Morgunblaðið - 26.07.1968, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚL.Í 1968
Fyrsta saltaða síldin komin
til Raufarhafnar
Raufarhöfn, 25. júlí.
Frá blaðamanni Mbl. Birni
Bjarnasyni.
ELISABETH Hertzner, færeyska
skipið, sem Valtýr Þorsteinsson,
útgerðarmaður á Akureyri leigði
til þess að salta um borð í á
síldarmiðunum, kom til Raufar-
hafnar í gær kl. 12.40 með 3976
tunnur síldar.
Skipið hélt á síldarmiðin við
Svalbarða 6. júlí og 11. júlí hófst
söltun um borð í því. Ellefu
stúlkur unnu að söltuninni, en
þær hafa allar áður unnið á sölt
unarstöð Valtýs Þorsteinssonar í
landi. Um borð í skipinu voru
auk þess 16 karlmenn og 6 manna
færeysk áhöfn. Söltun lauk um
borð 22. júlí og var þá haldið
til lands. Síldartunnunum er nú
skipað upp á Raufarhöfn og
verður hluti þeirra væntanlega
sendur til Finnlands með Dís-
arfellinu um helgina.
Söltunarstarfið um borð I skip
inu fór fram á sama hátt og á
7 skip með 1835 lestir
GOTT veður var ásíidarmiðun-
um sl. sólarhring, og var kunn-
ugt um afla 7 skipa, samtals
1.835 lestir.
Gígja Re. 350 lestir
Sigurbjörg ÓF 280 —
Dagfari í>H 240
Guðrún Guðleifsd. ÍS 215
Birtingur NK 240
Kristján Valgeir NS 280
Sóély ÍS 200
Stöðugt unnið
/ Norðurstjörnunni
NORÐURSTJARNAN h.f. í
Hafnarfirði á nú um tveggja
mánaða birgðir af frystum sild-
arflökum til niðursuðu. Unnið
er stöðugt að því að sjóða nið-
ur síld, sem tveir bátar — Haf-
rún frá Bolungarvík og Hrafn
Sveinbjamarson HI hafa aflað
til þessa, aðallega úr af Akra-
nesi, en þeir eru nú komnir suð-
ur fyrir land, þar sem þeir em
að leita fyrir sér.
Guðmundur Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Norðurstjörnunn-
ar, sagði, í viðtali við Mbl., að
rekstur verksmiðjunnar væri nú
að komast á rekspöl, hann gengi
betur og betur. Bátarnir tveir
hafa fengið þó nokkra síld í
mánuðinum og hefur hún reynzt
gott hráefni til niðursuðunnar.
Guðmundur kvaðst vonast til að
síldin hagaði sér eins og að und-
anförnu — að hún kæmi er líða
tæki á haustið.
frwíawMíi'ja-ih
V
ÍSíRit, &
mm-%
mimmm, ra
i%n> & féJTí “M. m
mm&m
&mw,
//
Alþýðublaðið" í Peking:
„íslendingar mót-
mæla leynifundi..."!!
„NIÐUR með árásar-glæpa-
mennina í Víetnam". „Niður
með Norður-Atlantshafs-
svika-samtökin“. „íslending-
ar mótmæla leynifundinum,
sem Rusk kallaði saman“.
Þannig hljóðuðu fyrirsagnir
á frétt „Alþýðublaðsins" í
Peking um fund Atlantshafs-
bandalagsins í Reykjavik.
Meðfylgjandi mynd er af
fréttinni í blaði þessu og þýða
tákn þau, sem eru í sviga nr.
1. ísland.
í fréttinni er sagt, að mörg
hundruð mótmælenda hafi
gengið 35 enskar mílur í mót-
mælagöngu og borið spjöld
með ýmsum áletrunum. Jafn-
framt er sagt, að 24. júni sl.
„við opnun leynifundar Norð-
ur-Atlantshafs-árásarblokkar-
innar“ hafi mótmælasam-
koma verið haldin.
síldarplani í landi og var hand-
afli nær eingöngu beitt við sölt-
unina. Síldarstúlkur, og aðrir
sem um borð í skipinu voru, láta
vel af vistinni þar og hyggjast
halda með því út á ný um helg-
ina.
