfði á gramur á svip, en gerði sig í engu líklegan til þess að taka upp þann hanzka sem Migulin hafði kastað. Ástæðan til þess, að Migu- lin tók upp á þessu er sú, að hann og margir aðrir hafa haldið því fram, að E1 Cordo- bes velji sér til viðureignar sauðmeinlaus naut og tamin og sé því ekki í neinni hættu, þegar hann fæst við þau. En Migulin komst ekki upp með þetta átölulaust. Lögreglan tók hann í sína vörzlu og sleppti honum ekki fyrr en á sunnudagskvöldið, er hann hafði greitt 40.000 peseta í sekt fyrir uppátæki sitt. í dag fékk hann að gera grein fyrir máli sínu og sagði þá, að hann hefði í fimm ár átt í erjum við E1 Cordobes og hvað eft- ir annað skorað á hann að keppa við sig gegn viðunandi hættulegum nautum, en E1 Cordobes hafi ávallt neitað og jafnframt haldið Migulin frá nautaötum með því að neita að koma fram á sama stað og tíma og hann. I Koffísnla hjd hjúkrunar- konum — HJÚKRUNARKONUM er nauðsynlegt að viðhalda og efla kunnáttu sína, svo þær geti gegnt hlutverki sínu þannig, að örar framfarir heilbrigðisþjón- ustunnar heri sem beztan árang- ur. Fram til þessa hafa hjúkr- unarkonur orðið að sækja fram- haldsmenntun sína til annarra Ianda, og þá hefur norræn sam- vinna hjúkrunarkvenna verið ís lenzku stéttinni ómetanleg. Hjúkrunarfélag íslands held- utr kaffisölu, að þessu sinni til fjáröflunair, til þess að geta stuðl að að þáfcttöku íslenzkra hjúkr- unarkvenna í fræ ðslunámsskeið - um samvinminnar. Velunnarar félagsins eru minntir á kaffisöluna í Súlnasal Hófcel Sögu á fimmtu- daginn 23. maí kl. 15.00 góðar veitimgar og ánægjuleg dagstund en á dagskrá er: 1. Damssýning 2. tízkusýning 3. 12 dömur og drengjaflokk ur úr Júdódeild Ármanns sýna. 4. Borðmúsík. Jan Morávek og Árni Ísleifsson. RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA 5ÍMI 1D>10Q Biskup vísiterar í Húnavatnssýslu Biskupinn yfir fslandi, herra Sigurhjörn Einarsson mun vísi- tera þrjár sóknir í Húnavatnis- sýslu í þessari viku. f dag vísi- terar hann Breiðabólstaðar- kirkju í Vesturhópi kl. 14 og kl. 17 í dag Vesturhópshóla- kirkju. Á morgun 22. maí kL 14 vísiterar biskup Tjarnar- kirkju. Guðsþjónustur verða í hverri kirkju í sambandi við vísdtaisí- una og þar mun biskup predika. Á eftir mun hann eiga viðræð- ur við sóknarnefndir og söfn- uði. - ÍÞRÓTTIR Framh. af bls. 30 ir nær óslitna sókn. f síðari hállfleik skoraði Sverri Brynjólfsson með föstu skoti, sem Diðrik hafði hálfvarið en missti milli fóta sér í netið. Að- dragandi að því marki var falleg ur. Rétt fyrir lok leiksins skoraði Kjartan Kjartansson útherji eft- ir eldsnöggt sólóupphlaup. Sem fyrr segir var sigur Þrótt- ar sízt of stór og hafa VíMngar nú eftirm:nnilega kynnzt því, að „enginn verður óbarinn biskup". Dómari var Guðjón Jónsson og dæmdi vel ,og er fagnaðarefni að sjá hann aftur við dómarastörf á vellinum. - SIGLUFJÖRÐUR Frambaild af bis. 3. fer jafnframt fram vinabæjairmót Siglufjarðar og vinabæja hans á Norðurlöndum. Fleiira er í sambandi við þetta atfmæli. T.d. verður myndarlegt skíðamót um hvítasunnuna, svo- feallað Sfearðsmót, sem sófct verð iuit af flestum þekkfcustu skíða- mönnum landsins, sem og tveim- ur heimsfrægum skíðamönnum frá Noregi. Síðaista dag júnímánaðar verð ur hér landsmót Lúðrasveifca og verður það einmifct haldið á Siglu firði vegna hátíðaársins. Eru þá væntanlegir hingað 150 blásamar ásamt fylgdarliði. — Stefán. 4 klukkustundir að slökkva eld í mosa — FIMM lögregluþjónar úr Hafnar firði fóru um 12 leytið í gær í Eldborgarhraun á Krísuvíkurleið til að slökkva eld í mosa. Var þar albnikill eldur víðsvegar í hrauninu og tók það lögregluna fjórar klukkustundir rúmiar að slökkva hann. Mosinn þairoa er nú mjög þurr, og því hvetur llög reglan í Hafnarfirði menn til að faina varlega með eld í hraun- inu. tnikið fyrir einu litlu skipi. Þó má greina Björgúlf frá Dalvík milli Hríseyjar og lands. Hann kom inn til Akureyrar í gær og hafði laskað skrúfuna. (Ljósm. Sv. P.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.