Morgunblaðið - 15.06.1968, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.06.1968, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1968 - NATO Framhald af bla. 1 fleiri norskum bæjum“, segír Livstov. Hann bætir því við, að með aðild að NATO, séu Norð- menn ekki í bandalagi við frið- elskandi Þjóðverja, heldur við bernaðarsinna í Sambandslýð- veldinu, beinna arftaka „Wehr- macht“ og stefnu Þriðja-ríkisins, afla, sem hugsi einungis til hefnda. Að sögn Livtsovs er þetta að- eins ein þverstæðan í NATO- stefnu Noregs. Önnur er sú að enginn minnist lengur í Noregi á ógnun að austan. Þetta hljóti að sýna enn ljósar hve tilgangs- laus tilvera Atlantshafsbandalags ins er. Telur Livtsov þetta ástæð una fyrir því, að vandlega sé reynt að breiða yfir árásartilgang NATO með því að nefna það varn arbandalag. „En einnig þetta er þversögn", segir hann. Ahrifa- miklir norskir stjórnmálamenn beita sér gegn því að Noregur gangi úr NATO, ekki á þeim grundvelli að einhver hætta steðji að frá Sovétríkjunum, held ur leita þeir „röksemda í þoku- hulinni framtíð". En er nokkur minnsta ástæða til þess að ætla að friðarást Sovétríkjanna muni nokkurn tíma breytast, spyr Livstov. Sovétríkin, sem með blóð sona sinna hjálpuðu Noregi til að varpa af sér oki Hitlers, munu ætíð vera traustur vinur norsku þjóðarinnar: NATO aftr- LEIÐRETTING ÞAU mistök urðu í fráaögn af aðalfundum Almenna bókafélags ins og Stuðla h.f. hér í blaðinu í gær, að þar sem stendur, að heildarsala á bókum AB hafi auk izt um 14. Á að sjálfsögðu að standa, að heildarsalan hafi auk- Izt um 14 prósent. Eru lesendur beðnir velvirðingar á þessum mistökum. ar því að þessi vinátta eflist og þróist. f grein sinni vísar Livtsov á bug þeirri fullyrðingu, að aðild að NATO dragi úr fjárveitingum til varnarmála. Segir hann að kostnaður þessi fari sí-vaxandi, en að úr honum dragi, ef Noreg- ur segir sig úr NATO. Vísar hann í því sambandi til fjárlaga Finn lands og Austurríkis. — „Einnig er rétt að benda á að svonefnd aðstoð frá bandalagsríkjunum í NATO er aðallega fólgin í því að koma upp margskonar bæki- stöðvum og herstöðum á norsku landi, stöðvum sem, ef til vopn- aða átaka skyldi koma, geta orð- ið skotmörk fyrir kjarnorku- vopn“. Livtsov segir, að ekki megi taka alvarlega þá staðhæfingu að NATO skapi jafnvægi í Evrópu. Ekki megi heldur taka alvarlega fullyrðingu um að bandalaginu sé í æ ríkara mæli beitt til að finna friðsamlegar lausnir vanda málanna. Hann mælir gegn þeirri fullyrðingu að Noregur hafi ekki um annað að velja að aðild að NATO með tilliti til hernaðarlega mikilvægrar legu landsins. En sýna ekki Svíþjóð og Sviss að annarra kosta er völ, spyr hann. Væri ekki rökréttara að álykta að einmitt aðild að NATO fæli í sér hættu á að dragast inn í vopn uð átök? Livtsov telur að fylgjendur NATO-aðildar Noregs skilji þetta, og reyni eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að áframhaldandi aðild Noregs verði rædd á breiðum grundvelli. Vísar hann til ummæla, sem fram hafa komið í norskum blöðum, um að aðild Noregs að NATO feli