Hreiðar Valtýsson, fram-
kvæmdastjóri var um borð í
skipinu í fyrstu ferðinni og sagði
að engir erfiðleikar hefðu ver-
ið við söltun um borð í því og
hefði skipið, sem er 800 lestir
að stærð reynzt heppijegt til
þessara nota.
Að ósekju valda þær náttúruspjöllum. Einhver hefur skilið
eftir opið hlið, sem átti að loka trjáreit þessum fyrir ágangi
dýra.
Munið: Gerið ekkert það sem skemmt getur gróður lands-
ins. Freistið ekki sauðkindarinnar.
Þingeyskir bændur í hey-
vinnu í Eyjafirði
— Kaupa þaðan helming þess heys, sem
þeir þurfa, hinn helminginn af Suðurlandi
Akureyri, 25. júlí.
BÆNDUR úr Norður-Þingeyjar-
sýslu eru nú staddir í Eyjafirði
og vinna þessa dagana að hey-
bindingi á Grund og nokkrum
öðrum bæjum. Fyrirliði þeirra
er Jóhann Helgason, bóndi í Leir
höfn. Fjórir bílar frá Þórshöfn
og úr Þistilfirði voru í dag að
lesta hey í tilraunastöðinni á
Akureyri, í Krossanesi og á Litla
Hóli. Bændur af Sléttu og nálæg
um sveitum eru búnir að fá lof
orð fyrir 8000 hestburðum í Eyja
firði. Mest kaupa þeir af Snæ-
birni, bónda á Grund, bæði gam-
alt hey og allan heyskap þessa
sumars. í hinu svokallaða Grund
arhólfi var öllu sauðfé slátrað í
fyrra og þar að auki fargaði
Snæbjörn öllum sínum kúm,
vegna hringskyrfisins.
Helga J. Paul
Yfirdýralæknir heimilaði ný-
lega fluttninga á heyi úr hólf-
inu og verða seldir 2500 til 3000
hestar af gömlu heyi, aðallega
til Núpasveitar, Axarfjarðar,
Sléttu og í vestanverðan Þistil-
fjörð, en þessar sveitir eru ekki
mjólkurframleiðslusvæði. Mest
af þessu heyi er inni í hlöðum
og því tafsamt verk að binda
það.
í Norður-Þingeyjarsýslu er tal
ið, að þörf sé á að kaupa 16000
hestbur'ði i sumar. Bændur munu
kaupa heyköggla frá Gunnars-
holti, sem svarar 4000 til 5000
hestum og viðbótina víð&vegar á
Suðurlandi, einkum úr Rangár-
vallasýslu. Nú þegar er byrjað
að flytja norður 500 til 500 hesta
úr Þjórsárdal.
Hér í Eyjafirði er þessa dag-
ana stillt veður en sólskinslítið
og 15 til 20 stiga hiti dag hvem.
Spretta í Eyjafirði er almennt
talin sæmileg, en þó ber nokkuð
á blettakali í túnum, svo að gert
er ráð fyrir, að heyfengur verði
í rýru meðallagi.
— Sv. P.
Ok réttin dalaus og
stórskemmdi bíiinn
RÉTTIND ALAU S ökumaSur
stórskemmdi bíl í fyrrinótt, þeg-
ar hann ók niður umferðarskilti
á umferðareyju, en síðan rann
bíllinn um 30 metra eftir eyj-
unni. Þrír farþegar voru í bíln-
um og var allt fólkið flutt í
Slysavarðstofuna, þar sem gert
var að meiðslum tveggja far-
þeganna.
Umferðaróhapp þetta varð á
Suðurlandsvegi, þar sem hann
beygir austur Bæjarháls. skömmu
eftir miðnætti í fyrrinótt. Mun
ökumaðurinn einhverra hluta
vegna ekki hafa séð umferðar-
eyjuna í tæka tíð og lenti bíll-
inn fyrst á umferðarmerki á
enda hennar og braut það nið-
ur, en fór síðan um 30 metra
eftir eyjunni, sem er með um
15 sm. háum steinköntum og
ekki breiðari en svo, að hún
komst á milli hjóla bílsins.