í sér stuðning við mesta aft- urhalds- og árásaröfl heimsins í dag. Þing Norrræna Krabbameinss ambandsins. Þing norrœna Krabba- meinssambandsins hér Þing Norræna Krabbameins- sambandsins er nú haldið á ís- landi í 3ja sinn. Formenn og að- alritarar allra norrænu krabba- meinsfélaganna koma saman ár- lega á Norðurlöndunum til skift is, eða 5 hvert ár í hverju landi. Þeir sem eiga aðild að Krabba- meinssambandinu, eru formenn krabbameinsfélaganna fimm og aðalritarar þeirra. Síðustu árin hefur tíðkast að halda læknafundi í framhaldi af þinginu, þar sem læknar frá öll- um Norðurlöndunum gefa yfirlit um nýjustu rannsóknir og fram- farir í meðferð ákveðinnar krabbameinstegundar. Samtímis krabbameinsþinginu halda formenn Krabbameinskrán inga allra Norðurlandanna sam- ieginlega fundi, þar sem þeir ræða mál krabbameinsskráning- anna og gefa síðan skýrslur um starfsemi þeirra á fundi sem for mönnum og aðalriturum krabba meinsfélaganna. Krabbameins- skráningin hefur þýðingarmiklu hlutverki að sinna, því hún er meðal annars lykillinn að vís- indalegum rannsóknum og úr- vinnslu á landfræðilegri út- Hörður Ágústsson og Björn Jakobsson í nýja sýningarsalnum. Þeir standa við málverk eftir Svavar Guðnason og Þorvald Skúlason. Nýr sýningarsal- ur tekur til starfa Opnar með málverkum 23. kunnra listamanna NÝR listsýningarsalur, af þeirri gerðinni sem erlendis nefnist Gallerí, hefur verið opnaður á Laugavegi 31. Nefnist hann sýn- ingarsalurinn Persia og er til húsa í afgirtum salarkynnum í samnefndri verzlun. Verða þar nú til sýnis og sölu málverk og höggmyndir eftir viðurkennda listamenn. Hörður Ágústsson, listmálari, verður listaráðunaut- ur þessara sýninga, en Björn Jak obsson, einn af eigendum Persíu, sér um reksturinn að öðru leyti. Verðnr opnunardagur sýningar- innar á sunnudag og þá opið al- menningi kl. 2-7. Blaðamönnum var boðið að skoða hinn nýja' sýningarsal, er fyrstu myndum hafði verið kom- ið þar fyrir, en þær eru eftir 23 listamenn. Hörður sagði við það tækifæri, að nokkrum sinnum hefðu verið gerðar tilraunir til að koma upp sýningarstað, þar sem listmálarar gætu sýnt og selt verk sín og borgarbúar átt aðgang að því að skoða þau, en slíkir sölustaðir listaverka eru til í öllum borgum og nefndir Gallerí. En þetta hefur aldrei gengið. Kannski af þvi að i landi kunningsskaparins geta svo marg ir skroppið heim til málarans og af því markaðurinn er of líttill til að standa undir kostnaði. En í vetur kom Björn Jakobsson í Persíu að máli við Hörð og bauðst til að veita aðstöðu í verzlun sinni, ef hann vildi sjá um hina listrænu hlið málsins. Björn sér svo um daglegan rekstur, en op- ið er meðan verzlunin er opin. Þarf þá ekki sérstakan mann til að gæta málverkanna. Hörður hefur milligöngu við listamenn- ina og ber að vissu leyti ábyrgð á myndunum. Lagt hefur verið í nokkurn kostnað við að stúka af sýningar- svæðið, en þar eru nú málverk í tveimur þægilegum stofum, en einnig er hægt að hengja upp myndir á stórum vegg framm í verzluninni, ef vill. Sagði Hörð- ur, að þarna væri samsýning á því bezta í listum, sem nú væri verið að gera. Listamennirnir eru 23. Þó vantar nöfn, sem ættu að vera þarna, sagði Hörður. Ekki töldu allir sig hafa aðstæður til að sýna núna, en kæmu mað seinna. Þeir sem eiga þarna mynd ír nú eru: Þorvaldur Skúlason, Svavar Guðnason, Guðmunda Andrésdóttir, Hjörleifur Sigurðs son, Steinþór Hjörleifsson, Krist- ján Davíðsson, Jóhannes Jóhann esson, Eiríkur Smith, Hafsteinn Austmann, Benedikt Gunnars- son, Hörður Ágústsson, Steinþór Hjörleifsson, Sigurður Sigurðs- son, Einar Hákonarson, Sverrir Haraldsson, Jóhannes Geir, Hrólfur Sigurðsson, Magnús Á. Árnason, Einar Baldvinsson og Veturliði Gunnarsson. Seinna mætti svo nota salinn fyrir sýningar einstakra lista- manna og jafnvel fá hingað er- lendar myndir, að því er Hörður sagði. Fyrsti dagur sýningarinn- ar er á sunnudag og þá opið á sama tíma og verzlanir og að- gangur öllum frjáls og kostar ekk ert breiðslu krabbameinstegundanna hegðun þeirra og tíðni í löndum Aðeins 24 lönd í heiminum hafa krabbameinsskráningar, en sumar þeirra ná einungis yfir landshluta eða einstakar borgir. Nórðurlöndin hafa öll mjög full komnar krabbameinsskráningar, þar sem hvert krabbamein, sem finnst, er skráð, skýrt frá með- ferð þess og afdrifum sjúkling- anna. 3 leitarstöðvar á íslandi. Krabbameinsfélag íslands rek ur nú 3 Krabbameinsleitar- stöðvar. A-stöðin tekur á móti fólki yfir fertugt, sem virðist heilbrigt, en æskir skoðunar með sérstöku tilliti til krabba- meins. Sú stöð hefur verið starf rækt í 11 ár. B-stöðin hóf starfsemi sína 1964. Hún sinnir eingönigu leit að legháls og legkrabbameini. I fyrstu umferð voru skoðaðar 17.265 konur á aldrinum 25-60 ára, nær allar úr Reykjavík og nágrenni. í þeirri leit fundust 130 tilfelli af staðbundnu krabba meini og 48 af ífarandi krabba- meini. Nær allar þessar konur hefur tekizt að lækna, þar sem flest meinin voru á frumstigi eða byrjunarstigi. C-stöðin hóf starfsemi sína seint á síðast- Framhald á bls. 13 - STORÞINGIÐ Framhald af bls. 1 lausn, væri það gjörsamlega til- gagnslaust frá sjónarhóli heims- ins og Noregs, að Norðmenn leggðu sig fram um að leysa upp það svæðabandalag, sem þeir væru aðilar að. I NATO eru lönd, sagði Svenn Stray, sem ekki virða ákvæði Atlantshafssáttmálans um að tryggja og efla innra frelsi aðild arríkjanna og réttindi borgar- anna. Þáð kann að virðast þver- stæða, að þessar þjóðir séu aðil- ar að NATO, sagði hann, en það er samt sem áður rangt mat að krefjast þesss, að Noregur eigi að segja sig úr NATO af þessari ástæðu, og hann benti á atburði úr starfi Sameinúðu þjóðanna. 1 þeim samtökum sætu Norðménn ásamt fjölda landa, sem væru langt frá því að vera lýðræðis- leg. Enginn krefst þess samt sem áður, sagði hann, að þau verði rekin, því að þessi lönd leggðu einnig fram sinn skerf til þess að höfuðmarkmiði Sameinuðu þjóðanna — frfði og samstarfi milli allra þjóða heims — yrði náð. Finn Moe úr Verkamanna- flokknum, sagði að reynslan sann aði, áð aðild að NATO hindraði Norðmenn ekki í því að berjast gegn einræði og nýlendustefnu aðildarríkja