Stúlka, sem var í bílnum,
hafði hann að láni þetta kvöld
Stórgjöf til skógræktar
FRÚ HELGA Jónasdóttir Paul,
sem búsett er í Palmas í Cali-
forníu, hefur gefið kr. 100.000
til skógræktar á íslandi. Hún
var systir Sigurðar heitins Jón-
assonar forstjóra, sem flestir ís-
lendingar könnuðust við. For-
eldrar þeirra voru Jónas Jón-
asson frá Húki og Sigurborg
Geirmundsdóttir. Gjöfin er til
minningar um Sigurð og for-
eldra þeirra systkina.
í bréfi Helgu til mín dags.
17. janúar í vetur, taldi hún
æskilegt áð þessi minningarlund
ur yrði nálægt Geysi í Biskups-
tungum, en sem kunnugt er
keypti Sigurður Geysi, Strokk
og næstu hveri þar hjá, af Eng-
lendingum fyrir mörgum árum
og gaf íslenzka ríkinu. Englend-
ingar höfðu komizt yfir þessa
hveri fyrir löngu en létu þá
síðaT fala fyrir margfalt verð.
Þessi kaup og gjöf Sigurðar voru
hið mesta drengskaparbragð,
eins og mörg fleiri, sem hann
gerði á lífsleiðinni. Flestir vita
að hann gaf ríkinu Bessastaði
fyrir forsetasetur, en hinir eru
færri, sem vita það, að eitt
sinn gaf hann dúnsængur í rúm
allra sjúklinga á Vífilsstaða-
hæli auk margs annars, sem
hvergi mátti hafa í hámæli.
Minningarlundi þessum var
valinn stáður í fallegum brekk-
um í Haukadal í Biskupstimgum,
þaðan sem sér vel til Geysis, og
var í hann plantað nokkur þús-
und trjám á þessu vori. Á næsta
vori verður minningarlundurinn
fullgerður, og verður þá komið
upp áletruðum steini um leið,
er skýri frá því hvernig lundur-
inn er til orðinn.
Skógræktarmenn um land allt
fagna þessari höfðinglegu gjöf
frú Helgu.
Reykjavík, 24. júlí 1968.
Hákon Bjamason.
og leyfði hún manninum að aka,
án þess að vita, að hann væri
réttindalaus.
Fannst
krossfestur
í London
Londion, 25. júlí. AP—NTB
f DAG fanns-t maður krosK-
festur í Hampstead Heath í
London. Stóðu kúiu þumlunga
naglar í gegmim lófla Ihants en
ekki var neglt gegnum fæt-
uma, 'heldur voru þeir vafð
ir Ihandklæði og þeint tyllt
við trésítokk. Maðurinn var lif
andi, þegar hann fannst en
virtiöt í eirthverskonar ann-
arlegiu ástandi eða „trans".
Hann var þegar fluttur í
sjúkrahús og á leiðinni skipt-
ist hann nokkru m orðum við
ökumann sjúkrabifreiðarinnar
og fylgdarmann hans.
Maðurinn, sem sagður er
heita Joseph Richard de Havi
land, um þrítugt að aldri, var
nakinn niður að mitti, þegar
hann fannst. Krossinn var
reistur upp við tré en þar
skammt frá fann lögreglan
grænan jakka, köflótta
skyrtu, hálsbindi, hamar og
poka me'ð nöglum.
Mennirnir, sem óku með Hav
iland til sjúkrahússins, sögðu
að svohefði virzt sem hann
kenndi ekki sársauka, þegar
hann var tekinn ofan af kross
inum og lagður í sjúkrakörfu.
Þeir kváðust hafa spurt hann,
hvemig honum liði og hann
hefði svarað að sér liði bæri-
lega. Þegar síðast fréttist var
maðurinn enn í móki. Lög-
reglan hefur handtekið ónafn ’
grehidan mann vegna atburð-
ar þessa, en ekki hafa verið
gefnar nánari upplýsingar um
málið.