bandalagsins. Eftir hina einör’ðu afstöðu, sem Noreg ur hefði tekið gegn einræðinu í Grikklandi og nýlendustefnu Portúgala, væri ekki unnt að halda því fram, að Norðmenn við urkenndu þetta ástand, vegna þess að þeir væru í NATO. Þvert á móti hefði gagnrýnin meiri á- hrif, vegna þess að þeir væru aðilar að bandalaginu. Það er erfitt að gera sér grein fyrÍT því sagði hann hvers vegna ástandfð í Grikklandi og Portú- gal ætti frekar að leiða til þess, að Noregur segði sig úr NATO, en sitja áfram með þessum ríkj- um í Sameinuðu þjóðunum, EFTA og öðrum alþjóðlegum sam tökum. Brottför Noregs úr NATO myndi ekki leiða til stjórnar- skipta í Grikklandi, sagði Finn Moe, Portúgal myndi ekki taka upp nýja stefnu í nýlendumálum vegna þess, stríðinu í Vietnam yrði heldur ekki þar með lokið. Segja má, að við skytum okkur undan ábyrgð. En að mínu áliti, sagði hann, höfðu við miklu meiri áhrif með því að taka óskiptir þátt í alþjóðlegu samstsnfi. Talsmenn Miðflokksins og Kristilega þjóðarflokksins, tóku mjög I sama streng og framan- greindir ræðumenn. Finn Gustavsen, talsmaður Sosilaistisk folkeparti, sem er minnsti flokkurinn á Stórþing- inu með aðeins 2 þingmenn af 150, lag'ði til í ræðu sinni, að stofnuð yrði opinber nefnd er kannaði í sambandi við mögu- leikana á úrsögn úr NATO 1969, afleiðingar breyttrar utanríkis- stefnu frá efnahags- og stjóm- málalegu sjónarmiði. Hann lagði og til, að ríkið styrkti almstnna- samtök og minnihlutahópa til að reka upplýsingaherferð sam- kvæmt reglum, sem Stórþingið samþykkti. Hann mótmælti aðild að NATO og sagði, ftð Noregur nyti sín fremur á alþjó’ðavett- vangi, ef hann fylgdi hlutleysis- stefnu. Þá ræddi Gustavsen um áætlanir NATO um afskipti af þróun mála í einstökum aðildar- rikjum, er hún væri komin á ákveðið stig. Sagði hann, að í þessum áætlunum væri Noregur hátt skrifaður, sem land, þar sem afskipti kynnu að verða nauð- synleg. Otto Grieg Tidemand, varnar- málaráðherra, fullyrti, að engar slíkar áætlanir væru fyrir hendi og hann spurði Finn Gustavsen beinnar spurningar: „Ætlar Gustavsen að halda því fram, að þessi skjöl séu raunveruleg?“ Gustavsen neitaði áð svara þessu, en sagðist vilja kynna sér betur orðalag ráðherrans, áður en hann svaraði. Fjölmargir þingmenn tóku þátt í umræðunum og um tíma voru 65 á mælendaskrá. Síðdegis í gser, föstudag, felldi Stórþingið tillögu þess efnis, að Noregur segði sig úr NATO eins fljótt og unnt yrði eftir 24. ágúst 1970, en á þeim degi er samkvæmt sáttmála bandalagsins unnt fyrir aðildar- ríki að segja sig undan skyldum við hann. Var tillaga þessi felld, en áðeins sex þingmenn greiddu henni atkvæði sitt, en eins og áður segir eiga 150 þingmenn sæti á norska þinginu. öðrum til- lögum, sem fram komu í um- ræðunni var vísað til ríkisstjórn- arinnar. LEIÐRETTING í skák þeirra Taimanovs oig Ostojic sem birtist í blaðinu í gaer voru þrjár villur snemma í skákinni. í stað 3. Rf6 átti að standa Rf3. 4. leikur átti að vera 4. Rc3, Bb7 Leenidur eru beðnir afsökunar á þessum villum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.